Morgunblaðið - 05.07.2001, Blaðsíða 43
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2001 43
Vertu sæll, og farðu í friði
frá oss, vinur, hjartakær,
burt af dægurdvala sviði,
dýrðarljómi himins skær,
yngdan gleður andann
nú,
áður fyrr sem leistu í trú.
Nú eru læknuð sjúkdómssárin
sem þig hrjáðu langa tíð,
framar ekki flóa tárin,
friðar sólin náðarblíð,
lætur geisla gullið sitt
glitra um dánarrúmið þitt.
KRISTINN
GUNNLAUGSSON
✝ Kristinn Gunn-laugsson var
fæddur á Akranesi
12. júlí 1934. Hann
lést á Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja
10. júní sl.
Útför Kristins fór
fram frá Keflavíkur-
kirkju 15. júní síðast-
liðinn.
Trúr í orði og verki varstu
virtir meira dyggð en auð,
hugrór lífsins byrðar barstu
bæta vildir hverja nauð,
er þú sást að særði þá,
sem þér mættu vegi á.
Glaður í trú þú gekkst að
verki
gott var hjartað, starfsöm
mund,
aldrei veikstu undan merki,
eins á gleði- og raunarstund.
Traust var Guði einum á,
uns að dauðinn lukti brá,
niður á þitt leiði ljóma
ljúfir geislar sólu frá.
Sumarið fagra blæju blóma
breiðir yfir kaldan ná.
Sofðu vært, um síðir skín
sunna lífsins inn til þín.
Kveðja frá börnum,
tengdabörnum, barnabörnum
og barnabarnabörnum.
klúbba bæði hér á landi og erlendis.
Sumarið 1947 fór hún t.d. til Akur-
eyrar ásamt skipuleggjanda Zonta í
Evrópu og leiddi það til stofnunar
Zontaklúbbs Akureyrar 1949 auk
þess sem hún vann að stofnun þriðja
klúbbsins á Íslandi, Zontaklúbbs
Selfoss 1972. Ellen var falið af al-
þjóðahreyfingu Zonta að stofna
klúbba í Bretlandi og París og voru
Zontaklúbbar stofnaðir í London og
París 1949. Á tveimur árum tókst
henni einnig að stofna klúbba í Glas-
gow, Edinborg, Dundee og Aber-
deen í Skotlandi og var Ellen guð-
móðir tveggja þeirra. Ellen var
fulltrúi á mörgum alþjóðlegum þing-
um Zontahreyfingarinnar s.s. al-
þjóðamóti í Cinncinati í Ohaio 1954,
Evrópumóti í Finnlandi 1967 og
svæðismóti í Rotterdam 1971. Hún
heimsótti klúbbana í Edinborg, Dun-
dee og Aberdeen 1968 og var boðin á
25 ára afmælishátíð Zontaklúbbsins
í London 1974 og í 10 ára afmæli
Zontaklúbbsins í Oxford 1977. Ellen
var þannig mjög virkur fulltrúi
Zontaklúbbs Reykjavíkur í sam-
skiptum við erlendar Zontakonur í
þeirra heimalöndum og var ávallt
reiðubúin til að taka á móti þeim og
greiða götu þeirra ef þær komu til
Íslands.
Með ólíkindum er hversu miklu
Ellen hefur áorkað bæði í hefð-
bundnu starfi og sjálfboðavinnu en
störf í Zonta voru aðeins brot af at-
hafnasviði hennar.
Hún var einnig vel metinn og mik-
ilvirkur félagi í ýmsum öðrum félög-
um s.s. Anglíu, skíðaráði Reykjavík-
ur, Íþróttafélagi kvenna og
Ferðafélagi Íslands og var hún m.a.
sæmd gullmerki ÍSÍ 1968 og MBE
orðunni bresku 1977.
Félagar í Zontaklúbbi Reykjavík-
ur minnast mikilhæfrar konu og
góðs félaga, Ellenar Sighvatsson,
með virðingu og þakklæti fyrir allt
sem hún lagði á sig í þágu klúbbsins
og alþjóðahreyfingar Zonta. Við
vottum Ágústu dóttur hennar,
Zontasystur okkar, og þeim Valdísi
og Brynju dætrum hennar, okkar
dýpstu samúð.
F.h. Zontaklúbbs Reykjavíkur,
Guðrún Halla Gunnarsdóttir,
formaður.
Látin er í Reykjavík í hárri elli,
sátt við lífið og södd lífdaga, atorku-
konan Ellen Sighvatsson. Hún var
einstaklega heilsuhraust og þrótt-
mikil alla sína ævi nema síðustu tvö
árin að heilsu hennar hrakaði jafnt
og þétt uns hún kvaddi á Droplaug-
arstöðum nokkrum dögum eftir sex-
tugsafmæli einkadóttur sinnar
Ágústu. Sambýlismann sinn Ásgeir
Pál Úlfarsson missti hún í október sl.
eftir stutt en erfið veikindi og dró þá
mjög úr þreki hennar. Í sumarbyrj-
un lærbrotnaði hún svo en Ágústa og
dætur hennar, Valdís og Brynja,
önnuðust Ellen af einstakri um-
hyggju og natni og reyndu með öll-
um hætti að gleðja hana og gera
henni lífið bærilegra.
