Morgunblaðið - 20.07.2001, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 20.07.2001, Blaðsíða 46
FÓLK Í FRÉTTUM 46 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ hefðbundnari lögum má nefna opn- unarlagið, „That’s Your Problem Baby“ sem „grúvar“ alveg massa- vel, sömuleiðis „Battle of Funk“. Daður við Gilberto og Getz í laginu „Sumargyðjan“ finnst mér hins veg- ar afar vafasamt. Ég vil svo sérstak- lega minnast á umslagið sem er afar vel heppnað: sveitt, svalt, „fönkað“ og flott. veiki, meiri svita og meiri klikkun. Einhvers konar afrískt fönk yfir- fært á land elds og ísa – eitthvað hratt, hrátt og hroðvirknislegt. Svo er nú þó ekki og að sjálfsögðu ómögulegt að skammast eitthvað út í það. En ástæðan fyrir því að ég nefni þetta er sú að þessi „pottþétta“ nálgun gengur upp að mínu viti. Í viðtali sem birt var í þessum blað- hluta fyrir stuttu segja Jagúarliðar að upptökur hafi tekið langan tíma og yfirleguvinna hafi verið þónokk- ur. Kannski er rót vandans falin þarna. Því platan er vissulega skot- held sem slík: uppfærsla hljóms er næsta óaðfinnanleg, hljóðfæraleikur góður, platan er útpæld og metn- aðurinn greinilega mikill. En um leið er eins og áhættuþættir og dirfska hafi troðist undir í því ferl- inu. Það vantar einhvern rífandi. Það vantar í raun og réttu meira „fönk“. Að öðru efni en skyldu: hvítir menn – svo ég geri mig nú sekan um ópólitískan rétttrúnað – hafa margir hverjir náð að iðka fönklist með góð- um árangri í gegnum tíðina og mér kemur til hugar sveitir eins Brand New Heavies, Jamiroquai og Cor- duroy í þessu tilliti. Aðilar sem hafa með góðum árangri náð að laga formið að sér og sínu sköpunarlega innsæi. Svo virðist sem Jagúar hafi lagt upp með fönkið sem eitthvað brösótt, skítugt og hættulegt á Get The Funk Out; það sýnir sig t.d. í leik þeirra að „blaxplotation“ kvik- myndageiranum og lagatitlum eins og „Octopussy“ og „Strut“. Sú hug- mynd nær þó ekki að skila sér nægj- anlega vel út til hlustandans. Best tekst Jagúar upp í lögum sem bera með sér tilraunakenndan blæ. „Evil Empire“ minnir t.d. nokkuð á Miles og lokalagið „Fast Forward“ er og skemmtilegt. Af EFTIR síðustu plötu sína – hinn ungæðislega, á stundum brokk- genga, en þó afar heillandi frum- burð, samnefndan sveitinni – hefur Jagúar náð að fínpússa nálgun sína við fönkið á þessari plötu hér. Þetta er orðið alvöru band – þétt og vel spilandi. Það er kannski þess vegna sem leiðin sem hér er fetuð er í nokkuð fágaðra lagi. Hljómur er þýður og stimamjúkur og bragurinn sléttur og felldur. Platan sjálf er heilsteypt. Örygg- inu stafar af henni, andinn yfir henni er góður og ástríðan leynir sér ekki. Sjálfur bjóst ég reyndar við því að menn myndu leita meira í hið villta eðli sem nafn hljómsveit- arinnar vísar í – svona nánari út- færslu á lagi eins og „Gustav Blom- kvist“ sem er að finna á fyrstu plötu en óhætt er að segja að það sé í brjálæðislegra lagi. Vegna þess hversu hagvön sveitin er orðin í fönkfræðunum var ég einhvern veg- inn búinn að sjá fram á meiri geð- Eins og sést felast vonbrigði mín í vangaveltum um ákveðnar nálganir við formið „fönk“. Það mætti segja að platan sé vel heppnuð sem dægi- ljúft og áhlýðanlegt verk en því mið- ur ekki eins vel sem rífandi stuð- plata. Hrynhiti við heimskautsbaug Jagúar: (frá vinstri) Ingi, Börkur, Kjartan, Daði, Samúel, Sigfús. TÓNLIST G e i s l a d i s k u r Get The Funk Out, annar geisla- diskur Jagúar. Sveitin er skipuð þeim Berki Hrafni Birgissyni, Daða Birgissyni, Inga S. Skúlasyni, Samúel J. Samúelssyni, Sigfúsi Erni Óttarssyni og Kjartani Hákon- arsyni. Þeim til aðstoðar eru Hrafn Ásgeirsson, Birkir Freyr Matt- híasson, Sturlaugur Jón Björnsson, Jóel Pálsson, Gísli Galdur (DJ Ma- gic), Kristján Kristjánsson, Matthías MD. Hemstock, Cheick Ahmed Ti- diane Bangoura, Alseny Sylla og teitisfólkið. Lög eftir meðlimi Jagú- ars, eitt lag eiga svo þeir Cheick Ah- med Tidiane Bangoura og Alseny Sylla. Tekið upp og hljóðblandað af Daða Birgissyni. Stjórn upptöku var í höndum Daða, Barkar, Samú- els og Inga. 65,51 mín. FD gefur út. GET THE FUNK OUT Arnar Eggert Thoroddsen 89,5STERÍÓ Skólavörðustíg 7, RVÍK, Sími 551-5814 Stærsta töskuverslun landsins Mikið úrval af vönduðum ferðatöskum á hjólum Ferðatöskur-Handtöskur -Mikið úrval- Verð frá kr.1400.- kr. 8000.- kr. 7000.- kr. 6000.- kr. 5200.- kr. 3900.- / kr. 4900 M O N S O O N M A K E U P litir sem lífga MICK Jagger og Bono hafa hljóðrit- að saman dúett. Talsmaður Rolling Stones hefur stað- fest að þeir hafi flogið saman til Kölnar í Þýska- landi til að vinna lagið sem stendur til að verði fyrsta smáskífan á vænt- anlegri sólóskífu Jaggers. Vitanlega heldur sami heimildarmaður því fram að útkoman sé hreint stórkost- leg. Sólóskífan er væntanleg í haust og segja sögur að í einu laganna sem þar verður að finna og kallast „Gun“ skjóti hann firna- föstu skoti að fyrr- um eiginkonu sinni, Jerry Hall, fyrir að hafa ekki viljað taka við sér aftur og af þeim sökum kramið hjarta sitt. Væntanleg breiðskífa verður stjörnum prýdd því auk Bonos rétta Jagger hjálparhönd þau Lenny Kra- vitz, Pete Townsend og Missy Elliot. Bitur JaggerHerskár Bono Reuters Reuters Jagger og Bono syngja dúett

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.