Morgunblaðið - 01.03.2001, Síða 44
44 FIMMTUDAGUR 1. MARS 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Bílstjórar óskast
Bílstjórar óskast á vörubíl með tengivagn og
„búkollu“. Upplýsingar í símum 899 2303,
565 3143 og 565 3140.
Klæðning ehf.
FRÁ SUNDLAUG
KÓPAVOGS
Laust er til umsóknar starf við baðvörslu
karla í Sundlaug Kópavogs.
Um er að ræða 70% starf í vaktavinnu.
Góð sundkunnátta áskilin.
Laun samkvæmt kjarasamningi Starfsmanna-
félags Kópavogs og Launanefndar sveitarfélaga.
Nánari upplýsingar gefur forstöðumaður sund-
laugarinnar í síma 554 1299.
Umsóknir berist til starfsmannastjóra Kópavogs-
bæjar, Fannborg 2.
Umsóknarfrestur er til 15. mars nk.
Starfsmannastjóri
KÓPAVOGSBÆR
SKJÓL
Sambýli fyrir aldraða minnissjúka
að Laugaskjóli og 6. hæð Skjóli
Nú á að opna sambýlið að Laugaskjóli aftur eftir
viðgerðir. Fyrirhugað er að samvinna verði milli
þess og 6. hæðar í Skjóli og starfsfólk verði
ráðið þannig að það geti færst á milli staða.
Auglýst er eftir jákvæðu og áhugasömu starfs-
fólki, sem getur tekist á við fjölbreytt störf í
breytilegu umhverfi. Lausar eru stöður: Sjúkra-
liða, þroskaþjálfa og starfsmanna við
aðhlynningu. Reyklaus vinnustaður
Upplýsingar um störfin veitir Aðalheiður
í síma 568 8500.
Starf prests meðal
Íslendinga í Noregi
Biskup Íslands auglýsir, að ósk sóknarnefndar
íslenska safnaðarins í Ósló, laust til umsóknar
starf prests meðal Íslendinga í Noregi með að-
setur í Ósló, frá 1. maí 2001.
● Sóknarnefnd ræður í starfið til þriggja ára
með samþykki biskups Íslands.
● Þjónustusvæðið er Noregur, en þó einkum
meðal Íslendinga í Ósló. Viðkomandi þarf
að þekkja til aðstæðna í Noregi eða í ná-
grannalöndunum og vera fær um að tjá sig
á norsku, dönsku eða sænsku.
● Æskilegt er að umsækjendur hafi víðtæka
starfsreynslu, enda er presturinn eini starfs-
maður safnaðarins í fullu starfi. Þá er og
æskilegt að umsækjandi hafi reynslu af
barna- og æskulýðsstarfi.
● Lipurð í mannlegum samskiptum er mikil-
væg.
● Laun eru skv. kjarasamningi norskra presta.
● Óskað er eftir því að umsækjendur geri í um-
sókn skriflega grein fyrir menntun sinni,
starfsferli og öðru því, sem þeir óska eftir
að taka fram.
● Allar nánari upplýsingar um starfið og starfs-
kjör eru veittar á Biskupsstofu, s. 535 1500,
fax 551 3284. Einnig er að finna lýsingu á
starfinu á heimasíðu kirkjunnar
www.kirkjan.is .
● Umsóknarfrestur rennur út 25. mars 2001.
● Umsóknir sendist biskupi Íslands, Biskups-
stofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík.
FERÐIR / FERÐALÖG
Orlofsnefnd húsmæðra
í Reykjavík
Kynningarfundir
á ferðum sumarsins verður í Víkingasal
Hótels Loftleiða mánudaginn 5. mars nk.
kl. 20.00. „Sérhver kona, sem veitir eða hefur
veitt heimili forstöðu, án launagreiðslu fyrir
það starf, á rétt á að sækja um orlof,“ segir
í lögum um orlof húsmæðra.
Stjórnin.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Hjúkrunarfræðingar
Félagsfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga verður haldinn á Suðurlandsbraut 32
fimmtudaginn 8. mars kl. 17.00—18.00.
Fundarefni: Kosning fulltrúa Reykjavíkurdeild-
ar á fulltrúaþing félagsins 17.-18. maí 2001.
