Morgunblaðið - 26.04.2001, Blaðsíða 58
FRÉTTIR
58 FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Sonne Rammstein
Survivor Destiny´s Child
Butterfly Crazy Town
I’m Like A Bird Nelly Furtado
Outside Aaron Lewis & Fred Durst
Dagbókin mín 3 G ´S
Miss Jackson Outkast
Nobody Wants To Be Lonely Christina Aguilera &
Ricky Martin
Road Trippin Red Hot Chili Peppers
It Was’nt Me Shaggy
Gravel Pit Wu Tang Clan
What It Feels Like For A Girl Madonna
Can’t Fight The Moonlight LeAnn Rimes
Stuck In A Moment U2
The Call Backstreet Boys
Things I Have Seen Spooks
Shiver Coldplay
All For You Janet Jackson
Tonk Of The Lawn Egill Sæbjörnsson
Út á lífið Lydía Grétarsdóttir
Vikan 25.04. - 2.05
http://www.danol.is/stimorol
STÚDENTARÁÐ samþykkti
einróma eftirfarandi ályktun á
fundi sínum í vikunni: „Aðeins er
um vika þangað til að boðað
verkfall Félags háskólakennara
hefst og starfsemi stærstu
menntastofnunar landsins lamast
um ófyrirséðan tíma.
Stúdentaráð krefst þess að
deiluaðilar vinni hratt og örugg-
lega að samkomulagi til þess að
sátt náist áður en til verkfalls
kemur. Stúdentaráð lýsir ánægju
sinni með að samningaviðræður
gangi ágætlega og að bjartsýni
ríki um að samkomulag náist.
Stúdentaráð telur mikilvægt
að tryggja kennurum og starfs-
fólki Háskólans samkeppnishæf
laun í samræmi við menntun og
ábyrgð í starfi. Háskóli Íslands
er í stöðugri samkeppni við jafnt
innlendar sem erlendar stofnanir
og fyrirtæki um hæft starfsfólk.
Háskólinn verður að hafa bol-
magn til að laða til sín gott
starfsfólk og stjórnvöld verða að
tryggja skólanum fjárveitingar
til þess að svo megi verða.
Stúdentaráð hefur ítrekað ósk-
að eftir svörum um hvað gerist
ef af verkfalli verður. Stúdentar
verða að vita hvernig próf verða
lögð fyrir og afgreiðslu námslána
verður háttað verði verkfall að
veruleika. Nýleg yfirlýsing rekt-
ors staðfestir málflutning Stúd-
entaráðs um að algjör óvissa ríki
um hvernig próf verða lögð fyrir
komi til verkfalls. Stúdentaráð
heitir því á deiluaðila að gera allt
í sínu valdi til að afstýra af-
drifaríku verkfalli en líklegur
kostnaður vegna vinnutaps stúd-
enta er rúmur hálfur milljarður
króna,“ segir orðrétt í fréttatil-
kynningu.
Nýjar fréttir af yfirvofandi
verkfalli Félags háskólakennara
birtast reglulega á heimasíðu
Stúdentaráðs, www.student.is.
Algjör óvissa ef til verkfalls kemur
SIGURÐUR Á. Einarsson gefur
100 þúsund krónur til hjálp-
arstarfs Rauða krossins innan-
lands.
Sigrún Árnadóttir fram-
kvæmdastjóri Rauða kross Ís-
lands tók við fénu og þakkaði
Sigurði fyrir hið rausnarlega
framlag. Sigurður er félagi í
Rauða krossinum til margra ára
og hefur áður látið fé af hendi
rakna til hjálparstarfs félagsins.
Sigurður Á. Einarsson tekur í höndina á Sigrúnu Árnadóttur, fram-
kvæmdastjóri Rauða kross Íslands.
Gjöf til Rauða krossins
Í TILEFNI Óskarsverðlaunahátíð-
arinnar þann 25. mars s.l. stóðu Val.-
is, Stöð 2 og Skífan fyrir netleik á
Val.is, tilboðsverslun Vildarklúbbs
Flugleiða. Frá 13. til 25. mars gafst
fólki kostur á að giska á hver myndi
hreppa Óskarsverðlaunin í átta
helstu flokkunum. Þeir sem komust
næst því að giska rétt áttu mögu-
leika á að vinna einn af 51 glæsileg-
um vinningi. Aðalvinningurinn var
60.000 ferðapunktar en auk þess
unnu 10 manns mánaðaráskrift að
Bíórásinni, 20 unnu DVD-disk með
stórmyndinni Gladiator og aðrir 20
unnu geisladisk með tilnefndri kvik-
myndatónlist.
