Morgunblaðið - 20.07.2001, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 20.07.2001, Blaðsíða 11
Fimm ár eru síðan hafist var handa við að stika gönguleiðir um svæðið frá Borgarfirði eystra, um Víkur og Loðmundarfjörð til Seyðisfjarðar. Á svæðinu er nú að finna um 15-20 stikaðar leiðir þar sem skipulagðar eru gönguferðir undir leiðsögn heimamanna sem flestir hafa lokið svæðisleiðsöguréttindum á Austur- landi. Áskell Heiðar Ásgeirsson, landfræðingur frá Borgarfirði, hefur haft veg og vanda af gerð korta af svæðinu þar sem gönguleiðunum eru gerð góð skil. „Nú síðustu ár hefur þróunin orðið sú að seldar eru ferðir sem skipulagðar eru af ferðaþjónustu- aðilum hér á svæðinu í samvinnu við Ferðafélag Íslands og Útivist,“ segir Áskell Heiðar. „Ferðirnar eru seldar með mat og gistingu og sjá heimamenn um að keyra vistirnar á milli næturstaða. Ferðalangar þurfa því ekki að burðast með mikinn farangur á göngunni. Þá hefur Ferðafélag Fljótsdalshéraðs byggt glæsilega skála í Breiðuvík og Húsa- vík með öllum nútímaþægindum, sem hvor um sig tekur 35 manns í gistingu, þannig að hér er um sann- kallaðar dekurferðir að ræða.“ Áskell Heiðar hefur einnig mikla reynslu sem leiðsögumaður um svæðið og gjörþekkir þar hvern hól. „Það sem helst heillar fólk við svæðið er náttúrufegurðin, gróin og litrík líparítfjöll. Svo á þetta svæði sér mikla sögu en búið var á Víkum og í Loðmundarfirði allt frá land- námi og fram á miðja 20. öld. Mik- ið er til af þjóðsögum af svæðinu og þeir leiðsögumenn sem hér starfa eru að sjálfsögðu með álfa- og huldufólkssögur á takteinum til að skemmta göngumönnum á leið- inni.“ Nánari upplýsingar um svæð- ið er að finna á vefslóðinni, www.alfasteinn.is. „Það er að hefjast nýr kafli í sögu fiskeldis á Íslandi,“ segir Guðmund- ur Valur Stefánsson, fiskifræðingur og framkvæmdastjóri Sæsilfurs, en fyrirtækið er í þann mund að hefja fiskeldi í Mjóafirði. Ástæður þessa segir Guðmundur að séu, annars vegar, að leyfi hefur verið gefið til að nota kynbætta eldisstofna í stað þeirra villtu sem áður voru notaðir. „Sá stofn sem nú er notast við er norskættaður en hann hefur verið kynbættur hér við land í fimm ætt- liði og er því jafn ís- lenskur og Snorri Sturluson.“ Hins vegar segir Guð- mundur einnig skipta miklu máli að stór sjávarútvegsfyrirtæki í upp- sjávarfiski hafa trú á starfseminni en Síldarvinnslan og Samherji eiga stærstan hlut í Sæsilfri. „Það blasir við mikil uppbygging í þessari at- vinnugrein og möguleikarnir mikl- ir,“ segir Guðmundur. Sæsilfur var stofnað í fyrra og nú þegar öll tilskilin leyfi hafa verið fengin, og kvíar komnar á sinn stað, er ekkert annað eftir en að flytja fiskinn í þær. Því verki verður lokið um helgina að sögn Guðmundar. Sæsilfur er fyrsta fyrirtækið sem fer út í fiskeldi í sjókvíum við Ísland með hinn norskættaða eldisstofn. Fyrstu þrjú árin er miðað við að framleiðsla verði 4000 tonn en stefnt er að því að sú tala tvöfaldist gangi allt að óskum. Í fyrstu verða kvíarnar sex talsins en á næsta ári verður fjórtán kvíum bætt við. Guðmundur býst við að slátrun muni hefjast næsta sumar, eða um haustið, og reiknar hann með að sumarið 2003 verði starfsmenn fyr- irtækisins orðnir 40 talsins. augl‡sing 6. tbl. 1. árg. 2001 Austurland á nýrri öld www.athygli.is Á döfinni... 