Morgunblaðið - 20.01.2001, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 20.01.2001, Qupperneq 40
UMRÆÐAN 40 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ SL. þriðjudag kom fram skýrsla sem ber saman hugmyndir um flugvelli á höfuðborg- arsvæðinu. Aðalókost- ur þessarar skýrslu er að hún lítur þröngt á málin, og gerir t.d. litla tilraun til að meta kosti og galla til- lagnanna er varðar áhrif á skipulag og mannlíf í Reykjavík. Hin þrönga sýn Undirbúningur kosninganna um flug- völlinn hefur nú staðið í um eitt ár. Mjög erf- iðlega gekk að fá yfirvöld sam- göngu- og flugmála til að koma að undirbúningi málsins. Þetta má þó að vissu marki telja eðlilegt, því staðsetning núverandi flugvallar, nánast í miðborg Reykjavíkur, er góð út frá sjónarmiði þessara aðila. Hins vegar er það meginregla í borgum erlendis, að flugvellir fær- ast utar, eftir því sem þrengir að þeim, og að landsvæðið verður dýr- ara, sem þeir standa á. Í vinnunni að flugvallarmálunum hefur verið reynt að koma til móts við þá sem vilja halda flugvellinum í Vatnsmýrinni með að hanna lausnir sem losa nokkurt land, – einkum með að fara með hluta flugbrautanna út á sjó. Í þessa tæknivinnu hefur farið svo mikil orka, að vinna við mat á efnahags- og skipulagsávinningi þess að flug- völlurinn fari alveg, hefur setið á hakanum. Sjónarmið sem hafa gleymst Í samanburðartöflu flugvallar- valkosta, sem fylgir skýrslunni, eru taldir upp 17 fjárhagsþættir til að skýra þær efna- hagslegu stærðir sem skýrslan telur að skipti máli í saman- burði á valkostunum. 12 þessara þátta tengjast beinum kostnaði við byggingu flugvalla, og svo er bætt við kostnaðinn, auknum kostnaði vegna ferðalaga til flugvallar sunnan Hafnarfjarðar (1,7 milljarðar) og til Keflavíkur (3,5 millj- arðar). Við þetta bæt- ast 0,4 og 0,8 millj- arðar vegna fjölgunar slysa á Reykjanesbraut, en sparn- aður í akstri Reykvíkinga og lægri rekstur strætisvagnanna, og þar með talin sú fækkun slysa, sem tengist með þéttari byggð,– er ekki tekið inn í dæmið. Eini liðurinn í þessari saman- burðartöflu, sem snertir ávinning í skipulagsmálum Reykjavíkur, er mat á verðmæti þess lands sem fæst undir byggð á flugvallarsvæð- inu, ef flugbrautir eru færðar að hluta eða alveg út í sjó, – eða þá að flugvöllurinn er alveg fluttur. Því miður grípa skýrsluhöfundar þarna til talna úr gamalli skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ frá febr. 1997. Á þessum tíma var það stefn- an að koma Hlíðarfæti út úr skipu- laginu, þ.e. veginum frá Kringlu- mýrarbraut suður og vestur meðfram Öskjuhlíðinni og inn á svæðið. Erfitt var því að gera ráð fyrir mikilli byggð á flugvallar- svæðinu. Var því á þessum tíma, gert ráð fyrir aðeins 4000 manna íbúðarbyggð og 20 ha atvinnu- svæðis. Af þessari lágu nýtingu leiðir hið ofurlága verðmætamat svæðisins, sem notað er í skýrsl- unni, þ.e. 2,7 milljarðar, nettó. (Þ.e. að frádregnum ýmsum stofn- kostnaði). – Og svo var á þessum tíma fasteigna- og lóðaverð einnig mjög lágt. Að nota tölurnar úr þessari gömlu skýrslu er mjög gagnrýn- isvert, vegna þess t.d. að Hlíðarfót- ur er núna aftur kominn inn, og vegna þess að nýja svæðisskipu- lagið hefur hækkað nýtingartöl- urnar ca þrefalt, og eru þær þó enn mjög lágar, miðað við að skipulagsstefnunni yrði