Morgunblaðið - 20.07.2001, Side 16
SUÐURNES
16 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FRAMKVÆMDUM við innréttingar
í nýbyggingu Flugstöðvar Leifs Ei-
ríkssonar, svokallaða suðurbyggingu,
er nú lokið. Átta farþegahlið hafa ver-
ið tekin í notkun til viðbótar við þau
sex sem fyrir voru en þar af eru fimm
þeirra tengd landgöngubrúm. Eftir
breytingarnar er því alls hægt að af-
greiða fjórtán flugvélar í einu. Að
sögn Höskuldar Ásgeirssonar, fram-
kvæmdastjóra Leifsstöðvar, verður
þjónusta efld til muna sem aftur mun
fela í sér fjölbreyttari rekstur og af-
þreyingu fyrir farþega.
Íslenskir aðalverktakar hafa unnið
að innréttingunum í nýbyggingunni
undanfarna mánuði og var fyrsti hluti
hennar tekinn í notkun í mars í
tengslum við þátttöku Íslands í
Schengen-samstarfi Evrópusam-
bandsríkjanna. Vinnu við innrétting-
ar í austurvæng lauk fyrir mánuði og
hefur verktaki nú einnig lokið fram-
kvæmdum við vesturvæng bygging-
arinnar.
Afþreying og þjónusta við far-
þega mun skipa æ stærri sess
Áfram verður unnið að ýmsum
framkvæmdum í flugstöðvarbygg-
ingunni en eftir er að koma upp að-
stöðu á þjónustusvæði í suðurbygg-
ingu. Stefnt er að því að þar verði
bæði verslanir og veitingastaðir en að
sögn Höskuldar er áætlað að fram-
kvæmdum verði að fullu lokið á fyrri
hluta næsta árs. Höskuldur segir
ýmsar hugmyndir uppi um hvernig
sú aðstaða verður nýtt og hvað verði
boðið upp á en engar endanlegar
ákvarðanir hafi verið teknar í því
sambandi. Auk sérvöruverslana hafi
til dæmis hafi verið rætt um að setja
upp veitingastað þar sem boðið verð-
ur upp á ferska sjávarrétti. Þjónusta í
gömlu flugstöðvarbyggingunni, svo-
kallaðri norðurbyggingu, verður
óbreytt að sinni. Búið er að koma upp
bráðabirgðaþjónustu í nýju bygging-
unni. Þar er nú starfrækt, auk frí-
hafnar, Íslenskur markaður, veit-
ingastofa og útibú frá Lands-
bankanum. Höskuldur sér fyrir sér
að eftir breytingarnar verði flugstöð-
in líkari því sem gengur og gerist í ná-
grannalöndunum þar sem fjölbreytt
þjónusta við farþega skipi æ stærri
sess.
Suðurbyggingin er tæpir 17 þús-
und fermetrar að stærð og skiptist í
tvær hæðir og kjallara. Á fyrstu og
annarri hæð er rými til að aðskilja
farþega innan og utan Schengen-
svæðisins, vegabréfaskoðunarsalur,
aðstaða fyrir lögreglu og öryggiseft-
irlit og þjónusturými fyrir farþega.
Höskuldur segir að um leið og unnt sé
að tryggja algjöran aðskilnað farþega
sem ferðast innan og utan Schengen
sé hægt að samnýta aðstöðuna að
stórum hluta. Þá eru þrjár aðkomu-
leiðir við allar landgöngubrýr. Rúllu-
stigar og lyftur auk stiga.
Hönnun byggingarinnar var í
höndum Andersen & Sigurdsson I/S
og Holm og Grut A/S í Danmörku en
aðalverktakar við bygginguna eru
ÍAV hf., Hávirki hf. og Ístak hf.
Byggingin sjálf er klofin í tvennt með
gjá sem endurspeglar, að sögn Hösk-
uldar, landfræðilega stöðu Íslands
milli Evrópu og Ameríku og skírskot-
ar um leið til gliðnunar landsins um
Atlantshafshrygginn. Þá er íslenskt
líparít úr Rauðaskriðu á Austfjörðum
notað á veggi gjárinnar sem setur
sterkan svip á gjána.
Gert ráð fyrir frekari
stækkun í kringum 2010
Að sögn Höskuldar var brýn þörf á
að stækka flugstöðvarbygginguna,
einkum þar sem farþegum um hana
hefur fjölgað ört undanfarin ár.
Norðurbyggingunni, sem tekin var í
notkun árið 1987, var ætlað að anna
um einni milljón farþega á ári en far-
þegar voru þá um sex hundruð þús-
und. Höskuldur segir að nú fari um
ein og hálf milljón farþega um bygg-
inguna á ári og hefur aukningin num-
ið um og yfir 10 prósentum undanfar-
in ár. Frá 1993 hefur farþegafjöldi
um stöðina tvöfaldast. Að auki segir
Höskuldur að stöðin fullnægi skuld-
bindingum Íslands vegna Schengen-
samstarfsins. Í framtíðinni er gert
ráð fyrir að stækka nýju bygginguna
til austurs og vesturs og bæta við ell-
efu farþegahliðum. Samtals yrðu
hliðin þá 22, öll tengd með land-
göngubrúm. Höskuldur segir að stöð-
in, eins og hún er í dag, anni tveimur
til tveimur og hálfri milljón farþega á
ári. Hann segir að gangi spár um
heildarfjölda eftir verði hafist handa
við stækkun byggingarinnar í kring-
um 2010 en spáin gerir ráð fyrir fjög-
urra til fimm prósenta farþegaaukn-
ingu á ári.
Mögulegt að afgreiða
fjórtán vélar í einu
Morgunblaðið/Billi
Fimm landgöngubrýr hafa bæst við Leifsstöð.
Morgunblaðið/Billi
Hönnun nýju flugstöðvarbyggingarinnar hefur vakið verðskuldaða athygli. Ljósabúnaður í lofti minnir óneitanlega á grýlukerti.
Keflavíkurflugvöllur
Morgunblaðið/Billi
Áætlað er að stórauka þjónustu og fjölbreytni í afþreyingu fyrir ferða-
menn sem fara um flugstöðvarbygginguna.
Framkvæmdum við innréttingar í suðurbyggingu Leifsstöðvar lokið
BÆJARSTJÓRN Grindavíkur hef-
ur ráðið Jón Þórisson fjármálastjóra
bæjarins. Ekki hefur verið gengið
frá ráðningu skólastjóra Tónlistar-
skóla Grindavíkur.
Bæjarstjórn Grindavíkur sam-
þykkti samhljóða á fundi sínum í
fyrradag að ráða Jón Þórisson í
stöðu fjármálastjóra bæjarins en sex
sóttu um starfið. Jón er 38 ára gam-
all viðskiptafræðingur sem búsettur
er í Grindavík en starfar hjá Rík-
isbókhaldi.
Sjö sóttu um stöðu skólastjóra
Tónlistarskóla Grindavíkur sem
einnig var auglýst laus til umsóknar
á dögunum. Skólanefnd skólans
mælti með Birnu Bragadóttur og
Gunnari Kristmannssyni, í þeirri röð
sem nöfn þeirra eru nefnd.
Bæjarstjórn taldi að skoða þyrfti
málið nánar og veitti bæjarráði fulln-
aðarumboð til að ganga frá ráðning-
unni. Að sögn bæjarstjórans er búist
við að það verði gert næstkomandi
miðvikudag.
Ráðinn fjár-
málastjóri
Grindavík