Morgunblaðið - 20.07.2001, Blaðsíða 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
12 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
RÝMINGARSALA
Rýmum fyrir nýjum vörum
Síðumúla 13, sími 588 5108.
NORRÆNT þjóðdansa- og þjóð-
lagamót, Barnlek 2001, var sett í
Grafarvogi í gær. Mótið sem haldið
hefur verið á Norðurlöndum á
þriggja ára fresti frá 1992 er ætlað
börnum á aldrinum 8-16 ára og mun
það standa til 22. júlí. Þátttakendur
á mótinu eru 2.200 og koma frá
Norðurlöndum nema Grænlandi,
auk gestahóps frá Hjaltlandseyjum.
Gista þátttakendurnir í grunn-
skólum í Grafarvogi en íbúum þar
fjölgar um 12% meðan á mótinu
stendur.
Að sögn Elínar Svövu Elías-
ardóttur fylgir töluverður fjöldi for-
eldra og aðstandenda börnunum,
sem taka þátt í mótinu, til Íslands,
en íslensku þátttakendurnir eru 35
talsins.
Setningarathöfnin í gær heppn-
aðist mjög vel þrátt fyrir að hætt
hafi verið við að halda hana utan-
dyra sökum rigningar. Þátttak-
endur fjölmenntu þess í stað í
Íþróttamiðstöð Grafarvogs og þar
hitti blaðamaður nokkra krakka
sem eru á mótinu, ýmist til að dansa
eða spila.
Halldóra Kristín Magnúsdóttir er
15 ára Mosfellingur og hefur lagt
stund á þjóðdansa með hléum síðan
1997. Hún tók þátt í mótinu þegar
það var haldið síðast í Danmörku
fyrir þremur árum og er nú mætt
aftur til leiks. Aðspurð segir Hall-
dóra að mjög gaman sé að æfa þjóð-
dansa, en æfingarnar fara fram
einu sinni í viku hjá Þjóðdansafélagi
Reykjavíkur. „Við erum þó ekki
mörg sem æfum þetta hér, við erum
18 í hópnum núna. Fólk spyr gjarn-
an hvað ég sé að gera í þjóðdönsum,
en þetta er mjög líflegt og hresst,“
segir Halldóra Kristín. Hún segir að
eins og í flestum dansíþróttum séu
fleiri stelpur en strákar, en þó séu
nokkrir ungir og upprennandi
drengir frá fimm ára aldri að æfa
þjóðdansa hér á landi.
„Það eru ekki haldnar keppnir í
þjóðdönsum heldur hittist fólk á
mótum eins og þessum og dansar
saman og lærir dansa hinna þjóð-
anna. Það skemmtilegasta við mót
eins og þessi er að læra dansana og
kynnast nýju fólki,“ segir Halldóra
Kristín að lokum.
Gaman að hitta jafnaldra sem
hafa svipuð áhugamál
Josephine Schmidt er 14 ára göm-
ul dönsk stúlka frá Egtved á Jót-
landi og er hún komin til Íslands til
að leika þjóðlagatónlist á fiðluna
sína, sem hún hefur æft á í 7 ár, en í
námi sínu hefur hún lagt mikla
áherslu á þjóðlagatónlist og líkar
það mjög vel. Þetta er í annað sinn
sem hún heimsækir Ísland en í
fyrsta sinn sem hún tekur þátt í móti
sem þessu. „Það skemmtilegasta við
að koma hingað er að hér hef ég hitt
marga jafnaldra mína sem hafa
einnig áhuga á þjóðlagatónlist, í
Egtved eru ekki mjög margir sem
leggja stund á þetta,“ segir Jose-
phine.
Ari-Pekka Puttonen og Niko
Lipponen eru 14 ára drengir frá
Lahti í Finnlandi. Þeir segja að þjóð-
dansar séu mjög vinsælir í Lahti og
hefur Ari æft í sjö ár en Niko í fimm
og æfa þeir einu sinni til tvisvar í
viku, en Ari hefur öðlast silfurmerki
fyrir kunnáttu sína í þjóðdönsum.
Báðir láta þeir vel af ferðinni til Ís-
lands, en meðan á mótinu stendur
gista þeir í Foldaskóla. „Það
skemmtilegasta við að vera hér er
að dansa og sjá nýja hluti,“ segja Ari
og Niko. Þeir stefna á að skoða sig
betur um á Íslandi þegar mótinu
lýkur, en Ari hefur þegar heimsótt
Bláa lónið og fannst mjög gaman að
koma þangað.
Mótið stendur sem fyrr sagði til
22. júlí, en hápunktur þess verður á
laugardaginn þegar börnin marsera
í skrúðgöngu niður Skólavörðustíg
og halda að því loknu danssýningu á
Ingólfstorgi og víðar um bæinn.
