Morgunblaðið - 22.05.2001, Page 26

Morgunblaðið - 22.05.2001, Page 26
ERLENT 26 ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ ALMÁTTUGUR, þeir hafa kos-ið Kenny!“ þannig var þess-ari „verstu martröð“ Tony Blair forsætisráðherra og fyrrum flokksbróður Ken Livingstone slegið upp á forsíðu Sun ásamt teiknimynd af Rauða Ken sem teiknimyndahetj- unni Kenny úr South Park daginn eft- ir sigur Livingstones í borgarstjórn- arkosningunum í London fyrir ári. Livingstone fer að mörgu leyti líkt að og Blair þegar hann höfðar til hægrivængsins með því að tala vel um viðskiptalífið og vill taka hart á glæp- um. Munurinn er bara sá að Living- stone er ekki hræddur við að halda fast við gamla róttækni eftir því sem hann getur. Hann hikaði jafnvel ekki við að setja bifreiðatolla á stefnuskrá sína til að takmarka umferðina í London, sem í heild er eitt stærsta verkefni hans. Með því að halda fast í vinstrirótina og vinna sýndi hann Blair og félögum fram á að það sem þeir sögðu um nauðsyn þess að þok- ast til hægri til að ná trausti og fylgi stenst ekki alltaf. Fyrir ári var það vísast versta mar- tröð Blairs að Livingstone náði kjöri. Eftir fyrsta árið, sem almennt er dæmt sem firnagott í úttekt fjölmiðla og verðlaunað með meira fylgi í skoð- anakönnunum, er það viðvarandi martröð Verkamannaflokksins að Livingstone nái markmiðum sínum. Og það er enginn endir í augsýn, því þótt Livingstone ætlaði sér ekki að verða eilífur augnakarl í embætti, að- eins að sitja í eitt kjörtímabil, stefnir hann nú óhikað á að ná kjöri aftur. Og gott betur, því hann kann vel að meta völd og stefnir að því að völd borgarstjóra höfuðborgarinnar verði meiri þegar hann hættir en þegar hann tók við. Hvort það tekst er ann- að mál, en einmitt á eins árs afmælinu virðist hann hafa unnið sigur á Blair í langvarandi deilu um einkavæðingu neðanjarðarbrautanna í London. Hann hefur breytt London, en er kannski einnig á leið með að breyta flokknum óbeint. Verkamannaflokkurinn hafði vissulega ætlað að taka upp þráðinn frá því að Margaret Thatcher lagði borgarstjórn London niður, Greater London Council, GLC, með einu pennastriki 1986. Sá sem átti að taka við þá var einmitt Rauði Ken og það hugnaðist Thatcher engan veginn. Blair, sem líkist einmitt Thatcher í svo mörgu, bæði í töktum og stefnu, leist heldur ekki á að fá Livingstone inn, en hafði greinilega ekki tekið ein- urð, aðrir segja þráhyggju, Living- stones með í reikninginn, þegar flokk- urinn einsetti sér að endurreisa GLC, ef hann næði stjórnartaumunum frá Íhaldsflokknum 1997. Þegar kom að borgarstjórnarkosn- ingunum í fyrra hafði Livingstone verið tiltölulega áhrifalaus í flokknum og á þingi í fjórtán ár eftir að Thatch- er hrifsaði GLC úr höndum hans. Liv- ingstone var gamli flokkurinn holdi klæddur og auðvitað hugleiddi Blair aldrei að taka hann í stjórn sína, þó vinsæll væri. Um borgarstjóraemb- ættið gilti öðru máli. Þar áttu kjós- endur síðasta orðið, ekki flokkseig- endurnir. Livingstone lýsti strax áhuga sín- um, flokksstjórnin hryllti sig og fékk Frank Dobson til að bjóða sig fram. Livingstone sagði sig úr flokknum, jafnvel þótt það kostaði hann þing- sætið, sem hann