Morgunblaðið - 26.04.2001, Blaðsíða 67
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2001 67
Kringlufjarki
Útsala í 4 daga
Herrar
Verð áður Verð nú
Khakíbuxur 6.590 3.900
Tvennar á 7.000
Peysur 8.990 4.990
Stuttermabolir 3.730 1.990
Skyrtur 3.490
Tvær á 6.000
Kringlunni - Sími 581 2300
Dömur
Verð áður Verð nú
Peysur (Cotton rayon) 4.590 3.290
Tvær á 6.000
Silkiblússur 7.990 4.990
Bolir (stutterma) 3.390 1.990
Bolir (kvarterma) 4.490 2.290
Silkináttföt 11.390 8.490
Bolir (ermalausir) 3.390 2.250
Tveir á 4.000
Kápur á tilboðsverði
4.990-5.690
SPENNANDI HELGARTILBOÐ
NÝJAR VÖRUR VIKULEGA
Laugavegi 97 — Kringlunni
ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Dansleik-
ur með Caprí-tríó sunnudagskvöld
kl. 20:00 til 23:30. Hátíð harmonik-
unnar laugardagskvöld. Tónleikar
kl: 20:15. Frá kl. 22:30 verður síðan
stiginn dans við söng og undirleik
Léttsveitar Harmonikufélags
Reykjavíkur ásamt Ragnheiði
Hauksdóttur söngvara og fleiri
hljómsveita. Allir velkomnir.
BREIÐIN, Akranesi: Hljómsveit-
in Írafár laugardagskvöld.
CAFÉ AMSTERDAM: Rokksveit-
in Bé Pé og þegiðu föstudagskvöld.
Hljómsveitina skipa Björgvin Plod-
er, trommur og söngur. Diddi,
bassi. Einar, hammond. Tommi
Tomm, gítar og söngur.
CATALINA, Hamraborg: Hljóm-
sveitin Þotuliðið leikur dúndrandi
dansmúsík föstudagskvöld kl. 23:00
til 03:00.
GAUKUR Á STÖNG: Hljómsveit-
in Kalk föstudagskvöld. Hljómsveit-
in Á móti sól laugardagskvöld.
GRANDHÓTEL REYKJAVÍK:
Gunnar Páll leikur allar helgar kl.
19:15 til 23:00. Tónlistarmaðurinn
Gunnar Páll leikur og syngur öll
fimmtudags-, föstudags- og laug-
ardagskvöld. Gunnar leikur hug-
ljúfa og rómantíska tónlist. Allir
velkomnir.
GULLÖLDIN: Snillingarnir
Svensen og Hallfunkel sjá um
stanslaust fjör alla helgina.
H-BARINN AKRANESI: Diskó-
tekið og plötusnúðurinn Skugga-
Baldur föstudagskvöld. 500 kr inn
frá miðnætti.
HÖLLIN, Vestmannaeyjum:
Land og synir spila á vígsludans-
leik laugardagskvöld. Höllin er nýtt
ráðstefnu- og veitingahús í Vest-
mannaeyjum.
JÓI RISI, Breiðholti: Hljómsveit-
in Blátt áfram spilar alla helgina.
KAFFI REYKJAVÍK: Hljóm-
sveitin Furstarnir ásamt Geir Ólafs
fimmtudagskvöld kl. 22:30. Tónleik-
arnir hefjast kl. 22. 30. Sérstakur
gestasöngvari er Jón Kr. Ólafsson
frá Bíldudal. Hunang spilar laug-
ardagskvöld.
KAFFI-LÆKUR, Hafnargötu 30,
Hafn.: Njalli á Holti spilar á barn-
um þessa helgi föstudagskvöld.
Ekki missa af Síldarvalsinum.
KRINGLUKRÁIN: Ítalska blues
bandið Lillidy Blues Band verða
með tónleika fimmtudagskvöld kl.
21:00. Aðgangur ókeypis. Hljóm-
sveitin Léttir Sprettir leika fyrir
dansi föstudagskvöld.
KRÚSIN, Ísafirði: Rúnar Þór og
co spilar á heimaslóðum föstudags-
kvöld.
LIONSSALURINN, Kópavogi,
Auðbrekku 25: Áhugahópur um
Línudans er með dansæfingu
fimmtudagskvöld kl. 20:30 til 23:30.
Elsa sér um tónlistina. Allir vel-
komnir.
LUNDINN, Vestmannaeyjum:
Hljómsveitin Penta skemmtir
föstudagskvöld.
MATSTOFAN, Borgarnesi:
Gleðigjafinn Ingimar spilar á harm-
onikuna föstudagskvöld kl. 23:00 til
02:30.
MÓTEL VENUS, Borgarnesi:
Þeir félagar Stefán Hilmarsson og
Eyjólfur Kristjánsson halda tón-
leika fimmtudagskvöld. Flutt verða
lög þeirra Simon og Garfunkel í
bland við þá íslensku tónlist, sem
þeir Eyfi og Stebbi hafa flutt í
gegnum tíðina. Verð aðgöngumiða
er 1. 200 kr.
