Morgunblaðið - 22.04.2001, Blaðsíða 2
Morgunblaðinu í dag fylgir
blað frá Heilsuverslun Íslands.
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÞRÁTT fyrir snjóléttan og hlýjan
vetur hefur gróður í görðum lands-
manna að mestu legið í dvala líkt og
eðlilegt þykir að vetrarlagi. Harð-
gerð stjúpa sem hefst við undir hús-
vegg í Hæðargarði 33–35 í Reykja-
vík hefur þó þrjóskast við og
blómstrað síðan á þorra. Húsvörð-
urinn í Hæðargarði, Björgvin Þórð-
arson, á stóran þátt í góðri heilsu
stjúpunnar þar sem hann hefur
hlúð að henni frá því hún fyrst festi
rætur í garðinum í fyrrahaust.
Björgvin segist fyrst hafa tekið
eftir þessu harðgerða blómi rétt
fyrir jól og þá farið að hlúa að því.
Stjúpan launaði umhyggjuna fyrstu
vikuna í febrúar og tók að
blómstra. „Síðan hefur hún verið að
bæta við sig, er óvenju stór og er
núna mjög kröftug og sprettur
vel,“ segir Björgvin og viðurkennir
að hafa hjálpað henni vel áleiðis
með reglulegri áburðargjöf og
vökvun.
Breiddi teppi yfir stjúpuna
Þegar frysti eða snjóaði breiddi
Björgvin teppi yfir stjúpuna til að
hlífa henni við veðrinu og segir
hann nágrannana hafa komið að
máli við Jónínu konu sína og spurt
hvort næsta skref væri ekki að fara
út með dúnsængina hans Björgvins
til að dekstra enn betur við blómið.
„Já, því hefur svo sem verið
fleygt fram að ég hugsi betur um
stjúpuna en konuna mína,“ segir
Björgvin sem kallar stjúpuna líf-
seigu gjarnan fósturbarnið sitt í
gamni og þó nokkurri alvöru enda
óvíst að nokkurt annað blóm á Ís-
landi njóti jafnmikillar athygli og
alúðar og stjúpan í Hæðargarð-
inum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Björgvin Þórðarson hlúir vel að stjúpunni sem kúrir undir húsvegg í Hæðargarðinum.
„Fósturbarnið“ launar umhyggjuna
HUGMYNDIR eru uppi um að
reisa alhliða verslunar- og þjón-
ustumiðstöð við Sunnumörk í
Hveragerði, við þjóðveg 1, skammt
frá Eden. Bæjarstjórn hefur falið
Hálfdáni Kristjánssyni bæjar-
stjóra að kynna líklegum fjárfest-
um fyrirhugaða byggingu 3 þús-
und fermetra verslunarmiðstöðvar.
Þegar hafa fyrirspurnir borist
vegna lóðarinnar. Að sögn Hálf-
dáns hefur bærinn mikinn áhuga á
því að við Sunnumörk rísi versl-
unar- og þjónustumiðstöð sem
rúmi þá þjónustu sem sveitarfélög
almennt bjóði.
„Þarna yrði væntanlega banki,
matvöruverslun, byggingavöru-
verslun, upplýsingamiðstöð, vín-
búð, veitingasala og kannski
fleira,“ segir Hálfdán og bendir á
þann mikla fjölda fólks sem reglu-
lega leggur leið sína fram hjá
bænum á leið sinni austur fyrir
fjall.
Áhugi á viðskiptum við
sumarbústaðaeigendur
„Ef við getum verið með versl-
unarmiðstöð sem veitir alla þjón-
ustu sem fólk þarf á halda, þýðir
það að allur hinn geysilegi fjöldi
fólks á leið í sumarbústaði myndi
sjá sér hag í því að stoppa á einum
stað í stað þess að fara á nokkra
staði eða lenda í örtröð í Reykja-
vík. Það er stöðugur straumur
fólks á austurleið frá 15 til 19 á
föstudögum og þetta er fyrst og
fremst fólk á leið í sumarbústaði.“
Hálfdán gerir sér vonir um að
ljúka kynningarvinnunni í lok maí.
