Morgunblaðið - 26.04.2001, Blaðsíða 36
LISTIR
36 FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 MORGUNBLAÐIÐ
vaki allra sannra listamanna og er
ágætt samheiti á heimildarmynd-
irnar tvær sem sýndar voru í Sjón-
varpinu um páska. Þær eiga það
sameiginlegt að fjalla um tvo lista-
menn sem þrátt fyrir snilli sína
hafa ekki verið mikið í sviðsljósi
fjölmiðlanna. Enda sjálfsagt hvor-
ugur sú manngerð sem leitar slíkra
ljósabaða.
Saga Árna Scheving er svo sam-
fléttuð sögu djass- og dægurtón-
listar á síðari hluta 20. aldar, að
erfitt er að greina á milli. Árni er
fjölhæfur listamaður sem er jafn
fær á fjölda hljóðfæra, og það sem
meira er, og goðsögnin KK, tekur
fram í viðtali í myndinni, varð ekki
vélstjóri, að hann spilar vel á þau
öll. Eins lætur honum jafn vel að
spila klassíska tónlist og kirkju-
lega, sem djass og dægurlög.
Það er reisn yfir manninum Árna
Scheving og öllu því sem hann fæst
við í tónlistinni, þó svo að manni
hafi þótt hann hvað snjallastur í
gegnum árin í djassinum; fetandi í
SKÁLDIÐ frá Hamri segir eitt-
hvað á þá leið í heimildarmyndinni
Orðanna hljóman að það sem hvetji
skáldið til sköpunar sé leit að feg-
urð. Bætir því við, öllum til um-
hugsunar, að hana sé að finna á
ólíklegustu stöðum – ef maður hafi
augun opin. Leitin að fegurð er afl-
fótspor meistara Hamptons o.fl. á
víbrafóninn. Það kemur reyndar
fram að Árni hóf kynni sín af hljóð-
færaleik í Laugarnesskólanum, á
gullöld blokkflautunnar. Því næst
var röðin komin að harmónikkunni,
sem þá, fyrir tíma bresku popp-
sprengjunnar, var feikivinsæl hjá
öllum aldurshópum. Síðan er rakin
saga Árna, frá því hann byrjar at-
vinnumennsku barnungur norður á
Akureyri og fær 17 ára gamall boð
um að spila með vinsælustu og
bestu hljómsveit landsins á sjötta
og sjöunda áratugnum – KK-sext-
ettinum. Allt til dagsins í dag, þeg-
ar þessi geðþekki listamaður er
sjálfur orðinn goðsögn í lifanda lífi.
Það er einstaklega ánægjulegt að
fá að sjá og heyra brot úr tónlistar-
sögunni þar sem Árni og landslið
djass- og dægurtónlistar, fara á
sínum hefðbundnu kostum. Þvílík
samkoma; Jón Páll Bjarnason,
Raggi Bjarna, Árni Egilsson, Pétur
Östlund, Þórarinn Ólafsson, Guð-
mundur Steingríms, Jón bassi,
Rúnar Georgs, Óli Gaukur, Karl
Möller, Andrea Gylfadóttir o.fl.
gott fólk. Það voru nánast forrétt-
indi að fá að alast upp með þessum
afburða listamönnum og gleðigjöf-
um. Þátturinn er góð heimild um
Árna og þessa hæfileikamenn á
einstökum tímum, og viðmælend-
urnir komust vel frá sínu.
Í Orðanna hljóman rekur Þor-
steinn frá Hamri sína skáldatíma,
frá því hann hóf að yrkja upp úr
miðri síðustu öld. Viðmælandinn,
Áslaug Dóra Eyjólfsdóttir, leiðir
okkur í félagsskap skáldsins, um
bernskustöðvar hans í Borgarfirð-
inum – í blankalogni og blóma-
skrúði. Skilgreinir rætur sínar sem
ljóðdkáld og útskýrir sérstakan
stílinn, en Þorsteinn yrkir bæði í
bundnu og óbundnu máli. Telur að
það sé síst minni kúnst að yrkja at-
ómljóðin, en ljóðagerð hans er
gjarnan samofin rími og stuðlum
sem hann notar á frjálslegan hátt.
Þorsteinn frá Hamri er greini-
lega manna hæverskastur, prúð-
menni sem er sjálfsagt ekki auð-
veldasta viðfangsefni sem við-
mælendur geta óskað sér. Hvort
sem um er að kenna hófsemi
skáldsins eða spyrlinum, komumst
við ekki ýkja nærri skáldinu. Inn-
slögin, viðtölin við vin hans, Vigdísi
Grímsdóttur og Pál Valsson, rit-
stjóra, voru til mikilla bóta og
spurning hvort meira hefði mátt
vera af slíku.
Í leit að
fegurð
SJÓNVARP
H e i m i l d a r m y n d i r
R í k i s s j ó n v a r p i ð
Leikstjóri, klippari, handritshöf-
undur Valdimar Leifsson. Viðtöl og
efnisöflun Ólafur Ormsson. Viðtal á
Kaffi Reykjavík Vernharður Linn-
et. Myndataka Valdimar Leifsson
o.fl. Hljóðupptaka og hljóðsetning
Jón Skuggi o.fl. Samsetning Pegas-
us. Sýningartími 40 mín. Íslensk
heimildarmynd. Mánudagur 16.
apríl. RUV 2001.
