Morgunblaðið - 22.05.2001, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 22.05.2001, Qupperneq 44
HESTAR 44 ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Reiðfatnaður í miklu úrvali frá FREMSTIR FYRIR GÆÐI EINS og undanfarin ár er uppstign- ingardagur kirkjudagur aldraðra í kirkjum landsins. Þá er eldri borg- urum og fjölskyldum þeirra boðið sérstaklega til guðsþjónustu. Aldr- aðir taka virkan þátt í guðsþjónust- unni með söng og upplestri. Þarna gefst fjölskyldum tækifæri á að eiga hátíðarstund saman í kirkjunni sinni og á eftir er boðið upp á góðar veit- ingar. Einnig eru víða í kirkjum sýn- ingar á verkum sem aldraðir hafa unnið í vetrarstarfinu. Útvarpsguðsþjónustan þennan hátíðisdag eldri borgara verður að þessu sinni frá Háteigskirkju. Elli- málanefnd þjóðkirkjunnar hvetur alla til að koma í kirkju þennan dag og kynna sér það sem er í boði fyrir eldri borgarana og njóta dagsins með þeim á kirkjudegi þeirra. Dagur aldraðra í Árbæjarsöfnuði Á uppstigningardag, fimmtudaginn 24. maí, verður guðsþjónusta kl. 14. Sr. Ólöf Ólafsdóttir, fyrrverandi prestur á elli-og hjúkrunarheimilinu Skjóli, prédikar. Pavel Smid organ- isti spilar og kirkjukórinn syngur. Prestar safnaðarins þjóna fyrir alt- ari. Aldraðir lesa ritningarlestra. Hannyrðasýning þátttakenda í félagsstarfi aldraðra í Árbæjar- kirkju í forsal kirkjunnar. Eftir guðsþjónustuna býður Soroptim- istafélagið í Árbænum kirkjugestum upp á kaffi og meðlæti í safnaðar- heimilinu. Prestarnir. Kirkjudagur aldraðra í Fella-og Hólakirkju Á KIRKJUDEGI aldraðra, upp- stigningardag, 24. maí 2001 er guðs- þjónusta í Fella-og Hólakirkju kl. 14:00. Sr. Guðmundur Karl Ágústs- son þjónar fyrir altari ásamt Lilju G. Hallgrímsdóttur, djákna. Lára Björnsdóttir, félagsmálastjóri Reykjavíkurborgar, predikar. Mikil tónlist verður í guðsþjónustunni: Gerðubergskórinn syngur undir stjórn Kára Friðrikssonar og kirkjukór Fella-og Hólakirkju syng- ur undir stjórn Lenku Mátéová org- anista kirkjunnar. Eftir guðsþjónustuna syngja kór- arnir einnig. Kór kirkjunnar er að undirbúa söngferð til Þingeyrar á Vestfjörðum og mun syngja hluta af tónleikaskránni; negrasálma og ís- lensk lög. Einsöngvarar eru úr röð- um kórfélaga. Gerðubergskórinn er einnig að fara í söngferð og liggur leið þeirra til Vestmannaeyja. Þau munu syngja nokkur íslensk lög úr tónleikaskránni eftir guðsþjón- ustuna. Að loknum söng kóranna er við- stöddum boðið upp á kaffiveitingar í safnaðarheimilinu. Það er von okkar að við getum átt góða stund í kirkj- unni og ánægjulegt samfélag í safn- aðarheimilinu á eftir. Allir eru hjart- anlega velkomnir og eru þeir sem óska eftir að fá keyrslu til og frá kirkju góðfúslega beðnir að hafa samband við Lilju fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 23. maí í síma 557- 3280. Fella- og Hólakirkja. „Ég byrja reisu mína“ DAGSKRÁ í Skálholti á uppstign- ingardag 24. maí kl.14. Messa í Skál- holtsdómkirkju. Sr. Sigurður Sig- urðarson vigslubiskup og sr. Egill Hallgríms- son staðarprestur þjóna. Pétur Pétursson rektor les ritningar- lestra. Kl. 15 kaffihlað- borð í Skálholtsskóla. Heitir brauðréttir, rjómatertur og annað bakkelsi. Verð 750 kr. Kl. 16. Tónleikar í kirkjunni: Íslensk kirkjutónlist í þúsund ár. Kammerkór Suður- lands flytur verk úr ís- lenskum tónlistararfi undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar. Kynnir Kári Bjarnason handrita- fræðingur. Ferðabæn og fararblessun í lok tónleikanna. Að venju er ókeypis inn á tónleika í Skálholtsdómkirkju. Vígslubiskup og rektor. Safnaðarstarf Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs- hópa í neðri safnaðarsal kl. 10–14 í umsjá Þórönnu Þórarinsdóttur. Skemmtiganga kl. 10.30. Júlíana Tyrfingsdóttir leiðir gönguhópinn. Bæna- og fyrirbænastund í kirkj- unni kl. 12 í umsjá Guðrúnar K. Þórsdóttur, djákna. Léttur hádeg- isverður á vægu verði eftir stundina. Samvera foreldra ungra barna kl. 14–16 í neðri safnaðarsal. