Morgunblaðið - 20.07.2001, Síða 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
PÁLL Pétursson félagsmálaráð-
herra hefur ákveðið vaxtakjör af lán-
um til leiguíbúða, í samráði við fjár-
málaráðherra, sem boðin verða í
tengslum við sérstakt átak um fjölg-
un leiguíbúða á næstu fjórum árum.
Gert er ráð fyrir að leiguíbúðum verði
fjölgað um a.m.k. 550 á ári á næstu
fjórum árum.
Félagsmálaráðherra kynnti þessa
ákvörðun á ríkisstjórnarfundi í gær.
Að sögn Páls verða annars vegar veitt
lán til byggingar eða kaupa 400 leigu-
íbúða á ári samkvæmt 15. grein hús-
næðislaganna, en þar er um að ræða
félagslega leiguíbúðir á vegum sveit-
arfélaga, Öryrkjabandalagsins,
námsmannaíbúðir o.fl. sem eru ætl-
aðar fólki undir skilgreindum tekju-
og eignamörkum. Hefur nú verið
ákveðið að lán til þessara 400 íbúða
beri 3,5% vexti.
„Með þessu er komið verulega til
móts við sveitarfélögin og þau hvött
til að koma upp leiguíbúðum,“ segir
Páll.
Hins vegar er svo um að ræða lán
vegna almennra leiguíbúða á vegum
húsnæðissamvinnufélaga og annarra
félaga sem eiga og reka leiguhúsnæði
fyrir fólk, sem ekki fellur undir sér-
stök tekju- og eignamörk, samkvæmt
16. grein húsnæðislaganna. Páll segir
að verið sé að setja af stað sérstakt
átak í samstarfi við lífeyrissjóðina um
að bæta við 600 almennum leiguíbúð-
um á næstu fjórum árum. Verður lán-
að til 150 íbúða á ári með 4,5% vöxt-
um.
Komið til móts við sveitarfélög
og aðra um leiguhúsnæði
Að sögn félagsmálaráðherra er að
því stefnt með þessu fjögurra ára
átaki að fjölga leiguíbúðum samtals
um 550 á ári.
„Það er komin niðurstaða í þetta
leiguíbúðamál, og ég vona að það
verði til þess að það rýmist til á leigu-
markaði. Það hefur verið verulegur
skortur á leiguhúsnæði á höfuðborg-
arsvæðinu og sums staðar annars
staðar, en núna á að vera komið til
móts við sveitarfélögin og aðra þá
sem vilja byggja leiguíbúðir,“ segir
hann.
Fjármálaráðuneyti á móti niður-
fellingu skatts húsaleigubóta
„Við skoðuðum ýmsar aðrar leiðir,
svo sem stofnstyrki, en það þarf mjög
mikla peninga á hverja íbúð til þess
að stofnstyrkir skipti einhverju máli.
Við skoðuðum líka þá leið að hætta
skattlagningu húsaleigubóta en fjár-
málaráðuneytið var mjög á móti því
að undanþiggja þær skattinum.“
Að sögn Páls kemur ríkissjóður til
með að rétta við þann halla sem
myndast hjá Íbúðalánasjóði við að
greiða niður lán til leiguíbúðanna. Er
áætlað að vaxtaniðurgreiðsla vegna
íbúða sem falla undir 15. grein hús-
næðislaganna verði 64 milljónir á ári.
„Það hafa verið biðlistar eftir leigu-
húsnæði. Erfitt er þó að átta sig á
raunverulegu umfangi því sumir eru
skráðir á mörgum stöðum en það er
greinilega skortur á leiguhúsnæði og
ég tel að þetta sé verulegt átak sem
við erum að gera til að bæta úr því.“
Fjölga á leiguíbúðum um 550 á ári með sérstöku átaki
Vextir af lánum til
félagslegra leigu-
íbúða verða 3,5%
DAVÍÐ Oddsson for-
sætisráðherra hafði í
gær gegnt embætti for-
sætisráðherra lengur
en nokkur annar ís-
lenskur stjórnmála-
maður. Hann hafði þá
verið forsætisráðherra
samfellt í tíu ár, tvo
mánuði og 20 daga í
þremur ríkisstjórnum.
Hermann Jónasson
kemur næstur en hann
var samanlagt for-
sætisráðherra í tíu ár,
tvo mánuði og 19 daga í
þremur stjórnum á
árabilinu frá 1934-1958.
Ólafur Thors sat
samtals í níu ár, átta
mánuði og 13 daga í
forsætisráðherraemb-
ætti.
Þann 17. febrúar
1999 varð Davíð sá
ráðherra sem hafði
setið lengst allra sam-
fellt í embætti for-
sætisráðherra hér á
landi eða í 2.850 daga
óslitið en Hermann
Jónasson, sem kemur
næstur, var samfellt
forsætisráðherra í sjö
ár, níu mánuði og 19
daga.