breytt og gert ráð fyrir þéttri miðborgar- byggð á svæðinu. Hin víðtækari skipulagsáhrif Síðan í haust hafa undirritaður og Birgir Jónsson unnið með tveimur sænskum stúlkum að MS- ritgerð þeirra. Ritgerðin leggur mat á hve verðmæti flugvallar- svæðisins og nágrennis þess yrði mikið, út frá þremur skipulagstil- lögum um svæðið. Lægsta nýtingu hefur þar fyrrnefnd svæðisskipu- lagstillaga með um 12.500 íbúa og 5000 vinnustaði. Hinar tvær tillög- urnar fara verulega hærra í nýt- ingu, – sem leiðir til enn hærra verðgildis lóðanna. Með útboði eins og í Grafarholtinu, þar sem lóðir fóru á allt að fjórföldu verði, fengju borgin (sem á 60% landsins) og ríkið (sem á 40%), stórar upp- hæðir fyrir þetta land. Endanlegar tölur um þetta verða tilbúnar seinnipartinn í febrúar. Jafnframt þessu aðstoðuðum við kennararnir, við að meta hve verð- mæti lóða og fasteigna hækkaði mikið í nágrenni skipulagssvæðis- ins og í gamla bænum, frá ca Hofs- vallagötu að Kringlumýrarbraut, ef miðborgarbyggð risi á flugvall- arsvæðinu. Samkvæmt þessu laus- lega mati, hækka lóðir um 6 millj- arða og fasteignir um 8 milljarða á þessu svæði, ef miðborgarbyggð risi á flugvallarsvæðinu. Næst þurfti að líta á aukið verð- mæti grænu svæðanna, t.d. Öskju- hlíðar, Suðurstrandarinnar og Hljómskálagarðs, vegna þess hve þau mundu nýtast betur með mik- illi nýtingu flugvallarsvæðisins. Grænu svæðin hafa í dag ekkert verðmæti í fasteignaskrám, því af þeim eru ekki borgaðir neinir skattar. Allir fagmenn sem við töl- uðum við voru sammála um nauð- syn gerðar slíks verðmætamats. Þó við settum mjög lágt fermetra- verð á grænu svæðin, fengu grænu svæðin fimm mjög hátt mat, vegna þess hve stór þau eru, – eða um 9 milljarða alls. Nýtingin á þessum grænu svæð- um fyrir borgarlífið er mjög lítil í dag, en hún mundi margfaldast með miðbæjarbyggð á flugvallar- svæðinu. Mat okkar var því að þetta mundi hækka verðmæti grænu svæðanna um 13 milljarða. Fjórða efnahagsstærðin sem tengist útfærslu á skipulagshug- myndum á flugvallarsvæðinu, er hversu miklar skatttekjur borg og ríki fengju af byggð á svæðinu, – reiknað út frá skipulagstillögunum þremur. Tekjur fengjust af slíkri byggð þótt hún væri annars stað- ar, en það sem skiptir Reykjavík mestu, er að hér gæti borgin boðið mjög eftirsóknarverðar lóðir. Fengi hún því einstaklinga og fyr- irtæki til sín, sem borguðu háa skatta. Jafnframt þessu væri þó hægt að bjóða ungu fólki lóðir utan uppboðssvæðanna, en margt ungt fólk kýs miðbæjarlíf nútímans. Þetta fólk þyrfti ella að setjast að í sífellt fjarlægari úthverfum. Útreikningar samanburðartöflunnar Eins og fyrr sagði, voru í flug- vallarskýrslunni aðeins 2,7 millj- arðar taldir ávinnast ef flugvall- arsvæðið fengist fyrir byggð. Þessi tala var, í töflunni, dregin frá þeim 13,4 milljörðum sem kostar að gera uppfyllingu og flugvöll úti á Lönguskerjum, – sem gefur töluna 10,7 milljarðar í kostnað. Hér að ofan hefur verið sýnt fram á að efnahags- og skipulags- ávinningur er miklu margþættari og meiri en gert er ráð fyrir í upp- stillingu fyrrgreindrar töflu. Efna- hagsþættir þeir sem nefndir voru að ofan (og fleiri til), verða að koma inn í dæmið, og verður þá ávinningur Reykjavíkur af flutn- ingi flugvallarins út á Löngusker, miklu meiri en tilkostnaðurinn við