Morgunblaðið - 20.07.2001, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
AFSÖGN ÁRNA JOHNSEN
Árni Johnsen, alþingismaður Sunn-lendinga, hefur tilkynnt forsætis-ráðherra að hann muni segja af
sér þingmennsku. Þetta er rétt ákvörðun
og kemur ekki á óvart. Þingmaðurinn
hafði sjálfur komið sér í þá stöðu að hann
átti engan annan kost.
Árni hefur nú í tvígang viðurkennt að
hafa sagt fjölmiðlum ósatt um meðferð
sína á byggingarefni, sem hann tók út úr
verzlunum í nafni byggingarnefndar
Þjóðleikhússins. Hann hefur viðurkennt
að hafa í fyrstu sagt ósatt um afdrif kant-
steina, sem teknir voru út í nafni nefnd-
arinnar en þingmaðurinn reyndist hafa
tekið til eigin nota. Nú hefur hann jafn-
framt viðurkennt að þéttidúkur, sem tek-
inn var út í nafni hinnar opinberu nefnd-
ar, hafi verið fluttur til Vestmannaeyja,
þar sem þingmaðurinn á heimili. Hann
hefur játað að hafa sagt fjölmiðlum, þar á
meðal Morgunblaðinu, ósatt um flutning
og geymslustað dúksins og að hafa látið
flytja hann aftur til Reykjavíkur í
geymslu þar sem hann vísaði fjölmiðlum
á hann. Í samtali við Morgunblaðið í dag
segist Árni Johnsen ekki geta gefið nein-
ar skýringar á ósannindum sínum.
Efni málsins er auðvitað grafalvarlegt.
Ríkisendurskoðun rannsakar ásakanir á
hendur Árna um að hann hafi tekið fé
skattgreiðenda til eigin persónulegu
nota. En burtséð frá því hver efnisleg
niðurstaða þeirrar rannsóknar verður,
hefur Árni Johnsen með framferði sínu
síðastliðna viku fyrirgert því trausti, sem
óhjákvæmilegt er að ríki á milli kjósenda
og þeirra fulltrúa, sem þjóðin kýs til að
setja sér lög og gæta almannahagsmuna.
Við verðum að geta treyst því að kjörnir
fulltrúar okkar segi sannleikann. Við
verðum líka að geta treyst því að dóm-
greind þeirra, sem taka mikilvægar
ákvarðanir er varða heill almennings, sé
óbrengluð. Árni Johnsen hefur á síðustu
dögum orðið uppvís jafnt að ósannindum
sem og alvarlegum dómgreindarbresti.
Það er tiltölulega nýtt í íslenzkri
stjórnmálasögu að stjórnmálamenn axli
ábyrgð á gerðum sínum og bregðist við
gagnrýni á verk sín með því að segja af
sér embætti, eins og Árni Johnsen hefur
nú gert. Segja má að þáttaskil hafi orðið í
þeim efnum er Guðmundur Árni Stefáns-
son, þáverandi heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra, sagði af sér embætti ráð-
herra í nóvember 1994. Ríkisendur-
skoðun hafði þá komizt að raun um að
meðferð ráðherrans á almannafé væri
aðfinnsluverð. Sá munur var þó á fram-
ferði því, sem Guðmundur Árni var gagn-
rýndur fyrir í skýrslu Ríkisendurskoðun-
ar, og þeim athöfnum, sem Árni Johnsen
er nú ásakaður um, að sá fyrrnefndi mis-
fór ekki með almannafé í eigin þágu,
heldur högnuðust aðrir á athöfnum hans.
Sannist notkun almannafjár í eigin þágu
hins vegar á Árna Johnsen er það enn al-
varlegra mál.
Í forystugrein Morgunblaðsins um
mál Guðmundar Árna 12. nóvember 1994
sagði m.a.: „Með afsögn Guðmundar
Árna Stefánssonar nú verða [...] þátta-
skil. En jafnframt er ljóst að héðan í frá
munu ráðherrar, þingmenn, embættis-
menn og raunar æðsta stjórnsýsla lands-
ins yfirleitt, og þar er enginn undanskil-
inn, búa við meira aðhald af hálfu al-
mennings, fjölmiðla, Ríkisendurskoðun-
ar og Alþingis en tíðkazt hefur til þessa.
Þeir aðilar, sem hverju sinni gegna
ábyrgðarmiklum störfum við æðstu
stjórnsýslu, hvort sem um er að ræða
stjórnmálamenn eða embættismenn,
verða framvegis að gera ráð fyrir því að
störf þeirra verða meir undir smásjá al-
menningsálits en nokkru sinni fyrr.
