Morgunblaðið - 22.05.2001, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 22.05.2001, Qupperneq 21
VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2001 21 HLUTAFJÁRÚTBOÐ Íslandssíma til forkaupsréttarhafa hófst í gær. Meðal forkaupsréttarhafa er Landsbanki Íslands en bankinn og Íslandssími gerðu með sér samning í september síðastliðnum um fjár- mögnun Íslandssíma. Samningur Landsbanka Íslands hf. og Íslandssíma hf. náði til far- símauppbyggingar Íslandssíma og stefnumarkandi samstarfs félag- anna, að sögn Halldórs J. Kristjáns- sonar, bankastjóra Landsbanka Ís- lands. Hann segir að þátttaka Landsbankans hafi þá verið ákveðin sem hluti af grundvallarstefnu bank- ans um starfsemi sem tengist fyr- irsjáanlegri aukningu eða samtvinn- un á greiðslumiðlun, verðbréfa- viðskiptum og fjarskiptaþjónustu. Hlutaféð í Íslandssíma, sem bankinn hafi keypt þá, 5 milljónir króna að nafnverði, hafi verið óverulegt, sam- anborið við þann kauprétt sem um hafi þá samist og bankinn hafi síðan nýtt sér í apríl síðastliðnum á for- gangsverði til hluthafa. Halldór segir að kaup Landsbank- ans á hlutabréfum í Íslandssíma í september síðastliðnum á genginu 16 hafi verið mjög afmarkaður þátt- ur í heildarviðskiptum við Íslands- síma. Hlutabréfakaupin þá beri að skoða með hliðsjón af því að þau hafi verið hluti af stærra samkomulagi. Stjórnendur bankans séu sáttir við heildarviðskiptin á hlutabréfum í Ís- landssíma, þótt gengið á þeim hlut sem keyptur hafi verið í september hafi verið nokkuð hærra en það gengi sem nú sé á hlutabréfum í félaginu, enda hafi kauprétturinn komið þar á móti. Landsbankinn sé mjög sáttur við aðild sína að þessu vaxandi félagi og það meðalgengi sem bankinn hafi keypt sinn heildar- hlut á. Gengið á hlutabréfum í Íslands- síma hf. í útboði sem hófst í gær er 8,30 til hluthafa en 8,75 til annarra fjárfesta. Landsbankinn keypti nýtt hlutafé í félaginu í apríl síðastliðnum að nafnverði 84,3 milljónir króna á genginu 8,30. Verð þeirra bréfa, tæpar 700 milljónir króna, gekk til að styrkja eiginfjárstöðu Íslands- síma með greiðslu á hluta af láni Ís- landssíma hjá bankanum. Kaup Landsbanka Íslands á hlutabréfum í Íslandssíma Bankinn sáttur við meðalgengi bréfa HRAÐFRYSTIHÚSIÐ-Gunn- vör hf. var rekið með 17 millj- óna króna tapi á fyrsta ársfjórð- ungi ársins 2001 samanborið við 23 milljóna króna hagnað á öllu árinu 2000. Skýringin á þessum umsnúningi er að gengistap og verðbætur á fyrsta ársfjórðungi 2001 voru 111 milljónir króna samanborið við 229 milljónir króna allt árið 2000. Rekstrartekjur félagsins voru á tímabilinu 718 milljónir og rekstrargjöld 522 milljónir, rekstrarhagnaður fyrir af- skriftir var því 195 milljónir eða 27,2% af rekstrartekjum sam- anborið við 698 milljónir allt ár- ið 2000 eða 25,7% af tekjum. Veltufé frá rekstri var 148 millj- ónir á tímabilinu en var 536 milljónir króna allt árið 2000. Sambærilegar tölur fyrir sama tímabil árið áður eru ekki fyrir hendi. Í tilkynningu frá félaginu segir að á tímabilinu hafi bol- fiskveiðar og vinnsla gengið vel og rækjuveiðar og vinnsla hafi gengið betur á tímabilinu en undanfarin ár. Muni þar um betri aflabrögð á úthafsrækju en á síðasta ári, einnig gengu innfjarðarrækjuveiðar vel í Ísa- fjarðardjúpi. Í tilkynningunni