Ellen Henrietta Mortensen hét
hún fullu nafni og fæddist á Udlejre
sem er búgarður í smábænum Øl-
stykke á Sjálandi um 35 km norður
og vestur af Kaupmannahöfn. Þar
ólst hún upp við sveitastörf á mynd-
arbúi foreldra sinna, Jens Peter
hreppstjóra og Önnu konu hans
ásamt systur sinni Gudrun. Hún
lauk barna- og unglingaskóla og fór
svo til Englands að læra ensku en
stundaði síðar verslunarnám í Dan-
mörku. Ellen var áhugasöm um
íþróttir, keppti í handbolta og
fimmtarþraut og sýndi fimleika.
Ellen kynntist Sigfúsi Pétri Sig-
hvatssyni sem var við nám í trygg-
ingafræði í Kaupmannahöfn og giftu
þau sig 15. apríl 1930 í Ølstykke-
kirkju en fluttu svo til Íslands um
sumarið. Síðan hefur Ellen verið ein-
lægur Íslendingur og Íslandsvinur
þó að hún væri ævinlega í raun
heimsborgari í eðli sínu. Ellen hóf
strax störf við tryggingamál ásamt
eiginmanni sínum og ráku þau sam-
an Vátryggingarskrifstofu Sigfúsar
Sighvatssonar h.f. frá 1930 þar til
hann lést 1958 en þá tók Ellen við
rekstrinum og annaðist hann til árs-
ins 1976 að hún seldi Tryggingamið-
stöðinni fyrirtækið.
Þau hjón Sigfús og Ellen eignuð-
ust eina dóttur, Ágústu Guðrúnu, 21.
júní 1941. Við Ágústa kynntumst sjö
árum síðar og urðum bestu vinkonur
er ég flutti í hverfið og þá kynntist
ég einnig foreldrum hennar og varð
heimagangur á heimili þeirra að
Amtmannsstíg 2. Þar var heimilis-
bragur um margt með ólíkum hætti
en ég átti að venjast, elst fjögurra
systkina en Ágústa einkabarn. Móð-
irin dönsk og talaði kjarnyrta ís-
lensku með dönskum hreim en orða-
forðann hafði hún m.a. af
samskiptum við bændur og ferða-
félaga úr ótal ferðum sínum um
landið. Á heimilinu var jafnan dönsk
stúlka sem aðstoðaði við heimilishald
þar sem húsmóðirin vann utan heim-
ilis en á þeim tíma voru flestar mæð-
ur heimavinnandi húsmæður. Tíður
gestagangur var á heimili Ellenar og
Sigfúsar, fólk frá öllum heimshorn-
um, virðulegur, tignarlegur Skoti í
alvöruskotapilsi sem var ótrúlega
skrítið, alskeggjaður, stríðinn heim-
skautafari, Zontakonur, sendiráðs-
fólk, enskir skólastrákar í rannsókn-
arleiðangri, austurrískir skíðakapp-
ar og flestir fengu að gista. Hún
hefur haldið reglulegum tengslum
við fjölskyldur fimm breskra og
kanadískra hermanna sem fórust
ungir í flugslysi í Skerjafirði 1943
eftir að hún kynntist þeim stuttlega.
Hún hefur annast leiði þeirra eins og
fjölmargra annarra og líklega eru
nokkrir ættliðir ættingja þessara
manna þakklátir henni fyrir um-
hugsunarsemi. Einu sinni á ári var
börnum og ungu fólki úr Heyrnleys-
ingjaskólanum, sem þá var heima-
vistarskóli, ævinlega boðið heim til
hennar í jólaveislu og fengu allir sæl-
gæti og mislitar pappírshúfur sem
Ellen hafði búið til og svo voru sýnd-
ar teiknimyndir og Charlie Chaplin.
Þetta var, eftir á að hyggja, eins og
lítið heimstorg þarna steinsnar frá
Lækjartorgi og ekki veit ég hvernig
allt þetta fólk fann sér leið á Amt-
mannsstíginn en gestabækurnar
fylltust hver af annarri og jólakortin
skiptu tugum ef ekki hundruðum.
Það kann að hafa staðið í einhverjum
tengslum við það hvað húsmóðirin
var félagslega virk en hún starfaði
ötullega í Anglia, Zontahreyfing-
unni, Íþróttafélagi kvenna og Skíða-
félagi Reykjavíkur. Hún hafði mikið
þrek til samskipta og ánægju af að
kynnast fólki og sinna því. Hún var
athafnasöm og var ekki að víla fyrir
sér að taka til hendinni og þvoði eða
málaði húsið að utan einhverja
helgina ef henni þótti þess þurfa með
og óx það ekki meira í augum en að
reyta arfann úr blómabeðunum bak
við húsið.
