Morgunblaðið - 20.07.2001, Blaðsíða 23
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 23
EINU sinni í miklu mýrlendi bjó
tröll að nafni Shrek. Ró hans var
raskað einn daginn þegar hópuðust
að honum þekktar ævintýrapersón-
ur. Hann finnur blindar mýs í
grautnum sínum, stór björn er í
rúminu hans, þrír heimilislausir
grísir hafa leitað til hans og fleiri og
fleiri, allir hraktir frá löndum sínum
af hinum illa Farquaad lávarði.
Shrek ákveður að hjálpa öllum
þessum ævintýrapersónum og gerir
samning við Farquaad. Hann bjarg-
ar Fionu prinsessu úr fjarlægum
kastala og ævintýrapersónurnar fá
að snúa heim aftur. Farquaad líst
ekki illa á samninginn og Shrek held-
ur í leiðangur að bjarga prinsess-
unni. Með í för er heldur snöfur-
mannlegur asni að nafni Asni, sem
reiðubúinn er að gera allt fyrir
Shrek, nema þegja.
Þannig er söguþráðurinn í banda-
rísku tölvuteiknimyndinni Shrek
sem frumsýnd er í dag. Með aðal-
hlutverkin í ensku talsetningunni
fara Mike Myers, Eddie Murphy,
Cameron Diaz og John Lithgow.
Með aðalhlutverkin í íslensku tal-
setningunni fara Hjálmar Hjálmars-
son, Þórhallur Sigurðsson, Edda
Eyjólfsdóttir og Harald G. Haralds.
Leikstjórar eru Andrew Adamson
og Vicky Jenson en myndin er byggð
á samnefndri barnabók eftir William
Steig. Framleiðandi Shrek er
DreamWorks.
Gamanleikarinn Mike Myers seg-
ist hafa haft mjög gaman af því að
tala fyrir Shrek í myndinni. „Það var
frábært,“ segir hann, „sem var eins
gott vegna þess að ég hafði ekki hug-
mynd um að það tæki svona langan
tíma að búa til teiknimynd. Ég var
nítján ára þegar við byrjuðum,“ seg-
ir hann og hlær. „Það eru tvær
ástæður fyrir því að mig langaði til
þess að tala fyrir Shrek. Í fyrsta lagi
langaði mig til þess að vinna fyrir
Jeffrey Katzenberg (fyrrum yfir-
mann teiknimyndadeildar Disney-
fyrirtækisins) og í öðru lagi er sagan
í myndinni stórfín og fjallar um það
hvernig við eigum að vera sátt við
okkur sjálf.“
Og áfram heldur Meyers: „Við bú-
um í samfélagi þar sem allt gengur
út á fegurð og glæsileika en ég held
að boðskapur þessarar myndar sé sá
að allir eru fallegir.“
Eddie Murphy, sem talar fyrir
asnann, tekur undir þessi orð
Meyers, en Eddie hefur nokkra
reynslu af að tala inn á teiknimyndir
(Mulan). „Myndin á efnislega nokk-
uð sameiginlegt með mynd minni,
Klikkaða prófessornum. Hún fjallar
um að sætta sig við það hver maður
er og hvernig maður er. Fegurðin
kemur innan frá og ef þú hefur enga
innri fegurð getur þú aldrei búið yfir
neinni fegurð.“
Ensk talsetning: Mike Myers,
Eddie Murphy, Cameron Diaz og
John Lithgow.
Íslensk talsetning: Hjálmar Hjálm-
arsson, Þórhallur Sigurðsson, Edda Eyj-
ólfsdóttir og Harald G. Haralds. Leik-
stjórar: Andrew Adamson og Vicky
Jenson.
Shrek kemur
til bjargar
Sambíóin Álfabakka, Háskólabíó, Laug-
arásbíó, Nýja bíó Akureyri og Nýja bíó
Keflavík frumsýna tölvuteiknimyndina
Shrek með íslensku og ensku tali.
Atriði úr tölvuteiknimyndinni Shrek.
Frumsýningar
DRIVEN Bíóhöllin, Bíóborgin, Kringlubíó.
SHREK
Bíóhöllin, Háskólabíó, Laugarásbíó.
LÚÐRASVEIT OG BRÚ
Filmundur/Háskólabíó
Animal
Bandarísk. 2001. Leikstjóri og handrit:
Luke Greenfield. Aðalhlutverk: Rob
Schneider, Colleen Haskell, John C.
McGinley. Sérlega ósmekklegur þeðan-
þindarhúmor sem má einstaka sinnum
hlæja að, en mann hryllir líka við.
Laugarásbíó, Regnboginn, Stjörnubíó.
Memento
Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit:
Christopher Nolan. Aðalleikendur: Guy
Pierce, Carrie-Anne Moss, Joe Pantoliano.
Sérlega áhugaverð, um mann með ekkert
skammtímaminni. Frábærlega útsmogin og
úthugsuð, spennandi og fyndin. Bíóborgin.
Spy Kids
Bandarísk. 2001. Leikstjóri og handrit:
Roberto Rodriguez. Aðalleikendur: Antonio
Banderas, Carla Gugino, Alan Cumming.
Ævintýraleg, spennandi og skemmtileg
mynd fyrir alla fjölskylduna. Regnboginn.
Tillsammans
Sænsk. 2001. Leikstjóri og handrit: Lukas
Moodyson. Aðalleikendur: Lisa Lindgren,
Michael Nyqvist, Gustaf Hammarslen.