Þetta er hin jákvæða afleiðing þessa
máls, sem svo mjög hefur verið til um-
ræðu á undanförnum vikum og mánuð-
um. Við höfum ekki búið við sams konar
hefðir og nágrannaþjóðir okkar í þessum
efnum. Þær eru nú að verða til.“
Mál Árna Johnsen sýnir svo að ekki
verður um villzt, að sú hefð er að festast í
sessi á Íslandi að stjórnmálamenn setji
embætti sitt og stöðu sem tryggingu fyr-
ir trúnaði sínum við kjósendur. Það er já-
kvæð þróun fyrir íslenzkt samfélag.
Stjórnmálamenn og embættismenn búa
nú við skýrari reglur en áður og almenn-
ingur gerir meiri kröfur til þeirra. Við-
brögð almennings við fregnum af máli
Árna Johnsen hafa verið mikil og afdrátt-
arlaus. Það er eðlilegt, en breytir ekki því
að í sumum tilfellum reyndist fólk
reiðubúið að trúa ásökunum, sem ekki
hafa verið færðar sönnur á. Slíkt er alltaf
varasamt.
Morgunblaðinu bárust í gær ýmsar
orðsendingar, þar sem því er leynt og
ljóst haldið fram að blaðið hafi reynt að
halda hlífiskildi yfir Árna Johnsen í
þessu máli vegna þess að hann sé fyrr-
verandi starfsmaður blaðsins. Þetta eru
órökstuddar ásakanir. Lesi menn frétta-
flutning blaðsins af málinu undanfarna
daga er ekki hægt að finna slíkum full-
yrðingum stað. Blaðið hefur ekki frekar
en endranær hlaupið á eftir óstaðfestum
sögusögnum, heldur lagt áherzlu á ýtar-
lega og upplýsandi umfjöllun, sem það
hefur leitazt við að byggja á staðreynd-
um. Einmitt vegna þess að það er almenn
vitneskja að Árni Johnsen var blaðamað-
ur Morgunblaðsins um árabil hafa starfs-
menn þess verið sér einkar meðvitandi
um mikilvægi þess að umfjöllun blaðsins
um mál hans væri fagleg og óhlutdræg í
hvívetna. Nánir persónulegir vinir Árna
á blaðinu hafa dregið sig í hlé frá ákvarð-
anatöku um umfjöllun um mál hans, eins
og vinnureglur blaðamanna á Morgun-
blaðinu gera ráð fyrir.
Fréttir sínar í gær og fyrradag um
þéttidúkinn margumrædda og geymslu-
stað hans byggði Morgunblaðið ekki á
framburði Árna Johnsen, heldur fyrst og
fremst á framburði annarra heimildar-
manna. Þetta kemur skýrt fram báða
dagana og ekki síður í frásögn blaðsins í
dag. Þar er greint rækilega frá vinnu-
brögðum blaðamanna þess varðandi
þennan þátt málsins þannig að lesendur
geta sjálfir dæmt um þau. Morgunblaðið
stendur óhikað við að umfjöllun þess hafi
í alla staði byggzt á traustum, faglegum
grundvelli.
Nú hefur hið sanna komið í ljós um
ósannindi og blekkingar Árna Johnsen
og starfsmanns rekstraraðila Þjóðleik-
húskjallarans um ferðalag þéttidúksins.
Það er alltaf þungbært fyrir blað, sem
leggur áherzlu á traustan fréttaflutning,
þegar menn taka sig saman um að
skrökva að því. Slíkt hefur gerzt áður og
gæti átt eftir að gerast aftur. Blaðið
gengur hins vegar aldrei út frá því fyr-
irfram að viðmælendur þess geti reynzt
ósannindamenn. Einkum og sér í lagi í
tilviki þingmannsins hafa þessi ósannindi
reynzt afdrifarík þótt hann hafi nú beðizt
afsökunar á þeim. Auðvitað skrökvaði
hann um leið að almenningi, umbjóðend-
um sínum, og misbauð trausti þeirra. En
þau mistök hafa jafnframt orðið honum
að falli.
Þessu máli er engan veginn lokið með
afsögn Árna Johnsen. Nú er mikilvægt
að Ríkisendurskoðun rannsaki alla opin-
bera fésýslu þingmannsins ofan í kjölinn
þannig að umfang hennar og eðli komi
skýrt fram í dagsljósið. Líklegt má telja
að niðurstöðurnar verði lærdómsríkar og
gefi tilefni til að verkaskipting og eftirlit
opinberra aðila með nefndarstarfi af því
tagi, sem hér um ræðir, verði endurskoð-
að.
MÁL Árna Johnsen varfyrst nefnt í fjölmiðlumföstudaginn 13. júlí þeg-ar DV birti frétt um að
Árni hefði tekið út byggingarefni í
BYKO 2. júlí í nafni byggingar-
nefndar Þjóðleikhússins. Blaðið
sagði frá því að Árni hefði sjálfur
sótt efnið og endurmerkt vörurnar.
