Morgunblaðið - 22.05.2001, Page 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2001 57
VÁKORT
Eftirlýst kort nr.
4543-3700-0029-4648
4543-3700-0036-1934
4543-3700-0034-8865
4507-4100-0006-6325
4548-9000-0056-2480
4543-3700-0027-8278
4507-4500-0028-0625
4507-2800-0004-9377
4507-4500-0030-3021
4543-3700-0015-5815
! "#
"$% &'
()( )$$$
Nýtt á Íslandi,
gelfyllt bikiní
565 3900 - www.freemans.is
NÝLEGA lauk kvikmyndahátíðinni
í Cannes, sem löngum hefur verið
veigamikill stökkpallur fyrir leik-
stjóra, einkum evrópska, á grýttri
leið til frægðar og frama. Að þessu
sinni verður fjallað um einn þeirra,
Bernando Bertolucci. Fáir núlifandi
ítalskir leikstjórar eru víðfrægari
en hinn liðlega sextugi heiðursmað-
ur, þótt hann hafi aðeins lokið við
tvær leiknar myndir síðasta ára-
tuginn. Bertolucci, sem er þekktur
fyrir pólitískar ádeilur og svipmikl-
ar stórmyndir, jafnt sem að hafa
brotið blað í kvikmyndasögunni
fyrir óvenju djörf og opinská eró-
tísk efnistök, er fæddur 1940, í
borginni Parma á Ítalíu. Sonur
ljóðskáldsins og kvikmyndagagn-
rýnandans Attilio Bertolucci, hóf
sjálfur að yrkja á unga aldri og
fékk ljóð sín birt aðeins 12 ára
gamall. Tvítugur, þá nemandi við
Háskóla Rómaborgar, vann Bertol-
ucci til þekktra verðlauna, Premio
Viareggio, fyrir ljóðabókina Í leit
að leyndardómnum. Umvafinn and-
legu jafnt sem veraldlegu ríkidæmi,
fékk Bertolucci einnig kornungur
tækifæri til að fást við kvikmynda-
gerð og var farinn að spreyta sig
með 16 mm tökuvél þegar á tán-
ingsárunum. Byrjendaverkin voru
tvær myndir um börn, en eftir
hann liggja allnokkrar stuttmyndir
til viðbótar á 16 mm filmu.
1961 hætti Bertolucci námi og
gerðist aðstoðarleikstjóri hins um-
deilda Piers Paolo Pasolini, sem þá
vann að Accattone!, og lauk ári síð-
ar, þá tæplega 22ja ára, við La
Commare Secca, sína fyrstu löngu
mynd. Harðneskjuleg mynd um
morðgátu, byggð á handriti Pasol-
inis. Hún vakti litla eftirtekt hjá
áhorfendum og gagnrýnendur
ypptu öxlum. Bertolucci lagði sig
mun betur fram við næsta verkefni
og tók sér tvö ár í að undirbúa tök-
ur á Prima della Revoluzione –
Fyrir uppreisnina (́’65). Hún þótti
þroskað og afar rómantískt verk
um líf vandræðaunglinga og vakti
athygli á leikstjóranum á Cannes
’́64, þótt áhorfendur létu ekki sjá
sig. Myndin bar hróður hans um
Evrópu og vestur um haf og færði
Bertolucci Max Ophuls-verðlaunin
frönsku.
Árið 1970 markaði tímamót í
sögu hins þrítuga leikstjóra, sem
skilaði af sér tveimur, frábærum
verkum. La Strategia Rogno –
Kænskubragð kóngulóarinnar, sem
segir af tilraunum ungs manns að
leysa gátur í lífi aldraðs og veik-
burða föður, sem hafði verið and-
stæðingur Mussolini og fasismans.
Myndin, sem upphaflega var ætluð
til sýninga í sjónvarpi, þótti taka
öðru fram sem Bertolucci hafði
gert, þó vakti Il Conformista enn
meiri athygli og lof og færði leik-
stjóranum heimsfrægð.
Þegar hér var komið sögu var
Bertolucci kominn í hóp efnilegustu
leikstjóra kvikmyndaheimsins.
