Morgunblaðið - 20.07.2001, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.07.2001, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Colin Montgomerie efstur eftir fyrsta dag á opna breska / C1 Fylkismenn tróna einir á toppi efstu deildar / C2 8 SÍÐUR Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is 4 SÍÐUR Sérblöð í dag Á FÖSTUDÖGUM ÍBÚAR Vestmannaeyja og Hafnar í Hornafirði koma ekki til með að missa áætlunarflug eftir 1. október nk. þó að Flugfélag Íslands hafi ákveðið að hætta flugi á þessa staði. Samkvæmt samtölum við nokkra flugrekstraraðila velta menn því fyr- ir sér í alvöru að taka við áætlunar- fluginu og til Vestmannaeyja má jafnvel búast við samkeppni tveggja eða fleiri flugfélaga. Þannig hefur Jórvík hf. gefið út þá tilkynningu að það ætli að fljúga á þessa staði í haust og í samtali við Morgunblaðið sagði Einar Örn Einarsson, rekstr- arstjóri og einn eigenda Jórvíkur, að fleiri staðir hefðu verið kannaðir, t.d. Siglufjörður. Jórvíkurmenn hafa síðan í vor verið að undirbúa aukin umsvif í áætlunar- og leiguflugi, en félagið hefur um nokkurra ára skeið haldið uppi áætlun til Patreksfjarðar án ríkisstyrkja. Fest hafa verið kaup á 19 sæta skrúfuþotu með jafnþrýsti- búnaði af gerðinni Jet Stream 31, sem svipar til Fokker-véla að því leyti, að hægt er að standa uppréttur í farþegarýminu. Einar Örn segir vélina væntanlega til landsins um miðjan september en hún er 12 ára gömul. Þá er verið að skoða kaup á annarri slíkri vél til nota í áætlunar- og leiguflug. Hófu undirbúning í rólegheitum „Við vorum búnir að skynja það að Flugfélag Íslands myndi hætta flugi á þessa áfangastaði og fórum þá að undirbúa okkur í rólegheitum. Ein- hver verður að fljúga á staðina og við höfum bæði reynslu og þekkingu til þess. Við höfum ekki ákveðið ferðatíðni en það er á hreinu að til Eyja munum við ekki fljúga sjaldnar en sex daga vikunnar. Annars ætlum við að skipuleggja ferðirnar í sam- ráði við heimamenn. Þeir þekkja betur þörfina en við,“ segir Einar Örn. Hann telur ekki ólíklegt að Jórvík muni ráða til sín einhverja af þeim 40 starfsmönnum sem FÍ þarf að segja upp. Starfsmenn félagsins eru í dag um 20 en með auknum um- svifum telur Einar Örn að þeir geti orðið á fimmta tuginn næsta vetur, ef allar áætlanir ganga eftir. Jórvík er með tvær 10 sæta flug- vélar í dag ásamt nokkrum minni vélum vegna reksturs Flugskólans Flugsýnar og flugvallar sem félagið er með í Skaftafelli á sumrin. Valgeir Arnórsson hjá Flugfélagi Vestmannaeyja segir félagið hafa uppi alvarleg áform um áætlunar- flug til Reykjavíkur. Málið sé þó skammt á veg komið og engar ákvarðanir hafi verið teknar. Hann segir viðræður við forráðamenn Ís- landsflugs um mögulegt samstarf á þessari flugleið vera á frumstigi. Flugfélag Vestmannaeyja hefur sinnt leiguflugi frá Eyjum á Bakka- flugvöll í Austur-Landeyjum í 18 ár og hafa Eyjamenn nýtt sér þá þjón- ustu í auknum mæli. Árlega flytur félagið 17-18 þúsund farþega til lands. Miðað við fyrstu fimm mánuði ársins varð meira en tvöföldun á þeim fjölda, eða úr ríflega 3 þúsund farþegum í fyrra í tæplega 7 þúsund frá áramótum til maíloka. Félagið starfrækir þrjár 6 sæta vélar og eina 10 sæta og að sögn Val- geirs stendur ekki til að nota þær í áætlunarfluginu. Áformað sé að nota 19 sæta vél í því skyni. Hjá félaginu starfa alls 14 manns, þar af 9 flug- menn. Íslandsflug tilbúið til viðræðna um samstarf Ómar Benediktsson, fram- kvæmdastjóri Íslandsflugs, staðfest- ir að félagið hafi átt í óformlegum viðræðum við Flugfélag Vestmanna- eyja um samstarf í áætlunarflugi til Eyja. Einnig hafi fleiri félög haft samband í sama tilgangi. Ómar seg- ist síður eiga von á að Íslandsflug fari eitt og sér í áætlunarflug til Eyja og Hafnar þar sem núverandi stefna sé að draga sig jafnt og þétt út úr innanlandsflugi. En með breyttum forsendum vegna ákvarð- ana Flugfélags Íslands verði þessi mál skoðuð betur og telur Ómar samstarf koma til greina við önnur félög, sem einkum hafa sýnt