Móttakandi var upphaflega skráður
Þjóðleikhúsið, en Árni óskaði eftir
því að vörurnar yrðu sendar á heim-
ili sitt í Vestmannaeyjum. Í blaðinu
gefur Árni þær skýringar að um
misskilning hafi verið að ræða; vör-
urnar hafi aldrei átt að fara til Þjóð-
leikhússins heldur til sín.
Þessar skýringar endurtók Árni í
Morgunblaðinu í frétt sem birtist
daginn eftir.
„Ég hafði reyndar áður rætt við
sölumann BYKO um möguleg við-
skipti fyrir Þjóðleikhúsið. En þegar
ég kem að ná í pöntunina virðast
hafa orðið einhver mistök og mín
pöntun er merkt Þjóðleikhúsinu. Ég
var ekkert að fela það að ég leiðrétti
það, síðan var þetta leiðrétt gagn-
vart BYKO og aldrei skráð skuld á
Þjóðleikhúsið heldur á mig. Það er
reynt að gera það tortryggilegt að ég
breytti nafninu á pöntuninni en ann-
að var ekki hægt, því ég var að drífa
þessa pöntun í flutning út í Vest-
mannaeyjar,“ er haft eftir Árna.
Sama dag og DV birti sína frétt af
málinu óskaði Gísli S. Einarsson, al-
þingismaður Samfylkingarinnar,
eftir stjórnsýsluúttekt á byggingar-
nefnd Þjóðleikhússins. Frá þessu er
greint í frétt Morgunblaðsins í laug-
ardagsblaðinu. Daginn eftir var bréf
Gísla til forseta Alþingis birt orðrétt
í Morgunblaðinu.
Aðrir fjölmiðlar sögðu strax frá
frétt DV um kaup Árna á bygging-
arefni í BYKO. Ítarlega var t.d.
greint frá málinu í fréttum Ríkisút-
varpsins í hádeginu á föstudaginn.
Ósannindi um óðalssteina
Í hádeginu á sunnudag sagði Rík-
isútvarpið frá því að í bókhaldi bygg-
ingarnefndar Þjóðleikhússins væri
að finna reikning vegna óðalskant-
steina frá BM-Vallá. Reikningurinn,
sem hljóðaði upp á 160 þúsund krón-
ur, var frá því í lok maí. Ekki var
skráður afhendingarstaður á reikn-
inginn, aðeins að steinarnir yrðu
sóttir í verslunina. RÚV hafði eftir
Rafni Gestssyni, húsverði í Þjóðleik-
húsinu, að hann vissi ekki til þess að
slíkur steinn hefði verið pantaður og
hann væri hvergi að finna í leikhús-
inu. Stefán Baldursson þjóðleikhús-
stjóri sagðist í viðtali við fréttastof-
una ekki vita hvers vegna steinarnir
hefðu verið pantaðir.
Útvarpið hafði ekki náð í Árna
vegna vinnslu fréttarinnar, en í
kvöldfréttum þennan sama dag er
viðtal við Árna þar sem hann gefur
skýringar á þessu máli. Hann sagði
að steinana hefði átt að nota til að
gera við stétt við austurhlið Þjóðleik-
húsins. „Þetta hefur dregist nokkuð
vegna þess að það átti að tengja
þetta öðrum hlutum sem verið er að
fjalla um í skipulagi höfuðborgarinn-
ar.“
Þegar fréttamaður spurði Árna
hvar steinarnir væru niður komnir
svaraði hann: „Steinarnir eru
geymdir á ákveðnum brettum og eru
í geymslu og eru á vísum stað.“
Árni kom sér undan því að svara
því hver hefði sótt steinana og sagð-
ist ekki vita nákvæmlega hvar stein-
arnir væru geymdir.
Á mánudagsmorguninn kom fram
í fjölmiðlum að óðalssteinar væru
ekki geymdir á brettum hjá BM-
Vallá heldur í stórum sekkjum og
fullyrt var að búið væri að skila
sekkjunum og inn-
heimta skilagjald fyrir
þá.
Í hádegisfréttum
RÚV upplýsti Árni svo
að steinarnir, sem
keyptir voru af byggingarnefnd
Þjóðleikhússins, hefðu verið fluttir á
heimili hans í Reykjavík og búið væri
að leggja þá í stétt við húsið. „Þegar
ég pantaði steina og sótti þá var
sama dag gefin út tilkynning á frest-
un á framkvæmdum sem hafði verið
hugað að á svæði Þjóðleikhússins.
