Morgunblaðið - 20.07.2001, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 20.07.2001, Blaðsíða 21
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 21 Mannréttindadómstóll Evrópu féll í gær frá beiðni sinni um að frönsk yfirvöld frestuðu því að framselja bandaríska flóttamanninn Ira Einhorn til Bandaríkj- anna. Ljóst er því að Ein- horn verður fluttur til Bandaríkj- anna og sótt- ur þar til saka fyrir að myrða unnustu sína árið 1977. Einhorn, sem er 61 árs, flúði frá Bandaríkjunum áður en hann var ákærður en var síðar dæmdur sekur um morðið í réttarhöldum sem fóru fram að honum fjarstöddum. Bandarísk yfirvöld óskuðu eftir framsal- inu eftir að Einhorn fannst í Frakklandi árið 1997 og frönsk yfirvöld samþykktu það gegn tryggingu fyrir því að réttað yrði aftur í máli hans og hann yrði ekki dæmdur til dauða. Napster leyft að hefja starf- semi á ný ÁFRÝJUNARDÓMSTÓLL í Bandaríkjunum úrskurðaði í gær að netmiðlarinn Napster gæti hafið aftur miðlun tónlist- ar sem er ekki bundin höfund- arrétti. Dómstóllinn hnekkti þar með úrskurði alríkisdóm- ara sem fyrirskipaði Napster í vikunni sem leið að hætta starf- seminni meðan netmiðlarinn gæti ekki framfylgt fyrirmæl- um um að fjarlægja allar tón- listarskrár sem eru bundnar höfundarrétti. Ólíklegt er þó að Napster hefji aftur miðlun tónlistar án endurgjalds. Netmiðlarinn hyggst hleypa af stokkunum þjónustu sem gerir skráðum notendum kleift að sækja tón- listarskrár gegn gjaldi. Hermaður ákærður á Okinawa SAKSÓKNARAR í Japan ákærðu í gær 24 ára bandarísk- an liðþjálfa sem grunaður er um að hafa nauðgað tvítugri japanskri konu á bílastæði ná- lægt bar á eynni Okinawa 29. júní. Málið hefur kynt undir kröfum Okinawa-búa um að bandarísku hermönnunum á eynni verði fækkað, en þeir eru nú um 28.000. Blásið til sóknar gegn Talibönum ÁTÖK blossuðu upp í norður- hluta Afganistans í gær þegar hersveitir andstæðinga Talib- an-stjórnarinnar hófu sókn í héraði sem tengir saman yfir- ráðasvæði þeirra. Taliban- stjórnin sagði að andstæðingar hennar hefðu beitt skriðdrek- um sem þeir hefðu fengið frá Rússlandi nýlega. Talibanar hafa sakað Írana, Rússa og nokkrar Mið-Asíuþjóðir um að hafa stutt hersveitir undir for- ystu Ahmeds Shah Massoods, sem hafa enn um 5% landsins á valdi sínu. STUTT Framsal Einhorns heimilað Ira Einhorn ÍTALSKA lögreglan býst við um 100.000 mótmælendum til Genúa, þar sem leiðtogar átta helstu iðnríkja heims, eða G8-landanna svonefndu, funda um helgina. Gríðarlegur ör- yggisviðbúnaður er í borginni og lög- reglan býr sig undir hörð átök. Utanríkisráðherrar G8-ríkjanna funduðu í Róm í gær og fyrradag, en leiðtogafundurinn sjálfur hefst í Genúa í dag og stendur fram á sunnudag. Fundurinn fer fram í Her- togahöllinni í miðborginni, sem hefur verið girt af með fjögurra metra háum varnarvegg, og stóru svæði í kringum höllina hefur það að auki verið lokað. Öllum járnbrautarstöðv- unum í Genúa, utan einni, hefur einn- ig verið lokað og strangt eftirlit er með vegum inn í borgina. Um 20.000 vopnaðir lögreglumenn og hermenn verða á vakt um helgina, varðir með hjálmum og skjöldum. Varðbátar sigla um höfnina og loft- varnaflaugum hefur verið komið fyr- ir við flugvöll borgarinnar. Skrifstofur, verslanir og veitinga- staðir í Genúa verða lokuð fram á mánudag og margir atvinnurekend- ur hafa gripið til þess ráðs að negla fyrir glugga. Margir íbúar hafa yf- irgefið borgina og götur voru nánast auðar í gær, fyrir utan mótmælend- urna sem farnir voru að streyma þangað. Mesta mótmælaaldan frá því á 7. áratugnum Vaxandi uggs er tekið að gæta vegna mótmælaaðgerðanna sem and- stæðingar svonefndrar hnattvæðing- ar efna til með reglulegu millibili samhliða fundum alþjóðastofnana og bandalaga. Mótmælendurnir til- heyra sundurleitum hópum sem berj- ast oft fyrir æði óljósum málstað. Meirihlutinn er yfirleitt friðsamur en jafnan slæðast með nokkrir tugir eða hundruð manna sem virðast hafa það eitt að markmiði að efna til átaka. Ýmsir róttækir hópar anarkista, umhverfisverndarsinna, ný-komm- únista, dýraverndunarsinna og gras- rótarfemínista hófu um miðjan