Um 6.000 innsendingar bárust í
leikinn frá um 4.000 þátttakendum
og ætla mátti að einhver úr þeim
stóra hópi hefði giskað rétt. Þannig
vildi þó til að enginn giskaði rétt í öll-
um átta flokkunum og heldur enginn
í sjö flokkum en tæplega tvö hundr-
uð manns giskuðu rétt í sex helstu
flokkunum.
Dregið var úr hópi þeirra sem
giskuðu rétt í sex flokkum og aðal-
vinninginn, 60.000 ferðapunkta,
hlaut Ása Jónsdóttir en í aukavinn-
inga fékk hún mánaðaráskrift að
Bíórásinni og DVD disk með Gladia-
tor, sigurmynd Óskarsverðlaunahá-
tíðarinnar.
Lista yfir vinningshafa er að finna
á val.is en þeim hefur verið sendur
vinningurinn.
Vann ferða-
punkta í
Óskarsleik
LJÓSTÆKNIFÉLAG Ís-
lands heldur aðalfund þriðju-
daginn 24. apríl kl. 20 í húsa-
kynnum Samorku að
Suðurlandsbraut 48.
„Það er mikið um að vera
hjá félaginu á þessu ári því í
júní verður ráðstefnan LUX
Europa 2001 en hana sækja
þátttakendur frá yfir 20 lönd-
um og hefur verið gríðarleg
vinna við undirbúning henn-
ar.
Eftir hefðbundin aðalfund-
arstörf mun Egill Skúli Ingi-
bergsson forseti LUX Europa
mun segja frá ráðstefnunni
en einnig verður sagt frá ferð
félagsmanna á Nordlys 2001 í
Árósum fyrir skömmu.
Aðalfyrirlestur fundarins
verður um garðyrkjulýsingu
og mun Hjalti Lúðvíksson
segja frá ýmsum þáttum við
hönnun lýsingar fyrir gróð-
urhús sem er mjög mikilvægt
að vel takist til að gera fram-
leiðslu á grænmeti og blóm-
um hagkvæma. Það má því
segja að umræðan um græn-
metisverð verði skoðuð í öðru
ljósi.
Heimasíða félagsins er
www.centrum.is/lfi,“ segir í
fréttatilkynningu frá Ljós-
tæknifélagi Íslands.
Ljóstækni-
félagið ræðir
garðyrkju-
lýsingu
♦ ♦ ♦
ÁRLEGA veitir Búnaðarbankinn 12
styrki til námsmanna í Námsmanna-
línunni, hvern að upphæð 150.000 kr.
Styrkirnir skiptast þannig: Út-
skriftarstyrkir til nema í Háskóla Ís-
lands.Útskriftarstyrkir til nema á há-
skólastigi og sérskólanema.
Námsstyrkir til námsmanna er-
lendis.Hægt er að sækja um styrkina
á vef bankans, www.bi.is, eða senda
umsókn á namsmannalinan@bi.is.
Einnig er hægt að nálgast umsókn-
areyðublöð í öllum útibúum bankans
og á skrifstofum SHÍ, BÍSN og
SÍNE.Skriflegum umsóknum skal
skilað til: Búnaðarbanka Íslands hf.,
markaðsdeildar, Austurstræti 5,
155 Reykjavík. Athugið að einungis
félagar í Námsmannalínu Búnaðar-
bankans geta hlotið þessa styrki.
Umsóknarfrestur er til 1. maí 2001.
Námsstyrkir
Búnaðar-
bankans SÁLARRANNSÓKNARFÉLAG
Íslands efnir laugardaginn 28. apríl
til Samverustundar með syrgjend-
um í húsnæði félagsins við Garða-
stræti 8 í Reykjavík. Miðlarnir
Friðbjörg Óskarsdóttir og Þórunn
Maggý Guðmundsdóttir og Haf-
steinn Guðbjörnsson heilari spjalla
við gesti. Jórunn Sigurðardóttir
leiðir stutta hugleiðslu, Agnes Þór-
hallsdóttir fer með bæn og tekið
verður við beiðnum um fyrirbænir.
Umsjón með samverustundinni hef-
ur Jónína Leósdóttir.
Samverustundin hefst kl. 14 og
er opin öllum sem eru að takast á
við ástvinamissi og er aðgangur
ókeypis.
Vegna takmarkaðs húsrýmis
þurfa þátttakendur að skrá sig hjá
skrifstofu Sálarrannsóknarfélags
Íslands sem opin er kl. 10–15 virka
daga.
Samverustund
með syrgjendum