Morgunblaðið - 20.01.2001, Blaðsíða 61
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2001 61
Dúndur dansbandið
Sex menn og Andrea Gylfa
spila í kvöld frá miðnætti
Vesturgötu 2, sími 551 8900
ÁRIÐ 2000 endaði með brúðkaupi
ársins, er Madonna og leikstjórinn
Guy Richtie gengu í hjónaband á
Skotlandi. Nokkrum dögum áður
höfðu þau skírt son sinn Rocco að við-
stöddum riddaraflokki Hollywood-
stjarna. Brúðkaupið er sennilega ekki
aðeins það umtalaðasta á síðasta ári
heldur jafnvel allan síðasta áratug eða
allt frá því Díana og Karl Bretaprins
gengu í það heilaga. Enda var kon-
unglegur bragur á brúðkaupinu þó að
fjölmiðlum væri meinaður aðgangur,
mörgum til sárra vonbrigða.
Árið 2000 hófst hins vegar á skiln-
aði kryddpíunnar Mel G, svo hún varð
aftur Mel B er hjónaband hennar og
dansarans Jimmy Gulzars rann sitt
skeið á enda.
Þessi skilnaður og brúðkaup og
barneign Madonnu gefa tóninn fyrir
slúðurannál ársins 2000.
Hringir á fingur
Ýmsir leikarar voru meira áber-
andi en aðrir á hvíta tjaldinu á síðasta
ári en segja má að stjarna leikkon-
unnar Juliu Roberts skein einna
skærast eftir að kvikmyndin Erin
Brockovitch sló í gegn. Einnig hefur
ástin blómstrað hjá Roberts á árinu
þó að Gróa á Leiti hafi um stund hald-
ið Roberts viljað skipta unnustanum
Benjamin Bratt út fyrir Brad nokk-
urn Pitt er þau léku saman í kvik-
mynd í Mexíkó snemma á árinu.
Þær sögusagnir voru fljótlega
kveðnar í kútinn, hjarta Pitts, krón-
prinsins sjálfs af Hollywood, tilheyrði
fullkomlega unnustunni Jennifer An-
iston og gengu þau í hjónaband sl. vor
með miklum glæsibrag og þykir brúð-
kaupið hafa verið afar rómantískt.
Sagan segir nú að þau vilji eignast
barn en þar sem Aniston sé of grönn
eins og margar stöllur hennar verði
bið á barneignum. Brúðkaup leikar-
anna Catherine Zetu-Jones og Mich-
ael Douglas var ekki síður eftirminni-
legt og einkar íburðarmikið. Fljótlega
fór almenningur að kalla þau kónga-
fjölskylduna í Hollywood og var þá
einnig verið að tala um föður Mich-
aels, leikarann Kirk Douglas.
Óvæntasta brúðkaup ársins var án
efa þeirra Angelinu Jolie og Billy Bob
Thornton. Þau stungu víst af til Las
Vegas eina helgina og skeyttu ekki
um að segja sambýliskonu Thorntons,
leikkonunni Lauru Dern, frá ráða-
hagnum.
Brúðkaupið var líka ódýrt, í það
minnsta miðað við stjörnubrúðkaup
Pitt og Aniston sem kostaði yfir 10
milljónir dala og ekki gátu Zeta-Jones
og Douglas þá annað gert en tvöfalda
upphæðina er þeirra brúðkaup var
haldið nokkrum mánuðum síðar.
Ástin blómstrar
Ekki fór minna fyrir hinni brjósta-
góðu Pamelu Anerson árið 2000 frek-
ar en fyrri daginn og hennar nýjasta
kærasta, sænsku fyrirsætunni Marc-
us Schenkenberg. Þá fóru Heather
Graham og Heath Ledger, sem lék
son Mel Gibson í myndinni The Patr-
iot, að slá sér upp og þykja snoppu-
frítt par með eindæmum. Hollywood
prinsessan Gwyneth Paltrow átti líka
gott ár og er yfir sig ástfangin af kær-
astanum og tómatsósuerfingjanum
Chris Heinz. Grallarinn Ben Affleck
er því bara vinur hennar þetta árið og
hefur jafnvel gefið í skyn að hann vilji
frekar kynnast karlmanni náið í
næsta skiptið. Bítillinn Paul McCart-
ney fékk sér líka kærustu á árinu,
tveimur árum eftir að eiginkonan
Linda McCartney lést úr krabba-
meini.
Stjarna hins ástralska leikara
Russell Crowe festi sig endanlega í
sessi meðal stórstjarnanna er kvik-
myndin Gladiator leit dagsins ljós
snemma á síðasta ári. Crowe, sem
þykir mjög kynþokkafullur, lét þó
einnig að sér kveða í slúðurblöðunum
er hann og leikkonan Meg Ryan fóru
að skjóta sér saman er þau léku á
móti hvort öðru í Proof of Life sem
tekin var í London. Þar með var lokið
níu ára hjónabandi hennar og leikar-
ans Dennis Quaid sem hafði alla tíð
verið álitið eitt af traustustu sam-
böndum Hollywood.