Lóðin við Sunnumörk hefur ekki
verið auglýst en þegar hafa borist
fyrirspurnir um hana, einkum frá
byggingaverktökum en einnig að-
ilum í verslunarrekstri. Hálfdán
segir þó ekki tímabært að upplýsa
um hverja sé að ræða.
Áform
um stóra
verslunar-
miðstöð í
Hveragerði
FJARÐABYGGÐ hefur hafið til-
raunaborun í Eskifirði en vísbend-
ingar eru um að þar sé heitt vatn
að finna.
Guðmundur Sigfússon, forstöðu-
maður umhverfismálasviðs Fjarða-
byggðar, segir að nokkrar holur
hafi verið boraðar á þremur stöð-
um í fyrra, þ.e. Norðfirði, Reyð-
arfirði og Eskifirði, en nú sé stefnt
að því að þétta netið á Eskifirði.
„Við erum að reyna að staðsetja
heita punktinn. Við höfum ákveðna
fjárveitingu til borana frá Orku-
stofnun og ætlum að nýta hana
núna ásamt framlagi sem við leggj-
um á móti. Það eru vísbendingar
um að þarna sé heitt vatn að finna.
Við erum að bora núna 50 metra
holu og það fæst svörun sem bend-
ir til þess að einhvers staðar sé
hita að finna. Með því að þétta
holunetið getum við hugsanlega
staðsett legu sprungu sem hugs-
anlega er heitt streymi í,“ segir
Guðmundur. Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Vísbendingar
um heitt vatn
á Eskifirði
SÍMAFYRIRTÆKIN þrjú, Íslands-
sími hf., Landssími Íslands og Tal hf.
eru misjafnlega vel búin undir núm-
eraflutning í farsímakerfinu, en sam-
kvæmt reglugerð Póst- og fjarskipta-
stofnunar, sem taka á gildi 1. júní nk.,
eiga farsímanotendur að geta flutt
með sér númer sín þegar þeir skipta
um símaþjónustufyrirtæki. Mestrar
svartsýni gætir hjá Landssímanum,
en að sögn Páls Á. Jónssonar tækni-
fræðings hjá Landssímanum eru
tæknilegar forsendur hæpnar.
„Í dag er ekki búið að ákveða
hvernig verður staðið að tæknilegum
lausnum á númeraflutningi á farsíma-
sviði,“ segir Páll spurður að því
hvernig Landssíminn sé búinn undir
breytinguna 1. júní. „Það er ekki
komin fram tæknileg lausn á þessu
máli af hálfu framleiðanda okkar, Er-
icsson, og við förum ekki fram úr hon-
um. Tímasetningin er því ekki nógu
góð og það er of snemma farið af stað í
þetta mál.“
Spurður um þetta atriði segir Gúst-
av Arnar, forstöðumaður Póst- og
fjarskiptasviðs, að til greina komi að
fresta gildistöku reglugerðarinnar ef
til þess liggi gildar ástæður. Hann
segir að nú sé verið að kortleggja það
hvort símafyrirtækin glími við raun-
verulega erfiðleika við að koma núm-
eraflutningnum í framkvæmd og
reynist svo vera sé ekki um annað að
ræða en að fresta gildistökunni.
