Morgunblaðið - 22.05.2001, Síða 16

Morgunblaðið - 22.05.2001, Síða 16
AKUREYRI 16 ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ VOGIR Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum eitt mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband Síðumúla 13, sími 588 2122 www.eltak.is KRISTJÁN Þór Júlíusson bæjar- stjóri á Akureyri segist geta tekið undir ályktun kennarafundar Tón- listarskólans á Akureyri þar sem fram kom að aðstaða til tónleika- halds í bænum var sagt til hábor- innar skammar. Ályktunin var gerð í kjölfar þess að Íþróttaskemmunni var lokað nú á vordögum fyrir tón- leikahald, en hún hefur verið seld einkafélagi. Fundurinn skoraði á bæjaryfirvöld og stjórnvöld að flýta ákvörðun um byggingu menningar- húss svo hið öfluga tónlistarlíf sem stundað er í bænum verði ekki fyrir varanlegum skaða. „Ég get tekið undir það að að- staða til stærra tónleikahalds mætti vera miklu betri,“ sagði Kristján Þór. Hann sagði bæjaryfirvöld vinna að því að greiða úr þeirri stöðu sem nú blasir við í kjölfar lok- unar Íþróttaskemmunnar. Viðræð- ur stæðu yfir við ríkisvaldið um byggingu menningarhúss og átti bæjarstjóri von á að niðurstaða fengist í málið „innan ekki mjög langs tíma,“ eins og hann orðaði það. Meðal þess sem botn þarf að fást í er kostnaðarskipting og stærð hússins, sem liggja þarf fyrir áður en ákvörðun um byggingu verður tekin. Benti bæjarstjóri á að lokun Skemmunnar hefði bæði kosti og galla í för með sér. Nú þegar hún væri komin úr umferð væri brýnna en nokkru sinni, að huga að upp- byggingu tónleikahúss, en það að Skemman nýttist til þeirra hluta, hefði ef til vill seinkað því að farið var að ræða nýjan kost fyrir alvöru. Bæjarstjóri um ályktun kennarafundar Tónlistarskólans Niðurstöðu að vænta í við- ræðum um menningarhús RÁÐNINGAR kennara til grunn- skóla Akureyrar hafa gengið mjög vel á þessu vori og mun betur en á sama tíma í fyrra. Gunnar Gíslason deildarstjóri skóladeildar sagði að miðað við horfur í dag verði full- mannað í flestum skólanna í lok þessa mánaðar og væri hlutfall rétt- indakennara að aukast verulega. Gunnar sagði að svipuð staða væri upp varðandi leikskólakennara og að býsna stór hópur þeirra væri að koma til starfa hjá leikskólum bæj- arins. Gunnar fundaði með skólastjórum í grunnskólum bæjarins í vikunni og hann sagði að hljóðið í þeim varðandi kennaramálin væri mjög gott. „Í flestum skólastjóranna var það hljóð að þeir séu komnir með réttinda- kennara í flestar þessar heilu um- sjónarkennarastöður. Það stendur þó alltaf eitthvað út af með sér- greinastöðurnar og ekki hefur alls staðar gengið vel með ráðningu tón- menntakennara. En í heildina eru menn mjög ánægðir miðað við árs- tíma.“ Skólastarf hefst viku fyrr en venjulega Gunnar sagðist vita um þó nokkur tilvik þar sem kennarar væru að flytja til bæjarins en einnig væri þarna um að ræða nemendur sem eru að útskrifast frá Háskólanum á Akureyri, bæði sem leik- og grunn- skólakennarar. „Einnig hef ég grun um að eitthvað sé um að fólk sé að snúa aftur til starfa við kennslu en veit þó ekki í hversu miklum mæli.“ Gunnar sagði alveg ljóst að launa- kjörin hafi batnað, enda væri launa- kostnaður sveitarfélagsins að hækka um 30%. „Inni í þessu er líka um að ræða töluverða breytingu á starfi kennara. Það birtist m.a. í því að skólarnir byrja fyrr næsta haust en venjulega. Skólasetning verður 27. ágúst nk. í öllum grunnskólunum, eða viku fyrr en venjulega.