Morgunblaðið - 22.04.2001, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NEIL Bardal, sem rekurútfararþjónustu í Winni-peg, segir að margt hafigert það að verkum að
bjartsýni um aukin viðskiptasam-
bönd milli Manitoba og Íslands hafi
aukist. Íslenskir ráðherrar, emb-
ættismenn og stjórnendur fyrir-
tækja hafi heimsótt Manitoba og
sýnt málinu áhuga og stuðningur
Íslands við ýmis málefni vestra
undanfarin misseri hafi gefið mönn-
um byr undir báða vængi varðandi
samvinnu og samstarf sem gæti
leitt gott af sér beggja vegna Atl-
antshafsins.
Traustur grunnur
og mikilvægir staðir
Á nýliðnu ári voru um 200 við-
burðir vítt og breitt um Kanada til
að minnast þess að 1000 ár voru lið-
in frá landnámi Íslendinga í Norð-
ur-Ameríku og 125 ár frá því Ís-
lendingar settust fyrst að við
Winnipegvatn í Manitoba. Þessi há-
tíðarhöld vöktu mikla athygli og
segir Neil að þau hafi opnað Kan-
adamönnum nýja og meiri sýn á Ís-
landi og öfugt. Til þessa hafi Íslend-
ingar fyrst og fremst átt viðskipti
við Bandaríkjamenn í Norður-Am-
eríku en í viðræðum íslenskra og
kanadískra ráðamanna undanfarin
misseri hafi vilji til aukinna við-
skipta þjóðanna ekki leynt sér. Mik-
ilvægt væri að nýta byrinn með
aukin tengsl við Manitoba í huga og
í því sambandi væri rétt að árétta
mikilvægi staðanna. Winnipeg væri
miðsvæðis í Kanada með gott sam-
göngukerfi í lofti, á láði og legi til
allra átta og Ísland væri miðpunkt-
urinn á milli meginlands Evrópu og
Kanada.
Flug frá Íslandi til
Winnipeg mikilvægt
Þegar Davíð Oddsson, forsætis-
ráðherra, hitti Gary Doer, forsætis-
ráðherra Manitoba, á liðnu hausti,
lýsti Doer því yfir að hefðu Flug-
leiðir áhuga myndi Manitobastjórn
gera allt sem hún gæti til að Flug-
leiðir fengju að fljúga í áætlunar-
flugi til Winnipeg. Neil
segir að nýlega hafi
Flugleiðum verið boðin
umrædd flugleið en
frekar hafi verið kosið
að bæta við tveimur
ferðum á viku til Halifax og það
væri að mörgu leyti skiljanlegt því
flugið til Halifax hefði greinilega
haft mikil áhrif. Áður hefðu til
dæmis fáir í Halifax vitað neitt um
Ísland en nú væri vitneskja flestra
ef ekki allra mjög mikil. En horfa
þyrfti á málið í víðu samhengi.
Gengi flugið til Halifax vel væri það
stökkpallur fyrir flug til Winnipeg
og að því þyrfti að vinna í samvinnu
við Flugleiðir. Sýna þyrfti fram á
arðsemi flugs til Winnipeg og í því
sambandi væri mikilvægt að ein-
blína ekki aðeins á ferðir Íslendinga
til Kanada og Kanadamanna af ís-
lenskum ættum til Íslands heldur
markaðinn frá Toronto í austri til
Vancouver í vestri. „Í stað þess að
fólk færi frá Toronto eða Vancouver
til Amsterdam, London eða Frank-
furt gæti það farið frá
Winnipeg með millilend-
ingu á Íslandi.“
Hann segir ennfremur
að tilboð Kanada um
áætlunarflug til Winni-
peg marki tímamót, því slíkt hafi
aldrei verið boðið áður, og það sýni
að dyrnar til Manitoba séu opnar
Íslendingum.
Loren Gudbjartsson er frá River-
ton en býr á Gimli og rekur þar ráð-
gjafaþjónustu sína. Hann segir
samgöngur milli landanna skipta
miklu máli og beint flug til Winni-
peg frá Íslandi yrði mikill kostur.
Kristine Sigurdson, sem býr líka á
Gimli, tekur í sama streng og bend-
ir á að í þessu sambandi sé eðlileg-
ast að tala um Winnipeg og Gimli
sem einn og sama staðinn því ekki
taki nema 45 mínútur að aka frá al-
þjóða flugvellinum í Winnipeg til
iðngarðssvæðisins við Gimli og það
þyki hvergi mikill tími í Norður-
Ameríku. Umrættur iðngarður er
við flugvöllinn á Gimli og þar er
mikið ónotað rými en Kristine segir
að Gimli geti verið æskilegur staður
fyrir dreifingu vara vegna vöru-
flutninga frá Íslandi til Norður- og
Suður-Ameríku. Í þessu sambandi
bendir Loren á að verslun á Netinu
fyrir jólin hafi aukist gífurlega sem
sjáist vel á því að umfangið hjá kan-
adísku póstþjónustunni hafi meira
en tífaldast. Þarna sé því líka vaxt-
arbroddur.
