Morgunblaðið - 20.01.2001, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.01.2001, Blaðsíða 22
VIÐSKIPTI 22 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÍSLENSKI hugbúnaðarsjóðurinn var rekinn með 21 milljónar króna tapi eftir skatta á síðasta ári en árið 1999 nam hagnaður sjóðsins 41,5 milljónum króna. Fjármunatekjur ársins voru 92 milljónir og jukust um 8% á milli ára en fjármagnsgjöld juk- ust verulega eða úr 14,7 milljónum ár- ið 1999 í 50,75 milljónir í fyrra. Rekstrargjöld voru 50,1 milljón á móti 13,6 milljónum árið áður. Í tilkynningu frá sjóðnum kemur m.a. fram að fjárfest var í hlutabréf- um fyrir 1.260 milljónir á árinu. Eigið fé jókst um 1.563 milljónir. Í hluta- fjárútboði sem fram fór árið 2000 var selt hlutafé að nafnverði 117,6 millj- ónir og nam söluverðið 1.563 milljón- um. Breyttar reikningsskilavenjur Tekið skal fram að breytingar urðu á reikningsskilum félagsins á árinu. Eignarhlutir þess í félögum sem skráð eru á hlutabréfamarkaði eru nú bókfærðir á skráðu gengi þeirra í síð- ustu viðskiptum á árinu. Mismunur á bókfærðu verði bréfanna og fram- reiknuðu kostnaðarverði þeirra í árs- lok er færður til gjalda sem gengis- lækkun hlutabréfa meðal annarra tekna og gjalda í rekstrarreikningi. Gengislækkun hlutabréfa að frádreg- inni tekjuskattsskuldbindingu er færð á sérstakan lið meðal eigin fjár í efnahagsreikningi. Áhrif þessara breytinga eru þau að tap fært á eigið fé er 14,1 milljón hærra en verið hefði miðað við óbreyttar reikningsskilaað- ferðir og eigið fé í samræmi við það 14,1 milljón lægra. Í tilkynningu segir að frá áramót- um hafi Íslenski hugbúnaðarsjóður- inn fjárfest í einu félagi, Mint AB í Svíþjóð. „Fjárfesting í Mint AB markar þá stefnu Íslenska hugbún- aðarsjóðsins að hefja fjárfestingar á Norðurlöndunum í samstarfi við er- lend fjárfestingarfélög. Fjárfesting- arnar munu áfram beinast að hug- búnaðarfyrirtækjum með mikla útrásarmöguleika. Gert er ráð fyrir því að innlausn gengishagnaðar í nú- verandi félögum verði á næstu 1 til 5 árum.“ Þá hefur stjórn félagsins ákveðið að leggja fyrir aðalfund að tap ársins verði fært til lækkunar óráðstafaðs eigin fjár og að óska eftir heimild til kaupa á eigin hlutum fyrir allt að 50 milljónum að nafnverði og skal kaup- verðið vera á gengi sem hvorki sé meira en 10% hærra né meira en 10% lægra en skráð gengi á Verðbréfa- þingi Íslands hverju sinni. Þá verður óskað eftir heimildum aðalfundar til þess að auka hlutafé félagsins og breyta ákvæðum samþykkta um mætingu á hluthafafundi og magn at- kvæða til breytinga á samþykktum. Mikil aukning í hlutabréfaeign                                         ! "# $ "! % % & #"  "'  &$# $                  ! " %# () ! !"")              !"")   *  +   *  +            góður lærdómur fyrir íslenska mark- aðinn. Kröfurnar í Bandaríkjunum séu reyndar harðari en víðast hvar annars staðar, en þetta hafi vakið menn til umhugsunar, meðal annars um hvort ekki væri ástæða til að gera enn ríkari kröfur um mat á áhættu- þáttum félaga. Yfirleitt brugðist vel við athugasemdum VÞÍ Helena segir að oft skorti á upplýs- ingar þegar fyrirtæki eru að kaupa önnur fyrirtæki eða eru að gera ein- hverjar aðrar stærri ráðstafanir í rekstrinum. „Í þessum tilvikum vant- ar oft upplýsingar um kaupverð, sem gjarnan er sagt vera trúnaðarmál,“ segir Helena. „Þá vantar einnig oft að forsvarsmenn félaga segi frá þeim áætlunum sem þeir hafa uppi varð- andi þær ráðstafarnir sem verið er að greina frá.