Hjúkrunarfræðingar á Reykjavíkursvæðinu eru
hvattir til að mæta.
Stjórnin.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
Opið hús verður í sal félagsins á Háaleitisbraut
68 föstudaginn 2. mars kl. 20.30.
Að þessu sinni mun hinn heimsþekkti veiði-
maður Michael Frödin heiðra okkur með nær-
veru sinni og halda fyrirlestur, en auk þess að
hafa starfað sem leiðsögumaður í 15 ár er hann
leiðandi í hönnun á nútíma laxa- og sjóbirtings-
flugum. Frödin hefur haldið fyrirlestra víða um
heim, ásamt því að skrifa bækur og greinar
um veiðar og fluguhnýtingar.
Dagskrá:
1 Fyrirlestur um veiðar í Noregi.
2 Frásögn af risasjóbirtingsveiðum í
Argentínu.
3 Happahylur fullur af stórglæsilegum
vinningum.
Sjáumst hress.
Skemmtinefndin.
TIL SÖLU
Fyrirtæki á Norðurlandi
Um er að ræða hjólbarðaverkstæði, smurstöð,
varahlutasölu og minni háttar viðgerðir.
Áhugasamir sendi nafn og símanúmer í póst-
hólf 190, 640 Húsavík.
Til sölu Woma 325 Z
háþrýstidæla, árg. ´92
1000 bör 131 l/mín vatnsflæði, knúin af MAN
D2866 díselvél. Er í einangruðum vagni með
3,5 rúmmetra tanki. Hægt að tengja dælu beint
við vatnsbrunn.
Tilboð sendinst á glit@visir.is .
Nánari upplýsingar í síma 560 8834.
TILKYNNINGAR
Menningarmálanefnd
Mosfellsbæjar
auglýsir eftir umsóknum um fjár-
framlög til lista- og menningarstarf-
semi 2001
Samkvæmt nýjum reglum hefur menn-
ingarmálanefnd Mosfellsbæjar ákveðið
að auglýsa eftir aðilum, sem óska eftir
fjárframlögum frá menningarmálanefnd
vegna listviðburða og menningarmála
árið 2001. Hér undir falla áður árviss fjár-
framlög til margvíslegrar menningar-
starfsemi í bænum, auk nýrra.
Reglur um úthlutun.
1. Rétt til að sækja um framlög til nefnd-
arinnar hafa listamenn, samtök lista-
manna og félagasamtök, sem vinna
að listum og menningarmálum í Mos-
fellsbæ.
2. Fjárframlög til lista og menningarmála
eru af tvennum toga:
a) Verkefnastyrkir til einstakra verk-
efna.
b) Starfstyrkir til félagasamtaka á
sviði lista og menningarmála í
Mosfellsbæ.
3. Nauðsynlegt er að umsækjendur til-
greini nákvæmlega til hvaða verka
ætlað er að verja framlögunum.
4. Umsóknum skal skilað í síðasta lagi
þann 2. apríl 2001 á skrifstofu
fræðslu- og menningarsviðs Mos-
fellsbæjar. Þeim ber að skila á sér-
stökum umsóknareyðublöðum, sem
hægt er að fá á skrifstofu Mosfells-
bæjar.
5. Nefndin áskilur sér rétt til að hafna
umsókn umsækjanda að hluta eða al-
farið.
6. Niðurstöður menningarmálanefndar
Mosfellsbæjar munu liggja fyrir eigi
síðar en 20. apríl 2001 og eru háðar
samþykki bæjarstjórnar.
Fræðslu- og menningarsvið
Mosfellsbæjar,
Þverholti 2,
270 Mosfellsbæ.
STYRKIR
Styrkir
Barnavinafélagið Sumargjöf
auglýsir styrki til framhaldsnáms. Nám
styrkþega þarf að nýtast börnum á leik- eða
grunnskólaaldri. Heildarupphæð til úthlutunar
er allt að einni miljón króna.
Umsóknir berist til stjórnar Barnavina-
félagsins Sumargjafar fyrir 31. mars 2001 í
pósthólf 5423, 125 Reykjavík.
Reykjavík, 15. febrúar 2001.
Stjórn Barnavinafélagsins Sumargjafar.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R