Morgunblaðið - 20.01.2001, Page 44

Morgunblaðið - 20.01.2001, Page 44
KRABBAMEINSFÉLAGIÐ 50 ÁRA 44 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ utan þess, nýtt þennan efnivið til rannsókna. Með þátttöku í fjölþjóð- legu samstarfi lögðu þessir ís- lensku vísindamenn mikilvægt lóð á vogarskálarnar í vinnu sem leiddi til þess að á síðasta áratug tókst að finna tvö gen sem auka mjög áhættu á brjóstakrabbameini. Norrænar samstarfsrannsóknir Samvinnan við norrænu krabba- meinsskrárnar snýst ekki eingöngu um gæði og nákvæmni skráningar, þar er einnig um að ræða víðtækt vísindasamstarf. Það felst meðal annars í samanburði milli landanna varðandi nýgengi krabbameina og lífshorfur og spár um fjölda og dánartíðni. Samanburðurinn getur gefið vísbendingar um orsakir fyrir mismun á áhættu milli landanna. Í kjölfarið hafa fylgt samstarfsrann- sóknir á margvíslegum áhættu- þáttum. Spárnar um framtíðar- fjölda krabbameina sýna að mikil aukning er væntanleg á næstu ára- tugum. Slíkar upplýsingar eru ómetanlegar fyrir heilbrigðisyfir- völd og gera þeim kleift að búa í haginn fyrir breyttar aðstæður. Lokaorð Krabbameinsfélagið hefði ekki getað áorkað miklu í faraldsfræði- legum rannsóknum á krabbamein- um ef ekki hefði komið til samstarf við fjölmarga aðila utan félagsins. Þar er t.d. um að ræða lækna og annað starfsfólk á sjúkrahúsunum sem hefur sent upplýsingar um krabbamein til skrárinnar, lækna sem komið hafa að leitarstarfinu, Hagstofuna og loks ýmsa vísinda- menn. Engu að síður er ljóst að Krabbameinsfélagið hefur þarna gegnt mikilvægu hlutverki. Þar hefur ætíð verið fylgt þeirri stefnu að leggja áherslu á stuðning við rannsóknir á útbreiðslu og orsök- um krabbameina. Nauðsynleg að- staða og fjárframlög til verkefna hafa fengist hjá félaginu og að baki liggur ötult starf einstaklinga í að- ildarfélögum Krabbameinsfélags- ins við halda þessu gangandi, fjár- öflun og síðast en ekki síst stuðningur þjóðarinnar. KRABBAMEINSSKRÁIN er grundvöllur íslenskra faraldsfræði- rannsókna á krabbameinum. Þar eru skráð öll mein sem hafa greinst á Íslandi síðan 1954 og liggur þar að baki mikil yfirferð og nákvæmnisvinna. Íslenska Krabba- meinsskráin hefur náin tengsl við aðr- ar norrænar krabbameinsskrár. Skráningaraðferðir þeirra eru sam- ræmdar, en þessar fimm skrár eru tald- ar þær bestu af sínu tagi sem til eru. Níels Dungal læknir stóð fyrir stofnun ís- lensku skrárinnar um svipað leyti og hinar norrænu skrárnar voru stofnaðar. Fyrsti yfirlæknir skrár- innar var Ólafur Bjarnason og síð- an tók við núverandi yfirlæknir, Hrafn Tulinius. Auk þess að vera grundvöllur rannsókna á orsökum krabbameina gefur Krabbameins- skráin út tölfræðilegar upplýsing- ar, svo sem um nýgengi, algengi og lifun, en nýgengi er árlegur fjöldi nýgreindra á hverja 100.000 íbúa og algengi er fjöldi einstaklinga á lífi með tiltekinn sjúkdóm á ákveðnum tímapunkti. Árlegur fjöldi nýgreindra er sýndur í töflu 1 fyrir hvert hinna þriggja meina sem hafa hæst nýgengi. Þar sést einnig fjöldi einstaklinga á lífi með þessi mein í árslok 1999. Á mynd 1 kemur fram að lífshorfur hafa batnað mikið fyrir sum þessara meina síðustu áratugi. Hvað er faraldsfræði? Faraldsfræði er vís- indagrein er fæst við rannsóknir á útbreiðslu og orsökum sjúkdóma. Sérstaða hennar felst meðal annars í því að um er að ræða rann- sóknir á fólki en ekki dýrum, frumum eða byggingareiningum þeirra. Tengsl sjúkdóma við þætti sem auka eða draga úr áhættu eru m.a. rannsökuð