19.-22. júlí – Nesk., Mjóifjörður, Dalatangi, Skálanes Ferðafélag Fjarðamanna: Skemmtileg ferð fyrir fólk í góðu formi. Nánari upplýsingar á heimasíðu Ferðafélags Fjarðamanna http://www. is- holf.is/ffau/. 21. júlí – Ferðafélag Fljótsdalshéraðs: 7 daga gönguferð um Lónsöræfi. 21.- 29. júlí – Vopnafjörður Vopnaskak 2001: Fjölþætt menning- ar- og skemmtidagskrá á Vopnafirði. 28. júlí – Lagarfoss Kayak Rodeo keppni í Kayak-Rodeo eða „flúðafimi“ fer fram þann 28. júlí við Lagarfossvirkjun. Mótið hefst klukkan 11:00 og mun standa til kl. 17:00 eða þar til yfir lýkur. 22. júlí – Jökulsárhlíð Norður-Héraði Ferðafélag Fljótsdalshéraðs: Múla- höfn-Langafjara-Þerribjarg, áhugaverð gönguferð (dagsferð.) 23. júlí – Miðsumarsmenning á Hornafirði Lesið í landslagið: Kynning á forn- leifaskráningu fyrir ungmenni á aldr- inum 10-14 ára undir leiðsögn Björns G. Arnarsonar. Jazzkvintett í Hafnarkirkju: Haukur Gröndal, saxófónn, Tómas R. Einars- son, bassi, Ólafur Jónsson, saxófónn, Davíð Þ. Jónsson, píanó og Matthías Hemstock, trommur. 23.-29. júli – Vopnafjörður Vopnafjarðardagar með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Nánar auglýst síðar. 25. júlí – Seyðisfjörður Bláa kirkjan kl. 20.30. Gítar Íslancio. 27. -29. júlí – Fáskrúðsfjörður Franskir dagar: Fjölskylduhátið með fjölbreyttri dagskrá þar sem undir- strikuð eru tengsl Fáskrúðsfjarðar við Frakkland. Nánari upplýsingar: Markaðsráð Suðausturlands, sími 478 1500 og Markaðsstofa Austurlands, sími 471 2320, www.east.is. Nýr kafli í sögu fiskeldis á Íslandi Sýning á verkum Tryggva Ólafs- sonar myndlistarmanns verður opnuð í Neskaupstað þann 29. september nk. Verður sýningin til húsa við Hafnarbraut en þar stendur til að opna safn tileink- að ævi og störfum listamannsins. „Bæjarstjórn Neskaupsstaðar hefur samþykkt að veita þessu safni brautargengi og með sýn- ingunni erum við að staðfesta fyrirætlanir okkar,“ segir Magni Kristjánsson sem er frumkvöðull að stofnsetningu safnsins. „Við njótum þeirra forréttinda að geta unnið að undirbúningnum í samvinnu við Tryggva sjálfan. Saman mun okkur eflaust takast að byggja upp veglegt safn á næstu árum.“ Tryggvi er Íslendingum að góðu kunnur þótt lengst af hafi hann búið og starfað í Dan- mörku. Er skemmst að minnast metaðsóknar á afmælissýningu sem haldin var í Gerðarsafni í fyrra í tilefni af sextugsafmæli hans. „Danir hafa viljað kroppa í hann og eigna sér hann. Það finnst hins vegar ekki rammari Íslendingur en Tryggvi en hann hefur sterkar taugar til fóst- urjarðarinnar og sérstaklega Norðfjarðar,“ segir Magni. Það fer því vel á því að Tryggva sé reistur minnisvarði á staðnum með þessu safni en að mati Magna á það eftir að dafna vel. „Eftir Tryggva liggur mikið verk og hann hefur verið mjög hirðusamur um sína listsköpun. Það á eftir að vera ómetanlegt fyrir síðari tíma málara og fræði- menn að geta gengið í bæði verk hans og sendibréf, sem skipta þúsundum enda Tryggvi vinsæll og vinamargur.