Morgunblaðið - 22.04.2001, Síða 1

Morgunblaðið - 22.04.2001, Síða 1
MORGUNBLAÐIÐ 22. APRÍL 2001 90. TBL. 89. ÁRG. SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 ngibjörg Pálmadóttir, sem lét á dögunum f embætti heilbrigðis- og tryggingamála- ðherra og sagði af sér þingmennsku, segir að sér hafi hreinlega þótt inn tími kominn. Hún upplýsir að hún hafi tekið þessa ákvörðun yrir einu ári og ræðir í samtali við Björn Inga Hrafnsson um árin sex stóli ráðherra, pólitíkina síðustu tuttugu árin, samstarfið við Davíð Oddsson og Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn, vináttuna við Halldór sgrímsson og framtíð Framsóknarflokksins. Hún segist sjá fyrir sér ð Halldór verði næsti forsætisráðherra hér á landi. 12 Minn tími kominn Morgunblaðið/Árni S Prentsmi Morgunblaðs Sunnudagur 22. apríl 2001 BHuldubarnið 26Aldalöng hefð fyrir dálæti Þjóðverja á Íslandi 20 Undrið í Bosníu 10 FORNLEIFAFRÆÐINGAR undir forystu norska landkönn- uðarins Thors Heyerdahl eru nú byrjaðir að kanna hvort upp- runa norrænna víkinga sé að leita í Suður-Rússlandi, að sögn Itar-Tass-fréttastofunnar í gær. Stunda þeir í þessu skyni upp- gröft við borgina Azov en hún er við ósa Don sem fellur í Azovshaf. Don hét til forna Tanais og Heyerdahl segir að minnst sé á ána Tana í Íslendingasögunum. Álítur hann að heitið sé af germönskum uppruna en ekki grískum eins og talið hefur ver- ið. Áður hefur Heyerdahl sagt frá áformum sínum um forn- leifarannsóknir í Kákasuslönd- unum Georgíu og Aserbaídsjan til að finna ummerki um for- feður víkinga. Rannsóknir Heyerdahl eru gerðar í sam- vinnu við rússnesku vísinda- akademíuna. Thor Heyerdahl Leit að uppruna víkinga Moskvu. AP. ÞOTA flughersins í Perú skaut í gær niður litla einshreyfils flugvél yfir frumskógi á Amasónsvæðinu. Tveir af farþegunum, kona sem hugðist stunda trúboð og barnung dóttir hennar, fórust og flugmaðurinn slas- aðist illa, fékk skot í fótlegg. Honum tókst samt að beina vélinni að Am- asónfljóti og lenda henni þar. Fólk á staðnum kom fólkinu til bjargar á kanóum innan við klukkustundu eft- ir atburðinn. Flugmaður herþotunnar mun hafa talið að um fíkniefnasmyglara væri að ræða en stjórnandi farþegavélar- innar mun ekki hafa gefið upp flug- áætlun. Konan sem fórst hét Veronica Bowers og var ættleidd dóttir henn- ar, Charity, með í för en hún var sjö mánaða gömul. Eiginmaður Bowers, Jim Bowers, og sex ára gamall sonur þeirra, Cory, komust lífs af. Tals- maður alþjóðlegra trúboðasamtaka baptista sagði að vélin hefði verið á leið frá landamærum Brasilíu og Perú til borgarinnar Iquitos í Perú, um þúsund kílómetra norðaustan við höfuðborgina Líma. Trúboðar bapt- ista hafa verið með stöð á þessum slóðum frá árinu 1939. Á árunum 1994–1997 skutu Perú- menn niður alls 25 litlar flugvélar sem talið er að fíkniefnasalar hafi notað til þess að sækja kókaín á vinnslustöðvar fíkniefnabaróna í Kólumbíu. Mistök flughers Perú Skutu nið- ur flugvél trúboða Líma. AP. ANDSTÆÐINGAR frjálsra heims- viðskipta hugðust í gær halda áfram aðgerðum á götum úti í Quebec- borg í Kanada en þar hófst á föstu- dag fundur leiðtoga 34 ríkja í Norð- ur- og Suður-Ameríku. Til harðra átaka kom áður en fund- urinn hófst og beitti óeirðalög- regla tára- gasi til að hrekja fólk á brott. Þús- undir lög- reglumanna gæta öryggis leiðtoganna en meðal þeirra er Ge- orge W. Bush Bandaríkjaforseti. Lögreglumennirnir voru búnir hjálmum og skjöldum, jafnvel hundar þeirra voru í skotheldum vestum. Mótmælendurnir voru um eitt þúsund, þeir börðu bumbur, þeyttu lúðra og köstuðu grjóti, flöskum og ýmsu rusli í lögreglu- mennina. Lauk mótmælaaðgerðun- um ekki fyrr en undir laugardags- morgun. Um 100 manns voru