Ellen varð snemma hrifin af því að
ferðast um Ísland og fór víða um á
hestum og gangandi um öræfin á
fyrstu árum sínum hérlendis. Hún
var félagi í Ferðafélagi Íslands en
þau hjónin höfðu einnig ferðast með
vinum sínum en á þessum árum voru
hálendis- og óbyggðaferðir mun
sjaldgæfari og erfiðari en nú. Hún
fór líka á skíði og varð seinna mjög
félagslega virk í þágu skíðaíþróttar-
innar þannig að heimili hennar varð
miðstöð þeirra sem hana stunduðu.
Það var fyrir hennar atbeina að við
Ágústa dóttir hennar fórum barn-
ungar í enskutíma upp á Grettisgötu
sem var óvanalegt í þá daga. Hún
kom okkur einnig í Íþróttafélag
kvenna þar sem við kynntumst önd-
vegiskonum, vorum í leikfimi og
lærðum að renna okkur á skíðum í
mörgum ferðum í skála félagsins í
Skálafelli. Sömuleiðis rötuðum við
fyrir hennar tilstilli inn í ferðir
Ferðafélagsins og lærðum að lesa og
meta náttúru landsins. Fyrir allt
þetta frumkvæði er ég Ellen ævin-
lega þakklát.
Ellen var um margt óvenjuleg
kona. Hún var einbeitt og þrautseig
og lét sér ekki allt fyrir brjósti
brenna. Hún kom ung til framandi
lands og þó að hún tengdist góðri
fjölskyldu eiginmanns síns, átti hún
hér aldrei styrk af frændum og eigin
fjölskyldu en myndaði sjálf þann
bakhjarl sem dugði henni með frum-
kvæði og þátttöku í því samfélagi
sem hún flutti til. Hún bar með sér
danskar hefðir og menningu og óf
þær vel saman í rúm sjötíu ár við
þær íslensku. Hún lifði mikla breyt-
ingartíma en virtist alla tíð una sér
vel á Íslandi, saknaði ekki heimahag-
anna og var sátt við hlutskipti sitt.
Hún var athafnasöm og atorkumikil
og naut sín ef mikið var á seyði. Hún
hafði alla tíð yndi af garðrækt og
ræktaði bæði blóm og grænmeti við
hús sitt. Langmestan hluta ævi sinn-
ar eða um 66 ár bjó hún í sama húsi
að Amtmannsstíg 2 sem tengdafor-
eldrar hennar höfðu byggt og þegar
hún flutti var það aðeins um set eða
að Amtmannsstíg 6 örlítið ofar í
brekkunni. Síðasta árið dvaldi hún
svo á Landakoti og Droplaugarstöð-
um. Menntaskólinn í Reykjavík
keypti húsið að Amtmannsstíg 2 en
það hafði staðið autt og látið nokkuð
á sjá þegar hafist var handa við að
gera það upp nýlega. Það gladdi Ell-
en mjög að sjá hve fallega húsið
hafði verið endurbætt og fært til
upprunalegs útlits og er mikill sómi
að því nú.
Ellen hlaut ýmsar viðurkenningar
samferðamanna sinna fyrir þann
drjúga skerf sem hún lagði með
ýmsum hætti til félagsmála og var til
dæmis sæmd gullmerki ÍSÍ 1968 og
heiðurskrossi ÍSÍ 1988, veitt enska
orðan MBE (Member of the British
Empire) árið 1977 og gerð heiðurs-
félagi í Zontaklúbbi Reykjavíkur
1999 og í alþjóðasamtökum Zonta
árið 2000.
Að leiðarlokum vil ég þakka Ellen
innilega fyrir þá vinsemd, velvilja og
trygglyndi sem hún hefur sýnt mér
frá því ég var lítil stúlka. Ágústu,
Valdísi, Þorgrími, Brynju og Þor-
steini sendi ég innilegar samúðar-
kveðjur frá okkur Helga og börnum
okkar, föður mínum og systkinum.
Blessuð sé minning Ellenar Sig-
hvatsson.
Guðrún Agnarsdóttir.
!@
2
& !
# *
" &3+
&( ! &((
4
.
5
2
55
"
! 3(! % $'8.)()
*3 ()
%* .
)
+
" $ -
!
. -.
!"$
"$
"$
"
"
!
&
> & *+%$,*4
; ,'.
$%*.
A+ 3 <
A+ 3
*+$(.* >$ *
) * % (') ()
%* .
!&/!/01<
>!
7? $(4
2)? ,%*
" 6!
"$
% ! &00(
"#$3
37$%
! * "#$3 ()
$("#$3 () *,! 3(%
%"#$3 % 2 #()
%* .
"
"
"
" !/0&
!&
>
% )
$B
; ,'
+
0 !
! 7
#()
)+ !.! )%
* * ()
! ! )% 8 2*()
#
.! )% $* .>)()
! ))$3! )%
8$ *! )()
%* .
5
" C&
!<1
> 7 3
3 ; 3
"
, "$
% ! &0((
%*, ( 3.
*
+
" $ + -
!
. -.
!"$"$
"$
"
"
D&<
!/0/
> $$ EE
.
-); )$ % $* "#$()
! .; )$ % ! ' 2 $()
-) ! % ;3(()
*(
%* .