Morgunblaðið - 20.07.2001, Page 19
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 19
ær
FitjalindAskalind
Nýbýlavegur
arholtsbraut
Reykj
anesb
raut
Arnarnesvegur
Fífuhvam
msvegur
R
e
y
k
ja
n
e
s
b
ra
u
t
L
in
d
a
rv
eg
u
r
H
a
f n
a
rf
ja
rð
a
rv
e
g
ur
s
Bæjarl.
Smáraholt
Smáralind
Kr
in
gl
um
ý
ra
r b
ra
u
t
Bátagerðin Samtak ehf. sjósetti
sinn annan Viking 1340 fiskibát í
síðustu viku. Áður hafa fiskibátur-
inn Katrín RE og farþegabáturinn
Guðrún Kristjáns verið afhentir eig-
endum sínum og hafa þeir reynst
vel að sögn Snorra Haukssonar hjá
bátagerðinni Samtaki. Nýi báturinn,
Bárður SH 81, er í eigu Péturs Pét-
urssonar á Arnarstapa.
„Aðdragandi að smíði þessa báts
er orðinn nokkur ár en hugmyndin
með hönnuninni var að hluta til að
endurnýja 10 til 50 tonna skip lands-
manna og að hanna hagkvæmt fjöl-
veiðiskip, í rekstri, viðhaldi og
mannahaldi.
Þetta hefur tekist og vel það, eins
bátarnir Katrín RE og Guðrún
Kristjáns, farþegabátur við Ísa-
fjarðardjúp, hafa sannað frá síðasta
ári. Það sem gerir þennan bát sér-
stakan er að báturinn mælist undir
20 rúmlestum sem gerir það að
verkum að ekki þarf vélstjóra á bát-
inn, heldur getur skipstjórinn verið
vélarvörður. Einnig er skipulag
bátsins slíkt að skipstjórinn getur
stjórnað bátnum úti á dekki og haft
stöðuga yfirsýn inn í brúna á öll
tæki. Dekkplássið er það mikið að
hægt er að setja upp öll hjálpartæki
til að vinna veiðarfærin. Allt þetta
sparar mannskap um borð og skilar
þar af leiðandi mjög hagkvæmum
rekstri. Einnig er ganghraðinn og
eyðslan nýung í fiskibát af þessari
stærð, vinnsluhraðinn er 16 –18 míl-
ur og er þá verið að nota 63% af vél-
araflinu og eyðir þá 4,6 l af olíu á
mílu.
Báturinn hefur þrjú aðskilin
rými. Í brúnni er bjart og mjög gott
rými fyrir skipstjóra, tæki og tölv-
ur. Á dekki er vinnuaðstaðan stór-
kostleg og hægt er að vera báðum
megin við netaspilið. Netaniður-
leggjari er festur með gálga utan á
vélarreisnina, þannig að bakborðs-
síðan er alveg laus við burðarbita.
Dekkið er 28 fermetrar og er mögu-
leiki á hvaða veiðarfærum sem er. Í
lestina komast 14 660 lítra kör og er
mikið rými fyrir ofan körin, þannig
að gott er að lesta eða raða í körin.
Lestin er 23 rúmmetrar. Vélarrúm-
ið er stórt og gott er að þjónusta
alla þá hluti sem eru í vélarrúminu.
I lúkarnum er salerni, eldhús með
gaseldavél, heitu og köldu vatni,
kaffikönnu, örbylgjuofni með grilli,
ísskáp, stóru borði, bólstraðir bekk-
ir og kojur fyrir 3 til 4. Allar inn-
réttingar eru úr mahóní. Sjónvarp
með myndbandi er í miðjum lúk-
arnum. Þetta er glæsilega innrétt-
aður bátur til fiskveiða og frábær
aðstaða um borð fyrir skipverja,“
segir Snorri. VIKINGUR 1340 er
13,4 metrar að lengd, breiddin er
4,22 metrar. Dýpt er 1,60 metrar og
báturinn mælist 23,29 brúttótonn,
6,99 nettótonn og 19,53 rúmlestir.
Eigin þyngd er 12,8 tonn. Aðalvél
er Caterpillar 3196,12 L 660HP við
2300 snúninga
Gír: ZF IRM 350 VLD og skrúfa
4 blaða 32x31. Hámarks ganghraði
er 20–22 mílur en hraði með veiði-
tækjum og olíu 16–18 mílur á 1800–
2000 snúningum. Eyðsla er 4,6 l á
míluna.
Nú hafa reglur um skráningu
báta breyst á þann veg að áður var
skylda að skrá áhafnir báta er þeir
náðu 12 rúmlestum en í dag miðast
það við 20 brúttótonn. Mögulegt er
að fá Viking 1340 í styttri útgáfu
þar sem hann mælist undir 20
brúttótonnum og því ekki skráning-
arskyldur.
VIKINGUR 1340, fiskibátarnir
Bárður SH–81 og Katrín RE–375
verða í Hafnarfjarðarhöfn í dag og
næstu daga og er fólk velkomið að
koma og skoða þá.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bárður SH á siglingu. Ganghraði er allt að 22 mílur.
Samtak afhendir
Bárð SH 81
VIKINGUR 1340 er stærsti fjölda-
framleiddi plastbátur á Íslandi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Báturinn er glæsilega innréttaður og aðstaða um borð öll hin besta.