Morgunblaðið - 26.04.2001, Blaðsíða 59
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 59
NÁMSKEIÐ í gæðastýringu í sauð-
fjárrækt eru þessa dagana haldin
víðs vegar um land. Öllum sauð-
fjárbændum er boðið á námskeiðin
en þau eru forsenda fyrir þátttöku í
gæðastýringunni.
Námskeiðin skiptast á tvo daga,
einn dag í senn, og verður síðari
hluti námskeiðsins haldinn í haust.
Námskeiðin eru haldin í umsjón
Landbúnaðarháskólans á Hvann-
eyri og eru það starfsmenn skólans
ásamt ráðunautum úr héruðum sem
annast fræðslu bændanna. Náms-
efni er yfirgripsmikið og nær til
fóðrunar, ræktunar, beitarlanda og
afréttar svo fátt eitt sé nefnt. Í þeim
námskeiðum sem haldin hafa verið
á Suðurlandi hefur þátttaka verið
mjög góð.
Morgunblaðið/ Önundur S. Björnsson
Bændur og leiðbeinendur í námskeiðshléi á Hvolsvelli á dögunum.
Námskeið í gæðastýr-
ingu í sauðfjárrækt
EFTIRFARANDI athugasemd
barst Morgunblaðinu í gær frá
Guðmundi Einarssyni, forstjóra
Heilsugæslunnar í Reykjavík:
Í blaðinu í dag er frétt undir
nafninu „uppbygging heilsugæsl-
unnar gengur of hægt“ og er hún
frásögn af opnum fundi heilbrigð-
isnefndar Sjálfstæðisflokksins sem
haldinn var í gær. Undirritaður
hélt framsöguerindi á þessum
fundi, eins og fram kemur í frétt-
inni, en á einum stað er rangt farið
með ummæli mín, þar sem haft er
eftir mér eftirfarandi:
„Ekki vildi Guðmundur þó
meina að skortur væri á heim-
ilislæknum á höfuðborgarsvæðinu
nú, en sá skortur væri fyrirsjáan-
legur.“ Hið rétta er að ég var að
svara fullyrðingu sem fram kom á
fundinum um að nánast engir
heimilislæknar fengjust til starfa.
Þeirri fullyrðingu svaraði ég á
þann veg að Heilsugæslan í
Reykjavík og nágrenni hefði ávallt
getað ráðið í þær stöður sem aug-
lýstar hafa verið, en að ég óttaðist
að í framtíðinni kynni það að
breytast.
Hins vegar kom það fram í
framsöguerindi mínu að ef gengið
er út frá hefðbundinni viðmiðun
um hversu mörgum hver heimilis-
læknir getur þjónað vel, en í því
sambandi er gjarnan nefnd talan
1500 skjólstæðingar á hvern lækni,
þá vantar u.þ.b. 16 lækna á það
svæði sem heyrir undir Heilsu-
gæsluna í Reykjavík og nágrenni,
þ.e. Reykjavík, Seltjarnarnes,
Kópavog, Mosfellsbæ, Kjós og
Þingvallasveit. Það vantar því
fleiri heimilislækna á svæðið, en
ekki vegna þess að þeir séu ekki
til, heldur vegna þess að það
skortir heimildir fyrir fleiri stöð-
um.
Athugasemd
HIÐ íslenska Biblíufélag hefur opnað
nýja heimasíðu. Á henni er fólki boðið
að fá biblíutexta hvers dags senda til
sín í tölvupósti.
Biblíufélagið hefur til fjölda ára
gefið út Biblíulestrarskrá fyrir fólk
sem vill lesa í Biblíunni á hverjum
degi og hefur henni verið dreift í
kirkjum landsins. Í skránni er upp-
talning á þeim ritningarstöðum sem
lesnir skulu hvern dag, eins og t.d.
Matteusarguðspjall 5:13–16 eða
Esekíel 17:1–24. Nú er hægt að fá
biblíutextann sendan til sín með
tölvupóstinum. Það þarf ekki annað
en að fara inn á heimasíðu félagsins,
www.biblian.is, opna „Ritningu dags-
ins“ og biðja um að fá hana senda til
sín með því að skrá inn netfang sitt,
þá kemur biblíutextinn sjálfvirkt í
tölvuna til manns á hverjum degi.
Biblían
í tölvupósti
SAMTÖK herstöðvaandstæðinga
hafa sett á laggirnar íslenska frið-
arvefsins, www.fridur.is. Vefurinn er
byggður á erlendum fyrirmyndum
og honum er ætlað að
vera alhliða upplýsingaveita um
baráttu íslenskra friðarsinna. Þar
má nálgast upplýsingar um starf-
semi Samtaka herstöðvaandstæð-
inga sem og ýmissa annarra félaga
og hópa sem vinna að friðar- og af-
vopnunarmálum.
Meðal efnis má nefna gagna-
grunn, þar sem finna má upplýsing-
ar um flest það sem herstöðvaand-
stæðingar hafa gefið út á
undanförnum áratugum.
Ritstjóri friðarvefsins er Stefán
Pálsson, en nánari upplýsingar má
finna á síðunni eða með tölvupósti,
ritstjorn@fridur.is.
Nýr vefur um
friðarmál
Í KVÖLD, fimmtudagskvöld,
leika og syngja Lillidy Blues
Band á Kringlukránni. „Þeir
eru komnir sérstaklega til
landsins frá Ítalíu og halda
tónleika á Kringlukránni.
Leika þeir jazz og blues eins
og hann gerist bestur á Ítal-
íu, frá kl. 21–24,“ segir í
fréttatilkynningu. Aðgangur
ókeypis.
Tónleikar
á Kringlu-
kránni