Dorn- ier-vél félagsins áhuga. Sú vél er 19 sæta með jafnþrýstibúnaði og notuð í dag í áætlunarflugi til Bíldudals og Sauðárkróks. Íslandsflug á tvær Dornier-vélar til viðbótar en þær eru í leiguverkefnum erlendis. Eins og kom fram í Morgun- blaðinu í gær ætlar Flugfélag Ís- lands að skila ATR-vél eftir 1. októ- ber sem hefur verið í leigu frá Íslandsflugi. Að sögn Ómars Bene- diktssonar er unnið að því að finna verkefni fyrir þá vél en fjórum áhöfnum hennar fylgja 8-10 manns. Ísleifur Ottesen, eigandi Leigu- flugs ÍO, segir engar ákvarðanir hafa verið teknar um áætlunarflug til staða eins og Eyja og Hafnar í Hornafirði. Félagið stundi leiguflug þangað í verulegum mæli, aðallega á sumrin á mesta annatíma. Flugfélagið Jórvík boðar áætlunarflug til Vestmannaeyja og Hafnar í Hornafirði Fleiri flugfélög að kanna markaðinn Flugfélagið Jórvík hefur fest kaup á svipaðri flugvél og þessari til nota í áætlunar- og leiguflugi. Um er að ræða 19 sæta skrúfuþotu af gerðinni Jet Stream 31 og líklegt talið að félagið kaupi aðra vél sömu tegundar. STURLA Böðvarsson samgöngu- ráðherra fékk þá tillögu sína sam- þykkta á fundi ríkisstjórnar í gær- morgun að svokallað flugleiðsög- ugjald af félögum í innanlandsflugi verði fellt niður frá næstu mánaða- mótum. Þessi ákvörðun kemur beint í kjölfar tíðinda af Flugfélagi Ís- lands, sem ætlar að hætta flugi til Vestmannaeyja og Hafnar í Horna- firði og mun létta 45 milljónum króna af félögunum á ári, að sögn samgönguráðherra. Sturla sagði í samtali við Morg- unblaðið að ákvörðun Flugfélags Ís- lands um að hætta flugi á tvo fyrr- greinda staði ylli sér miklum vonbrigðum. „Starfsemi Flugfélags Íslands er mjög mikilvæg og það hefur skipt miklu máli að hafa svo öflugan véla- kost sem félagið hefur verið með til Eyja og Hafnar. Þetta varðar miklu fyrir íbúa í þessum byggðarlögum og ekki síður ferðaþjónustuna þar,“ sagði Sturla. Ráðherra sagði að niðurfelling flugleiðsögugjaldsins myndi ekki ráða úrslitum um að bæta rekstur innanlandsflugsins. Stjórnvöld myndu skoða málið í heild og meta hvort hægt væri að koma frekar til móts við flugfélögin. Ekkert verði þó gert á meðan önnur félög en Flug- félagið treystu sér til að fljúga til Eyja og Hafnar. „Stóra málið er sú hækkun sem orðið hefur á eldsneyti og samdrátt- ur í flugi eins og til Vestmannaeyja. Ég tel afar erfitt að bæta samkeppn- isstöðuna með því að hækka far- gjöldin með Herjólfi. Herjólfur er mikilvægur hlekkur í samgöngum Eyjamanna, þeirra þjóðvegur í raun, og ég hef ekki orðið þess var að menn ætli að hækka þar fargjöld,“ sagði Sturla. Aðspurður um álit á þeim ummæl- um forráðamanna Flugfélags Ís- lands, að líta mætti á innanlandsflug- ið sem hluta af þjóðvegakerfinu sagði ráðherra stjórnvöld nú þegar gera það með beinum og óbeinum hætti. Með beinum hætti væru nokkrar flugleiðir til minni staða rík- isstyrktar. Ráðherra segir það vonbrigði að flug til Eyja og Hafnar sé fellt niður Samþykkt að fella niður flug- leiðsögugjald  Reglulegar/17 FRAMKVÆMDUM við malbikun flugbrautar á Bakka- flugvelli í Austur-Landeyjum er í þann mund að ljúka. Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Flugmála- stjórnar, sagði að fyrirhugað væri að fagna verklokum formlega nú eftir helgina. Heimir Már sagðist vera að vinna að undirbúningi at- hafnarinnar og jafnframt vera að taka saman tölur síð- ustu sex mánaða frá öllum flugvöllum landsins um um- ferð og fjölda farþega og að þær upplýsingar yrðu til reiðu eftir helgi. Heimir vildi ekki fullyrða um hvort ákvörðun Flug- félags Íslands um að leggja niður áætlunarflug til Eyja í haust yrði til að auka mjög umferð um Bakkaflugvöll. „Það gæti aukist umferð til Selfoss líka, en þaðan er ennþá styttra í bæinn. Það er mikil gerjun í þessum málum á Suðurlandi,“ sagði Heimir Már. Morgunblaðið/RAX Einar Karl Eyvindsson og Vignir Andri Guðmundsson við malbikunarframkvæmdir á Bakkaflugvelli. Verklokum fagnað á Bakkaflugvelli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.