síð- asta áratug að efna til mótmæla gegn afleiðingum hnattvæðingar efna- hagslífsins. En það var í desember 1999 sem aðgerðirnar vöktu fyrst verulega athygli. Um 100.000 manns tóku þátt í mótmælum vegna fundar Heimsviðskiptastofnunarinnar í Seattle í Bandaríkjunum og til harðra átaka kom milli lögreglu og mótmælenda. Óeirðaseggir köstuðu bensínsprengjum og fóru um brjót- andi og bramlandi. Beindu þeir skemmdarfýsn sinni einkum að því sem þeir töldu einkennandi fyrir kap- ítalismann og heimsvaldastefnu Bandaríkjanna; þar á meðal að veit- ingastöðum McDonald’s- og Burger King-skyndibitakeðjanna. Síðan hafa andstæðingar hnatt- væðingar efnt til mótmæla samhliða flestum stærri fundum Heimsvið- skiptastofnunarinnar, Alþjóðagjald- eyrissjóðsins, Alþjóðabankans, Evr- ópusambandsins og fleiri alþjóðlegra stofnana og bandalaga. Mótmælaald- an er orðin sú mesta frá því að stúd- entar settu allt á annan endann á sjö- unda áratugnum og Víetnam-stríðinu var andmælt. Eftir Seattle hafa mót- mælendur meðal annars látið til sín taka í borgunum Davos í Sviss, Washington í Bandaríkjunum, Mel- bourne í Ástralíu, Prag í Tékklandi, Nice í Frakklandi, Porto Alegre í Brasilíu, Quebec í Kanada og Gauta- borg í Svíþjóð. Vel skipulagðar hreyfingar sem notfæra sér tæknina En þótt mótmælin séu kennd við baráttu gegn hnattvæðingu er erfitt að skýra í stuttu máli hverju er ná- kvæmlega verið að mótmæla. Mótmælendahóparnir eru í raun eins ólíkir og þeir eru margir. Ýmsir leggja áherslu á misskiptingu auðs í heiminum, aðrir á umhverfismál eða mannréttindi, enn aðrir vilja afnema ríkisvaldið og sumir virðast helst hafa það að markmiði að fá útrás fyr- ir uppreisnaranda og ofbeldishneigð. Hreyfingarnar eru svo sundurleitar að jafnvel hefur mátt sjá nýnasista og baráttumenn gegn kynþáttahatri í sömu mótmælagöngunni. En þrátt fyrir ólíkar áherslur má greina þann rauða þráð í málflutningi mótmælendanna að kerfi kapítalism- ans sé óréttlátt. Alþjóðleg stórfyrir- tæki arðræni þriðja heiminn og verkalýðsstéttina og spilli umhverf- inu. Margar hreyfinganna hafa horn í síðu Bandaríkjanna sem þær segja að stundi efnahagslega, pólitíska og menningarlega heimsvaldastefnu. Ábyrgðinni er meðal annars skellt á viðskiptafrelsi, alþjóðlegar fjármála- stofnanir og þjóðabandalög. Hóparnir leggja almennt ekki eyr- un við þeim mótrökum að aukin heimsviðskipti komi öllum jarðarbú- um til góða eða að viðskiptahagsmun- ir geti stuðlað að stjórnarfarsumbót- um og framförum í mannréttinda- málum. Margir þessara hópa eru mjög vel skipulagðir og notfæra sér tæknina til að tjá skoðanir sínar, afla sér fylgis og boða til mótmæla. Halda þeir gjarnan úti skrautlegum vefsíðum og hafa oft með sér samráð um aðgerðir. Slíkar hreyfingar hafa sprottið upp um allan heim en þær eru öflugastar í Evrópu og Norður-Ameríku. Margar þeirra koma saman í alþjóðlegu regn- hlífarsamtökunum „Hvítu samfest- ingunum“ en liðsmenn þeirra klæð- ast slíkum flíkum í mótmælagöngum og segja þær vísa til fjöldans sem hið kapítalíska skipulag hafi „gert ósýni- legan.“ Myndast hefur harður kjarni baráttumanna sem ferðast á milli fundarstaða alþjóðastofnana og efna til mótmæla. Þessir „atvinnumót- mælendur“ eru af ýmsu tagi; náms- menn, miðstéttarfólk, verkamenn og atvinnulausir. Standa ráðþrota Stjórnvöld og alþjóðastofnanir standa ráðþrota gagnvart mótmæla- öldunni, sem virðist ekki ætla að lægja í bráð. Þess má geta að búist er við komu mótmælenda hingað til lands vegna fundar utanríkisráðherra Atlants- hafsbandalagsríkja í maí á næsta ári. Að sögn ríkislögreglustjóra mun lög- reglan þá hafa meiri öryggisviðbúnað en áður hafi þekkst á Íslandi. Mótmælendur streyma til Genúa vegna leiðtogafundar G8-ríkjanna Lögreglan býr sig undir hörð átök Reuters Ítalskir lögreglumenn, vopnaðir táragasbyssum, fylgjast með mótmæla- göngu í Genúa í gær, þar sem leiðtogafundur G8-ríkjanna fer fram. Búist er við um 100.000 mótmælendum til Genúa um helgina vegna leiðtogafundar G8-ríkjanna. Mótmælahreyfingarnar eru sundurleitar og málstaðurinn oft óljós.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.