“ Og Magni segir tíðar blómasendingar Tryggva til valinna bæjarbúa til merkis um hvaða mann Tryggvi hefur að geyma. Safn tileink- að Tryggva Ólafssyni Tryggvi Ólafsson myndlistarmaður. Dekurferðir frá Borgarfirði eystra Gönguferðir frá Borgarfirði eystra eru seldar með mat og gistingu og sjá heimamenn um að keyra vistir milli næturstaða. Ferða- langar geta því áhyggjulausir notið náttúrufegurðarinnar á göngunni. Tilraunaveiðum á tröllakrabba, á svæði sem nær allt frá Lónsdýpi vestur undir Vestmannaeyjar, er ný- lokið en þær hófust í lok júnímán- aðar. Það er sjávarútvegsfyrirtækið Skinney-Þinganes á Hornafirði sem stendur að veiðunum í samvinnu við Ráðgarð, Hafrannsóknastofnun og Hampiðjuna. Fékk verkefnið styrk frá sjávarútvegsráðuneytinu. „Við stöndum straum af kostn- aði við þetta verkefni og leggjum til bát, mannskap og veiðarfæri,“ segir Gunnar Ásgeirsson, stjórnarformað- ur Skinneyjar-Þinganess. „Þetta er mjög stórt svæði sem við höfum kannað. Tilraununum lauk á því að farið var á þau svæði sem gáfu hvað mest við fyrstu yfirferð og þá veiddust 50 krabbar í 150 gildrur á einum sólarhring, mest veiddust þrjú dýr í eina gildru. Það er frekar hér austar sem von er á að eitthvað veiðist en þegar nær dregur Vest- mannaeyjum er frekar að maður finni gaddakrabba. Enn er þó mikið svæði ókannað.“ Gunnar segir að enn sé nokkuð óráðið um framhaldið. „Þetta verð- ur skoðað nánar. Það á eftir að gera rannsóknir á því hvernig markaður- inn tekur við þessum tegundum. Ef áfram verður haldið þurfa niður- stöður úr slík- um rannsókn- um að liggja fyrir.“ Tröllakrabbi hefur ekki ver- ið algengur réttur hér á landi hingað til en að sögn Gunnars er þetta hinn mesti sælkera- réttur. „Hvert dýr er um 2 kíló að þyngd en algengast er að krabbinn sé tekinn lifandi og soðinn í 20 mínútur. Maturinn er aðallega í hreyfiörmum skepnunnar en einnig í gripörmum og skel.“ Gunnar segir tröllakrabbann vera sætan á bragðið og að kjötið sé fín- gerðara en úr humri. Þá segir hann krabbann bragðmeiri en humar. Guðmundur Valur Stefánsson. Nýr og glæsilegur grunnskóli var tekinn í notkun á Vopnafirði í fyrra. Helsti kosturinn við bætta aðstöðu skólans er sú að nú gefst möguleiki á að skipuleggja skólastarfið betur svo að það falli betur að félagslífi nemenda. Tónlistarskóli og leikskóli eru í sama húsi og íþróttahús er steinsnar frá grunnskólabygging- unni. Í skólanum eru 113 nemendur og um 40 nemendur stunda nám við tónlistarskólann. „Aðstaðan er gjörbreytt,“ segir Aðalbjörn Björns- son, skólastjóri. „Allt almennt fé- lagsstarf er í beinum tengslum við starf grunnskólans. Hér er einnig fé- lagsmiðstöð í næsta húsi og það er nú fyrst sem skólinn er í raun ein- setinn. Börnin koma í skólann klukkan átta og eru búin að öllu klukkan þrjú.“ Gjörbreytt aðstaða grunnskóla Vopnafjarðar Tilraunaveiðar á tröllakrabba Áhöfnin á Hvanneyju virðir fyrir sér aflann. Grunnskóli Vopnafjarðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.