Morgunblaðið - 20.01.2001, Page 58
DAGBÓK
58 LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Mánafoss og Arina
Arctica koma og fara í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Marina kemur í dag,
Polar Siglir fór í gær.
Fréttir
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ Hveragerði, fund-
ur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
Mannamót
Bólstaðarhlíð 43. Þorra-
blót verður haldið föstu-
daginn 26. janúar kl. 17.
Þóra Ágústsdóttir og
Bjarni Aðalsteinsson
kveðast á. Bragi Þór
Valsson syngur við und-
irleik Þóru Fríðu Sæ-
mundsdóttur. Kvenna-
kór Félagsþjónustunnar
syngur undir stjórn
Guðbjargar Tryggva-
dóttur. Ragnar Leví og
félagar leika fyrir dansi.
Salurinn opnaður kl.
16.30. Skráning í síma
568-5052 fyrir föstudag-
inn 26. janúar.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Á mánudag verður
félagsvist kl. 13.30 og
miðar seldir á þorrablót-
ið. Púttæfing í Bæj-
arútgerðinni mánudag
kl. 10-12, tréútskurður í
Flensborg kl. 13.
Á þriðjudag verður
brids og saumar.
Línudans á miðvikudag
kl. 11. Byrjendur vel-
komnir. Á miðvikudag
og föstudag verður
myndmennt. Getum
bætt við örfáum í mynd-
mennt á miðvikudögum.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Námskeiðin
byrja þessa viku, leirlist,
glerlist, málun, keramik,
tréskurður, bútasaumur
og leiklist. Opið hús og
spilað laugardaga kl.
13.30. Í næstu viku byrja
spænsku- og tölvu-
námskeið. Bókmennta-
hópur byrjar 22. janúar
kl. 10.30 í bókasafni
Garðabæjar. Skráning á
þorrablótið stendur yfir.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Mánudagur:
Brids kl. 13. Þriðjudag-
ur: Skák kl. 13.30 og al-
kort spilað kl. 13.30.
Miðvikudagur: Göngu-
Hrólfar fara í létta
göngu frá Ásgarði,
Glæsibæ, kl. 10. Eldri
borgurum hefur verið
boðið í heimsókn í Prent-
smiðjuna Odda fimmtu-
daginn 25. janúar. Lagt
verður af stað frá Ás-
garði, Glæsibæ, félags-
heimili FEB, kl. 14. Tak-
markaður fjöldi,
skráning fer fram á
skrifstofu FEB, sími
588-2111. Aðalfundur
FEB verður haldinn í
Ásgarði, Glæsibæ, 24.
febrúar kl. 13.30. Tillaga
kjörnefndar um for-
mann og aðra stjórn-
armenn félagsins liggur
frammi á skrifstofu
FEB. Tillögur félags-
manna um einstaka
menn til stjórnarkjörs
skulu berast skrifstofu
FEB eða kjörnefnd fyrir
9. febrúar nk. Breyting
hefur orðið á viðtalstíma
Silfurlínunnar. Opið
verður á mánudögum og
miðvikudögum frá kl.
10-12 fh. Upplýsingar á
skrifstofu FEB í síma
588-2111 frá kl. 10-16.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund og leikfimiæfingar
í Breiðholtslaug á mánu-
dögum kl. 9.25 og
fimmtudögum kl. 9.30.
Umsjón Edda Bald-
ursdóttir íþróttakennari.
Á þriðjudag kl. 13
boccia.
Vesturgata 7. Þorrablót
verður haldið fimmtu-
daginn 1. febrúar, húsið
opnað kl. 17.30. Þorra-
hlaðborð, kaffi og kon-
fekt. Pavel Manasek við
flygilinn, veislustjóri
Árni Johnsen, Edda
Björgvinsdóttir leikkona
kemur í heimsókn,
Fjöldasöngur. Minni
karla flytur Ásta Ragn-
heiður Jóhannesdóttir,
Minni kvenna flytur
Einar Örn Stefánsson.