Tragikómedía frá lauslátum tímum komm-
úna, blómabarna og frjálsra ásta í pipraðri
Gautaborg. Leikur, handrit og leikstjórn í
óvenjugóðum höndum. Háskólabíó.
Bridget Jones’s Diary
Bresk. 2001. Leikstjóri: Sharom Maguire.
Handrit: Helen Fielding. Aðalhlutverk: Re-
née Zellweger, Hugh Grant, Colin Firth, Jim
Broadbent. Sagan um ástamál Bridget
verður að hæfilega fyndinni rómantískri
gamanmynd. Zellweger gerir margt gott í
titilhlutverkinu. Bíóhöllin, Háskólabíó.
The Mummy Returns
Bandarísk. 2001. Leikstjórn og handrit:
Stephen Sommers. Aðalleikendur: Brend-
an Fraser, Rachel Weisz, John Hannah.
Múmían snýr aftur með miklum látum.
Ósvikin fjölskylduskemmtun með mögnuð-
um brellum. Bíóhöllin.
Nýi stíllinn keisarans – The
Emperor’s New Groove
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Mark Dindal.
Handrit: Thomas Schumacher. Það kveður
við nýjan tón í nýjustu Disney-myndinni
sem fjallar um spilltan keisara sem breyt-
ist í lamadýr og lærir sína lexíu. Bráðfyndin
mynd fyrir börn og fullorðna. Bíóhöllin.
One Night at McCalĺs
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Harald Zwart.
Handrit: Moon Shark. Aðalleikendur: Liv
Tyler, Matt Dillon, Michael Douglas.
Skrautlegasta gamanmynd um flónin sem
flækjast inn í ráðabrugg hinnar kynþokka-
fullu Liv Tyler. Michael Douglas er eftirtekt-
arverður. Regnboginn.
Baise moi
Frönsk. 2000. Leikstjórn og handrit: Virg-
inie Despentes og Coralie Trinh Thi. Aðal-
leikendur: Raffaela Anderson, Karen Bach.
Sérlega átakanleg og raunsæ lýsing á kyn-
lífs- og morðferðalagi tveggja franskra
undirmálsdama. Tilgangur myndarinnar er
eitthvað á huldu en enginn fer ósnortin út
af henni. Regnboginn.
Crocodile Dundee in Los
Angeles
Áströlsk/Bandarísk. 2001. Leikstjóri Sim-
on Wincer. Handrit: Matthew Berry. Aðal-
leikendur: Paul Hogan, Linda Kozlowski,
Jonathan Banks. Krókódílamaðurinn í
bragðdaufum ævintýrum í kvikmyndaborg-
inni. Barnamynd. Bíóhöllin, Bíóborgin, Kringlubíó.
See Spot Run
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: John White-
sell. Handrit: William Kid. Aðalleikendur:
David Arquette, Michael Clarke Duncan.
Meinlaus barnamynd um hressan bolabít
og heimska tvífætlinga, ástir og uppeldis-
mál. Dágóð til síns brúks. Kringlubíó.
Evolution
Bandarísk. 2001. Leikstjórn: Ivan Reit-
man. Handrit: Abraham Vincente Nicholas.
Aðalleikendur: David Duchovny, Juliane
Moore, Orlando Jones. Loftsteinn hrapar á
jörðina og getur af sér furðuskepnur í mis-
lukkaðri gamanmynd. 1 Stjörnubíó, Bíóhöllin.
Head over Heels
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Mark Waters.
Handrit: John Deere. Aðalleikendur Fredd-
ie Prinze Jr., Monica Potter. Getulitlir til-
burðir til að stæla Gluggann á bakhliðinni.
Ekki snefill af Hitchcock. Bíóborgin.
Pearl Harbor
Bandarísk 2001. Leikstjóri Michael Bay.
Handrit William Wallace. Aðalleikarar Josh
Hartnett, Ben Affleck, Kate Beckinsdale.
Afskaplega langdregin og leiðinleg mynd
sem, þegar öllu er á botninn hvolft, fjallar
ekki um neitt. Bíóhöllin, Kringlubíó.
Tomb Raider
Bandarísk. 2001. Leikstjóri: Simon West.
Handrit: Martin Hudsucker. Aðalleikendur:
Angelina Jolie, Jon Voight, Iain Glen, Noah
Taylor. Bústinn barmur og bardagaatriði
eru í aðalhlutverki í þessari mynd sem
byggð er á samnefndum tölvuleik. Ófrum-
legur vitleysisgangur en Jolie er alvöru töff-
ari. Háskólabíó, Laugarásbíó.
Dr. Dolittle 2
Bandarísk. 2001. Leikstjóri og handrit:
Steve Carr. Aðalleikendur: Eddie Murphy.
Jeffrey Jones, Kevin Pollak, Kristen Wilson.
Agalega slök mynd um dýralækninn vin-
sæla. Sagan er of einföld og vekur engan
áhuga auk þess sem húmorinn er lélegur
og ósmekklegur. Eddie Murphy má fara að
hugsa sinn gang.
Kringlubíó, Regnboginn.
Pokémon 3
Bandarísk. 2001. Leikstjóri Michael Haig-
ney. Handrit Haigney og Norman Gross-
feld. Þriðja Pokémon myndin er eins og
þær fyrri; realísk stuttmynd kemur á undan
háskaævintýrinu þar sem Pokémonar berj-
ast og Ash bjargar málunum. Óaðlaðandi
og óspennandi að öllu leiti.
Bíóhöllin.
Bíóin í borginni
Sæbjörn Valdimarsson/Arnaldur Indriðason/Hildur Loftsdóttir