Morgunblaðið - 22.05.2001, Síða 8

Morgunblaðið - 22.05.2001, Síða 8
FRÉTTIR 8 ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fundur um heimafæðingar Hugmyndafræð- in komin í hring FÉLAG áhugamannaum heimafæðingarverður með árs- fund og kaffisölu í kvöld í húsnæði Hússtjórnarskóla Reykjavíkur á Sólvalla- götu 12 og hefst uppákom- an kl. 20. Margrét Jóns- dóttir lektor á sæti í stjórn þessa félags, hún var spurð hvað fram ætti að fara á ársfundinum? „Þar mun nýbökuð móð- ir, Kolbrún Þóra Sverris- dóttir, segja frá reynslu sinni af heimafæðingu og sjálf mun ég halda erindi sem nefnist: Hring eftir hring – um hugmynda- fræði fæðinga. Ég ætla að sýna þar fram á hvernig hugmyndafræði um fæð- ingar hefur farið í hring á ekki ekki lengri tíma en fimmtíu árum. Ég nota upplýsingar úr skjölum frá Borgarskjalasafninu þar sem rætt er um húsnæðisvanda fæð- ingardeildarinnar á sjötta ára- tugnum. Mest notaði ég álitsgerð Jóns Sigurðssonar sem vann hjá embætti borgarlæknis, en Pétur Jakobsson yfirlæknir kvenna- deildarinnar kvartaði sáran yfir ófullnægjandi vinnuaðstöðu og vildi stærra húsnæði. Landlæknir kvaðst alls ekki geta mælt með því við ríkisstjórnina að fæðingar- deildin yrði stækkuð því hann taldi deildina nægilega stóra til að gegna hlutverki sínu sem kennslustofnun sem aðallega ann- aðist afbrigðilegar fæðingar og al- menna kvensjúkdóma. Landlækn- ir sagði að þörfin á stækkun deildarinnar væri einungis vegna fjölda eðlilegra fæðinga sem færi fram á deildinni, „æskilegast væri að þær fæðingar færu að jafnaði fram í heimahúsum. Ríkið gæti ekki stutt Reykjavíkurbæ frekar en önnur sveitarfélög til þess að koma upp sérstökum fæðingar- stofnunum fyrir eðlilegar fæðing- ar.“ Samkvæmt þessu er ljóst að konur vildu eiga börn sín á spítala, þær völdu það, þeim fannst öryggi í að ala börn sín þar en yfirvöld voru ekki tilbúin að laga sig að þessum nýjum viðhorfum. Á sama tíma voru einungis fæðingarlækn- ar fylgjandi því að allar fæðingar færu fram á fæðingarstofnun. Umræddur Jón Sigurðsson tekur fram að margir sálfræðingar og læknar telji heimafæðingu besta kostinn fyrir heilbrigðar konur. Þessi umræða um húsnæðisvand- ræði fæðingardeildarinnar sýnir okkur að öll hugmyndakerfi fara í hringi og sívaxandi áhugi á heima- fæðingum er í beinu samhengi við áhuga okkar á að hafa eitthvað um það að segja hvernig við yfirgef- um þennan heim og hvernig við komum í hann. Þess má geta að ég er að skrifa bók sem heitir Fæð- ingarsögur íslenskra kvenna.“ – Er mikið um heimafæðingar núna? „Þær hafa aldrei verið fleiri, þær voru 30 í fyrra, 13 árið 1999, tíu árið 1998 en sex til átta árin 1995 til 1997. Árið 1956 ólu 2.285 konur börn í Reykja- vík, af þeim fæddu 1.720 börn sín á fæð- ingardeild Landsspít- alans, 240 fæddu á Fæðingarheimili ljósmæðra en 325 eða 14% mæðranna ólu börn sín í heimahúsum.“ – Hvað er betra við heimafæð- ingu? „Ekkert er betra við heimafæð- ingu heldur er tilgangur félagsins að benda á heimafæðingu sem raunhæfan valkost þegar verð- andi foreldrar ákveða hvernig þeir vilja hafa fæðinguna. Margar konur eru hræddar við spítala, óttast að sóttin detti niður þegar upp á stofnun sé komið. Enn fleiri konur finna til öryggis þegar þær velja sjálfar þær ljósmæður sem sinna þeim og þær stjórna öllum aðstæðum. Það æðir þá enginn ókunnugur inn á þær án þess að banka á hurðina. Það er marg- frægt að til þess að koma barni í heiminn þurfa konur sama næði og foreldrar þurfa til að geta barnið. Sýkingarhætta er minni þegar konan er í eigin umhverfi og verkjalyfja er síður þörf – einnig eru miklu minni líkur á inngripum í heimafæðingu. En aðalatriðið er hugmyndafræðin, Félag áhuga- manna um heimafæðingar lítur ekki á barnsfæðingar sem sjúk- dóm heldur eðlilegan hlut af nátt- úrunni og við teljum nauðsynlegt að konur geti valið hvernig þær vilja hafa þessa mikilvægu stund í lífi sínu. Líkami kvenna er gerður til að ganga með og fæða börn. Heimafæðing er ekki ábyrgðar- leysi heldur upplýst val. Fólk sem hefur áhuga á að kynna sér þenn- an valkost betur getur fengið upp- lýsingar á heimasíðu félagsins www.simnet.is/heimafaeðingar- felag“ – En hvað með kaffisöluna? „Við erum að safna fyrir fæð- ingarpotti og því verðum við með dýrindis kaffisölu a la húsmæðra- skólinn og allir eru velkomnir, sérstaklega verðandi foreldrar.“ – Hvað er fæðingar- pottur? „Það er fæðingar- laug. Sú staðreynd að konur mega ekki ala börn sín í vatni á Landsspítalanum hefur hvatt margar konur til að eiga börn sín í heimahúsi í stað þess að hendast á Selfoss, á Akra- nes eða til Keflavíkur með létta- sótt.“ – Verður fæðingarlaugin þá lánuð í heimahús við fæðingar? „Einmitt – en vatn er besta náttúrulega deyfileyfið sem hægt er að hugsa sér í fæðingu.“ Margrét Jónsdóttir  Margrét Jónsdóttir fæddist í Reykjavík 6. mars 1966. Hún tók stúdentspróf frá Fjölbrautaskól- anum í Breiðholti 1986 og BA- próf í spænsku frá Háskóla Ís- lands 1991. MA-prófi lauk hún í spænsku 1994 frá Princeton- háskóla 1994 og er nú að ljúka doktorsprófi frá sama skóla. Hún hefur starfað við kennslu og er nú lektor í spænsku við HÍ. Hún á sæti í stjórn Félags áhugamanna um heimafæðingar. Margrét er gift Má Jónssyni sagnfræðingi og eiga þau þrjá syni. Líkami kvenna er gerður til að ganga með og fæða börn En þú ert bara svo góður ýtari, Dóri minn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.