“ Vel hefur gengið að ráða kennara til starfa Gott hljóð í skólastjórum í grunnskólum Akureyrar ÞAÐ var líf og fjör á lóð leikskólans Síðusels á Akureyri sl. laugardag er þar var haldin vorhátíð skólans. Börn, foreldrar og starfsfólk gerðu sér þá dagamun, léku sér saman, fóru á hestbak og fengu sér grill- aðar pylsur. Þá kom Skralli trúður í heimsókn og að vanda gerði hann mikla lukku, enda fjörkálfur hinn mesti. Hér heldur Skralli á henni Aldísi, sem var einnig máluð í fram- an. Morgunblaðið/Kristján Vorhátíð á Síðuseli ÞEIR voru frelsinu fegnir, hrútar þeirra feðga Kjartans Björnssonar í Hraunkoti I í Aðaldal í S-Þing- eyjarsýslu og Kolbeins sonar hans, þegar þeir fengu loks að fara út undir bert loft um helgina eftir að hafa dvalið innandyra við skyldu- störf í vetur. Mest var þó að gera hjá hrútunum í kringum jólin en ekki er að sjá annað en að þeir hafi staðið sig vel, enda ágætis frjósemi hjá kindum þeirra feðga. Hrútarnir voru frekar æstir þegar þeir loks fengu frelsi og réðust hver að öðrum og stönguðust á töluverða stund, svona rétt til þess að finna út hver þeirra væri mest- ur og sterkastur og þar með for- inginn. Þótt þeir hafi látið ófrið- lega um stund svo á þeim sá eiga þeir vafalítið eftir að halda hópinn í sumar og fram á haust. Morgunblaðið/Kristján Hrútarnir fimm voru ánægðir með að vera komnir undir bert loft eftir inniveruna í vetur. Hrútarnir frelsinu fegnir Morgunblaðið/Kristján Hrútarnir tókust vel á rétt eftir að þeim var hleypt út, svona rétt til að fá úr því skorið hver væri foringinn. SÉRLEYFISBÍLAR Akureyrar hf. hafa keypt rútubílarekstur BSH á Húsavík og sameinað hann rekstri fyrirtækisins. Með kaupunum eign- ast Sérleyfisbílar Akureyrar átta hópferðabíla til viðbótar og gerir nú út samtals 42 hópferðabíla með rúm- lega 1600 sætum. Að sögn Gunnars M. Guðmunds- sonar, framkvæmdastjóra Sérleyfis- bíla Akureyrar, er greitt fyrir rútu- bílarekstur BSH með hlutabréfum í Sérleyfisbílum Akureyrar. Að sögn Gunnars mun Björn Sigurðsson á Húsavík hins vegar halda verktaka- starfsemi sinni áfram undir merkj- um BSH. Sérleyfisbílar Akureyrar taka jafnframt yfir sérleiðir BSH, Húsavík-Akureyri, Húsavík-Mý- vatnssveit og Húsavík-Þórshöfn. Gunnar sagði að nokkur aðdrag- andi hafi verið að þessum kaupum en tilgangurinn með þeim væri fyrst og fremst að auka hagræðingu og styrkja rekstur fyrirtækisins. „Það er mjög mikilvægt að ná góðri sam- nýtingu á bílunum og við teljum okk- ur ná því með þessu. Einnig fylgir þessu ýmis önnur hagræðing, bæði í innkaupum og öðru.“ Rekstur Norðurleiðar sameinaðist rekstri Sérleyfisbíla Akureyrar í vet- ur og þá bættust 14 hópferðabílar í flota fyrirtækisins. Hjá fyrirtækinu starfa nú um 30 bílstjórar, auk ann- ars starfsfólk en Gunnar sagði að bíl- stjórum myndi fjölga um 20-30 yfir sumarvertíðina. Aðspurður um komandi ferða- mannatímabil sagðist Gunnar þurfa að vera bjartsýnn og að í raun væri útlitið nokkuð gott. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Hópferðabíll frá BSH merktur Sérleyfisbílum Akureyrar. Yfirtaka rútu- bílarekstur BSH á Húsavík Sérleyfisbílar Akureyrar færa út kvíarnar Píanótónleikar NEMENDUR píanódeildar Tónlist- arskólans á Akureyri koma fram á tónleikum í Laugaborg, Eyjafjarðar- sveit í kvöld, þriðjudagskvöldið 22. maí kl. 20.30. Á tónleikunum leika nemendurnir tónlist frá klassíska og rómantíska tímanum. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.