hélt annars upp á, bauð sig fram – og sigraði svo glæsi- lega. Fékk næstum þrefalt fleiri at- kvæði en sá næsti. Útreið Verka- mannaflokksins og Dobsons varð háðuleg. Dobson varð þriðji, kom á eftir frambjóðanda Íhaldsflokksins. Þar með fékk Blair efni í viðvarandi martröð, sem ekki sér fyrir endann á. Kosningaloforð Liv- ingstones beindust einkum að þremur svið- um: Samgöngum, bar- áttunni gegn glæpum og atvinnu- og umhverfis- málum. Samgöngu- og umhverfismálin eru samþætt, því hrikalegur umferðarþungi er um leið gríðarlegur meng- unarvaldur. Eftir 2–3 ár mun það kosta fimm pund á bíl, um 750 ís- lenskar krónur, að keyra í einkabíl inn í innsta hring miðbæjar- ins. Önnur forgangsverkefni í sam- göngugeiranum eru viðbætur við neð- anjarðarkerfið, svo það teygi sig lengra út í úthverfin, betri strætó- samgöngur með sérbrautum til að greiða þeim leiðina um sítepptar um- ferðaræðarnar og fleiri bílstjórar. Á eins árs afmælisdaginn lét Living- stone einmitt taka af sér mynd með hópi nýrra bílstjóra. Allt þetta miðar í rétta átt. Livingstone hefur beitt sér fyrir fleiri lögregluþjónum, hefur bætt við þúsund og beitt sér fyrir árlegri stað- aruppbót til þeirra upp á 6 þúsund pund, um 900 þúsund krónur, því það er svo ótrúlega miklu dýrara að búa í London en í öðrum breskum borgum. Glas af ávaxtasafa kostar til dæmis um 1,70 pund á venjulegu kaffihúsi í London, en fyrir sömu upphæð fæst heil salatskál á sambærilegum stað í Manchester – og annað er í sama dúr. Togstreitan um neðanjarðarbrautirnar Flest ofangreind mál eru fjöður í hatt Livingstones án þess að vera beint sársaukafull fyrir Verkamanna- flokkinn, nema ef þeim gremst að sjá góðan árangur Livingstones meðan stjórninni gengur heldur hörmulega að saxa á sinn kosningaloforðalista. Öðru máli gildir um tök Livingstones á neðanjarðarbrautarkerfinu. Þar hefur hann ekki aðeins verið í hreinni glímu við flokkinn, sem hann sagði sig úr, heldur stendur sú glíma um sjálf- an kjarnann í kennisetningum Nýja Verkamannaflokksins. Eftir harða gagnrýni um árabil á einkavæðingu Íhaldsflokksins gat Verkamannaflokkurinn ekki alveg fengið sig til að halda áfram, en held- ur alls ekki ekki til að snúa blaðinu við. Liður í viðskiptavænni stefnu Verkamannaflokksins er að draga einkageirann inn í samstarf við op- inbera geirann. Á vinstivængnum er þetta fyrirbæri gagnrýnt sem dulbúin einkavæðing, á hægrivængnum fyrir að ríkið verði áfram með puttana í öllu. Stjórnin hefur ekki stefnt að því að neðanjarðarkerfið yrði einkavætt, heldur að einkageirinn yrði feng- inn til að leggja í púkk- ið. Livingstone fékk lík- lega hæfasta mann í heimi, Bandaríkja- manninn Robert Kiley, til að reka neðanjarðar- kerfið. Kiley, sem er fyrrverandi CIA-mað- ur, getur státað af því að hafa komið rekstri neðanjarðarbrautanna í New York á réttan kjöl, bæði hvað fjárhag, þjónustu og öryggi varðar. Blair hefur enn ekki haft tíma til að hitta Kiley. Besta afmælisgjöfin Ráðning Kileys var annars ekki með öllu í rauðum stíl. Kiley fékk til umráða hús upp á 2 milljónir punda, um 300 milljónir íslenskra króna, á besta stað í borginni og kaup á sama stigi. Með þungann af fyrri afrekum í