Morgunblaðið - 26.04.2001, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 57
LEIÐANGURSMENN í Trooper-
leiðangri Bílheima höfðu unnið vel
fyrir mat sínum í Setrinu, skála
Ferðaklúbbsins 4x4 suður af Hofs-
jökli, laugardagskvöld eitt í byrjun
apríl. Aksturinn hafði gengið tiltölu-
lega áfallalaust um fannbreiður há-
lendisins fyrr um daginn. Ekki var þó
fyrr komið norður fyrir Bláfellsháls-
inn en jepparnir byrjuðu að festast í
nýsnævinu með tilheyrandi reipa-
vinnu ökuþóra. Sá jeppi, sem fyrir
kaldhæðni örlaganna festist fyrst,
var torfærutröll Reynis Jónssonar
fararstjóra, sem ók um á Izuzu
Trooper með tveim hásingum, drif-
læsingum og 44 tomma börðum. „Þú
veist að það er bannað að spóla,“
sagði hann síðar út um bílgluggann
við blaðamann, sem var nýbúinn að fá
sig lausan úr skafli. Hvarvetna mátti
sjá menn bograndi með pelastikkin
vaðandi snjóinn upp að hnjám í
kringum bílana. Samheldni leiðang-
ursmanna var aðdáunarverð og ákafi
manna við að snara fasta jeppana
líktist á köflum eldmóði togarajaxla í
miðri aflahrotu. Þegar lestin hafði sig
yfir hálsinn braust sólin fram og
skein óslitið alla helgina og varla
hreyfði vind. Þó var enn ekki komið
sumar, enda fór frost niður í 11 stig.
Leiðangursmenn voru á öllum aldri,
allt frá ungabörnum og upp úr. Flest-
ir áttu það auðvitað sameiginlegt að
aka á sérútbúnum Izuzu-jeppum,
mismunandi öflugum eins og gengur.
Algengastir voru jeppar á 38 tomma
börðum án driflæsinga en alls voru 15
Trooper-jeppar auk þriggja Terrano-
jeppa. Leiðangur þessi var skipu-
lagður í samvinnu við Fjallasport og
var í meginatriðum á sömu lund og
hópferðir á vegum bifreiðarumboð-
anna. Þetta er ákveðin markaðstengd
nýjung sem á vaxandi vinsældum að
fagna. Ferðinni var upphaflega heitið
norður yfir Langjökul en hætt var við
þá leið vegna veðurs og ákveðið að
aka þess í stað í Setrið um Kjalveg. Í
Setrinu var útigrillið dregið fram og
kynnt ógurlega. Lambaket var glóð-
að uns það var stýft úr hnefa af úti-
teknu jeppafólkinu. Kerlingarfjöll
blöstu við augum úr Setrinu langt
fram eftir kveldi og gáfust ekki upp
fyrir næturmyrkrinu fyrr en komið
var fram yfir náttmál. Þá var borð-
haldi lokið og ekkert annað að gera
en hefja kvöldvökuna með söng og
spili að hætti náttúruelskandi fjalla-
fólks.
Stefna tekin á Langjökul
Sunnudagurinn heilsaði með
glampandi sól. Ný skyldi stefnan tek-
in vestur á Langjökul um Hveravelli
og Þjófadali. Fréttir höfðu borist af
þungu færi á jökli en ákveðið að láta
slag standa og snúa við ef ófært yrði.
Í ljós kom að fréttir af færð voru eng-
ar ýkjur, enda ætluðu jepparnir aldr-
ei að hafa sig upp á jökulbakið. Flest-
ir vonuðu að færið skánaði þegar upp
væri komið en því var ekki að heilsa.
Hnédjúpur lausasnjórinn bannaði för
jeppa án driflæsinga og hefðu menn
betur verið búnir gönguskíðum og
ullarbrókum en flottum jeppum í
þetta skiptið. Þegar hér var komið
sögu höfðu menn fest sig hressilega
og eitthvað var farið að bera á affelg-
unum, sumum til mikillar armæðu.
Það varð því úr að hópurinn hafði sig
niður af jökli og kom sér niður á Kjal-
veg áleiðis að Geysi. Ekki voru öll
vandræði úr sögunni því a.m.k. af-
felgaði einn eftir að jökli sleppti og
tvisvar á leiðinni niður á láglendið
lentu menn í festum. Jeppamönnum
er samt engin vorkunn að festa jeppa
sína á fjöllum. Gamanið fer þó að
kárna ef fólk lendir í vandræðum ein-
bíla, skilur ekki eftir ferðaáætlun,
hefur engan fjarskiptabúnað eða allt
framantalið. Það má vel ímynda sér
að hafa megi stjórn á hinum fjand-
samlegustu aðstæðum ef margir eru
saman á ferð á vel búnum bílum og
búa að góðri reynslu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reynir Jónsson á Trooper sprettir úr spori.
Bannað að
spóla!
Bílheimar stóðu fyrir Izuzu Trooper-
jeppaferð í Setrið í aprílbyrjun. Örlygur
Steinn Sigurjónsson og Árni Sæberg
slógust í för með leiðangursmönnum
og festu sig nokkrum sinnum.
Stundum var gefið í og látið á það reyna hversu
langt menn kæmust.
Varlega ekið yfir sprænu í vetrarskrúða vestan við Kerlingarfjöll.
Hér er ekki verið að spila rúllettu, heldur unnið að
dekkjaviðgerðum í Setrinu.
Það er ekki lítil útivera að bregða böndum á fasta jeppa. Ef veðrið er sæmilegt er það alls ekki leiðinlegt.