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs- þjónusta í dag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Langholtskirkja. Kirkjan er opin til hljóðrar bænagjörðar í hádeginu. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45–7.05. Þriðjudagur með Þorvaldi kl. 21. Lofgjörðarstund þar sem Þorvaldur Halldórsson leiðir söng við undirleik Gunnars Gunnarsson- ar. Sr. Bjarni Karlsson flytur guðs orð og bæn. Fyrirbænaþjónusta kl. 21.30 í umsjá Bænahóps kirkjunnar. Neskirkja. Tíðasöngur kl. 12. Litli kórinn, kór eldri borgara kl. 16.30– 18. Stjórnandi Inga J. Backman. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón- usta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum má koma til sóknar- prests í viðtalstímum hans. Digraneskirkja. Kirkjustarf aldr- aðra. Ferðalag til Þingvalla og í Grímsnes. Lagt af stað frá Digra- neskirkju kl. 10. Skráning í síma 554-1475. Fella- og Hólakirkja. Foreldra- stundir kl. 10–12. Starf fyrir 11–12 ára stúlkur kl. 17–18. Göngustund. Á þriðjudögum kl. 10.30 er lagt af stað frá Fella- og Hólakirkju í göngu í umsjón Lilju G. Hallgrímsdóttur, djákna. Gangan er ætluð fólki á öll- um aldri. Á eftir er boðið upp á djús eða kaffi í safnaðarheimilinu. Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar- stund kl. 18 á neðri hæð kirkjunnar. Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í dag kl. 10–12 í safnaðarheimilinu Borgum. Seljakirkja. Foreldramorgnar. Opið hús milli kl. 10 og 12. Kaffi og spjall. Víðistaðakirkja. Aftansöngur og fyrirbænir kl. 18.30. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12 ára börn í Vonarhöfn, Strand- bergi, kl. 17–18.30. Vídalínskirkja. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13–16 í safnaðarheimili Vídalínskirkju. Kaffi á könnunni. Hægt að grípa í spil, rabba saman og yfirleitt að hitta mann og annan í góðu tómi. Lágafellskirkja. Fjölskyldumorg- unn í safnaðarheimili Þverholti 3, 3. hæð frá kl. 10–12. Grindavíkurkirkja. Foreldramorg- unn kl. 10–12. Borgarneskirkja. TTT tíu–tólf ára starf alla þriðjudaga kl. 17–18. Helgistund í kirkjunni sömu daga kl. 18.15– 19. Þorlákskirkja. Mömmumorgnar þriðjudögum kl. 10–12. Keflavíkurkirkja. Lúðrasveitir Tónlistarskóla Reykjanesbæjar halda tónleika í Kirkjulundi kl. 19.30. Hvammstangakirkja. Æskulýðs- fundur í kvöld kl. 20 í Hrakhólum. Krossinn. Almenn samkoma kl.20.30 í Hlíðasmára 5. Allir vel- komnir. Frelsið, kristileg miðstöð. Biblíu- skóli í kvöld kl. 20. Kirkjudagur aldraðra KIRKJUSTARF REIÐVEGIR eru í dag eðli málsins samkvæmt grundvöllurinn fyrir því að hægt sé að stunda hestamennsku og á því hafa yfirvöld í Hafnarfirði góðan skilning. Alls hafa verið gerð- ir reiðvegir fyrir hátt í 40 milljónir króna á útreiðarsvæði Sörlamanna og þar hefur bæjarfélagið lagt til um 30 milljónir. Um er að ræða 15 til 20 kílómetra reiðleið sem að stærstum hluta liggur um hraunið norðan við hesthúsahverfin tvö sem byggð hafa verið í Hafnarfirði. Í máli Magnúsar Gunnarssonar bæjarstjóra, sem mætti á fundinn, kom fram að fullbyggt væri á svæð- inu miðað við núverandi skipulag en uppi væru hugmyndir um stækkun nýja hverfisins og yrði unnið í því máli af hálfu bæjarins. Hann lýsti ánægju sinni með samstarfið við hestamenn og ekki síður hvað hefði tekist gott samstarf milli hesta- og skógræktarmanna en hinir síðar- nefndu hefðu hleypt hestamönnum inn á svæði sem þeim hafði verið út- hlutað. Á fundinum var einnig formaður Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, Hólmfríður Finnbogadóttir, og voru þau sammála um að mikil breyting hefði orðið á umgengni og fram- komu hestamanna. Sagði Magnús að hestamenn hefðu mátt bæta ráð sitt og það hefðu þeir svo sannar- lega gert og nú gengju þessir fyrr- um andstæðingar, hestamenn og skógræktarfólk, í góðum takti og ynnu saman. Þá kom fram í máli