KKK syngja undir
stjórn Pavels. Hljóm-
sveit Hjördísar Geirs
leikur fyrir dansi. Upp-
lýsingar og skráning í
síma 562-7077.
Kirkjustarf aldraðra,
Digraneskirkju. Opið
hús þriðjudag frá kl. 11.
Leikfimi, matur, helgi-
stund og fræðsla. Verið
velkomin.
Lífeyrisþegadeild SFR.
Þorrablót deildarinnar
verður haldið laugardag-
inn 27. janúar kl. 12 í
félagsmiðstöðinni Grett-
isgötu 89, 4. hæð. Þátt-
taka tilkynnist í síðasta
lagi 25. janúar á skrif-
stofu SFR sími 562-
9644.
Félagsstarf SÁÁ.
Félagsstarf SÁÁ.
Félagsvist í Hreyfilshús-
inu (3. hæð) laugardaga
kl. 20.
Minningarkort
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs Maríu Jóns-
dóttur flugfreyju eru fá-
anleg á eftirfarandi
stöðum: Á skrifstofu
Flugfreyjufélags Ís-
lands, s. 561-4307/fax
561-4306, hjá Halldóru
Filippusdóttur, s. 557-
3333 og Sigurlaugu Hall-
dórsdóttur, s. 552-2526.
Minningarkort Minn-
ingarsjóðs hjónanna
Sigríðar Jakobsdóttur
og Jóns Jónssonar á
Giljum í Mýrdal við
Byggðasafnið í Skógum
fást á eftirtöldum stöð-
um: Í Byggðasafninu hjá
Þórði Tómassyni, s. 487-
8842, í Mýrdal hjá Ey-
þóri Ólafssyni, Skeiðflöt,
s. 487-1299, í Reykjavík
hjá Frímerkjahúsinu,
Laufásvegi 2, s. 551-1814
og hjá Jóni Aðalsteini
Jónssyni, Geitastekk 9,
s. 557-4977.
Slysavarnafélagið
Landsbjörg, Stangarhyl
1, 110 Reykjavík. S. 570
5900. Fax: 570 5901.
Netfang: slysavarna-
felagid@landsbjorg.is
Minningarkort Rauða
kross Íslands eru seld í
sölubúðum Kvenna-
deildar RKÍ á sjúkra-
húsum og á skrifstofu
Reykjavíkurdeildar,
Fákafeni 11, s. 568-8188.
Minningarkort Hvíta-
bandsins fást í Kirkju-
húsinu, Laugavegi 31, s.
562-1581 og hjá Kristínu
Gísladóttur, s. 551-7193
og Elínu Snorradóttur,
s. 561-5622.
Minningarkort Sjúkra-
liðafélags Íslands eru
send frá skrifstofunni,
Grensásvegi 16, Reykja-
vík. Opið virka daga kl.
9–17. S. 553-9494.
Minningarkort Vina-
félags Sjúkrahúss
Reykjavíkur eru af-
greidd í síma 525-1000
gegn heimsendingu
gíróseðils. Minning-
arkort Kvenfélagsins
Hringsins í Hafnarfirði
fást í blómabúðinni
Burkna, hjá Sjöfn, s.
555-0104 og hjá Ernu, s.
565-0152.
Minningarkort Kven-
félagsins Seltjarnar eru
afgreidd á bæjarskrif-
stofu Seltjarnarness hjá
Ingibjörgu.
Minningarkort Kven-
félags Háteigssóknar.
Kvenfélagskonur selja
minningarkort, þeir sem
hafa áhuga á að kaupa
minningarkort vinsam-
legast hringi í síma 552-
4994 eða síma 553-6697,
minningarkortin fást
líka í Kirkjuhúsinu,
Laugavegi 31. Minning-
arkort Kvenfélags
Langholtssóknar fást í
Langholtskirkju s. 520-
1300 og í blómabúðinni
Holtablómið, Langholts-
vegi 126. Gíróþjónusta
er í kirkjunni.