gerð flugvallar þar. Grunnvandamál í þessu öllu er hins vegar það, að þótt ríkið eigi 40% flugvallarsvæðisins, mundi það lenda í fjárútlátum við flutn- ingana frá núverandi flugvallar- svæði út á skerin, fram yfir það sem það fengi fyrir lóðirnar. Hér leggur undirritaður til að aðferðin, sem notuð var við gerð Hvalfjarð- arganganna, verði notuð á ný. Fengnir verði einkaaðilar til að fjármagna uppfyllinguna og flug- brautirnar. Afborganir af þessum fjárfestingum verði síðan að hluta innheimtar með flugvallarskatti, líkt og afborganir Hvalfjarðar- ganga eru borgaðar með gjaldi þeirra sem um göngin fara. Gæti þessi aðferð hugsanlega losað ríkið undan mestum hluta fjármögnunar á þessum nýja flugvelli og hrundið þessari þjóðþrifaframkvæmd af stað, á sambærilegan hátt og gerð- ist með Hvalfjarðargöngin. Ávinningur af Lönguskerjum var skoðaður of þröngt Trausti Valsson Flugvallarskýrslan Þegar allir efnahags- þættir eru komnir inn í dæmið, segir Trausti Valsson, verður ávinn- ingur Reykjavíkur af flutningi flugvallarins út á Löngusker miklu meiri en tilkostnaðurinn við gerð flugvallar þar. Höfundur er skipulagsfræðingur. FYRIR nokkru urðu verulegar umræður í fjölmiðlum um stofnun sendiráðs í Afríku. Kostnaður við stofnun sendiráðsins er áætlaður um 17 m.kr. Fjölmargir höfðu skoðun á málinu og veltu fyrir sér hvort þess- um fjármunum væri vel varið og sýndist sitt hverjum. Þá rifjaðist upp fyrir mér að fyrr á síðasta ári var kynnt ákvörðun um stofnun sendi- ráðs Íslands í Japan. Kostnaður við stofnun þess sendiráðs var talinn verða nærri milljarður króna þegar allt var talið, ef ég man rétt. Umræð- ur um það urðu hins vegar litlar og talsvert minni en umræðan um opn- un sendiráðs í Afríku. Þetta minnir mig á fræga sögu Parkinsons þegar stjórnarfundur í fyrirtæki sam- þykkti hverja ákvörðunina á fætur annarri nær umræðulaust upp á milljónir dollara en tók klukku- stunda umræður um lagfæringu þaksins á reiðhjólageymslunni. Nú er mjög í brennidepli umræð- an um tvöföldun Reykjanesbrautar. Almennt er mikil samstaða meðal þjóðarinnar um nauðsyn þeirrar framkvæmdar og áætlaður kostnað- ur er tveir til þrír milljarðar króna. Fjármunir eru hins vegar ekki til reiðu til þeirrar framkvæmdar og hafa aðrar fram- kvæmdir verið fram undir þetta taldar brýnni og framar í for- gangsröð hjá þeim sem ákvarðanir taka. Allt leiðir þetta huga minn að þeirri út- gjaldafreku fjárfest- ingu sem mér hefur gengið illa að skilja og sætta mig við. Þar á ég við aðild Ísland að Schengensamkomulag- inu og framkvæmdir vegna hennar og rekstrarkostnað vegna aðildarinnar um ókom- in ár. Meðal þess kostn- aðar sem íslenska þjóðin hefur tekið á sig og fellur undir þátttökugjaldið að Schengensamkomulaginu eru sér- hannaðar byggingar við Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflug- velli sem munu kosta þjóðina þrjá milljarða króna að minnsta kosti samkvæmt nýjustu upplýsingum. Hluti byggingarinnar, sem í heild mun kosta um fjóra milljarða, er stækkun flugstöðvarinnar sem nauð- synlegt var að ráðast í. Sá hluti er, að mínu mati og sumra annarra sem sátu í byggingarnefnd vegna stækkunar flug- stöðvarinnar, ekki nema einn fjórði hluti heildarbyggingar- kostnaðarins. Ég eins og margir fleiri hef reynt að átta mig á ástæðum þess að íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að gerast þátt- takendur að Schengen- samkomulaginu. Því verður ekki á móti mælt að þátttökugjald- ið er margir milljarðar króna. Eitt er sérhönn- uð bygging við Flug- stöð Leifs Eiríkssonar eins og að framan er rakið, hitt er svo tækjabúnaður, þjálfun starfsfólks og ýmiss konar annar kostnaður við að sinna hlutverki okkar sem inn- og út- gönguhlið á Schengensvæðinu. Mörg hundruð milljónir á ári Augljóst er að rekstrarkostnaður ríkisins og hinna ýmsu rekstraraðila í Flugstöð Leifs Eiríkssonar vegna Schengenaðildar skiptir hundruðum milljóna á ári. Það má kalla það ár- gjaldið í Schengen. Við vegabréfs- skoðun vegna aðildarinnar þarf a.m.k. 40 til 50 starfsmenn á ári. Auk þess þurfa flestir rekstraraðilar, flugrekendur, verslunar- og þjón- ustuaðilar í flugstöðinni að nánast tvöfalda starfsemi sína, þ.e. starf- semi verður að vera vegna þeirra sem eru utan Schengen og hinna sem eru innan Schengen. Vegabréfsskoð- un vegna fólks sem ferðast innan Schengensvæðisins verður hins veg- ar afnumin. Engin leið verður því að fylgjast með þeim sem koma af svæðinu á fölsuðum skilríkjum. Taln- ing og greining farþega eftir þjóð- löndum, talning erlendra ferða- manna, er ekki lengur möguleg og verður það til verulegra óþæginda fyrir ferðamannaiðnaðinn. Skilríkja- laust og óvelkomið fólk, sem komið er inn á Schengensvæðið, getur því ferðast hindrunarlaust til Íslands. Kosturinn við þessa aðild, þ.e. eini kosturinn sem ég sé, ef kost skal kalla, er að Íslendingar þurfa sjálfir ekki að sýna vegabréf þegar þeir koma inn í þátttökulönd Schengen- svæðisins. Greiðslan fyrir þennan þægindaauka er margir milljarðar í þátttökugjald og hundruð milljóna á ári í framtíðinni. Bretar vildu ekki aðild Þetta er meðal annars ástæðan fyrir því að eylandið Bretland ákvað að gerast ekki þátttakandi að svo komnu máli. Ég hef ennþá engan hitt í íslenskri ferðaþjónustu, sem hefur talið Schengenþátttöku okkur sér- staklega til framdráttar eða verið henni hlynntur. Þó hef ég komið að störfum í ferðaþjónustu um langa hríð. Mér er bara alls ekki ljóst hvers vegna lá svona mikið á að gerast að- ili. Miklu nær hefði verið að bíða átekta og sjá hver reynslan yrði hjá öðrum þjóðum og vega og meta kosti og galla að þeirri reynslu fenginni. Af þeim mörgu kostum sem gætu fylgt því fyrir Íslendinga að gerast aðilar að Evrópubandalaginu er þetta vegabréfsfrelsi helsti ókostur- inn. Því má segja að af því sem Evr- ópubandalagið hefur að bjóða höfum við valið það sem einna verst hentar okkur. Niðurstaðan er því sú að þá gríð- arlegu fjármuni sem varið er til framkvæmda vegna Schengen hefði mátt nota til þess að tvöfalda Reykjanesbrautina og hundruðum milljóna sem varið verður til gagns- lausrar gæslu Schengenhliðsins á ári hefði mátt verja til að stórefla ferða- iðnaðinn í landinu, til heilbrigðismála og hækkunar bóta til öryrkja og elli- lífeyrisþega. Við þetta hefðu Íslend- ingar eingöngu misst af því að ferðast án þess að framvísa vega- bréfi inn á Schengensvæðið en ávinningurinn orðið mikill. Fyrir hvern er Schengen? Ómar Kristjánsson Flugstöð Þátttökugjaldið, segir Ómar Kristjánsson, er margir milljarðar króna. Höfundur er fv. forstjóri Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.