hans að svæðið sem hér um ræddi væri ekki bara fyrir hestamenn því þetta væri útivistarsvæði fyrir aðra bæjarbúa. Reiðvegirnir nýju eru mjög vand- aðir að allri gerð. Þeir liggja yfir hraunið eins og áður sagði og því hefur þurft talsvert efni til að fylla upp í gjótur og stærri lægðir. Yfir grófa efnið er síðan lagt fínna efni þannig að ekki á að þurfa að grjót- hreinsa göturnar til að gera þær þægilegri yfirferðar. Vegirnir eru að sögn Magnúsar bæjarstjóra bæði hugsaðar fyrir hestamenn og göngufólk og því þurfi að gæta til- litssemi á báða bóga. Mótorhjólin pirrandi Aðspurðir sögðu Sörlamenn að nokkuð bæri á að mótorhjólamenn legðu leið sína á þessar götur og þættu það ekki góðir gestir. Er þar gjarnan um að ræða hávaðasöm tor- færuhjól sem ekki eiga neina sam- leið með hestum eða göngufólki sem leitar á óbyggt land til að njóta þess sem lítt eða ósnortin náttúra hefur upp á að bjóða. Hjól þessi eru að verða stórvandamál víða í útjaðri höfuðborgarsvæðisins á göngu- og reiðleiðum.. Birgir Sigurjónsson formaður reiðveganefndar félagsins sagði að um leið og unnið væri að bættri að- stöðu fylgdi áróður um góða um- gengni við landið og hver hestamað- ur þyrfti að kappkosta að sýna góða fyrirmynd. Hann sagði að aðkomu- menn sem komið hafa og skoðað og riðið um þessar nýju reiðgötur væru yfir sig hrifnir. Magnús bæjarstjóri sagði að hann skynjaði áhrifin af þessari uppbyggingu í formi sím- hringinga þar sem hestamenn víða að vildu fá lóð undir hesthús í Hafn- arfirði. Vandað kort á leiðinni Á næstu dögum er væntanlegt kort yfir reiðvegi í Hafnarfirði og upplýsti Hilmar Sigurðsson, sem situr í reiðveganefnd með Birgi, að kortið næði talsvert inn á félags- svæði nágrannafélaganna og myndi það því nýtast fleirum en þeim sem hygðust ríða á svæði Sörla. Með kortinu fylgja leiðarlýsingar og ým- is annar fróðleikur af svæðinu eins og til dæmis aldur hraunsins sem farið er um. Nefndarmenn öfluðu styrkja til gerðar kortsins og verður því dreift ókeypis til félagsmanna en selt öðrum. Taldi Hilmar að hér væri um mjög áhugavert plagg að ræða fyrir hestamenn. Má hiklaust taka undir það og vísast gæti kortið orðið hvati fyrir hestamenn af öðr- um svæðum að ríða í Hafnarfjörð og skoða. Góðir ferðamöguleikar En það er um fleiri leiðir að ræða en þessa nýju reiðvegi því þegar farið er um svæðið til dæmis hjá Kaldárseli og þar um kring kemur í ljós að möguleikarnir eru miklir fyr- ir ferðaglaða hestamenn. Stað- reyndin er raunar sú að í nágrenni höfuðborgarsvæðisins eru ótal ferðamöguleikar fyrir hestamenn og eins og þeir sem best þekkja til vita er hægt að fara í margra daga ferðalag á hestum án þess að fara langt að heiman. Gullbringusýslan býður upp á ótrúlega marga kosti í þessum efnum og víst er að þar finnast margir fagrir staðir. Þótt ýmislegt hafi verið gert til að skapa góða aðstöðu til útreiða víða má hiklaust fullyrða að Sörli, Hafn- arfjarðarbær og Skógræktin þar í bæ hafi gefið tóninn um það hvernig standa skuli að málum. Hafnfirskir hestamenn lyfta Grettistaki í reiðvegamálum Tónninn gefinn Sörli í Hafnarfirði hefur gefið tóninn um það hvernig fyrirmyndaraðstaða hestamennskunnar skuli vera. Í góðu samstarfi við bæjarfélagið voru gerð- ir reiðvegir og vallarsvæði sem er eitt það besta sem getur að líta. Valdi- mar Kristinsson skoðaði útreiðar- svæði Hafnfirðinga í fylgd forráða- manna félagsins, sem boðuðu til blaðamannafundar. Glaðbeittir Sörlamenn á reiðveginum góða ásamt fulltrúa verktakafyrirtækisins Magna sem séð hefur um mest af framkvæmdunum. Frá vinstri Sigurður Ævarsson, Vilhjálmur Ólafsson, formaður félagsins, Birgir Sigurjónsson, Hilmar Sigurðsson og Sölvi Jónsson frá Magna. Morgunblaðið/Valdimar Vilhjálmur formaður ásamt Hólmfríði Finnbogadóttur, formanni Skógræktar- félags Hafnarfjarðar, og Magnúsi Gunn- arssyni bæjarstjóra.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.