Morgunblaðið - 22.04.2001, Side 31

Morgunblaðið - 22.04.2001, Side 31
KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. APRÍL 2001 31 REYKJAVÍK: Ármúla 11 - sími: 568 1500 AKUREYRI: Lónsbakka - sími: 461 1070 GREI NAK URLA RAR NÚ á þriðjudagskvöldið 24. apríl, gengst fullorðinsfræðsla Laugarnes- kirkju fyrir hinu árlega skírnar- fræðslukvöldi sem opið er öllu fólki, en foreldrum og skírnarvottum þeirra barna sem skírð voru árið 2000 er sérstaklega boðið. Hefst kennslan kl. 20, þar sem sr. Bjarni Karlsson heldur tvö stutt erindi og stýrir umræðum um gildi skírnar- innar og trúaruppeldi ungra barna. Kl. 21 er öllum boðið til „Þriðjudags með Þorvaldi“ sem er vikuleg helgi- stund í kirkjunni. Þar leiðir Þorvald- ur Halldórsson söng við undirleik Gunnars Gunnarssonar, einn félagi í fullorðinsfræðslunni segir frá gildi trúarinnar í eigin lífi og sóknarprest- ur leiðir sameiginlega bæn fyrir skírnarbörnum liðins árs. Gengið er inn um dyr á austurgafli kirkjunnar (bakatil), niður tröppur inn í gamla safnaðarheimilið, þar sem fullorðinsfræðslutímar kirkj- unnar fara fram alla þriðjudaga á sama tíma. Verið velkomin. Safnaðarstarf Háteigskirkja. Ævintýraklúbbur og TTT-klúbbur mánudag kl. 17. Spurt og svarað. Laugarneskirkja. Morgunbænir mánudag kl. 6.45-7.05. TTT (10-12 ára) mánudag kl. 15.30. 12 spora hópar koma saman í safnaðarheim- ilinu mánudag kl. 19.15. Neskirkja. Starf fyrir 6 ára börn mánudag kl. 14-15. TTT-starf (10-12 ára) mánudag kl. 16.30. Húsið opið frá kl. 16. Foreldramorgnar mið- vikudag kl. 10-12. Fræðsla: Tónlist fyrir ung börn og foreldra. Ólöf María Ingólfsdóttir. Seltjarnarneskirkja. Æskulýðs- félagið (8., 9. og 10. bekkur) kl. 20-22. Árbæjarkirkja. Æskulýðsfélag fyrir 13 ára (fermingarbörn vorsins 2001) kl. 20-21.30. Æskulýðsfélag eldri deildir 9. og 10. bekkingar kl. 20- 21.30. Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 9-10 ára drengi á mánudögum kl. 17-18. Æskulýðsstarf fyrir 8.-10. bekk á mánudögum kl. 20-22. Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20. Tekið er við bænarefnum í kirkj- unni alla daga frá kl. 9-17 í síma 587- 9070. Mánudagur: KFUK fyrir stúlkur 9-12 ára kl. 17.30-18.30. Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir 8. bekk kl. 20.30 á mánudögum. Pré- dikunarklúbbur presta í Reykjavík- urprófastsdæmi eystra er á þriðju- dögum kl. 9.15-10.30. Umsjón dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. Seljakirkja. Fundur í æskulýðs- félaginu Sela kl. 20 fyrir unglinga 13- 16 ára. Hafnarfjarðarkirkja. Æskulýðs- starf yngri deild kl.20.30-22 í Hásöl- um. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Æskulýðs- félag 13 ára og eldri kl. 20-22. Vídalínskirkja. 10-12 ára starf fyrir drengi í samstarfi við KFUM kl. 17.30 í safnaðarheimili. Krossinn. Almenn samkoma að Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir vel- komnir. Akraneskirkja. Fundur í æskulýðs- félaginu í húsi KFUM og K mánu- dagskvöld kl. 20. Hvammstangakirkja. KFUM og K starf kirkjunnar mánudag kl.17.30 á prestssetrinu. Víkurprestakall í Mýrdal. Ferming- arfræðsla á mánudögumkl. 13.45. Frelsið, kristileg miðstöð. Almenn fjölskyldusamkoma sunnudaga kl. 17. Foreldrar skírnarbarna kallaðir til Laugarnes- kirkju Morgunblaðið/Brynjar Gauti Laugarneskirkja

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.