Hann lét svo ummælt að kvik-
myndin væri hið sanna, ljóðræna
tungumál, og tók nýja stefnu.
Næsta yrkisefni var gjörólíkt fyrri
pólitískum viðfangsefnum; hneyksl-
unarhellan L’ultímo tango a Parigi
– Last Tango in Paris (́’72). Mynd-
in, með stórleikaranum Marlon
Brando í aðalhlutverki, fór einsog
eldur í sinu um gjörvallan heim og
Bertolucci var orðinn viðurkenndur
og sýnilegur í öllum heimshornum
og talinn með merkustu leikstjór-
um ofanverðrar 20. aldarinnar.
Maður sem höfðaði til allra áhorf-
endahópa.
Fjögur ár liðu uns næsta stór-
virki, Novecento – 1900, var frum-
sýnt á Cannes ’́76. Stórmynd sem
spannar 70 ár í lífi fjölskyldu og
endurspeglar þjóðfélagsástandið í
Emiliahéraði á Ítalíu. Söguhetjurn-
ar tveir menn (leiknir af Robert De
Niro og Gerard Depardieu), sem
fæðast báðir á Ítalíu við upphaf síð-
ustu aldar. Farið ofan í kjölinn á
ástandinu sem mótaði stjórnmál og
ítalskt þjóðfélag fram yfir seinna
stríð og áhrif þess á borgarana.
Myndin vakti mikið umtal vegna
grófrar notkunar ofbeldis og op-
inskárra kynlífsatriða og ekki síður
sakir ógnarlegrar lengdar. Frum-
sýningin á Cannes varði í hálfa
sjöttu klukkustund, sú útgáfa sem
yfirleitt stendur til boða á mynd-
bandaleigum er mun skemmri, þó
hartnær 4 tímar. 1900 prýða all-
margar stórstjörnur til viðbótar,
m.a. Burt Lancaster, Dominique
Sanda og Donald Sutherland.
Næsti áratugur var mun átaka-
minni. Bertolucci fékk takmarkað
hrós fyrir Luna (’79) og La Trag-
edia di un Como Ridicolo (’81). Auk
þess framleiddi hann nokkrar
myndir og kom fram í heimild-
armyndunum Alberto Moravia (’76)
og Whoever Says the Truth Shall
Die (́’81). Það var ekki fyrr en með
stórmyndinni Síðasti keisarinn –
The Last Emperor (́’87), að leik-
stjórinn náði fyrra flugi og vann
þessi mikilfenglega mynd um síð-
asta keisarann í Kínaveldi, almenna
hylli kvikmyndahúsgesta og fjölda
verðlauna. Bertolucci tókst ekki að
fylgja henni eftir sem skyldi, kvik-
myndagerð sögu Pauls Bowles, The
Sheltering Sky (́’90), var lítið annað
en laglegt augnakonfekt.
Bertolucci sneri aftur til Austur-
landa til að gera Little Buddha
(’94). Myndin fékk frekar daufar
viðtökur hjá gestum og gagnrýn-
endum en leikstjórinn kom heldur
betur til baka með Stealing Beauty,
tveimur árum síðar. Tekin í sveita-
sælu Toscana-héraðsins, þar sem
bandarísk stúlka (Liv Tyler), er í
heimsókn að leita uppruna síns.
Ekki að því að spyrja, allur karla-
blóminn vill losa stúlkuna úr helsi
meydómsins. Handrit og leikstjórn
eru með ágætum, sömuleiðis
frammistaða flestra leikaranna,
annarra en Tylers, og Jeremy
Irons gerir myndina vel þess virði
að sjá hana.
Árið 1998 velti Bertolucci sér
enn og aftur uppúr stjórnmálum,
ástum og girnd í Besieged. Tekin í
Rómaborg með David Thewlis í
hlutverki tónskálds og Thandie
Newton leikur ástkonu hans, póli-
tískan flóttamann frá S-Afríku.
Þrátt fyrir lofsamlega dóma hefur
lítið heyrst síðan frá hinum snjalla
ítalska kvikmyndagerðarmanni.
BERNANDO
BERTOLUCCI
Drama. Bretland. 158 mín.
