Morgunblaðið - 22.05.2001, Side 4

Morgunblaðið - 22.05.2001, Side 4
FRÉTTIR 4 ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Til sölu MMC Pajero GLS 3200 diesel turbo, nýskráður 18.05.2000, ekinn 30.000 km, leðurinnrétting, spoiler, vara- dekkshlíf, 32 tommu, breyttur, sóllúga. Ásett verð 4.390.000. MÁLFLUTNINGI í máli ákæru- valdsins gegn þremur mönnum sem ákærðir eru fyrir aðild sína að smygli á átta kílóum af amfetamíni lauk fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Dóms er að vænta á morgun, miðvikudag. Óvenju stuttur tími líður því frá því málið er dómtekið og þar til dómur er kveðinn upp. Ástæðan er væntanlega sú að talsverður drátt- ur varð á rannsókn málsins en mennirnir voru handteknir þann 14. júlí í fyrra. Tveir þeirra hafa síðan verið í haldi lögreglu. Þeir hafa því setið í gæsluvarðhaldi í 312 daga. Rennur gæsluvarðhald þeirra út 30. maí. Sigmundur Hannesson hrl., skipaður verjandi annars þeirra, gagnrýndi mjög þann drátt sem orðið hefur á rannsókn málsins og sagði að gæslu- varðhaldið væri orðið með því lengra sem gerðist. Tafir á rannsókninni hlytu að verða til þess að refsingin yrði lækkuð. Þá sagði hann ákæru ríkissaksóknara ranga í veigamikl- um atriðum, þóknun sem skjólstæð- ingur sinn hefði átt að fá væri ekki rétt í ákæru, ekkert lægi fyrir um að hann hefði keypt efnin í Amsterdam auk þess sem magn amfetamínsins væri ekki rétt tilgreint í ákæru. Mennirnir eru sem fyrr segir ákærðir fyrir aðild að innflutningi á átta kílóum af amfetamíni. Fyrir dómi í gær kom fram að þyngd þess væri nú tæplega fimm kíló eða um 40% minni en þegar lagt var hald á það í júlí í fyrra. Í matsgerð Jakobs Kristinssonar hjá Rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði kom fram að ástæðan fyrir þessum mun er sú að þegar efnið kom til landsins var það óvenju blautt. Samkvæmt vinnureglu lögreglu er efnið vigtað þegar lagt er hald á það og þá var það rúm átta kíló. Jakob sagði hins vegar að eina leiðin til að leggja mat á magn efnisins væri að vigta það þurrt. Þá kom fram að styrk- leiki efnisins væri lítill eða um 12– 14%. Jakob sagði þó að venjulegar amfetamíntöflur innihéldu yfirleitt ekki meira en um 3,3% af amfeta- míni en að það dygði þó vel til þess að töflurnar virkuðu. Ragnheiður Harðardóttir sótti málið fyrir hönd ríkissaksóknara. Við málflutninginn lagði hún mestan þunga á sönn- unarfærslu gegn þeim sem ákærður er fyrir að hafa skipulagt innflutn- inginn, útvegað fé til fíkniefnakaup- anna og farareyri fyrir þá tvo sem ákærðir eru fyrir að flytja inn amfetamínið. Sá hefur ætíð neitað sök. Hann sat í gæsluvarðhaldi fram í lok ágúst og aftur í eina viku í byrjun nóvember. Ekki þóttu komnar fram nægar sannanir til að hafa hann lengur í haldi. Fyrir dómi í gær var spiluð upp- taka af símtali milli hans og annars meðákærðu. Ragnheiður sagði að við að hlusta á símtalið færi ekki á milli mála að það væri hann sem stjórnaði aðgerðum. Hann hefði líka fjarstýrt aðgerðum í Amsterdam við kaup fíkniefnanna. Það hefði komið fram í framburði annars meðákærðu sem og í gögnum frá símafyrirtæki sem sýndu að hringt var frá Amsterdam í síma sem síðar fannst hjá yngri bróður hans. Þessi símtöl hefðu átt sér stað á sama tíma og hinir tveir voru staddir í Amsterdam til að kaupa fíkniefnin. Ragnheiður tók þó fram að hann væri ekki höfuðpaur málsins, hann gæti hafa gengið erinda annarra. Verjandi þess sem ákærður er fyrir að skipuleggja innflutninginn, Jón Steinar Gunnlaugsson hrl., sagði ákæruna gegn skjólstæðingi