Morgunblaðið - 20.07.2001, Page 15

Morgunblaðið - 20.07.2001, Page 15
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 15 BLAÐAMAÐUR - RITSTJÓRI Bæjar- og héraðsfréttablað fyrir Norðurland eystra óskar eftir góðum blaðamanni í fullt starf. Þyrfti jafnvel að geta starfað sem ritstjóri ef með þarf. Í boði er lifandi en jafn- framt krefjandi starf, sem felst í almennri fréttaöflun og skrifum, viðtölum og myndatökum og öðru sem snýr að öflugri blaðaútgáfu. Krafist er góðrar íslenskukunnáttu. Starfsaðstaða viðkomandi verður á Akureyri og þarf hann að vera nokkuð kunnugur á svæðinu. Um framtíðarstarf getur verið að ræða. Skriflegar umsóknir, sem tilgreini aldur, heimilishagi og fyrri störf, sendist Morgunblaðinu, Kaupvangsstræti 1, 600 Akureyri fyrir 27. júlí merkt: „Blaðamaður/ritstjóri“. UNGIR drengir í Ólafsfirði stunda stórútgerð við vatnið yfir sumar- tímann, en þar eru ákjósanlegar að- stæður til að leika sér. Þeir hafa byggt bryggju og smíðað nokkra báta. Það eina sem vantar upp á al- vöruútgerð er kvóti, en þeir segja að það komi síðar! Morgunblaðið/Helgi Jónsson Sumar við vatnið Ólafsfjörður ÍSLENSK-spænsk samkoma verður hjá Hjálpræðishernum á Akureyri á sunnudag, 22. júlí, og hefst hún kl. 20. Prestur frá Norður-Karólínu í Bandaríkjunum, séra Sergio Fun- es Vitaza, predik- ar. Miriam Ósk- arsdóttir túlkar og syngur á spænsku og ís- lensku. Prestur- inn dvelur hér á landi í stuttri heimsókn hjá systur sinni sem býr í Eyjafirði en er ættuð frá Hondúras. Íslensk- spænsk messa Sergio Funes Vitaza „ALLT sem sýnist“ er yfir- skrift myndlistarsýningar sem opnuð verður á morgun, laug- ardaginn 21. júlí kl. 16.00 og eru það þrír útskriftarnemar frá AKI listaháskólanum frá Hollandi, þau Magnús Helga- son, Þuríður Kristjánsdóttir og Lilja Hauksdóttir sem sýna. Í Ketilhúsinu er sýningin „Bæjó, Hver vegur að heiman er vegurinn heim“ sem fjórir nemar úr Listaháskóla Íslands sýna og er lokaniðurstaða sýn- ingarferðalags þeirra um land- ið undir þemanu Hringferðin. Sýnendur eru Daníel, Huginn Arason, Geirþrúður Finnboga- dóttir, Hjörvar og Bryndís Ragnarsdóttir. Á svölum Ket- ilhússins er sýning finnsku listakonunnar Elenu Kosk- imies. Sýningarnar eru opnar daglega frá kl. 14.00–18.00. Lokað á mánudögum. Nýjar sýningar opnaðar í Ketilhúsi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.