Morgunblaðið - 22.05.2001, Side 29

Morgunblaðið - 22.05.2001, Side 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2001 29 ÞEIR Jim Black trommumeistari og Chris Speed tenóristi og klarin- ettuleikari hafa tengst Íslandsdjass- inum síðan þeir Jim og Hilmar Jensson voru hebergisfélagar á Berklee-tónlistarskólanum í Boston. Ófá eru þau skipti sem Jim og Chris hafa komið hingað til að leika með Hilmari og félögum – eitt sinn með Tim Berne en oftar í fylgd Skúla Sverrissonar bassameistara svo sem í balkandjasssveitinni Pachora. Skúli býr í New York eins og flestum mun kunnugt og starfar um víða veröld. Í símaviðtali Morgunblaðiðs við leiðtoga sveitarinnar, Jim Black, þarsem hann var staddur ásamt félögum sínum að taka upp nýjan geisladisk, sagðist hann ekki vera djassleikari og hafna öllum skil- greiningum á tónlist. „Nú reyni ég að forðast stíla og stefnur. Ég vil bara heyra góða tónlist....... Ég myndi segja að ég væri spunatónlist- armaður fyrst og fremst.“ Það er ekkert nýtt að tónlistar- menn gefi slíkar yfirlýsingar og ekk- ert nema gott um það að segja. Bæði Duke Ellington og Charles Mingus neituðu að kalla tónlist sína djass en hún var ekki minni djass fyrir það, en þeir urðu fyrir áhrifum alls staðar frá, jafnt úr tónskáldatónlist, poppi og þjóðlögum Austurlanda. „Það er aðeins til tvenns konar tónlist,“ sagði Duke jafnan, „góð tónlist og vond tónlist“. En hvort sem listamönnum líkar betur eða verr verður alltaf reynt að skilgreina list þeirra og merkja hin- um ýmsu stílum – vonandi njótend- um til gagns og glöggvunar. Einfald- asta skilgreining sem til er á djassi er höfð eftir John heitnum Lewis, forsprakka Modern Jazz-kvartetts- ins. „Djass er spuni með sveiflu“. Svo má endalaust deila um hvað sveifla sé. Tónlist AlasNoAxis leitar víða fanga sem betur fer, því endurtekn- ingar á því sem gert hefur verið, hvort sem er í bíboppi eða frjáls- djassi, ber dauðan í sér eins og best hefur sannast á djassframleiðslu stóru bandarísku útgáfuhringanna. Tónleikar þeirra félaga upphófust á miklu rafmagni enda hljóðfæra- leikararnir vopnaðir hljóðgervlum ýmiss konar auk hljóðfæranna og Jim veltir sér upp úr hljóðasköpun- inni; en að fegurðin sé öllu æðri sannaðist eftirminnilega þegar Chris blés hina fátóna en fögru ballöðu M m og í kjölfarið fylgdi villtari sam- spuni en á diskinum góða er út kom með sveitinni í fyrra. Brátt mátti kenna aðra kostalaglínu, Mabye, af sama diski og fylgdi trylltur sam- spuni. Tenórinn leiddi síðan til há- sætis nýtt tónverk eftir Black en eins og í flestum verkum kvöldsins var einleiksspuninn í styttri kantin- um. Þetta var formföst tónlist með þungum takti af rokkættinni oftast eða þá í sveimkenndari kantinum. Þó brá klassískum djasstöktum oftar en ekki fyrir hjá meistaratrommaran- um Jim Black. Fimmti ópus kvöldsins upphófst á stórfallegum tenórblæstri Chris Speed, af frelsisættinni en þó með coltrönskum undirtóni og síðan tók við riffið eins og gjarnan og lauk öll- um með trylltu rafmagni snöggt svo Jim varð að segja: „That́s all,“ til að koma klappinu í gang. Þetta var Poet Staggered og skemmtilega ólíkur blástur hjá Chris og á diskinum þar sem hann blæs í falsettu a la Albert Ayler. Svo spiluðu þeir fleiri lög af disk- inum frá í fyrra og ný verk í bland og fóru að sjálfsögðu á kostum og Jim þakkaði fyrir sig: „Súpertakk.“ Þetta voru lok á þriggja vikna Evr- óputúr og ekki undra að félagarnir væru þreyttir eftir að hafa leikið stanslaust í hálfan annan tíma í Tjarnarbíói en aukalagið skyldu tón- leikagestir fá. Það var nýtt af nálinni og hófst sem ballaða en reif sig brátt upp í styrk og spennu. Lítið fór fyrir einleik hjá Skúla og Hilmari en því betur gæddu þeir tón- listina lífi með hljómum sínum, línum og rafhljóðum. Þetta voru fyrsta klassa tónleikar sem bæði skemmtu og glöddu and- ann og þökk sé fjórmenningunum og 12tónum sem skipulögðu herlegheit- in. Þeir sem ekki gátu komist ættu að ná sér í disk þeirra félaga og við sem vorum í Tjarnarbíói bíðum spennt eftir þeim nýja. Tónaveisla og hljóða- svall í Tjarnarbíói DJASS T j a r n a r b í ó Chris Speed, tenórsaxófón og klar- inett, Hilmar Jensson gítar, Skúli Sverrisson rafbassa og Jim Black trommur. Miðvikudagur 16. maí. ALASNOAXIS Vernharður Linnet KIRKJUKÓR Selfosskirkju heldur tónleika í Selfosskirkju að kvöldi uppstigningardags og hefjast þeir kl. 20.30. Eru þetta aðrir tónleikar kórs- ins á þessu vori og kveður þar örlítið við annan tón, Enda er þessi efnis- skrá frábrugðin því sem kórinn oft- ast fæst við. Sum lögin hafa verið grafin úr djúpri gleymsku og hafa e.t.v. aldrei heyrst áður en önnur flutt í nýjum búningi. Sitthvað ætti því að vera forvitnilegt áheyrnar. Stjórnandi kórsins er Glúmur Gylfa- son. Elín Gunnlaugsdóttir syngur einsöng með kórnum og undirleik annast Haukur Gíslason. Ekki alls fyrir löngu hélt kórinn tónleika í Selfosskirkju í tilefni loka á 1000 ára kristnitökuafmælisári. Á tónleikum var eingöngu flutt kirkju- legt efni sem hæfa þótti tilefninu. Kirkjukór Selfosskirkju hyggst bregða sér út fyrir landsteinana nú í byrjun júní. Ferðinni er heitið til Ítalíu og er ætlunin að ferðast um nokkurt svæði og sýna sig og sjá aðra og að sjálfsögðu syngja jafnt á torgum sem fínustu tónleikastöðum. Kórinn mun meðal annars syngja með öðrum kórum í Parma og Mongidoro og einnig mun söngkon- an Halla Margrét Árnadóttir syngja einsöng með kórnum í nokkrum lög- um. Kórinn hefur æft af kappi fyrir þessa ferð ásamt því að sinna nauð- synlegum athöfnum. Þegar í ljós kom að skipuleggjendur á Ítalíu gerðu ráð fyrir tvennum tónleikum á svipuðum slóðum var brugðið á það ráð að bæta við annarri efnisskrá sem flutt verður á tónleikunum að kvöldi uppstigningardags. Aðgangseyrir að tónleikunum er 1.000 krónur. Morgunblaðið/Sig. Jónss. Kirkjukór Selfoss heldur í tónleikaferð til Ítalíu í næsta mánuði. Ryk dustað af gömlum lögum í Selfosskirkju Selfoss. Morgunblaðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.