12% íbúafjölgun í Grafarvogi á meðan Barnlek 2001 stendur yfir
Gaman að æfa
þjóðdansana
Morgunblaðið/Ásdís
Josephine Schmidt, Danmörku, Halldóra Kristín Magnúsdóttir og Niko
Lipponen og Ari-Pekka Puttonen frá Finnlandi taka þátt í Barnlek 2001.
Norrænir þjóðdansar voru stignir af lífi og sál í Íþróttamiðstöð Graf-
arvogs við setningu Barnlek 2001 í gær.
Grafarvogur
BÆJARRÁÐSMENN Samfylking-
arinnar í Hafnarfirði telja illa hafa
tekist til með einkaframkvæmda-
samning þann er gerður var milli
Hafnarfjarðarbæjar, Nýsis hf., Iðu
ehf. og Ístaks hf. um byggingu fim-
leikahúss í Haukahrauni og rekstur
þess. Að sögn Lúðvíks Geirssonar,
bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar í
Hafnarfirði, gekk samningagerð við
þá aðila, sem standa áttu að fram-
kvæmdunum, treglega og verkið,
sem átti að hefjast í vor, fór því aldr-
ei af stað. Hann segir að samningar
séu fyrst að takast núna og verk-
framkvæmdir fari ekki af stað fyrr
en á næstunni. Til stóð að húsið yrði
tilbúið í byrjun þessa vetrar en sök-
um tafanna er nú áætlað að það verði
tilbúið í apríl á næsta ári og segir
Lúðvík þetta raska þeim áætlunum
sem gengið var út frá við niðurröðun
tíma hjá íþróttafélögunum í bænum
fyrir veturinn.
Að sögn Lúðvíks telur Samfylk-
ingin óheppilegt að farið hafi verið út
í einkaframkvæmd við byggingu
hússins. „Við teljum að þetta sé dýr-
ari leið þegar til lengri tíma er litið
þar sem bærinn mun aldrei eignast
húsið heldur greiða leigu af því.“
Tafir á
byggingu
fimleikahúss
Hafnarfjörður
BÆJARRÁÐ Garðabæjar hefur
samþykkt að láta vinna kostnaðar-
áætlun vegna fyrirhugaðrar við-
byggingar við Fjölbrautaskólann í
Garðabæ. Á fundi byggingarnefndar
FG 30. maí síðastliðinn var lögð fram
húsrýmisáætlun vegna umræðna um
viðbyggingu við skólann í samræmi
við samningsgrein um húsbyggingu
FG frá 1993. Samkvæmt greininni
var samkomulag um að endurskoða
húsnæðisþörf skólans við verklok og
því telur byggingarnefnd Garða-
bæjar eðlilegt að gerð sé kostnaðar-
áætlun fyrir viðbygginguna.
Stækkun FG
fyrirhuguð
Garðabær
STEFNT er að því að hefja fram-
kvæmdir við byggingu mótels á lóð
milli Vesturlandsvegar og Bjarkar-
holts í haust. Að sögn Vilhjálms H.
Walterssonar er ráðgert að mótelið
verði opnað næsta sumar að hluta ef
allt gengur að óskum.
Mótelið, sem fær nafnið Mótel
Mosó, samanstendur af fjörutíu
tveggja manna stúdíóíbúðum og
sextán eins til tveggja manna her-
bergjum. Eldunaraðstaða er í öllum
íbúðum og herbergjum auk annarra
þæginda. Að sögn Vilhjálms standa
yfir viðræður vegna fjármögnunar á
framkvæmdunum og kaupa á húsun-
um og skýrast þau mál á næstu vik-
um. Vilhjálmur segir hugmyndina
ekki nýja af nálinni en hann viðraði
fyrst hugmynd að byggingu mótels
við bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ í nóv-
ember árið 1999.
Bæjarráð samþykkti í maí síðast-
liðnum að veita Vilhjálmi vilyrði fyrir
lóð við Bjarkarholt og bæjarstjórn
staðfesti í kjölfarið ákvörðun bæjar-
ráðs. Um er að ræða ódeiliskipu-
lagða lóð en unnið er að gerð skipu-
lags fyrir hana.
Vegamótel við
Bjarkarholt
Mótel Mosó
opnað næsta
sumar
Mosfellsbær
METÞÁTTTAKA var á stangveiðidegi barna og unglinga í Elliðaánum
um síðustu helgi, þegar 36 börn á aldrinum 5 til 16 ára, sum í fylgd full-
orðinna, þáðu boð Stangveiðifélags Reyjavíkur um að renna fyrir fisk í
veiðiperlu Reykjavíkur. Þetta var í annað sinn í sumar sem félagið bauð
krökkunum í veiði og tókst þeim að landa 11 löxum og á fimmta tug urr-
iða.
Ljósmynd/Stefán Á. Magnússon
Fengsælir krakkar með laxa og urriða á góðum veiðidegi við Elliðaárnar í boði Stangveiðifélags Reykjavíkur.
Lönduðu 11 löxum
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