Morgunblaðið - 26.04.2001, Blaðsíða 23
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 23
Selfossi - Nemendur í rekstrarhagfræði 103 í
Fjölbrautaskóla Suðurlands taka þátt í keppn-
inni Nýsköpun 2001. Um er að ræða samkeppni
um gerð viðskiptaáætlana. Þessi keppni er nú
haldin í þriðja sinn en þetta er í fyrsta skipti
sem framhaldsskólanemum er gert kleift að taka
þátt í keppninni. Einnig taka nemendurnir þátt í
Evrópukeppni um áhugaverðustu evrópsku hug-
myndina og munu fjórir hópar sem til verðlauna
vinna fara til Brussel í desember 2001.
Verkefnisstjóri samkeppninnar, G. Ágúst Pét-
ursson, heimsótti skólann þriðjudaginn 10. apríl
og leiðbeindi nemendum. Að sögn G. Ágústar
Péturssonar hefur enn sem komið er enginn
skóli slegið Fjölbrautaskóla Suðurlands við hvað
varðar aðsókn og áhuga. Einnig sagði hann að
sumar hugmyndirnar sem nemendur settu fram
væru mjög góðar.
Agnes Elva Guðmundsdóttir viðskiptagreina-
kennari er ábyrg fyrir framkvæmd keppninnar í
skólanum. Að Nýsköpun 2001 standa Nýsköp-
unarsjóður atvinnulífsins, Morgunblaðið,
KPMG, Háskólinn í Reykjavík, Sparisjóðirnir og
Skjár einn.
Nýsköpun 2001
Góðar hugmyndir koma
fram hjá nemendum
Sýslumót
í skák
Hvolsvelli - Nýverið var sýslumót
Rangárvallasýslu í skólaskák haldið í
Hvolsskóla á Hvolsvelli. Keppt var í
tveimur flokkum 1.–7. bekk og 8.–10.
bekk.
Í 1.–7. bekk varð Stefán Jón
Hrafnkelsson, Grunnskóla Austur-
Landeyja, hlutskarpastur, en Páll Jó-
hannsson í Hvolsskóla í 2. sæti og
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir, einnig
í Grunnskóla Austur-Landeyja, varð í
3. sæti, en hún er systir Stefáns Jóns.
Í eldri flokknum varð Tómas Jens-
son hlutskarpastur og Jakob Hin-
riksson í 2. sæti. Þeir eru báðir nem-
endur í Hvolsskóla, í þriðja sæti varð
Andri Björnsson frá Grunnskólanum
á Hellu. Efstu keppendur í sýslumót-
um fara síðan á kjördæmismót sem
haldið verður á næstunni. Að sögn
Einars Grétars Magnússonar, sem
hefur séð um mótshaldið í skólaskák,
hefur keppendum á þessum mótum
farið mjög fækkandi undanfarin ár og
er nú full ástæða til að efla skákina í
grunnskólunum.
Ungur kylf-
ingur íþrótta-
maður Bol-
ungarvíkur
BIRGIR Olgeirsson, sextán ára kylf-
ingur, félagi í Golfklúbbi Bolungar-
víkur, hefur verið kjörinn íþróttamað-
ur ársins 2000 í hófi sem Íþróttaráð
Bolungarvíkur efndi til af þessu til-
efni auk þess sem íþróttafólki voru
veittar viðurkenningar fyrir góða
ástundun og árangur í sínum íþrótta-
greinum.
Birgir Olgeirsson hefur stundað
golfíþróttina af miklu kappi undanfar-
in ár. Segja má að hann hafi að miklu
leyti haldið til á golfvellinum yfir sum-
armánuðina við keppni og æfingar. Í
upphafi sl. sumars var Birgir við æf-
ingar hjá Golfklúbbnum Keili í Hafn-
arfirði en Golfklúbbur Bolungarvíkur
kostaði hann til þeirra æfinga. Síðast-
liðið sumar var Birgir yfirumsjónar-
maður með barna- og unglingaþjálfun
á vegum Golfklúbbs Bolungarvíkur.
Pilturinn var ekki gamall þegar afi
hans Birgir Valdimarsson, sem er
mikill golfáhugamaður, fór að taka
hann með sér á golfvöllinn, en að öðr-
um ólöstuðum hefur hann veitt hinum
unga nafna sínum mikinn stuðning og
verið honum hvatning til að ná ár-
angri í íþrótt sinni.
Af árangri hans á mótum á síðasta
ári má nefna að hann varð í fyrsta
sæti á Bjarnabúðarmótinu í Bolung-
arvík, JOD mótinu á Ísafirði, Íslands-
sagamótinu á Ísafirði og Vestfjarða-
mótinu í 3 flokki sem haldið var á
Bíldudal. Þá varð hann í 2. sæti á
Sparisjóðsmótinu á Þingeyri, í 3. sæti
á Meistaramóti GBO í Bolungarvík og
3. sæti á Haustmótinu á Þingeyri.
Auk þess sem íþróttamaður ársins
var heiðraður voru þeim Bjarna Pétri
Jónssyni, Gunnari Má Elíassyni ,
Kristínu Grímsdóttur, Óttari Bjarna-
syni og Stefáni Karlssyni veittar við-
urkenningar fyrir góðan árangur í
knattspyrnu. Svölu Sif Sigurgeirs-
dóttur fyrir árangur í sundi og Guð-
mundi Daðasyni fyrir árangur í skák.
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Birgir Olgeirsson, íþróttamaður
ársins 2000 í Bolungarvík.
♦ ♦ ♦