Búið spil
Brestir urðu í mörgum öðrum
hjónaböndum og skildu meðal annars
leikarinn Harrison Ford og eiginkona
hans. Þá var hjónabandi Demi Moore
og Bruce Willis endanlega lokið og
sömu leið fór hjónaband Jane Fonda
og Ted Turners. Einnig batt Noel
Gallagher, gítarleikari Oasis, enda á
hjónaband sitt og eiginkonunnar
Megan Matthews en nokkrum mán-
uðum áður hafði bróðirinn Liam skilið
við eiginkonuna Patsy Kensit. Samb-
andsslit Anne Heche og Ellen De-
Generes þóttu koma eins og þruma úr
heiðskíru lofti og fóru fljótt af stað
sögusagnir um að hin unga og bros-
milda Heche væri orðin meira fyrir
karlhöndina í seinni tíð. Þá voru mikl-
ar vonir bundnar við að gamanleik-
arinn sívinsæli Jim Carrey og hin
ljúfa leikkona Renée Zellweger
myndu ganga í það heilaga en allt
kom fyrir ekki og hafa þau nú slitið
liðlega ársgömlu sambandi sínu fyrir
fullt og allt.
Áttu börn og buru
Sharon Stone ættleiddi barn á
árinu, dreng sem hún kallar Roan.
Stone, sem er komin á fimmtugsald-
urinn er yfir sig ánægð og virðist hafa
smitað nokkrar
jafnöldrur sínar, t.a.m. langar
söngkonuna Cher nú að ættleiða
barn. Þá voru fleiri en Madonna sem
fjölguðu mannkyninu árið 2000, John
Travolta og eiginkonan og leikkonan
Kelly Preston eignuðust dóttur sl.
sumar og Annette Bening, stjarnan
úr kvikmynd ársins 2000, American
Beauty, og eiginmaðurinn Warren
Beatty eignuðust sitt fjórða barn. Þá
eignuðust Will Smith og Jada Pinkett
sitt annað barn og Kristin Scott-Tho-
mas, Kate Winslet, Celine Dion,
Pierce Brosnan og Jerry Seinfeld
urðu foreldrar. Rokkkóngurinn Dav-
id Bowie og eiginkonan og fyrirsætan
Iman eignuðust sitt fyrsta barn sam-
an í sumar en eiga sitt hvort fyrir frá
fyrri samböndum.
Ekki má síðan gleyma prinsinum
sjálfum, Dylan Michael Douglas, sem
var aðeins þriggja mánaða er foreldr-
arnir Michael Douglas og Catherine
Zeta-Jones gengu í það heilaga í
haust.
Súrt og sætt
Michael J. Fox, Rob Lowe og
Charlie Sheen voru meðal þeirra
ungu leikara sem urðu gríðarlega vin-
sælir á níunda áratugnum. Þeir létu
mikið að sér kveða í sjónvarpi á síð-
asta ári. Á meðan Fox sagði skilið við
skjáinn vegna veikinda komu þeir
Lowe og Sheen sterkir inn og hafa
fengið uppreisn æru eftir að hafa
helst úr lestinni síðustu árin.
Sennilega áttu fáir úr stjörnufansi
Hollywood eins slæmt ár og söngkon-
an Whitney Houston og leikarinn Ro-
bert Downey yngri ef marka má skrif
slúðurblaðanna. Enn og aftur komst
Downey í klandur vegna eiturlyfja og
endaði í steininum og litlu munaði að
Houston færi sömu leið. Hún harð-
neitar þó staðfastlega að eiga við
nokkuð vandamál að stríða á meðan
Downey viðurkennir veikleika sinn og
hefur leitað sér hjálpar.
Jennifer Lopez naut gríðarlegra
vinsælda árið 1999 en kannski hljóp
hún aðeins á sig er hún mætti í kjóln-
um fræga á Grammy-verðlaunaaf-
hendinguna í fyrravor og skildi ekk-
ert eftir handa ímyndunarafli
karlkyns aðdáenda sinna. Einnig lenti
hún í útistöðum við lögregluna er
kærastinn, rapparinn Sean Puffy
Combs, var handtekinn fyrir að bera
skotvopn. Þá flýgur sú saga nú fjöll-
um hærra í Hollywood að Lopez hafi
slitið sambandi sínu við Puffy og er þá
án vafa orðin ein eftirsóttasta pipar-
mey í stjörnuborginni.
Svona var það, slúðurárið 2000, í
stórum dráttum. Á skiptust gleði og
sorg, hjónaskilnaðir og giftingar. Rétt
eins og líf flestra í hnotskurn en
kryddað demöntum, klæðskerasaum-
uðum klæðum og nokkuð bólgnum
peningaveskjum sem virðast skipta
aðalmáli þegar vinsældir eru annars
vegar í stjörnuborginni Hollywood.
Slúðurannáll ársins 2000
Brúðkaup
og barneignir
Fræga fólkið fékk ekki að hafa einkalíf sitt
í friði árið 2000 frekar en fyrri daginn.
Má segja að árið hafi verið sannkallað
slúðurár og úr nógu að moða fyrir slúð-
urdálka blaða og tímarita. Sunna Ósk
Logadóttir leit um öxl og komst að því
að brúðkaup og barneignir stjarnanna
voru það helsta sem var í fréttum.
Reuters
Michael Douglas gefur eigin-
konu sinni og barnsmóður,
Catherine Zeta-Jones, koss.
Brad Pitt og Jennifer Aniston skildu marga eft-
ir með sárt ennið þegar þau létu pússa sig sam-
an fremur óvænt.
Árið 2000 verður Madonnu og Guy Ritchie vafalítið
minnisstætt því þá eignuðust þau sitt fyrsta barn saman,
skírðu piltinn Rocco og létu pússa sig saman.
Noel og Meg áttu barn og skildu.
Jennifer Lopez í kjólnum
umdeilda.