Ævintýralegt lífshlaup síðasta
keisarans í Kína sem tók við rík-
inu þriggja ára, gerist valdalaust
tákn tólf ára, uns hann gengur á
mála hjá Japönum. Handtekinn
1945 af Sovétmönnum, með-
höndlaður sem ótýndur stríðs-
fangi, framseldur til síns gamla
heimalands. Þar sat hann af sér
en varð loks frjáls maður á ný
og kaus þá helst að hlúa að jarð-
argróðri á gamalkunnum slóðum
í Borginni forboðnu.
Kvikmyndagerðarmennirnir
segja stórbrotna söguna á viðeig-
andi hátt, búningar og svið með
eindæmum litfögur og glæsileg,
eða stingandi grá og guggin. Hér
er fjallað um stórbrotnar þjóð-
félagsbreytingar, Bertolucci og
mönnum hans tekst að lýsa þeim
meistaralega í hvívetna. Nokkuð
löng, en hvar á að klippa? Hlaut
9 Óskarsverðlaun, þ. á m. sem
besta mynd ársins og Bertolucci
var kjörinn besti leikstjórinn.
LAST TANGO IN PARIS (1972)
½ Leikarar: Marlon
Brando, Maria Schneider, Jean
Pierre Leaud. Drama. Frakk-
land. 1973. 129 mín.
Tímamótamynd, sakir bersögli
í amorsbrögðum. Brando leikur
miðaldra Bandaríkjamann í Par-
ís, sem kynnist ungri stúlku
(Schneider), skömmu eftir fráfall
konu sinnar. Þau stunda hispurs-
laust kynlíf á laun, sem jafn-
framt er flóttameðal Brandos frá
napurri tilveru.
Samband þeirra stjórnast
lengi af sadómasókisma, en þeg-
ar tilfinningar vakna er draum-
urinn úti. Var kjörin besta mynd
ársins af gagnrýnendasamtökum
New York borgar og tilnefnd til
Óskarsverðlauna, ásamt Brando.
IL CONFORMISTA (1970) Leikarar: Jean-Louis Trintign-
ant, Stefania Sandrelli, Gastone
Moschin og Enzo Tarascio.
Drama. Ítalía. 1970.
Framúrskarandi stílhrein
kvikmyndagerð sögu Alberos
Moravia, þar sem leitað er róta
fasismans. Efnistökin eft-
irminnilega áhrifarík og tilfinn-
ingaþrungin og er myndin vafa-
laust með þeim bestu frá Ítalíu á
síðari hluta 20. aldar. Franski
stórleikarinn Jean-Louis Trint-
ignant leikur samkynhneigðan
mann, bældan sökum atviks sem
henti hann á unglingsaldri, er
hann skaut bílstjóra fjölskyld-
unnar til bana. Reynir, sem
roskinn maður, að finna frið í
sálinni með inngöngu í leyniþjón-
ustu fasista og leyna samkyn-
hneigðinni með því að giftast
konu (Stefania Sandrelli), sem
hann tæpast þolir. Til að
sanna sig fyrir flokknum
tekur hann að sér að
myrða aldraðan pró-
fessor, fyrrum læri-
meistara sinn, en
kynnist í leiðinni og
hrífst af andfasista,
lesbískri konu (Dom-
inique Sanda), sem breytir
lífsskoðunum hans. Áleitin,
frökk og grimm persónu-
skoðun og þjóðfélagsádeila
með skömm, spillingu og
hnignun í brennidepli.
THE LAST EMPEROR
(1987) ½
Leikarar : John
Lone, Joan Chen,
Peter O’Toole,
Victor Wong.
Stjörnurkvikmyndanna
eftir Sæbjörn Valdimarsson
Bernando Bertolucci ásamt Marlon Brando og
Maria Schneider við tökur á Last Tango in Paris.
Bernardo
Bertolucci
Njálsgötu 86,
s. 552 0978
Vöggusængur,
vöggusett,
barnafatnaður
Klapparstíg 44,
sími 562 3614
HÚSASKILTI
Pantið fyrir
25. nóvember
til jólagjafa.
HÚSASKILTI
Maítilboð
10% afsláttur