VARÐ EKKI VÉLSTJÓRI
– TÓNLISTARFERILL
ÁRNA SCHEVING
ORÐANNA HLJÓMAN
SKÁLDIÐ FRÁ HAMRI
Stjórnandi upptöku Þiðrik Ch. Em-
ilsson. Viðtal Áslaug Dóra Eyjólfs-
dóttir. Myndataka Haraldur Frið-
riksson. Hljóðvinnsla Einar
Sigurðsson o.fl. Samsetning Sæ-
mundur Sigurðsson. Sýningartími
40 mín. Íslensk heimildarmynd.
Föstudagur 13. apríl. RUV. 2001.
Sæbjörn Valdimarsson
KARLAKÓRINN Stefnir er nú að
ljúka vetrarstarfi á hefðbundinn
hátt með tónleikahaldi. Þeir halda
tónleika í Bíóhöllinni á Akranesi
ásamt Grundartangakórnum í dag
kl. 20.30. Í hátíðarsal Varmárskóla á
sunnudag kl. 17 og í Fella- og Hóla-
kirkju þriðjudaginn 1. maí kl. 17.
Stjórnandi Karlakórsins Stefnis
er Atli Guðlaugsson, en hann stjórn-
ar jafnframt Grundartangakórnum.
Undirleikari kórsins er Sigurður
Marteinsson, píanóleikari, en að
þessu sinni leikur, auk hans, Yuri
Federov harmonikkuleikari, með í
nokkrum lögum. Raddþjálfun kórs-
ins annast Sigríður Jónsdóttir, söng-
kona.
Á efnisskránni eru m.a. rússnesk
lög við harmonikkuleik ásamt
píanóundirleik, lög eftir innlend og
erlend tónskáld svo sem Atla Guð-
laugsson, Árna Thorsteinsson, Eirík
Bóasson, Björgvin Þ. Valdimarsson,
Pál Ísólfsson, Andrew Lloyd Webb-
er, Herman Palm, Gavin Suther-
land, auk rússneskra þjóðlaga.
Þrír félagar úr röðum kórmanna:
Ármann Ó. Sigurðsson, Ásgeir Ei-
ríksson og Birgir Hólm Ólafsson
syngja einsöng og tvísöng með
kórnum í nokkrum lögum.
Í byrjun maí heldur kórinn norð-
ur í Húnaþing og Skagafjörð. Þar
verður sungið á Hvammstanga 4.
maí kl. 20.30 og síðan á Sæluviku.
Vortónleikar
Stefnis
AUK inngangsorða landsbóka-
varðar (ritstjóra) inniheldur þetta
glæsilega ársrit að þessu sinni átta
ritgerðir um margvíslegt efni og
smápistla á fáeinum blaðsíðum,
sem bera yfirskriftina Sópuður.
Gerð er grein fyrir höfundum, níu
talsins, aftarlega í ritinu og því lýk-
ur með stuttum efnisúrdráttum á
ensku.
Birgir Þórðarson á Öngulsstöð-
um, fyrrum bóndi, ritar um Eggert
Ó. Gunnarsson, bróður Tryggva
Gunnarssonar. Eggert var þekktur
maður á síðari hluta 19. aldar.
Hann fékkst við margvíslegan
kaupskap, sat á Alþingi um skeið
og átti hlut að framfaramálum, en
örlög hans urðu dapurleg. Höfund-
ur styðst við minnisbækur Eggerts
og dagbækur og greinir frá ævi-
ferli hans. Er þetta efnismikil,
vönduð og fræðilega unnin ritgerð.
Aðalsteinn Ingólfsson fjallar um
bréfaskipti Erlends í Unuhúsi og
Nínu Tryggvadóttur, en eins og
kunnugt er var nýlega veittur að-
gangur að miklu bréfasafni Er-
lends. Þessari áhugaverðu grein
fylgja nokkrar myndir.
Þórunn Sigurðardóttir ritar
greinina Viðhorf til bókmennta og
bóklegrar menningar í Hagþenki
Jóns Ólafssonar úr Grunnavík.
Þórunn fjallar hér um skáldskap-
arfræði, skáldskaparlist, tilgang
bókmennta o.þ.h. eins og það
kemur fram í ofannefndu skrifi
Jóns. Þórunn setur Jón í bók-
menntalegt samhengi síns tíma og
gerir að öðru leyti skilmerkilega
grein fyrir þessum sérkennilega
fræðimanni.
Þá er komið að fjórðu ritgerð-
inni. Hún er skrifuð af Steingrími
Jónssyni og nefnist Prentnemarnir.
Þar segir aðallega frá systkinason-
unum Jóni Steingrímssyni og
Magnúsi Ingvarssyni, sem báðir
voru við prentnám í Reykjavík í
kringum 1880. Það er fróðleg
grein, sem leiðir lesandann að
prentverki og bókagerð á síðasta
hluta nítjándu aldar.