sínum stórfurðulega og hreinan hugarburð. Engar sönnur hefðu verið færðar á sekt hans. Ákæra byggði einkum á ótrúverðugum framburði meðákærða sem hefði hagsmuni af því að skjólstæðingur sinn yrði fundinn sekur. Jón Stein- ar átaldi vinnubrögð ákæruvaldsins og taldi að dómurinn hlyti að gera athugasemdir við þau. Mjög nauð- synlegt væri að ákærur væru ná- kvæmar en ákæran gegn skjólstæð- ingi sínum virtist „samin upp í vindinn“. Þá gagnrýndi hann lögreglurann- sóknina og sagði lögreglumenn hafa brotið gegn reglugerð sem kveður á um að lögreglan verði að greina grunuðum mönnum satt og rétt frá við yfirheyrslur. Jón Steinar benti einnig á að rannsókn ætti að miða að því að sanna bæði hugsanlega sök og sakleysi. Því skilyrði hefði ekki verið fullnægt við rannsókn málsins. Vitni sem hefðu getað varpað ljósi á málið hefðu t.d. ekki verið kölluð til yfirheyrslu. Jón Steinar sagði einnig að svo virtist sem rannsóknarskjöl hefðu verið valin úr áður en þau voru lögð fram við dóminn og ýmislegt benti til þess að þau gögn sem bentu til sektar hafi verið valin úr. Ragn- heiður Harðardóttir sagði þetta ekki rétt. Þá benti hún á að þrátt fyrir að engin ákvæði væru um það í lögum um meðferð opinberra mála hefði ákæruvaldið reynt að dreifa öllum málsgögnum til skipaðra verjenda. Því hefði hins vegar verið hætt vegna óánægju verjendanna. Tveir menn hafa setið í gæsluvarðhaldi í 312 daga vegna amfetamínsmygls frá Hollandi Efnið 40% léttara en við fyrstu vigtun DAGSKRÁ 29 sjónvarps- stöðva er nú hægt að skoða á slóðinni sjonvarp.is á Netinu. Þetta er ný þjónusta og tengil inn á hana er að finna á mbl.is. Þegar farið er inn á mbl.is er smellt á valhnappinn Fólk- ið ofarlega á skjánum. Þegar þar er komið inn er smellt á sjonvarp.is sem er vinstra megin á skjánum undir Efni. Opnast þá nýr gluggi og við notandanum blasir dagskrá allra íslensku sjónvarpsstöðv- anna auk fjölda erlendra sjónvarpsstöðva á þeim tíma sem farið er inn á vefinn. Hægt er að sjá dagskrá ís- lensku sjónvarpsstöðvanna a.m.k. eina viku fram í tím- ann og sumra stöðva enn lengra. Vefurinn býður einnig upp á þann möguleika að tak- marka valið við einstakar stöðvar eða efnisflokka eins og t.d. íþróttir eða kvikmynd- ir. Birtast þá upplýsingar um þessa efnisflokka á öllum ís- lensku sjónvarpsstöðvunum allt að nokkrar vikur fram í tímann. Sjonvarp.is er rekinn af fyrirtækinu Nano ehf. Nýr dag- skrárvef- ur á mbl.is SJÓMENN og útvegsmenn hittust á samningafundi hjá ríkissáttasemj- ara í gær. Konráð Alfreðsson, for- maður Sjómannafélags Eyjafjarðar, sagði að fundurinn hefði verið alger- lega árangurslaus. Ríkissáttasemj- ari hefur ekki boðað fund á ný. Ríkissáttasemjari boðaði fulltrúa Landssambands íslenskra útvegs- manna, Farmanna- og fiskimanna- sambandsins, Sjómannafélags Eyja- fjarðar og Alþýðusambands Vest- fjarða til fundar til að kanna hvort grundvöllur væri fyrir viðræðum. Þessi samtök og félög frestuðu ekki verkfalli og setti Alþingi því lög sem bannaði verkfallið. Raunar hafði Al- þýðusamband Vestfjarða aldrei boð- að verkfall, en LÍÚ setti verkbann á Vestfjörðum. Samkvæmt lögunum hafa sjómenn sem eftir eiga að semja frest til 1. júní nk. til að ná samn- ingum. Hafi það ekki tekist tekur gerðardómur til starfa og á hann að skila niðurstöðu fyrir 1. júlí. Konráð sagði að LÍÚ vildi ekki semja um neitt annað en vélstjórar sömdu um. Hann sagðist ekki sætta sig við þann samning og því hefði enginn árangur orðið í gær. Konráð sagðist ekki sjá fram á annað en að gerðardómur tæki