“ Helena segir að upplýsingagjöf félaga skiptist í tvennt, annars vegar reglubundnar upplýsingar, þ.e. árs- reikninga, milliuppgjör og aðalfundi, og hins vegar óreglubundnar upplýs- ingar, t.d. um aukningu eða samdrátt í hefðbundinni starfsemi félags, gerð mikilvægra samstarfssamninga, mik- ilvægar rannsóknarniðurstöður, mik- ilvægar nýjar framleiðsluvörur eða fyrirhugaðan samruna við annað félag. Öll félög skili reglubundnum upplýsingum samkvæmt reglum Verðbréfaþings en oft megi hins veg- ar finna að því sem forsvarsmenn félaga segi um ársreikninga eða milli- uppgjör. Hún segir að VÞÍ hafi gert athugasemdir við texta í reglubundn- um fréttatilkynningum án þess að það hafi verið gert opinbert. Þegar þetta komi fyrir sé hringt í viðkomandi eða bréf send út og yfirleitt sé vel brugð- ist við athugasemdum þingsins. Hagsmuna hluthafa ekki ávallt gætt Vilhjálmur Bjarnason, formaður Samtaka fjárfesta, segist sammála því sem haft var eftir Þórði S. Gunn- arssyni, hæstaréttarlögmanni í Morgunblaðinu í gær. Þar sagði Þórð- ur að stjórnendur félags geti verið skaðabótaskyldir ef þeir eru staðnir STARFSMENN Verðbréfaþings Ís- lands hafa þurft að gera athugasemd- ir við fréttatilkynningar og upplýs- ingar sem félög á þinginu hafa sent frá sér, að sögn Finns Sveinbjörns- sonar, framkvæmdastjóra VÞÍ. Hann segir að félög hafi stundum verið á mörkum þess að gefa villandi upplýs- ingar í fréttatilkynningum. Starfs- menn Verðbréfaþingsins hafi þó ekki orðið varir við að félög hafi vísvitandi gefið upp rangar upplýsingar. Helena Hilmarsdóttir, forstöðu- maður aðildar- og skráningarsviðs VÞÍ, sem sér um að yfirfara allar fréttatilkynningar félaga á þinginu, segir að upplýsingagjöf félaga hafi færst til betri vegar á undanförnum misserum. Mörg fyrirtæki leggi metnað sinn í að standa vel að allri upplýsingagjöf og margt hafi batnað í þeim efnum að undanförnu. Félög hvött til að huga vel að framsetningu frétta Finnur segir að VÞÍ hafi séð ástæðu til þess síðastliðið haust að senda dreifibréf til skráðra félaga varðandi villandi upplýsingar í frétta- tilkynningum. Nokkuð hafi til að mynda borið á að í fréttatilkynning- um félaga hafi verið lögð áhersla á aukningu á hagnaði milli ára en minna gert úr því að um væri að ræða söluhagnað eigna en ekki hagnað af reglulegri starfsemi. Í dreifibréfinu hafi Verðbréfaþingið hvatt félög til að íhuga vandlega hvort ekki væri ástæða til að birta söluhagnað eða sölutap af eignum sérstaklega. Félög hafi einnig verið hvött til að huga vel að fyrirsögnum og framsetningu frétta. „Þegar félög eru að skrá sig, hvort sem um er að ræða nýskráningu eða hækkun á hlutafé, hefur Verðbréfa- þingið oft þurft að láta leiðrétta texta í skráningarlýsingu,“ segir Finnur. „Slíkum upplýsingum er ekki hleypt í gegn fyrr en þingið er orðið sátt við að verið sé að gefa upp rétta mynd af viðkomandi félagi.