Einar Sigurðsson skrifar um
myndir Tryggva Magnússonar af
íslensku jólasveinunum, sem allir
þekkja úr hinu sívinsæla kveri
þeirra Jóhannesar úr Kötlum, Jólin
koma. Kverið hefur komið út í ní-
tján útgáfum (1932–1998). Er
prentsaga rakin og birtar myndir
af jólasveinunum.
Helga Kristín Gunnarsdóttir
skrifar um Eggert Ólafsson.
Áherslan er á skáldskap Eggerts
og hvernig hann er „mótaður af
hugmyndafræði upplýsingarinnar
jafnframt því sem hann ber ein-
kenni forrómantískra viðhorfa“.
Hversu mikið er nonnulla? Rec-
ensus Páls Vídalíns í Sciagraphiu
Hálfdanar Einarssonar er ritgerð
eftir Gottskálk Jensson. Hálfdan
Einarsson ritaði seint á 18. öld ís-
lenska bókmenntasögu á latínu
(Sciagraphia). Þar telur hann til
skuldar (hann skuldar „nonnulla“)
við skálda- og rithöfundatal Páls
Vídalíns frá 1700 (Recensus). Verk-
efni ritgerðarinnar er að skoða
tengsl þessara tveggja bókmennta-
sögurita.
Andrew Wawn skrifar greinina
The Dream. Óbirt ljóð á ensku eft-
ir Lárus Sigurðsson frá Geitareyj-
um. Lárus var skólabróðir og vinur
Jónasar Hallgrímssonar. Hann
andaðist kornungur, aðeins fáum
klukkustundum eftir að Jónas hafði
kvatt hann fársjúkan og stigið á
skipsfjöl til Kaupmannahafnar.
Lárus þessi var talinn mikill hæfi-
leikamaður og vel skáldmæltur. Til
skamms tíma voru þó aðeins tvö
kvæði eftir hann kunn og bæði á
dönsku. Nú hefur hið þriðja verið
dregið fram úr geymslum Lands-
bókasafns og er það á ensku til-
einkað Sigurði Sívertsen og Thom-
as Maryon Wilson. Þetta er langt
kvæði, 170 vísuorð. Birtist það hér
ásamt rækilegum inngangi.
Í Sópuði segir frá þeim merk-
isatburði, er skjalapakki Erlendar í
Unuhúsi var opnaður með viðhöfn
og í öðru lagi greinir frá Norrænni
bóksöguráðstefnu í Helsinki.
Þetta ársrit er eins og forverar
þess hið glæsilegasta í alla staði og
efnislega afar hnýsilegt. Það er
ávallt fagnaðarefni að fá það í
hendur og setjast við lestur þess.
Ritmennt
fimm ára
BÆKUR
R i t g e r ð i r
Ritmennt 5. Háskólabókasafn.
Ritstj.: Einar Sigurðsson.
Reykjavík, 2000, 160 bls.
ÁRSRIT LANDSBÓKA-
SAFNS ÍSLANDS
Sigurjón Björnsson
GOSPELSYSTUR Reykjavíkur,
undir stjórn Margrétar Pálmadótt-
ur, halda vortónleika í Langholts-
kirkju í kvöld, fimmtudagskvöld, kl.
20.30 og á laugardag, kl. 14 og 17.
Einsöngvari með systrunum að
þessu sinni er Páll Rósinkranz.
Hljómsveitarstjóri er Stefán S.
Stefánsson.
Í kórnum eru nú um 120 konur og
leggur kórinn áherslu á negra-
sálma, gospeltónlist, þjóðlög og
kirkjutónlist. Gospelsystur Reykja-
víkur eru að ljúka sínu fjórða
starfsári og hefur Margrét Pálma-
dóttir stjórnað þeim frá upphafi.
Í lok ágúst heldur kórinn til
Bandaríkjanna í pílagrímsför.
Ferðinni er heitið til New Orleans
og þar syngur kórinn á tónleikum
ásamt öðrum gospelkórum auk þess
sem kórinn heldur einnig tónleika í
New York. Í ágúst eru fyrirhugaðir
kveðjutónleikar fyrir þessa ferð.
Páll Rósinkranz
Gospelsystur
í Langholts-
kirkju
SÖNGFÉLAG Skaftfellinga, sem er
kór Skaftfellingafélagsins í Reykja-
vík, heldur í söngferð um Austur-
Skaftafellssýslu helgina 27.–29. apr-
íl. Ferðin hefst með tónleikum í Hof-
garði annað kvöld, föstudagskvöld,
kl. 20.30. Á laugardag verða tón-
leikar í Hafnarkirkju kl. 15.
Einsöngvari með kórnum er Stef-
án Bjarnason frá Hofi í Öræfum.
Stjórnandi kórsins er Violetta Smid
og undirleikari er Pavel Smid.
Kórinn heldur sína árlegu vortón-
leika í Árbæjarkirkju í Reykjavík 1.
maí, kl. 15.
Söngfélag
Skaftfellinga
í söngför
♦ ♦ ♦