segir að áhrifa veikingar íslensku krón- unnar frá áramótum og sjó- mannaverkfalls í apríl og maí muni hafa veruleg áhrif á af- komu félagsins á árinu. Að öðru leyti sé rekstur félagsins í sam- ræmi við áætlanir og gert sé ráð fyrir að hagnaður verði af rekstri félagsins á árinu svo fremi að veiking krónunnar verði ekki meiri en orðið er og aðrar utankomandi aðstæður verði svipaðar. Þar sem nær all- ar tekjur félagsins eru í er- lendri mynt sé ljóst að tekjur félagsins muni aukast síðar á árinu vegna veikingar krónunn- ar. Hraðfrysti- húsið-Gunn- vör hf. með 17 milljóna króna tap Norska samkeppnisstofnunin íhug- ar nú alvarlega að leggja tímabund- ið bann við kaupum SAS flugfé- lagsins á norska flugfélaginu Braathens, þar sem þau muni taka fyrir samkeppni. Félögin tilkynntu í gær að SAS hygðist kaupa meiri- hluta í Braathens og síðar allt að 90% hlutabréfanna verði kaupin samþykkt. Verð Braathens í heild nemur um 12,4 milljörðum ís- lenskra króna. Braathens og SAS í Noregi eru álíka stór að umfangi. Braathens ræður yfir 32 flugvélum, starfs- mennirnir eru 4.600 og um 7,7 milljónir fljúga árlega með félag- inu. Í tilkynningu frá SAS segir að Braathens muni halda nafninu og rekstur félaganna verði aðskilinn. Þá lofar SAS því að félögin muni áfram eiga í samkeppni en því eiga margir bágt með að trúa, þar á meðal samkeppnisráð, svo og margir flugfarþegar, sem hafa lýst áhyggjum sínum vegna kaupanna. Elisabeth Roscher, sem stýrir lagadeild samkeppnisstofn- unarinnar norsku, segir „yfir- gnæfandi líkur á því að kaup SAS á Braathens muni hafa áhrif á sam- keppnina á norskum flugleiðum vegna þess hve fá önnur flugfélög eru á markaðnum og öll mun minni. Reynir stofnunin nú að meta áhrif kaupanna á næstu dögum og kom- ist hún að því að þau muni tak- marka samkeppni verulega, getur hún lagt tímabundið bann við kaup- unum. Samkeppnisstofnunin hefur aldrei nýtt sér þennan rétt. Nýti hún hann ekki, hefur hún hálfs árs frest til að fara ofan í saumana á málinu og getur að því búnu hafnað ósk um sameiningu ef hún telur ríka ástæðu til. Tilkynnt var í gær að SAS hygðist kaupa meirihluta í Braathens og síðar allt að 90% hlutabréfanna verði kaupin samþykkt. SAS kaupir Braathens Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. NETVERSLUN Á mbl.is Langermabolir aðeins 1.900 kr. Nýbýlavegi 12 - sími 554 4433 Nýkomnar fallegar úlpur Kr. 7.900 w w w .c lin iq ue .c om 100% ilmefnalaust Clinique. 100% ilmefnalaust. Hver sér um hárið á þér? Láttu nýju hárlínuna frá Clinique sjá um það Nú sér Clinique jafn vel um hárið á þér eins og húð- ina. Lagfærir það og mýkir. Nýja handhæga hárlínan frá Clinique. Gerð til að hreinsa, næra og móta hárið. Sérstaklega hönnuð fyrir þína hárgerð. Hvort sem þú hefur feitt, venjulegt eða þurrt hár. Þú öðlast heilbrigt útlit. Nærð bestu virkni og færð hárið sem þú hefur alltaf viljað. Þrjár gerðir af sjampóum, hárnæringu og mótunarvör- um. Allar hannaðar fyrir hár- ið þitt. Sjampó kr. 1.175 Hárnæring kr. 1.175 Mótunarvörur kr. 1.495 Ráðgjafi frá Clinique verður í Lyfju Laugavegi í dag, þriðjudag 22. maí og í Lyfju Lágmúla miðvikudag 23. maí kl. 12-17. Lyfja Lágmúla, sími 533 2308 - Lyfja Laugavegi, sími 552 4045
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.