með því að kanna hvort einstaklingar sem veikjast hafi orðið fyrir áreiti af völdum viðkomandi þátta í meira mæli en viðmiðunarhópar. Þróaðar hafa verið sérstakar aðferðir við þessar rannsóknir og er tölfræðin þarna afar mikilvæg. Þættir þeir sem hér um ræðir, geta verið margvíslegir. Sem dæmi má taka ytri þætti eins og einstök næring- arefni, mengun og geislun eða þá meðfædd einkenni, þ.e.a.s. arf- genga þætti. Hjá Krabbameins- félaginu hafa verið stundaðar far- aldsfræðilegar rannsóknir í hálfa öld, allt síðan Níels Dungal kannaði tengsl mataræðis og magakrabba- meins. Rannsókn á aukinni áhættu á brjóstakrabbameini með nýjum fæðingarhópum vakti alþjóðlega athygli árið 1974. Síðan þá hafa faraldsfræðilegar rannsóknir félagsins einkum beinst að horm- ónatengdum og arfgengum áhættuþáttum brjóstakrabba- meins. Heilsusögubankinn Er Leitarstöð Krabbameins- félagsins tók til starfa 1964 var af mikilli framsýni hafist handa við að safna faraldsfræðilegum upplýs- ingum samhliða leitarstarfinu. Konur sem mættu í leitina voru beðnar að svara spurningum um ýmsa heilsufarsþætti. Þarna var spurt um atriði sem talið var að gætu tengst áhættu á að greinast með legháls- eða brjóstakrabba- mein. Allar þessar upplýsingar hafa verið mikið nýttar til rann- sókna. Á grundvelli þeirra birtust niðurstöður árið 1978, þar sem vís- indamenn hjá Krabbameinsfélag- inu voru með þeim fyrstu til að sýna fram á að aukinn fjöldi fæð- inga dregur úr líkum á brjósta- krabbameini. Fleiri rannsóknir fylgdu í kjölfarið sem áttu sinn þátt í að auka skilning á tengslum brjóstakrabbameins og hormóna- tengdra þátta. Enn er leitað fanga á þessi mið, því margt þarf enn að skýra varðandi samspil hormóna og brjóstakrabbameins. Einnig hafa upplýsingarnar verið notaðar til að kanna breytingar á notkun hormónalyfja eftir aldurshópum auk þess sem þarna var efniviður til að rannsaka breytingar á aldri við upphaf blæðinga hjá íslenskum konum (sjá mynd 2), en sýnt hefur verið fram á tengsl milli lækkandi áhættu á brjóstakrabbameini og þess að byrja seint með blæðingar. Rannsóknir á arfgengum áhættuþáttum Alþjóðakrabbameinsrannóknar- stofnuninn í Lyon í Frakklandi veitti Krabbameinsfélaginu styrk árið 1972 til að safna upplýsingum um ættir kvenna með brjósta- krabbamein. Hrafn Tulinius var í forsvari fyrir þeirri söfnun, en hann stundaði vísindarannsóknir í Lyon á þessum tíma. Þá þegar þótti sýnt að Ísland væri kjörinn staður til rannsókna á arfgengi krabbameina og að íslenskir vís- indamenn væru líklegir til góðra verka. Með aðstoð ættfræðinga hjá erfðafræðinefnd Háskóla Íslands og einnig utan hennar tókst að koma upp merku ættasafni hjá Krabbameinsfélaginu. Rannsóknir á aukinni áhættu í ættum kvenna með brjóstakrabbamein, byggðar á hinum góða og óbjagaða íslenska efnivið, vöktu alþjóðlega athygli. Síðustu áratugi hafa svo erfðafræð- ingar, læknar og faraldsfræðingar, bæði hjá Krabbameinsfélaginu og                                                                                                                 Faraldsfræðilegar rannsóknir hjá Krabbameinsfélaginu Íslenskir vísindamenn, segir Laufey Tryggvadóttir, hafa lagt mikilvægt lóð á vogarskálarnar í vinnu sem leiddi til þess að á síðasta áratug tókst að finna tvö gen sem auka mjög hættu á brjóstakrabbameini. Laufey Tryggvadóttir                                                          !               #" $"       #" $" Höfundur er faraldsfræðingur hjá Krabbameinsfélagi Íslands Bridsfélag Kópavogs Fimmtudaginn 18.janúar var spil- að þriðja og síðasta kvöldið í tví- menning kebab-hússins. Besta skori kvöldsins náðu í n-s meðalskor 216 Ármann J. Láruss.-Gísli Þór Tryggvas. 257 Ragnar Björnss.-Sigurður Sigurjónss. 243 Árni M. Björnss.-Heimir Þ. Tryggvas. 240 A-V Gísli Steingr.son-Sigurður Steingrímss. 264 Jens Jensson-Bryndís Þorsteinsdóttir 259 Ester Jakobsd.-Dröfn Guðmundsd. 228 Lokastaðan varð þessi Þórður Björnss.-Bernódus Kristinss. 717 Ragnar Björnss.-Sigurður Sigurjónss. 711 Ester Jakobsd.-Dröfn Guðmundsd. 706 Gísli Steingrímss.-Sigurður Steingrss. 696 Ármann J. Lárusson-Gísli Tryggvason 692 Fimmtudaginn 25.janúar hefst Aðalsveitakeppni félagsins Skráning er hafin og geta sveitir skráð sig í síma: 586-1319 Heimir og 565-1691 Árni Már Stökum spilurum eða pörum verð- ur hjálpað til að mynda sveitir.. Spilað er í Þinghól við Hamra- borgina. Spilamennska hefst kl.19.45 og hvetjum við alla til að mæta. Gullsmárabrids Bridsdeild FEBK í Gullsmára spilaði tvímenning á tíu borðum fimmtudaginn 19. janúar. Miðlungur 216. Beztum árangri náðu: NS Dóra Friðleifsdóttir og Guðjón Ottósson 276 Kristján Guðmss. og Sigurður Jóhannss. 236 Kjartan Elíasson og Guðni Ólafsson 230 AV Guðrún Pálsdóttir og Sigurður Pálsson 267 Þórhallur Árnas. og Þórmóður Stefánss. 245 Sigurður Björnsson og Bragi Bjarnason 235 - Eldri borgarar spila að Gull- smára 13 mánudaga og fimmtudaga. Mæting kl. 12.45. BRIDS U m s j ó n A r n ó r G . R a g n a r s s o n Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði Glæsibæ. Fimmtud. 11. janúar 2001. 24 pör. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S: Júlíus Guðmundss.– Rafn Kristjánss. 268 Elín Jónsdóttir – Soffía Theódórsdóttir 247 Kristján Ólafsson – Eysteinn Einarsson 243 Árangur A-V: Ólafur Ingvarsson – Bergur Þorvaldsson256 Fróði B. Pálsson – Þórarinn Árnason 238 Ingibjörg Stefánsd. – Þorsteinn Davíðss. 233 Tvímenningskeppni spiluð mánud. 14. janúar. 26 pör. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S: Viggó Nordquist – Tómas Jóhannsson 259 Þorsteinn Laufdal – Magnús Halldórss. 247 Jón Stefánsson – Sæmundur Björnsson 241 Árangur A-V: Bragi Björnsson – Ólafur Ingvarsson 263 Auðunn Guðmundss. – Albert Þorst.s. 252 Magnús Jósefsson – Hannibal Helgason 227 Bridsfélag Hafnarfjarðar Fyrstu tvær umferðirnar í aðal- sveitakeppni félagsins voru spilaðar mánudaginn 15. janúar og er staða efstu sveita þannig að þeim loknum: Sveit Atla Hjartarsonar 38 Sveit Guðna Ingvarssonar 36 Sveit Högna Friðþjófssonar 33 Spilarar eru minntir á Reykjanes- mótið í sveitakeppni, sem fram fer í félagsheimilinu Mánagrund við Sandgerðisveg um næstu helgi og hefst kl. 10 á laugardeginum. Spilað er um Reykjanesmeistara- titilinn og jafnframt fá fjórar efstu sveitirnar þátttökurétt í undan- keppni Íslandsmótsins í sveita- keppni síðar í vetur. Þátttaka tilkynnist til Sigurjóns í síma 898 0970 eða á netfang: sigur- jon@uu.is Bridsfélag Barðstrendinga og Bridsfélag kvenna Mánudaginn 15. jan. sl. var spil- aður tvímenningur. 24 pör mættu, meðalskor 216 stig. Hæsta skor í N/S Birna Stefnisd. – Aðalsteinn Steinþórss. 262 Eyþór Haukss. – Helgi Samúelss. 239 Anna G. Nielsen – Guðlaugur Nielsen 238 Hæsta skor í A/V María Haraldsd. – Þórður Sigfúss. 264 Guðm. Guðmundss. – Gísli Sveinss. 237 Valdimar Sveinss. – Friðjón Magnúss. 234 Mánudaginn 22. jan. nk. verður spilaður tvímenningur. Mánudaginn 29. jan. hefst aðalsveitakeppni 2001.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.