Þórólfur Árnason forstjóri Tals hf.
segir dagsetninguna 1. júní vera
krefjandi, og segir málið vera mjög
tæknilega flókið en er þó nokkuð
bjartsýnn á að númeraflutningurinn
geti komið til framkvæmda á tilsett-
um tíma. „Við höfum ekki lausnina í
dag en vinnum hörðum höndum að
því að leysa málið,“ segir hann. „Það
er ekki útséð um að þetta takist en í
ljósi þess að Tal hf. á líklega mestra
hagsmuna að gæta í þessu sambandi
hafa menn síður en svo verið að draga
lappirnar við undirbúninginn.“ Hann
segir tæknilegar forsendur ekki vera
hæpnar hjá Tali hf. en bendir á að
taka þurfi tillit til margra þátta. „Það
þarf að huga að tæknibúnaði frá Nor-
tel og Ericsson, reikningagerðarkerfi,
gagnaflutningsþjónustu, reikisamn-
ingum og samningum við erlend
símafyrirtæki svo eitthvað sé nefnt.
Símtækni er ótrúlega flókið mál en
allir eru að gera sitt besta. Annars
held ég að önnur hagsmunamál fyrir
neytendur séu e.t.v. mun brýnni, svo
sem stækkun símkerfisins, sem við
erum stöðugt að vinna að.“
Mestrar bjartsýni gætir hjá Ís-
landssíma hf., að því er kemur fram í
máli Eyþórs Arnalds forstjóra. „Hvert
og eitt símafyrirtæki þarf að fjárfesta í
búnaði til að þetta gangi upp, við erum
a.m.k. alveg í stakk búnir til að flytja
númer til okkar og frá í júní eins og um
er talað,“ segir Eyþór.
Reglugerð um númeraflutning á farsímasviði tekur gildi 1. júní að öllu óbreyttu
Símafyrirtækin eru
misjafnlega undir búin
Skattlagning á tekjur ung-
menna undir 18 ára aldri
4,7 millj-
arðar í
tekjur
árið 1999
TEKJUR barna yngri en 16 ára voru
um 900 milljónir samkvæmt skatt-
framtölum fyrir árið 1999. Tæplega
4200 börn töldu fram tekjur og af
þeim greiddu þau 35,8 milljónir í
skatta og útsvar. Þetta kom fram í
svari Geirs Haarde, fjármálaráðherra
við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardótt-
ur alþingismanns Samfylkingarinnar.
Fyrir sama ár töldu um 8700 ung-
menni á aldrinum 16 og 17 ára fram
tekjur að fjárhæð rúmlega 3,8 millj-
arðar króna. Af þessu borguðu þau
um 116 milljónir í tekjuskatta og út-
svar. Tekjur barns innan við 16 ára
aldur eru taldar fram með tekjum for-
eldra.
Í svari fjármálaráðherra kemur
fram að helstu rök fyrir 16 ára aldurs-
markinu lúta að atvinnuþátttöku ung-
menna. Þá lýkur skólaskyldu og þá
hefur nokkur hluti ungmenna fulla
atvinnuþátttöku. Sum þeirra afla
svipaðra tekna og fullorðnir en á
árinu 1999 hafði fjórðungur 17 ára
unglinga tekjur yfir skattleysismörk-
um. „Eðlilegt verður að teljast og í
anda jafnræðissjónarmiða að þátttak-
endur á vinnumarkaði séu skattlagðir
með sama hætti,“ segir í svari ráð-
herra.
Þá kemur fram að þrátt fyrir að
sjálfræðisaldri hafi nýlega verið
breytt úr 16 árum í 18 hafi ekkert
komið fram sem bendi til þess að Al-
þingi hafi með því viljað breyta
ákvæðum skattalaga til samræmis við
hækkun sjálfræðisaldurs.
♦ ♦ ♦
Mæðgin flutt
á slysadeild
eftir árekstur
MÆÐGIN voru flutt á slysadeild
Landspítala – háskólasjúkrahúss í
Fossvogi eftir árekstur tveggja
bíla á Bústaðavegi á móts við
Bústaðabrú um kl. hálfellefu í
gærmorgun.
Talið var að sonurinn yrði út-
skrifaður í gær en móðir hans
hlaut brot á bringubeini og verður
því áfram á sjúkrahúsi til eftirlits.
Miklar skemmdir urðu á bílun-
um og voru þeir dregnir af vett-
vangi með dráttarbíl.