“ Að sögn Finns var skráning de- CODE á Nasdaq-hlutabréfamark- aðnum í Bandaríkjunum á síðasta ári að því að gefa rangar eða villandi upp- lýsingar um stöðu félagsins, og sem talið er hafa orðið hluthöfum til tjóns. Þórður sagði einnig að réttur hluthafa væri kannski meiri en menn hafi al- mennt gert sér grein fyrir. Vilhjálmur segir að stjórnendur félaga hér á landi gæti þess ekki ávallt að tryggja hagsmuni hluthafa með sem bestum hætti. Nýlegt dæmi þar um sé að forsvarsmenn Samherja hafi ekki gefið fullnægjandi skýringar á kaupum stjórnenda félagsins á eigin hlutabréfum á yfirverði. Það dæmi veki upp spurningar um réttarstöðu einstakra hluthafa. Upplýsingagjöf félaga á Verðbréfaþingi hefur batnað Stundum á mörkum þess að vera villandi Illum við Strikið lokað ÁKVEÐIÐ hefur verið að loka Illum stórversluninni í Kaupmannahöfn og lýkur þar með 110 ára sögu verslun- arinnar í borginni. Byggingunni, sem stendur við Strikið, verður breytt í svokallaða lífsstílsmiðstöð þar sem verður fjöldi sérverslana. Fyrir- myndin að breytingunni er NK stór- verslunin í Stokkhólmi. Th. Wessel & Wett á Illum og Magasin de Nord og verður hin síðarnefnda þar með eina stórverslunin í Kaupmannahöfn. Í hinu nýja Illum, sem enn hefur ekki hlotið nafn, verður fjöldi merkja- og sérverslana fyrir fólk sem „nýtur þess að dekra við sjálft sig og kaupa inn,“ eins og segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Húsnæðið við Strikið er um 25.000 fermetrar. Hin nýja lífs- stílsmiðstöð mun vafalítið keppa við þann fjölda sérverslana sem verða í vöruhúsum utan miðborgarinnar, t.d. í Eyrarstað, sem nú rís skammt frá Eyrarsundsbrúnni. Þar verður m.a. opnaður stórmarkaður fyrir þá efna- meiri, sem höfða á til skilningarvita neytenda og leggja áherslu á gæða- vöru. Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. Hagnaður Micro- soft í takt við spár Washington. AFP. HAGNAÐUR Microsoft á síðasta fjórðungi ársins nam 2,624 milljörð- um dala eða liðlega 223 milljörðum íslenskra króna og jókst hann um 7,7% miðað við sama tímabil árið 1999. Hagnaðurinn er mjög í takt við það sem flestir markaðssérfræðing- ar höfðu spáð. Heildartekjur félags- ins síðustu þrjá mánuði ársins námu 6,59 milljörðum dala og jukust um 8% milli tímabila. Talsmenn Micro- soft segja að útlitið á næstunni kunni að vera aðeins dekkra vegna minnk- andi sölu á einmenningstölvum og hugbúnaði til fyrirtækja og spá því að tekjur á fyrsta fjórðungi ársins verði minni en á þeim síðasta. Fjár- málstjóri Microsoft segist hafa mest- ar áhyggjur af minni hagvexti og minnkandi vexti í spurn eftir tölvum, í björtustu spám sé gert ráð fyrir að sala félagsins muni aukast um 10% á þessu ári. Deginum áður en árs- hlutauppgjörið var birt hækkaði gengi bréfa Microsoft um 4,8% og endaði í 55,50 dali hluturinn. LetsBuyIt fær frest DÓMSTÓLLINN í Amster- dam, sem hefur með mál LetsBuyIt að gera, hefur veitt fyrirtækinu frest fram á næsta fimmtudag til þess að leggja fram 320 milljónir í trygging- arfé. Norska netfyrirtækið Coshopper hefur sýnt áhuga á að kaupa gagnagrunninn yfir viðskiptavini LetsBuyIt en Frode Lervik, framkvæmda- stjóri Coshopper, hefur ekki viljað upplýsa hversu mikið hann er tilbúinn til þess að greiða fyrir gagnagrunninn. Erfiðleikar LetsBuyIt eru ekkert einsdæmi í netsölugeir- anum. eToys hefur til að mynda ákveðið að hætt allri sölu í Evrópu og hefur að und- anförnu verið að bjóða vörur með allt að 75% afslætti til þess að hreinsa upp birgðir áð- ur en að lokuninni kemur. Þá hafa stjórnendur leitarvefjar- ins Altavista tilkynnt að þeir muni á næstunni segja upp einum fjórða hluta starfs- manna sinna, alls 250 manns, vegna minnkandi tekna af aug- lýsingum á vefnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.