til starfa. Enginn ár- angur á fundi LÍÚ og sjómanna Í NÝJASTA hefti bandaríska ferðamálatímaritsins Condé Nast Traveler, sem gefið er út í um milljón eintökum, er að finna lista yfir hundrað bestu nýju veitinga- staðina í heiminum „frá Róm til Ríó“. Meðal þeirra staða sem er að finna á listanum er Siggi Hall á Óðinsvéum. Segir í tímaritinu að þar séu reiddir fram fíngerðir réttir með Miðjarðarhafsívafi úr íslensku hráefni. Tekið er fram að hráefnið gerist ekki mikið betra en hið íslenska og sérstaklega er humarhölum staðarins og saltfisk- réttum hælt í hástert. Í tilefni af þessu var haldinn hádegisverður hjá Sigga Hall í gær þar sem ýmsir áhugamenn um íslenska matarmenningu sam- fögnuðu honum. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var meðal gesta en einnig nokkrir þeirra sem hafa haft veg og vanda af því að kynna Ísland í Bandaríkjunum. Var það mál manna að tilnefning sem þessi gæti gegnt mjög mikilvægu hlut- verki í að setja íslenska mat- argerð á kortið vestra. Einar Gústafsson, forstöðumaður Ferða- málaráðs í Bandaríkjunum, sagði þetta marka þáttaskil. Íslenskur matur væri að verða að stórkost- legu ævintýri sem ætti að gera að meiri söluvöru. Magnús Stephen- sen, markaðsfulltrúi Flugleiða í Bandaríkjunum, tók í sama streng og sagði markað vera að opnast fyrir sælkeraferðir til Íslands. Bandaríska ferðamálatímaritið Condé Nast Traveler Siggi Hall einn af 100 bestu veitinga- stöðunum Morgunblaðið/Jim Smart Siggi Hall með eintak af Condé Nast Traveler. Á AÐALFUNDI sjómannadagsráðs í Reykjavík og Hafnarfirði í síðustu viku var samþykkt sú tillaga með meirihluta greiddra atkvæða að bjóða ekki Árna M. Mathiesen sjáv- arútvegsráðherra að halda ræðu við hátíðarhöldin á sjómannadaginn, sem er 10. júní næstkomandi, líkt og tíðkast hefur um langt skeið og held- ur ekki að bjóða fulltrúa útgerðar- innar að taka til máls. Tuttugu og sex fulltrúar stéttarfélaga sjómanna í Reykjavík og Hafnarfirði eiga sæti í ráðinu og því seturétt á aðalfundi. Að sögn Guðmundar Hallvarðs- sonar, þingmanns og formanns sjó- mannadagsráðs, kom tillagan fram úr fundarsal og var sett fram vegna óánægju með lagasetningu á verkfall sjómanna og kvóta smábáta. Fimm manna stjórn sjómannadagsráðs kemur til fundar í dag til að fjalla m.a. um þetta mál en niðurstaða að- alfundar er þó endanleg varðandi há- tíðarhöldin, að sögn Guðmundar. „Það eru sár í brjósti manna yfir því sem hefur gerst í málefnum sjó- manna. Auðvitað skilur maður þá beiskju sem býr í sjómönnum. Þetta hefur ekki gerst áður, eða síðan há- tíðarhöld sjómanna fóru fyrst fram árið 1938. Á þessum tíma hafa lög verið sett og gerðardómar og til þessa hefur ráðið haldið sig fyrir ut- an kjaradeilur,“ sagði Guðmundur. Hátíðarhöldin í Reykjavík hafa vaxið á síðustu árum og m.a. verið efnt til samstarfs við Reykjavíkur- borg og Reykjavíkurhöfn sem haldið hafa hafnardag daginn áður, eða Há- tíð hafsins. Þá hefur sjávarútvegs- ráðuneytið tekið þátt í eflingu sjó- mannadagsins og stutt m.a. flökunarkeppni og aðstoðað við að fá heiðursgesti erlendis frá. Árið 1999 var t.d. John Prescott, aðstoðarfor- sætisráðherra Breta, heiðursgestur og í fyrra var sjávarútvegsráðherra Færeyinga viðstaddur hátíðarhöld- in. Að sögn Guðmundar er óvíst um þennan stuðning í ár, sem og mál- þing sem sjávarútvegsráðherra hafði uppi áform um að halda um málefni hafsins. Hátíðarhöld sjómannadagsins í Reykjavík og Hafnarfirði Ráðherra og útgerðar- mönnum ekki boðið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.