handteknir og nokkrir slösuðust, þar á meðal fimm lögreglumenn. Fátæk ríki fái sérkjör Er Jean Chretien, forsætisráð- herra Kanada, setti fundinn for- dæmdi hann ofbeldi mótmælend- anna og sagði hann að smám saman myndi fríverslun „tryggja betri kjör og aukin lífsgæði handa öllum þjóð- um þessa heimshluta“. Sumir leið- togarnir létu þó í ljós efasemdir. Hugo Chavez, forseti Venesúela, sagði að fá af markmiðunum sem sett voru á fyrsta fundi leiðtoganna í Miami 1994 hefðu náðst. „Við höf- um ekki einvörðungu staðið í stað – við höfum farið aftur á bak,“ sagði forsetinn. „Fátæktin er meiri núna og fleiri börn eru á götunum en áð- ur.“ Aðrir bentu á að erfitt væri að samræma viðskiptasjónarmið þátt- tökuþjóðanna sem væru sumar meðal hinna ríkustu í heimi en aðrar í hópi hinna fátækustu. Forsætis- ráðherra Barbados, Owen Arthur, hvatti til þess að á fundinum ein- beittu menn sér að hagsmunum al- mennings og fátækustu þjóðirnar fengju sérstakar undanþágur í samningum um frjáls milliríkjavið- skipti. Búist við frekari átökum í Quebec Quebec-borg. AP, Reuters. ÞINGKOSNINGAR verða í Svart- fjallalandi í dag og er búist við sigri stjórnarflokkanna tveggja, Lýðræð- isflokks sósíalista og Jafnaðar- mannaflokksins. Er þeim spáð sam- anlagt 47% atkvæða en helstu samtökum stjórnarandstæðinga, er nefnast Saman fyrir Júgóslavíu, 36% fylgi. Stjórnarflokkarnir vilja fullt sjálfstæði frá sambandsríkinu Júgóslavíu en í því eru nú aðeins eftir tvö ríki, Serbía og Svartfjalla- land. Kosið er um 77 þingsæti og einn af alþjóðlegum eftirlitsmönnum með kosningunum í dag er Jónína Bjartmarz alþingismaður. Milo Djukanovic, forseti landsins, er í fyrrnefnda stjórnarflokknum og hefur sagt að hann vilji efna til þjóð- aratkvæðis í sumar um að Svartfell- ingar segi sig úr lögum við Serba. Sumir smáflokkar sem ekki eru í stjórn gætu snúist á sveif með fullu sjálfstæði og einn þeirra, Frjáls- lynda bandalagið, gengur raunar enn lengra í þá átt en Djukanovic sem hefur látið í ljós vilja til að halda í einhvers konar málamynda- samband við Serbíu. Djukanovic átti í stjórnartíð Slobodans Milosevic, fyrrverandi Júgóslavíuforseta, gott samstarf við Vesturveldin og er Atlantshafs- bandalagið gerði loftárásir á stöðvar júgóslavneska hersins 1999 vegna Kosovo-deilunnar var Svartfjalla- landi að mestu hlíft. Viðvaranir Kostunica Júgóslavíuforseta Stjórnarandstaðan í Svartfjalla- landi er að uppistöðu til flokkur sem studdi áður Milosevic en er nú á bandi Vojislavs Kostunica, forseta Júgóslavíu og er mjög andvígur sambandsslitum. Kostunica varaði í liðinni viku eindregið við sam- bandsslitum og sagði að yrðu gerðar breytingar á ríkjaskipan og landa- mærum landanna á svæðinu gæti afleiðingin orðið fleiri blóðug stríð á Balkanskaga. Sjálfstæðissinnar úr röðum Svartfellinga segja Kost- unica nota sömu aðferðir og Milose- vic, hann hóti ofbeldi til að hafa sitt fram. Svartfellingar eru náskyldir Serbum. Þeir eru um 650.000 og því mun fámennari en Serbar sem eru níu milljónir en einnig búa nær tvær milljónir manna í Kosovo, flestir Albanar. Fari svo að Svartfellingar kjósi sjálfstæði segja stjórnmála- skýrendur að niðurstaðan gæti ýtt undir kröfur Kosovo-Albana um að þeir fái að stofna eigið ríki og losna þar með endanlega undan yfirráð- um Serbíu. Héraðið er samkvæmt alþjóðalögum enn hluti Júgóslavíu. Reuters Stuðningsmenn Frjálslynda bandalagsins í Svartfjallalandi veifa fánum á kosningafundi í borginni Cetinje. Talið er að flokkar sem vilja fullt sjálfstæði muni sigra í kosningunum í dag. Kosningar í Svartfjallalandi gætu orðið afdrifaríkar Vilja sjálfstæði frá Serbum Belgrad. AP, Reuters.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.