Minningarkort Kven-
félags Langholtssóknar
fást í Langholtskirkju
sími 520 1300 og í blóma-
búðinni Holtablómið,
Langholtsvegi 126. Gíró-
þjónusta er í kirkjunni.
Minningakort Kven-
félags Neskirkju fást
hjá kirkjuverði Nes-
kirkju, í Úlfarsfelli,
Hagamel 67 og í Kirkju-
húsinu v/Kirkjutorg.
Minningarkort Kven-
félagsins Hringsins í
Hafnarfirði fást í blóma-
búðinni Burkna, hjá
Sjöfn, s. 555 0104 og hjá
Ernu, s. 565 0152 (gíró-
þjónusta).
Minningarkort ABC
hjálparstarfs eru af-
greidd á skrifstofu ABC
hjálparstarfs í Sóltúni 3,
Reykjavík, sími 561-
6117. Minningargjafir
greiðast með gíróseðli
eða greiðslukorti.
Allur ágóði fer til hjálpar
nauðstöddum börnum.
Í dag er laugardagur 20. janúar,
20. dagur ársins 2001. Bræðra-
messa. Orð dagsins: Ég mun leita
að hinu týnda og sækja hið hrakta,
binda um hið limlesta og koma
þrótti í hið veika, en varðveita hið
feita og sterka. Ég mun halda þeim
til haga, eins og vera ber.
(Esk. 34, 16.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
KUNNINGI Víkverja er snyrti-legur og vill ganga þokkalega
um umhverfi sitt. Umhirða og rekst-
ur heimilisbílsins er í hans umsjá.
Hann ekur á ónegldum vetrardekkj-
um enda spæna þau ekki upp mal-
bikið. Í vetur þegar gekk á með vætu
og vægu frosti var saltpækli dreift á
götur borgarinnar sem leysti upp
slitlagið og var heimilisbíllinn akandi
drullublettur. Kunninginn er ragur
við að nota kemísk hreinsiefni sem
tæplega eru umhverfisvæn og fannst
hart að þurfa að velja á milli þess að
vera subba á óhreinum bíl eða um-
hverfissóði. Þá var honum bent á að
til væri íslenskt efni, unnið úr slát-
urafurðum, sem ynni á tjörubikinu
en væri óskaðlegt í samanburði við
kemísku hreinsiefnin. Hann furðar
sig á hvers vegna efnið hefur ekki
fengið betri kynningu og telur ólík-
legt að margir viti af því.
x x x
VÍKVERJI hefur stundum freist-ast til að kaupa sér samloku úr
sjálfsala á vinnustaðnum. Í þessi fáu
skipti hefur hann orðið fyrir von-
brigðum því samlokurnar hafa ekki
verið smurðar samdægurs heldur
hafa þetta verið dagsgamlar samlok-
ur. Það er ekki nokkur leið að skoða
dagstimpilinn í sjálfsalanum áður en
keypt er. Eftir þessa reynslu und-
anfarinna skipta er hann hættur að
eiga viðskipti við sjálfsalann.
Þá furðar hann sig á því að ekki
skuli vera á boðstólum fjölbreyttara
úrval af matvöru eins og ferskir
ávextir, skyr og t.d. niðurskorið
grænmeti. Þess í stað eru það að-
allega sætindi sem standa til boða.
x x x
VINUR Víkverja er nýbúinn aðskipta um vinnu. Áður starfaði
hann hjá stóru fyrirtæki. Í hádeginu
var alltaf boðið upp á heitan mat en
einnig upp á heita súpu, brauð,
grænmeti, álegg og ávexti starfsfólki
að kostnaðarlausu. Í nýju vinnunni
stendur að vísu heitur matur til boða
en starfsfólkið þarf sjálft að borga
hann að stórum hluta og margir
kjósa fremur að fá sér eitthvað létt.
