Morgunblaðið - 05.07.2001, Síða 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2001 25
VÉLARBILUN var nefnd sem
hugsanleg orsök þess að rússnesk
farþegaþota fórst með 145 manns á
þriðjudaginn, en skömmu eftir slysið
heyrðust misvísandi ályktanir um
orsakir þess. Neyðarástandsmála-
ráðherra Rússlands, Sergei Shoigu,
sem fór á slysstaðinn skammt frá
borginni Irkútsk í Síberíu í gær-
morgun, sagði að líklega hefði orsök
slyssins verið sú að allir þrír hreyflar
vélarinnar hefðu bilað.
Máli sínu til stuðnings nefndi
Shoigu þá staðreynd að þrem mín-
útum áður en vélin fórst, þegar hún
var í aðflugi að flugvellinum við Ir-
kútsk, hafði áhöfn hennar tilkynnt
flugumferðarstjórn að allt gengi
samkvæmt áætlun. Nokkru seinna
virtist ráðherrann aftur á móti draga
orð sín til baka og sagði að of
snemmt væri að segja til um hvað
hefði valdið slysinu.
Þotan var af gerðinni Tupolev
TU-154 og var að millilenda í Irkútsk
á leiðinni frá Jekaterínborg í Úral-
fjöllum til Vladívostok á austur-
ströndinni. Um borð voru 145, far-
þegar og áhöfn. Greindu björgunar-
menn frá því í gær að lík allra hefðu
fundist. Mun þotan hafa hrapað úr
2.600 feta hæð, eða um 800 metrum,
þegar hún var í aðflugi.
Haft er eftir heimildamanni, sem
starfar við rannsókn slyssins, að það
kunni að hafa stafað af vélarbilun er
geti hafa orðið vegna skammhlaups
eða skyndilegs eldsneytisskorts.
Júrí Starshin, háttsettur embættis-
maður er starfar að flugmálum,
sagði hins vegar við RIA Novosti-
fréttastofuna að ólíklegt væri að
hreyfilbilun hefði valdið slysinu
vegna þess að „áhöfnin hefði um-
svifalaust látið flugturninn vita.“
Annar embættismaður, Tatjana
Anodin hjá rússnesku flugmála-
stjórninni, sagði að ráðlegast væri að
bíða eftir að fyrir lægju upplýsingar
úr flugritum vélarinnar sem hafa
báðir fundist.
Shoigu útilokaði heldur ekki sem
hugsanlegar orsakir slyssins galla í
hæðarmæli vélarinnar, rangar að-
gerðir áhafnar og jafnvel hryðju-
verkastarfsemi. Yfirmaður Vladi-
vostokavia, flugfélagsins sem rak
vélina, sagði að ef til vill hefði
sprenging af völdum eldsneytisleka
valdið slysinu. Félagið hefði keypt
flugvélina frá Kína fyrir tveimur
mánuðum.
Hundrað fjörutíu og fimm létust þegar flugvél hrapaði í Síberíu á þriðjudag
Misvísandi
fullyrðingar
um orsakir
Vladivostok. AFP.
Reuters
Flak rússnesku farþegaþotunnar sem hrapaði um 30 km frá Irkútsk í Síberíu síðastliðinn þriðjudag.