Morgunblaðið - 20.07.2001, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 9
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
Útsalan
í fullum gangi
15% aukaafsláttur
Engjateigi 5, sími 581 2141.
www.oo.is
Útsala
Einnig nokkur
TILBOÐ á
barnavörum
Útsala
Gullsmiðir
Lagersala á Bíldshöfða 14
Skór frá kr. 500
Opið alla föstudaga milli kl. 16 og 19,
laugardaga milli kl. 12 og 16.
oroblu@sokkar.iswww.sokkar.is
Laugavegi 56, sími 552 2201
ÚTSALA
ný
dúndurtilboð
á hverjum
degi
P.s. Oilily
vetrarbæklingurinn 2001
er kominn.
SKÓVERSLUN
KÓPAVOGS
Hamraborg 3, sími 554 1754
Opið mán.-fös. kl. 13-18, lau. kl. 10-14.
Vandaðir leður gönguskór
Léttir/þægilegir
GRI-tex vatnsvörn
Margar gerðir - Mikið úrval
Stærðir: 36-47
Góð reynsla
Verð frá kr. 5.990 til 10.990
GÖNGUSKÓMARKAÐUR
í húsi Blómahallarinnar, Hamraborg 3
30% afsláttur - Einstakt tækifæri
INGIMAR Ingimarsson, fréttaritari
ríkisútvarpsins í Brussel, hefur verið
ráðinn tímabundið til NATO sem
fréttafulltrúi í Skopje í Makedóníu.
Meðal hlutverka hans er að sjá um
samskipti við fjölmiðla, stjórnvöld og
alþjóðastofnanir.
„Ég er í boði íslenskra stjórnvalda
hérna en það kom ósk frá fram-
kvæmdastjóra Atlantshafsbanda-
lagsins um að aðildarríkin útveguðu
fjölmiðlasérfræðinga til þess að að-
stoða upplýsingadeildina hér í
Skopje við að koma upplýsingum á
framfæri, sjá um samskipti við fjöl-
miðla, alþjóðastofnanir, stjórnvöld
o.s.frv. Það var haft samband við mig
og ég spurður hvort ég hefði áhuga,
ég hafði hann og þáði því boðið.“
Þegar Ingimar er inntur eftir því
hvernig þetta gangi fyrir sig segir
hann: „Þetta er tiltölulega lítil starf-
semi hérna. Hér er einn talsmaður
NATO sem er bandarískur hermað-
ur og hann er yfirmaður þessarar
upplýsingadeildar. Ég vinn mest
með honum og Breta úr varnarmála-
ráðuneytinu. Ef ákveðið verður að
senda liðssveitir inn í Makedóníu er
það verkefni okkar að koma upplýs-
ingum til fjölmiðlanna, bæði inn-
lendra sem alþjóðlegra. Við eigum að
aðstoða þá við að komast á vettvang,
útvega þeim viðtöl og veita þeim
upplýsingar um hvað er að gerast og
hvernig staðan er hverju sinni.“
Aðspurður segir Ingimar að sér
líki starfið vel og það sé mjög spenn-
andi. Ingimar er fréttamaður út-
varpsins í Brussel og býst við að
snúa sér aftur að því að þessu verk-
efni loknu. Reiknað er með að verk-
efnið sé til þriggja mánaða til að
byrja með.
Ráðinn fréttafulltrúi
NATO í Makedóníu
TILTÖLULEGA nýtt hér á landi
eru bílar með innbyggðum sjón-
varpsskjám og tilheyrandi tækjum.
Það eru fyrst og fremst leigubíl-
stjórar sem nýta sér þennan munað
einkum til að skemmta farþegunum
en þó ekki síður til að skemmta
sjálfum sér þegar lítið er að gera.
Ingvar Magnússon, leigubílstjóri
hjá Hreyfli, er einn af fáum sem
hafa komið sér upp þess háttar
tækjum í bíl sínum.
Þegar Ingvar er inntur eftir því
hvers vegna hann hafi eytt stórum
fjárhæðum í þessa tækni segir hann
að það sé nú aðallega fyrir hann
sjálfan gert. Það geti verið leið-
inlegt fyrir bílstjóra að sitja að-
gerðarlaus ef lítið sé að gera. Hann
segir einnig að farþegar séu mjög
sáttir. "Fólk er nú kannski ekkert
mikið að hringja á stöðina og biðja
um mig heldur hringir það í mig
persónulega enda margir ánægðir
með fyrri ferðir.“
Að sögn Ingvars er það enginn
sérstakur aldurshópur sem sækir
eftir þessu en oft fólk sem er að
fara ýmist upp í sumarbústaði, á
sveitaböll eða annað. „Svo lenti ég
nú einu sinni í því að keyra strák á
BSÍ. Við vorum að hlusta á Alice
Cooper mjög hátt og hann endaði
með því að biðja mig bara að keyra
sig upp á Akranes.“
Ingvar tekur aðallega upp dag-
skrána í sjónvarpinu en fólk kemur
stundum með myndir sjálft og sum-
ir vilja bara hlusta á góða hljóm-
flutningskerfið í bílnum.
Ingvar segir að það hafi komið
sér á óvart hversu mikil aukavinna
hafi skapast í framhaldi af tilkomu
tækjanna.
„Fólk er hins vegar svo ánægt
með þetta að ég hef stundum fengið
þjórfé og það þarf nú ansi mikið til
að Íslendingar gefi þjórfé fyrir ein-
hverja þjónustu, enda við ekki alin
upp við þann sið.“
Ingvar er sá eini sem fær að
fikta í græjunum enda engin
smá smíði sem þær eru.
„Ég fæ jafnvel
stundum
þjórfé“
Morgunblaðið/Jim Smart
Hægt er að horfa á bíó-
myndir á meðan á bílferð-
inni stendur.