NAUSTIÐ: Liz Gammon leikur
fyrir matargesti kl. 22:00 til 03:00.
Naustið er opið alla daga frá kl. 18.
Stór og góður sérréttaseðill.
Reykjavíkurstofa – bar og koníaks-
stofa. Opið frá kl. 18.
NELLYS CAFÉ: Dj Finger og Le
chef sjá um seiðandi tóna föstu-
dagskvöld.
ODD-VITINN, Akureyri: Stór-
dansleikur með danshljómsveit
Friðjóns Jóhannssonar föstudags-
kvöld.
PLAYERS-SPORT BAR, Kópa-
vogi: Hljómsveitin Papar laugar-
dagskvöld.
RAUÐA LJÓNIÐ: Gulli Reynis
trúbador verður á staðnum föstu-
dagskvöld.
RÁIN, Keflavík: Hljómsveit Geir-
mundar Valtýssonar leikur fyrir
dansi föstudagskvöld kl. 23:00.
Hljómsveitin Hafrót laugardags-
kvöld kl. 23:00 til 03:00.
SJALLINN, Akureyri: Hljóm-
sveitin Buttercup spilar á stórdans-
leik laugardagskvöld.
SJÁVARPERLAN, Grindavík:
Hálft í hvoru spilar laugardags-
kvöld.
SKUGGABARINN: Djúpa Laugin
í höndum Völu Matt og Fjalars
föstudagskvöld. Húsið opnar kl.
22:00. Hörku dansiball byrjar svo
kl. 23:59. R&B og danstónlist laug-
ardagskvöld kl. 23:00 til 04:30.
Partý fyrir tónleikagesti Buena
Vista Social Club mánudagskvöld
kl. 22:30 til 04:00. Húsið opnar kl.
22:30. Alvöru kúbversk salsa-
stemmning alla nóttina og Margeir
sem verður í búrinu á Skugganum.
Gyllti salurinn verður opinn til
04:00 og er aldrei að vita nema
meðlimir Buena Vista mæti á svæð-
ið.
SPOTLIGHT: Nú er aftur opið á
Spotligh öll fimmtudagskvöld. Dj
Cesar spilar föstudagskvöld. Dj Ív-
ar Amor heldur uppi stemmningu
allt kvöldið laugardagskvöld.
TJARNARBORG, Ólafsfirði:
Greifarnir sjá um fjörið föstudags-
kvöld. Dansleikurinn er í tengslum
við alþjóðlegt snókermót sem hald-
ið verður á Ólafsfirði um helgina.
VIÐ POLLINN, Akureyri: Helga
Möller og hljómsveitin Hot́n Sweet
leika föstudags- og laugardags-
kvöld.
VÍKIN, Höfn: Hljómsveitin Dans
á Rósum frá Vestmanneyjum leikur
laugardagskvöld.
ÝDALIR, Aðaldal: Sóldögg spilar
á fyrsta sveitaballi sumarsins
laugardagskvöld. 16 ára aldurstak-
mark.
Frá A til Ö
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Geirmundur verður í alkunnu
stuði í Keflavík á föstudag.
Speki Steve
(The Tao of Steve)
G a m a n m y n d
Leikstjórn Jennipher Goodman.
Handrit Green Goodman, Duncan
North. 87 mín., Bandaríkin 2000.
Skífan. Öllum leyfð.
„KARLAR og konur hafa alveg
jafnmikinn áhuga á að stunda kynlíf.
Málið er að konur eru tilbúnar að
elskast 15 mínút-
um síðar en við.
Þannig að ef þú
heldur í þér í 20
mínútur læturðu
hana eltast við þig í
5 mínútur.“ Ein-
hvern veginn á
þennan veginn
hljómar kjarninn í
Speki Steve sem
hinn ríflega þrítugi
piparsveinn Dex og félagar hans
hafa hrært saman upp úr kenningum
Lao Tse, Heideggers og Groucho
Marx og kenna við kvennabósa allra
kvennabósa, Steve McQueen.
Þrátt fyrir að vera einskært leti-
blóð, óreglusöm og metnaðarlaus
fitubolla tekst Dex með aðstoð spek-
innar góðu og silkitungu að heilla
kvenfólk upp úr skónum. En undir
niðri er hann ósáttur við sjálfan sig
og lífernið og það sér einungis Syd,
konan sem Dex fellur fyrir, sú fyrsta
sem ekki verður að auðveldri bráð.
„Hvað er að sjá þig maður? Þú sem
varst einu sinni eins og Elvis.“ – „Já
en nú er ég feiti Elvis.“
Þetta er alveg stórskemmtilegur
og frumlegur rómans. Samtölin
fyndin og innihaldsrík, Logue frá-
bær í hlutverki Dex, alveg subbulega
heillandi og svo gott sem engin
væmni til staðar. Aldeilis sjaldgæft
það þegar bandarískt grín er annars
vegar.
Skarphéðinn Guðmundsson
MYNDBÖND
Með kven-
fólkið
í vasanum