Morgunblaðið - 20.07.2001, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 20.07.2001, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ Skátastarf á Úlfljótsvatni Útilíf kynnt á námskeiðum Liðin eru sextíu ár ísumar síðan JónasB. Jónsson, fyrrum fræðslustjóri og skáta- höfðingi, kom fyrst með hóp drengja á Úlfljóts- vatn. Nú er, að sögn Helga Jónssonar, rekin umfangsmikil starfsemi á Úlfljótsvatni og hefur svo verið lengi. „Á veturna eru reknar hérna skólabúðir í sam- vinnu við Fræðslumiðstöð Reykjavíkur. Það koma flestir 11 og 12 ára nem- endur í Reykjavík og dvelja hérna eina nótt. Þá er staðurinn leigður út um helgar til almennings, skátahópa og hjálpar- sveita. Á sumrin rekum við hér sumarbúðir fyrir krakka á aldrinum 6 til 16 ára.“ – Hvað leggið þið áherslu á í sumarbúðunum? „Við leggjum áherslu á að börnin komist sem mest í snert- ingu við náttúruna – séu úti að leika sér í heilbrigðum og skemmtilegum leik.Við kynnum fyrir þeim útilíf, hvernig á að bjarga sér í útilegum, þau fá að æfa sig að tjalda, elda úti og þess háttar.“ – Er skátahreyfingin enn mjög virk í líf íslenskra barna? „Já, hún er það. En hún á í harðri samkeppni við ýmsa aðra afþreyingu.“ – Hefur á umræddu 60 ára tímabili orðið mikil uppbygging á Úlfljótsvatni? „Já, hér kom fyrst hús 1942. Síðan hefur staðurinn byggst upp jafnt og þétt, mest þó í kringum þau landsmót sem hafa verið haldin hérna. Núna erum við með góðan húsakost, stórt samkomu- tjald og stórar og góðar tjaldflat- ir.“ – Getur hver sem er fengið að tjalda á Úlfljótsvatni? „Já, svæðið er opið öllum sem vilja koma hingað. Fyrirtæki eru farin að koma hingað með hópa í fjölskylduferðir og ættarmót eru oft haldin hér.“ – Á hugsjón skátahreyfingar- innar enn þá erindi til ung- menna? „Hugsjón skátahreyfingarinn- ar á ríkt erindi við ungmenni nú- tímans. Eins og Baden-Powell hugsaði skátastarfið var það ætl- að öllum ungmennum, óháð þjóð- félagsstöðu og kynþætti. Baden- Powell sá, eftir að hann kom úr herþjónustu, götustráka sem voru að slæpast. Honum fannst þetta ekki gott og ákvað að fá þá með sér í útilegu þar sem hann kenndi þeim undirstöðuatriði í að bjarga sér úti í náttúrinni, en það hafði hann lært í herþjónustunni. Hann hafði verið í Afríku við erf- iðar aðstæður og nú kenndi hann þessum strákum að reiða sig á eigið hyggjuvit. Hann kenndi þeim að kveikja eld úti í nátt- úrunni, rekja spor og byggja sér skýli. Þetta gæti komið sér vel í Survivor-þátt- unum. Að sjálfsögðu hafa hugsjónir þær sem hann setti fram fengið að þróast í takt við tímann. Hluti af sýn hans var að allir gætu starfað saman á jafnréttisgrundvelli og fljótlega eftir umrædda útilegu breiddist þessi boðskapur út um heiminn. Upp spruttu skátafélög um öll lönd og nú er þetta ein stærsta alheimshreyfing sem til er. Til Íslands kom skátahugsjón- in nokkuð fljótt. Íslendingar voru með þeim allra fyrstu sem sam- einuðu skátafélög drengja og stúlkna í sama bandalag.“ – Hvers vegna valdi Jónas B. Jónsson Úlfljótsvatn fyrir úti- legustað? „Rafmagnsveita Reykjavíkur átti jörðina Úlfljótsvatn. Jónas heyrði fyrst talað um Úlfljótsvatn árið 1940. Þá frétti hann að Bandalag íslenskra skáta fengi hugsanlega umráðarétt yfir þess- ari jörð. Frumkvæði að því að skátar fengju jörðina Úlfljóts- vatn átti Helgi Tómasson skáta- höfðingi. Hann ræddi við Jakob Möller sendiherra um þessa hug- mynd og skátar fengu umráða- rétt yfir jörðinni um óákveðinn tíma árið 1941. Jón Sigurðsson skólastjóri bað svo Jónas B. Jóns- son árið 1941 að fara með nokkra skáta og ylfinga á Úlfljótsvatn til þess að dvelja þar með þeim í tjaldbúðum yfir sumarið. Jónasi leist ekki sérlega vel á þetta í fyrstu en fór svo og skoðaði svæðið og heillaðist þar af staðn- um. Skátastarfið gekk mjög vel þarna um sumarið og í framhaldi af því var ákveðið að byggja hér hús undir svona starfsemi.“ – Hvað eru krakkar lengi í einu á Úlfljótsvatni núna? „Þau dvelja hér á námskeiðum í 5 til 7 daga og hægt er að vera á fleiri en einu námskeiði. Við erum með tíu fullorðna leiðbeinendur. Síðasta sumar dvöldu hér um 470 börn.“ – Er dýrt að senda börn til ykkar? „Nei, ég myndi ekki segja það, ekki miðað við verðlag dagsins í dag. Námskeiðsgjaldið á venjulegt námskeið er 18.800 krónur. Inni- falið í því er gisting og fæði og skipulögð dag- skrá frá morgni til kvölds.“ – Eru bæði kynin saman í hóp- um í sumarbúðnum? „Já, sumarbúðirnar eru fyrir bæði kynin og krakkarnir eru í fimm til sex manna kynjaskiptum hópum sem eru saman í herbergi. Aðsóknin hefur verið mjög góð í sumar. Þó eru örfá sæti laus á síðasta almenna námskeiðið í lok júlí. Helgi Jónsson  Helgi Jónsson fæddist 28. des- ember 1965 í Reykjavík. Hann lauk almennu námi og tók síðan próf í íþróttafræðum frá Fjöl- brautaskólanum við Ármúla. Hann starfaði við steinsteypu- sögun og kjarnaborun um all- langt skeið en nú er hann fram- kvæmdastjóri Útilífsmiðstöðvar skáta á Úlfljótsvatni. Helgi er kvæntur Hrönn Nielsen sjúkra- liða og eiga þau tvö börn. Svæðið er opið öllum sem vilja koma hingað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.