Flutningar með Gimli sem vöru-
miðstöð gætu líka verið ódýrari en
þeir sem ættu sér nú stað. Þarna
gæti einnig opnast ný vöruflutn-
ingaleið fyrir Flugleiðir frá meg-
inlandi Evrópu til Ameríku. „Að
okkar mati eru þetta spennandi
kostir sem vert er að skoða ná-
kvæmlega frá öllum hliðum,“ segir
Kristine.
Í þriðja lagi segir hún að með
flugi frá Íslandi til Winnipeg megi
flytja hálfunna vöru frá meginlandi
Evrópu eða Íslandi og fullvinna
hana vestra áður en hún yrði flutt
til söluaðila. Ef komið yrði á tollfríu
svæði á Gimli mætti með þessu fyr-
irkomulagi koma í veg fyrir tví-
sköttun og þetta væri möguleiki
sem vert væri að skoða nánar.
Loren segir að ekki megi gleyma
gamla herflugvellinum á Gimli en
a.m.k. eitt flugfélag starfræki vöru-
flutninga þaðan. Flugbrautin sé um
1.600 metra löng og byggð á mjög
traustum grunni, en vegna aðstöð-
unnar séu margir möguleikar fyrir
hendi.
Miklir möguleikar á Gimli
Kristine segir að margir hafi
ranga ímynd varðandi Gimli. Þar sé
ekki aðeins elliheimili heldur virk
menningarstarfsemi sem íslenska
ríkið og Eimskip hafi styrkt af
rausnarskap og líflegt mannlíf með
verslunum og hótelum. „Ég hef ver-
ið í sambandi við marga í ferða-
málageiranum og eitt sinn hitti ég
íslenska konu í Halifax. Hún sagði
mér að fólk á Íslandi héldi að á
Gimli væri ekkert nema elliheimilið
Bethel. Hér þarf að taka til hendi
og kynna fyrir Íslendingum hvað
Gimli hefur upp á að bjóða og það
er ekki svo lítið.“
Í máli Lorens kemur fram að
Kanadamenn af íslenskum uppruna
þurfi líka að kynna sér betur hvað
Ísland hefur upp á að bjóða, hvað
Íslendingar vilji og þurfi, og hafa
verði í huga að öll viðskipti á milli
landanna verði að ganga í báðar átt-
ir.
Þau eru til dæmis sammála um
að góður markaður sé fyrir íslensk-
ar lopapeysur og aðrar lopavörur í
Manitoba. Um gæðavörur sé að
ræða og því sé eðlilegt að þær kosti
meira en eftirlíkingar en Kristine
bendir á að þó treysta megi gæð-
unum séu tollarnir of háir og vör-
urnar of dýrar fyrir marga.
Þegar rætt er um tolla má benda
á að í áfengisversluninni á Gimli var
íslenskur bjór seldur á sem sam-
svarar 60 kr. nú í mars og þriggja
Kanadískir athafnamenn af íslenskum ættum benda á leiðir til aukinna viðskipta Manitoba og Íslands
Sterkasti bak-
hjarl Íslendinga
er í Kanada
Tíðar heimsóknir íslenskra ráðamanna,
embættismanna og stjórnenda fyrirtækja
til Manitobafylkis í Kanada á nýliðnum
misserum hafa glætt vonir Kanadamanna af
íslenskum ættum um aukin samskipti Ís-
lands og Manitoba á viðskiptasviðinu. Stein-
þór Guðbjartsson var í Manitoba, hitti Neil
Bardal, kjörræðismann Íslands í Manitoba,
Kristine Sigurdson, verslunareiganda á
Gimli, og Loren H. Gudbjartsson, verkfræð-
ing og ráðgjafa við orkuvinnslu, og hlustaði
á hugmyndir þeirra um aukin viðskipti.
Neil Bardal, kjörræðismaður Íslands í Manitoba, Kristine Sigurdson,
verslunareigandi á Gimli, og Loren H. Gudbjartsson, verkfræðingur og
ráðgjafi við orkuvinnslu frá Riverton, hafa ákveðnar hugmyndir um
hvernig auka má viðskipti milli Manitoba og Íslands.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Á sléttum Kanada stinga skýjakljúfarnir í miðborg Winnipeg óneitanlega í stúf við umhverfið.
Dyrnar til Mani-
toba opnar
Íslendingum
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Brúðhjón
A l l u r b o r ð b ú n a ð u r - G l æ s i l e g g j a f a v a r a - B r ú ð h j ó n a l i s t a r