Hann sagði að hádegisverður þótt
það væri bara samloka, drykkur og
ávöxtur kostaði sig um 400–500
krónur úti í búð. Vinurinn sagðist
ekki hafa gert sér grein fyrir því fyrr
en hann kom í nýju vinnuna hversu
mikil kjarabót það er þegar vinnu-
veitandi býður starfsfólkinu sínu há-
degismat.
x x x
VIÐMÓT afgreiðslufólks skiptirmiklu þegar verið er að kaupa í
matinn í kjöt- eða fiskborðum. Vík-
verji lagði leið sína í Nýkaup fyrir
skömmu og ætlaði að kaupa hrogn í
matinn. Þar var karlmaður á miðjum
aldri að afgreiða en viðskiptavinirnir
sem stóðu við fiskborðið voru nokkr-
ar konur á ýmsum aldri. Það var
nokkur bið á að komast að en það
skipti í raun ekki máli því þessi
herramaður heillaði allar konurnar
uppúr skónum með skondnum at-
hugasemdum og frábærri þjónustu-
lund. Hann stakk upp á því við eina
frúna að hún matreiddi þorsk í stað-
inn fyrir ýsu, hann útskýrði innihald
tilbúinna fiskrétta af kunnáttu og
hljóp fram og til baka til að ná í
stærri hrogn, minni bita af lifur, að-
eins minna ýsuflak og svo framvegis.
Viðmót þessa starfsmanns var til
fyrirmyndar.
alkóhólisti eða eitthvað
annað, t.d. fatlaður ein-
staklingur, er afar sjaldan
hlustað á barnið, því hrós-
að, hjálpað í gegnum erf-
iðar tilfinningar (eins og að
upplifa dauðann) eða örvað
til að rækta hæfileika sína,
m.ö.o. tilfinningaþroski
okkar stendur í stað.
Við förum út í lífið með
brotna sjálfsímynd og ef
við reynum að horfast í
augu við okkur sjálf dettum
við ofan í stórt tóm af ein-
manaleika, skömm og höfn-
unartilfinningu og til að
fylla tómið verðum við ann-
aðhvort alkólhólistar sjálf,
fíklar eða finnum okkur
maka/vini sem eru alkóhól-
istar eða fíklar t.d. ofæta,
kynlífsfíkill, trúarfíkill o.fl.
Ég varð reiður og bitur
einstaklingur og réð illa við
skapofsa minn, vanlíðan
mín varð þungbærari með
árunum og val á vinum og
mökum einkenndist af að
láta nota mig, á bjargvætt-
is/fórnarlambshegðun og
að klippa á sambönd.
Eftir stormasöm ár með
virkum alkóhólista og „mig
langar ekki að lifa“ hugsun
varð ég að leita mér að-
stoðar hjá fagfólki, fyrst
hjá geðlækni, síðan hjá sál-
fræðingi sem síðar benti
TÓLF spora samtökin
FBA (fullorðin börn alkó-
hólista, ekki Fjárfest-
ingabanki atvinnulífsins!!)
voru stofnuð hér 1987 og
hafa hjálpað mörgum, þ.á
m. mér. Að alast upp við
alkóhólisma eða sambæri-
legar aðstæður, t.d. við til-
finningalega lokun eða
landamæraleysi í sam-
skiptum hafa meiri áhrif á
líf okkar á fullorðinsárum
en kannski fólk gerir sér
grein fyrir.
Ég ólst upp við það að
pabbi drakk og mamma var
stöðugt reið út í hann og
það bitnaði á okkur systk-
inunum og kom fram í
miklum aga og litlum kær-
leik. Þetta hjónaband end-
aði með skilnaði en innri
vanlíðan mín hélt áfram
(sjálfsagt hinna líka!) þrátt
fyrir að búið væri að losa
okkur við „vandamálið“ því
ekki var leitað fagaðstoðar
fyrir okkur eða móðurina.