Þetta átti að fylgjast að. Ég ætlaði að
koma þeim í geymslu, en fékk þá þá
hugmynd að nota sams konar steina
og notaði þessa pöntun fyrir mig
sjálfan. Ég ætlaði að panta aðra
pöntun en var því miður ekki búinn
að gera það þegar fjaðrafokið byrj-
aði.“
Árni upplýsti jafnframt að hann
hefði endurgreitt steinana og að
hann myndi segja sig úr bygging-
arnefnd Þjóðleikhússins. Frétta-
maður RÚV spurði Árna hvort hann
teldi að honum væri stætt á að sitja
áfram sem þingmaður þegar upplýst
væri að hann hefði sagt ósatt.
„Já, já, ég held að þetta sé nú ekki
þess eðlis þetta mál. Þegar standa öll
járn á manni og þá reynir maður
ósjálfrátt að víkja sér undan og þetta
er nú ekki alvarlegt.“
„Þér finnst þetta ekki alvarlegt
brot?“ spurði fréttamaðurinn.
„Nei, ekki stóralvarlegt en þetta
er ekki til fyrirmyndar,“ svaraði
Árni.
Orð gegn orði um
viðskiptin við BYKO
Morgunblaðið kemur ekki út á
mánudögum og því birtust fréttir af
viðskiptum Árna í nafni byggingar-
nefndar Þjóðleikhússins ekki fyrr en
í þriðjudagsblaðinu, en margt hafði
þá komið fram um málið frá því að
það kom fyrst upp. Blaðið var með ít-
arlega umfjöllun um málið í því blaði
sem þakti rúmlega þrjár blaðsíður,
auk fréttar á baksíðu. Davíð Odds-
son, forsætisráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins,
lýsti þar miklum von-
brigðum með framgöngu
Árna og sagðist telja
óhjákvæmilegt að fara
ofan í alla þætti sem snúa
að umsýslustörfum þingmannsins á
undanförnum árum. Hann sagði að
Árni yrði sjálfur að meta það hvort
hann hefði brugðist trausti og lagði
áherslu á að samband þingmanns og
kjósenda snerist bara um traust.
Stjórnendur BYKO höfðu fram að
þessu ekki hafnað því fortakslaust í
fjölmiðlum, að um einhvers konar
mistök hefði verið að ræða þegar
Árni tók út byggingarefni sem skráð
var á reikning byggingarnefndar
Þjóðleikhússins. Í þriðjudagsblaði
Morgunblaðsins sagðist Jón Helgi
Guðmundsson, forstjóri BY
vegar ekki vera þeirrar sko
um misskilning væri að ræð
Árni hafði þá ítrekað haldið
„Í fyrra tilvikinu, sem v
keypti Árni vörur fyrir um
und krónur í nafni Þjóðlei
Nokkru síðar fór hann fram
bakfærðum kröfuna, þar
væri komin nauðsynleg fj
og af þeim sökum gæti h
staðið við þetta. Þar sem va
þegar verið afhent settum
una inn á sk. verslunarstj
ing hjá okkur, eða biðreikn
er notaður í þeim tilvikum þ
ir verða á fjárveitingum. Þ
átt sér stað í mörgum tilfe
opinbera aðila og einnig ei
tæki,“ segir Jón Helgi.
Jón Helgi segir í fréttin
ráðamenn BYKO hafi ekker
frekar í málinu fyrr en
mánuði, að Árni hafi aftur s
nú fyrir ríflega eina milljón
keypt á reikning Þjóðleikh
endurmerkt á vörubílspalli
manns ásjáandi og látið se
til sín til Eyja.
„Þar gekk hann alveg
mínu fólki og þannig varð þ
til. Eftir sem áður sat útte
maí áfram inni á biðreiknin
Þjóðleikhússins. Þegar Á
síðan var við að farið var
sér af þessu máli kom hann
og borgaði báða reikningan
því við að um misskilning h
að ræða.“
Árni ítrekaði í viðtali við
blaðið að um misskilning h
að ræða. Byggingarefnið h
átt að fara inn á reikning
arnefndarinnar og hefði rau
ei gert það vegna þess að h
leiðrétt mistökin þegar ha
uppgötvað þau. Árni við
hins vegar í samtali við
hann hefði tekið óðalsstein
byggingarnefndin borgaði
eigin þágu. „Ég vil segja alm
þessa steina að auðvitað var
staðið að málum af minni
verð að biðjast afsökunar
Ósannin
að loku
Fréttir um dúk, sem Árni Johnsen ke
leikhússins, urðu á endanum til þess
Morgunblaðið flutti tvívegis fréttir um
ar upplýsingar um hvernig í málum l
ings blaðsins og annarra fjölmiðla um
kemur að ítrekað er haldið röngu
Árni sagði
húsvörðinn
vita um dúkinn