Morgunblaðið - 20.01.2001, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 57
FIMM umferðum er lokið á
stórmótinu í Wijk aan Zee sem nú
stendur yfir í Hollandi. Úrslit
fimmtu umferðar urðu þessi:
Piket – Fedorov 1-0
Timman – Shirov 0-1
van Wely – Leko 1-0
Adams – Topalov ½-½
Tiviakov – Morozevich 0-1
Kasparov – Kramnik ½-½
Anand – Ivanchuk ½-½
Allra augu beindust að skák
Kasparovs gegn Kramnik. Kasp-
arov hafði hvítt og Kramnik sá
enga ástæðu til að breyta út af
uppáhaldsvörn sinni frá heims-
meistaraeinvíginu í London, Berl-
ínarvörninni í spænska leiknum.
Enn einu sinni fékk hann verri
stöðu, en enn á ný skorti Kasparov
snerpuna til að veita honum náð-
arhöggið og skákin endaði með
jafntefli eftir spennandi viðureign.
Stórmeistarinn Sergei Shipov kall-
ar björgun Kramniks reyndar
kraftaverk, en það hlýtur að vera
orðið þreytandi fyrir Kasparov að
telja sigurinn gegn Kramnik
öruggan, en uppgötva síðan að svo
er ekki. Það verður fróðlegt að
fylgjast með því þegar Kramnik
fer virkilega að tefla til sigurs
gegn Kasparov. Hvor skyldi hafa
betur þá?
Anand gerði einnig jafntefli.
Hann tefldi við Ivanchuk og hafði
hvítt. Það var hins vegar Shirov
sem skaut helstu keppinautum sín-
um ref fyrir rass og tók forystuna
með sigri gegn heimamanninum
Timman. Þegar mótstaflan er
skoðuð sést að vísu, að Shirov hef-
ur ekki mætt eins sterkum and-
stæðingum og þeir Kasparov og
Kramnik, sem eru hálfum vinningi
á eftir Shirov líkt og Morozevich.
Í gær var frídagur á mótinu, en
sjötta umferð verður tefld í dag.
Þeim sem vilja fylgjast með skák-
unum er bent á vefsíðuna skak.is.
Björn Þorfinnsson, sem haft hef-
ur forystu á Skákþingi Reykjavík-
ur, gerði jafntefli við Benedikt
Jónasson í fimmtu umferð og
hleypti þar með þeim Davíð Kjart-
anssyni og Stefáni Kristjánssyni
upp að hlið sér í baráttunni um
sigur á mótinu. Úrslit urðu þessi á
efstu borðum:
1 Benedikt Jónass. – Björn Þor-
finnss. ½:½ 2 Lenka Ptácníková –
Davíð Kjartanss. 0:13 Páll Þór-
arinsson – Stefán Kristjánss. 0:14
Sævar Bjarnas. – Dagur Arn-
grímss. 1:05 Sigurður Steindórss.
– Arnar Gunnarss. 1:0
Miklar sviptingar voru á fyrsta
borði hjá Birni Þorfinnssyni og
Benedikt Jónassyni. Skákin var
tvísýn framan af, en þegar báðir
áttu u.þ.b. 4 mínútur eftir af um-
hugsunartímanum lék Björn af sér
manni. Benedikt fékk gjörunnið
tafl, en lék af sér peði og stóð eftir
með hrók og biskup gegn hrók og
var reyndar kominn með unnið
tafl, en jafntefli varð niðurstaða.
Sævar vann Dag örugglega eftir
að hafa unnið peð strax í byrjun
tafls. Davíð Kjartansson sigraði
Lenku í hróksendatafli eftir að
hafa haft betri stöðu lengst af og
Stefán vann sannfærandi sigur á
Páli Agnari eftir skemmtilega
fléttu í miðtaflinu. Arnar Gunn-
arsson lék sig slysalega í mát gegn
Sigurði Páli Steindórssyni. Staða
efstu manna er þessi:
1.-3. Davíð Kjartansson, Stefán
Kristjánsson og Björn Þorfinnsson
4½ v. 4.-8. Benedikt Jónasson, Sig-
urður P. Steindórsson, Sigurbjörn
Björnsson, Sævar Bjarnason og
Róbert Harðarson 4 v. 9.-13.
Lenka Ptácníková, Jón Viktor
Gunnarsson, Ingvar Jóhannesson,
Helgi Jónatansson og Tómas
Björnsson 3½ v.
o.s.frv. Skákáhugamenn eru
hvattir til að mæta í Faxafen 12 og
fylgjast með þessari spennandi
baráttu um titilinn Skákmeistari
Reykjavíkur.
SKÁK
W i j k a a n Z e e
13.–28.1 2001
CORUS-
SKÁKMÓTIÐ
Enn strandar Kasparov
á Berlínarmúr Kramniks
Daði Örn Jónsson
VERÐLAUNASAMKEPPNI í
heimasíðugerð í grunnskólum
Reykjavíkur er hafin. Fræðsluráð
efndi til keppninnar af því að það tel-
ur að heimasíður eigi eftir að gegna
mikilvægu hlutverki í öllum sam-
skiptum skólasamfélagsins í framtíð-
inni og eðlilegt að yngsta kynslóðin
taki virkan þátt í að móta hana.
Nemendur fá stuðning hjá kennur-
um við heimasíðugerðina og er það
von fræðsluráðs að keppnin veki
áhuga bæði nemenda og kennara.
Allir nemendur í grunnskólum
Reykjavíkur veturinn 2000–2001
geta tekið þátt í keppninni. Þeir sem
áhuga hafa mynda 3–5 manna hópa
og vinna undir umsjón kennara.
Keppt verður um bestu vefsíðuna í
þremur flokkum: Betri borg, Landa-
fundirnir miklu og Könnun geimsins.
Skráning í keppnina hófst 11. des-
ember og stendur til 15. febrúar. Á
skráningarformi þarf að koma fram
nafn skóla, nafn umsjónarkennara
hópsins, nöfn nemenda, aldur þeirra
og bekkur. Hver nemandi getur að-
eins skráð sig í einn keppnishóp. Öll
liðin fá úthlutað vefsvæði hjá Ís-
lenska menntanetinu. Hægt er að
skrá sig á heimasíðu keppninnar
http://keppni.ismennt.is. Gerð vef-
síðunnar á að vera lokið fyrir 6. apríl.
Dómnefnd velur bestu síðurnar og
verða þrenn verðlaun í hverjum
flokki afhent í maí.
1. verðlaun eru Adobe Premier-
myndvinnsluforrit frá SKÝRR, 2.
verðlaun eru stafræn myndavél frá
Línu.Neti og 3. verðlaun eru Canon
650U skanni frá Nýherja.
Heimasíðu-
keppni
grunnskóla-
barna
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist fer á
sunnudaginn 21. janúar kl.10.30 í
gönguferð um friðlandið á Heið-
mörk. Brottför er frá BSÍ og ekið inn
á á Heiðarveg og gengið þaðan að
Hólmsborg, fallegri hringhlaðinni
fjárborg frá árinu 1918 og inn að
norska húsinu, en síðan til baka um
skógarstíga að Vígsluflöt og Undan-
fara eftir því sem tíminn leyfir. Við
Undanfara hófst skógrækt í Heið-
mörk árið 1949.
Áætlaður göngutími 3 klst. Verð.
900 kr f. félaga og 1.100 kr f. aðra.
Þetta er kjörin fjölskylduganga.
Vetrarganga
Útivistar
í Heiðmörk
♦ ♦ ♦