Ef heimilisástand ein-
kennist af því að eitt eða
fleiri „vandamál“ eru inni á
heimilinu sem allt snýst í
kringum, hvort sem það er
mér að fara á FBA-fund
sem haldin er í Bústöðum
(kjallara) baka til í Bú-
staðakirkju á sunnudögum
kl.11-13. Þetta varð mín
mesta gæfa, því að þora að
opna fyrir löngu liðnar til-
finningar úr æsku (sem er
eðlilegt að séu öfgakenndar
í byrjun) svo sem reiði, ást
sem aldrei var tjáð, höfnun
og fleiri tilfinningar, lærði
ég að fara í gegnum þær og
fletta lag eftir lag af höfn-
unum og reyna að lokum að
sleppa þeim til að hleypa
gleðinni að og breyta
mynstri fortíðar til að öðl-
ast betri nútíð og framtíð.
Mér hefur tekist að bæta
líðan mína svo um munar
en samt verðum við full-
orðin börn alltaf mörkuð af
uppeldi okkar á einn eða
annan hátt, en ef við við-
urkennum það og lærum að
elska okkur eins og við er-
um í dag getum við lært að
lifa heilsteyptu og ham-
ingjusömu lífi og taka einn
dag í einu, því þetta er
verkefni til lífstíðar.
Sátt kona.
Dagblaðskönnun
RITSTJÓRAR Dagblaðs-
ins hafa barist fyrir jöfnun
atkvæðisréttar í gegnum
árin, 1 maður- 1 atkvæði, en
þeir eru ekki sjálfum sér
samkvæmir, í skoðana-
könnun blaðsins er helm-
ingur svarenda valinn frá
höfuðborgarsvæðinu og
hinn helmingurinn frá
dreifbýlinu þó það séu 62%
landsmanna sem búa á höf-
uðborgarsvæðinu og 38% í
dreifbýli. Nú er það svo að
sumir flokkar eru sterkari í
dreifbýli en á höfuðborgar-
svæðinu, því hljóta þeir að
koma sterkari út úr könn-
uninni heldur en ef könn-
unin væri byggð á 62%
svarenda á höfuðborgar-
svæðinu og 38% svarenda í
dreifbýli. Þessvegna er
ekkert að marka skoðana-
könnun Dagblaðsins og
könnunin ritstjórunum til
mikillar skammar. Þessi
könnun getur ekki sýnt
rétta niðurstöðu þegar
minnihlutinn (dreifbýlið)
fær stærra vægi atkvæða
en þeim ber.
Pétur Sigurðsson
kt. 250944-4709
Tapað/fundið
Gullhringur fannst
GULLHRINGUR með
steinum fannst fyrir utan
Bónus í Skútuvogi fyrir
stuttu. Upplýsingar í síma
553-5663.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Hvernig
FBA-samtökin
hjálpa mér
K r o s s g á t a6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
LÁRÉTT:
1 kotið, 8 hundur, 9 blóð-
sugan, 10 fúadý, 11 hálf-
bráðinn snjór, 13 virðir,
15 bola, 18 hella, 21 spil,
22 hörkufrosti, 23 fim, 24
glímutök.
LÓÐRÉTT:
2 margtyggja, 3 skil eftir,
4 líkamshlutann, 5 sakar-
uppgjöf, 6 saklaus, 7
röskur, 12 smávegis ýtni,
14 grænmeti, 15 pésa, 16
furða sig á, 17 verk, 18 til
sölu, 19 rík, 20 skynfæri.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 gúlpa, 4 happs, 7 mæðan, 8 refil, 9 inn, 11 róar,
13 smár, 14 ástin, 15 koss, 17 æfar, 20 haf, 22 aumar, 23
urðin, 24 tjara, 25 dorma.
Lóðrétt: 1 gumar, 2 lóðsa, 3 asni, 4 horn, 5 páfum, 6 sæl-
ar, 10 nötra, 12 rás, 13 snæ, 15 kjaft, 16 semja, 18 fóður,
19 ranga, 20 hráa, 21 fund.