vegarnesti hefur Kiley barist með kjafti og klóm gegn samsulli hins op- inbera og einkageirans, sem hann segir að stofni í hættu öryggi kerf- isins og þar með þeirra milljóna er flæða um kerfið daglega því ábyrgð- arleysi sé byggt inn í slíka hugmynda- fræði. Ef annað yrði ekki mögulegt voru bæði Livingstone og Kiley til- búnir til að fara í mál við stjórnina. Það var því kannski besta afmæl- isgjöfin, sem Rauði Ken fékk í ár er Financial Times fullyrti í forsíðufrétt um helgina að Blair væri að gefa sig gagnvart Kiley. Hann væri nú tilbú- inn að fallast á að Kiley yrði stjórn- arformaður London Transport, stjórnunaraðila neðanjarðarkerfisins. Með því fylgdi vald til að velja og hafna öllum rekstrarleiðum og sam- starfsaðilum. Það á eftir að koma í ljós hver úr- slitin í deilunni um neðanjarðarkerfið verða. Fari svo að Blair verði að pakka sinni hugmynd saman, hefur það óneitanlega mikil áhrif á stefnu flokksins og hugmyndafræði um leið og staða Livingstones er mun sterk- ari gagnvart Blair og gamla flokknum sínum en áður. En þótt áhrifin verði djúpstæð á hugmyndafræðina, skiptir það kannski ekki öllu máli fyrir Blair. Bæði Blair og Livingstone hefur nefnilega tekist að sanna það sama: Að Verkamannaflokkurinn og vinstri öflin geta stjórnað, bæði landinu og London, án þess að allt fari í bál og brand. Flokkurinn hefur öðlast traustið, sem hann glataði þegar Thatcher og stjórn Íhaldsflokksins komust til valda 1979 og sem viðhélt valdatíma íhaldsins í heil átján ár. Það voru reyndar aðallega forkólfar Verka- mannaflokksins, sem vöruðu við eldi og eimyrju yrði Livingstone kosinn, en þeir höfðu sumsé jafnrangt fyrir sér og Íhaldsflokkurinn 1997. London er reyndar ívið rauðari en landið, en ekki svo að almenningur og viðskipta- geirinn skelfist. Óreiðunni var afstýrt, en næsta spurning er hvað flokkurinn gerir við Livingstone. Í Guardian er bent á að Livingstone og félagar hafi áður talað um að valdastóllinn í London yrði undirstaðan undir nýjum vinstrivæng og um leið hugsanlegur keppinautur Verkamannaflokksins, líkt og jafnað- arflokkarnir í Skotlandi og Wales. Nú segir Livingstone hins vegar að kannski vilji „Tony að ég snúi mér að öðru“, þegar kjörtímabilinu lýkur og talar því eins og Blair ákveði það allt. En hann segir reyndar að haldi hann fylgi sínu taki þeir hann inn í flokkinn, en ef ekki muni flokkurinn spyrja: „Hvern eigum við að láta bjóða sig fram gegn aulanum?“ Miðað við allt sem á undan er gengið verður það risabiti að kyngja fyrir leiðtoga Verkamannaflokksins að bjóða Liv- ingstone aftur inn í flokksylinn. En geri þeir það ekki liggur í loft- inu að Livingstone muni að sjálfsögðu bjóða sig aftur fram og þá með heilan lista með sér. Það gæti orðið fyrsti vísirinn að nýjum vinstriflokki. Sá flokkur hefði þegar langan afrekalista til að veifa framan í kjósendur, sem er meira en Verkamannaflokkurinn hef- ur. Hefur Livingstone breytt London? Fyrir ári skákaði Ken Livingstone breska Verkamannaflokknum með sjálfstæðu framboði sínu, segir Sigrún Davíðsdóttir. Ferill hans hefur verið samfelld glíma við ríkisstjórnina. sd@uti.is Livingstone

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.