Lengst allra í
embætti forsætis-
ráðherra
VEGAGERÐIN hefur nú gefið út
síðasta kort ársins 2001 um ástand
fjallvega. Samkvæmt því eru það
þrír vegir sem enn hafa ekki verið
opnaðir en það eru Dyngju-
fjallavegur og Gæsavatnaleið, norð-
an Vatnajökuls, og Hrafntinnusker
suðvestan Landmannalauga.
Þær upplýsingar fengust hjá
Vegagerðinni að þessir vegir væru
ófærir sökum mikilla snjóskafla
sem þar hefðu safnast upp, auk þess
væri ekki búið að merkja Gæsa-
vatnaleið með vegstikum.
Talsmenn Vegagerðarinnar gátu
ekki sagt til um það hvort eða hve-
nær þessir vegir myndu verða opn-
aðir en á næstunni verður flogið yf-
ir vegina norðan Vatnajökuls og
kannað hvort hægt sé að ryðja þá.
Hrafntinnusker er hins vegar ekki
á ábyrgð Vegagerðarinnar og því
er ekki vitað hvort reynt verður að
ryðja þann veg.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Greiðfært er orðið víðast hvar um hálendið og margir á ferð.
Þrír fjallvegir
enn lokaðir
TÖKUR standa nú yfir við Veiði-
vötn, nánar tiltekið við Drekavatn,
á auglýsingu á nýrri tegund pallbíls
fyrir Lincoln-bílaverksmiðjurnar í
Bandaríkjunum. Nýja bílategundin
heitir Lincoln Black Wood.
Ásta Hrönn Stefánsdóttir, fram-
leiðslustjóri hjá Pan Arctica, var á
leið til Reykjavíkur frá tökustað
þegar Morgunblaðið náði tali af
henni í gærkvöldi. Hún sagði að
stærsti hluti tökuliðsins væri á leið
til höfuðborgarinnar en enn væru
nokkrir starfsmenn eftir sem
myndu ljúka tökum í dag. „Alls vor-
um við í kringum 47, bæði erlendir
aðilar og Íslendingar og tókust tök-
ur feikivel,“ segir Ásta.
En hvers vegna voru Veiðivötn
og þar með talið Ísland fyrir valinu?
„Það er bara eitt svar við því; fal-
legt landslag,“ segir hún og bætir
við að leitað hafi verið eftir breyti-
leika í landslagi. Hún segir að tökur
hafi aðaðallega farið fram í svört-
um sandi en nýi pallbíllinn í auglýs-
ingunni er svartur. „Þá var maður
úti í vatni, í mótvægi við bílinn, en
bílinn keyrir fram hjá honum.“
Aðspurð segir Ásta að undirbún-
ingur hafi tekið í kringum þrjár til
fjórar vikur en tökudagarnir verða
samtals þrír þegar þeim lýkur í
dag. Hún segir auglýsinguna ein-
göngu verða sýnda erlendis. Linc-
oln-verksmiðjurnar, Anonymous-
kvikmyndafyrirtæki í Los Angeles
og kvikmynda- og Pan Arctica
standa að auglýsingunni.
Erlend bíla-
auglýsing
fest á filmu
við Veiðivötn
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Tökur fóru aðallega fram í svörtum sandi við Drekavatn.
SÝSLUMAÐURINN í Kefla-
vík hefur gefið út ákæru á
hendur hjónum á fimmtugs-
aldri fyrir sölu og innflutning
fíkniefna. Rannsókn var um-
fangsmikil en magn efna sem
ákært er fyrir er ekki mikið.
Hin meintu brot áttu sér
flest stað árið 1999. Lögreglan
hóf rannsókn í kjölfar þess að
ábendingar bárust um að hjón-
in hefðu selt fíkniefni úr bifreið
í Keflavík.
Maðurinn er ákærður fyrir
að hafa í júlí 1999 flutt til lands-
ins 15 grömm af hassi, 10
grömm af amfetamíni auk lít-
ilræðis af kókaíni og marijúana.
Konan er sökuð um að hafa selt
manni eitt gramm af amfeta-
míni í ágúst 1999. Bæði eru þau
ákærð fyrir að hafa haft í fórum
sínum lítilræði af kannabisefn-
um og amfetamíni þegar leitað
var á heimili þeirra.
Hjón
ákærð fyr-
ir fíkni-
efnabrot
Davíð Oddsson
forsætisráðherra
FIMM menn á aldrinum 16–20
ára voru handteknir síðastliðið
miðvikudagskvöld af lögregl-
unni á Akranesi í kjölfar hús-
leitar á heimili í bænum þar
sem talsvert af þýfi fannst.
Við yfirheyrslur upplýstust
innbrot í átta sumarbústaði í
Svínadal og Skorradal sem
framin voru um síðustu helgi og
þrjú innbrot í félagsheimili á
Akranesi og í nágrenni bæjar-
ins sem framin voru í lok síð-
asta árs. Jafnframt upplýstist
fjöldi annarra innbrota í bif-
reiðar og fyrirtæki sem framin
voru á tímabilinu janúar til júní
2001. Samkvæmt upplýsingum
lögreglunnar á Akranesi var
málið unnið í samvinnu við lög-
regluna í Borgarnesi.
Fimm hand-
teknir vegna
fjölda
innbrota