Morgunblaðið - 20.07.2001, Síða 33

Morgunblaðið - 20.07.2001, Síða 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 33 ✝ María Pálsdóttirfæddist 20. maí 1924 í Reykjavík. Hún lést í Landspít- alanum við Hring- braut 11. júlí síðast- liðinn. Foreldrar Maríu voru Páll Jón- asson, símvirki hjá Pósti og síma, f. 4. febrúar 1902, d. 1993, og Lára Ágústsdóttir miðill, f. 15. apríl 1899, d. 6. febrúar 1971. Alsyst- ir Maríu var Unnur Pálsdóttir. Hálf- systkin, sammæðra, eru Hulda Magnúsdóttir, Sigurbjarni Gunnar Þorbergsson, Ingibjörg Þorbergs- dóttir og Þorbergur Þorbergsson. Hálfsystkin samfeðra eru Jóhanna Pálsdóttir og Óskar Pálsson. Hinn 5. október 1956 giftist María Benedikt Helgasyni, f. 17. Daníel Örn, f. 18. ágúst 1995, og Anja María, f. 14. september 1997. 4) Unnur María Benediktsdóttir, f. 22. desember 1958. Börn Unnar og fyrrverandi sambýlismanns hennar, Péturs Bouranel, eru Róbert Arnar, f. 2. júní 1981, og Lára Michelle, f. 16. september 1987. Núverandi sam- býlismaður Unnar er Jan Marijan, f. 10. júlí 1949. 5) Brynja Benedikts- dóttir, f. 1. maí 1961, maki Þórarinn Sæmundsson, f. 9. nóvember 1951. Börn þeirra eru Birgitta Ben, f. 21. maí 1984, og Benedikt, f. 15. maí 1990. Áður en María og Benedikt gengu í hjónaband átti Benedikt Báru, f. 2. ágúst 1946. Maki Báru var Guðbjörn Hjartarson, f. 12. júlí 1944, d. 2000. Dóttir Báru og Guð- björns er Guðrún Guðbjörnsdóttir, f. 15. nóvember 1970. María Pálsdóttir var einn af fyrstu kvenþjónum á Íslandi og starfaði við framreiðslu í Reykjavík á sínum yngri árum, m.a. á Hótel Borg og í Vetrargarðinum (Tívolí). Síðar starfaði hún á City Hótel og í Nýja Kökuhúsinu við Austurvöll. Útför Maríu fer fram frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. júlí 1923, d. 26. janúar 1979. Benedikt var lengst af til sjós á fiskiskipum og frakt- skipum en síðar hafn- arvörður í Reykjavík. Börn Maríu eru: 1) Daggeir Heimir Páls- son, f. 2. janúar 1944. 2) Ragnheiður Lára Ólafsdóttir, f. 8. júlí 1948, maki Jan Niel- sen. Dóttir Ragnheið- ar er Heidi María Christensen Pajusalo, f. 12. október 1973, maki Johnny Chris- tensen. Sonur Heidi og Johnny er Silas, f. 15. júní 2001. 3) Helgi Benediktsson, f. 6. maí 1956, sam- býliskona Sólveig Hafsteinsdóttir. Börn Sólveigar eru Sverrir Gunn- arsson, f. 2. nóvember 1981, og Rakel Gunnarsdóttir, f. 24. mars 1986. Börn Helga og Sólveigar eru Elsku María mín. Mig langar til að skrifa fáein kveðjuorð til þín. Ég kom inn í fjölskyldu þína fyrir fimm árum þegar ég kynntist honum Helga þínum. Þú tókst mér og börn- unum mínum afar vel frá fyrsta degi og það var eins og ég hefði þekkt þig alla tíð. Sérstaklega er mér minn- isstætt hve þú varst glöð þegar Anja María kom í heiminn – þú heimsóttir okkur á sjúkrahúsið og augljóst var hve stolt þú varst af nýja barna- barninu. Hún Anja María hefur líka svo margt frá þér; hún vill ávallt vera fín eins og María amma. Eftirminni- legt er hve þið voruð einstakar sam- an og víst er að Anja María á ávallt eftir að minna mig á þig. Ég vil þakka þér allar góðu sam- verustundirnar og er þakklát fyrir að fá að kynnast þér. Þú varst ávallt svo kát og hress enda var upplífg- andi og ógleymanlegt að umgangast þig. Minningin um þig mun ávallt lifa í huga mér. Sólveig Hafsteinsdóttir. Amma mín, mikið á ég eftir að sakna þín og ég vona að þú hafir það gott hjá guði. Og fer með bænina sem þú kennd- ir mér. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.)Þín fallegasta Anja María. Elsku María, takk fyrir sam- veruna. Líði þér vel hjá Guði. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér (Hallgrímur Pétursson.) Þín Rakel. Tímarnir líða sem hverfandi hvel, hugurinn reikar til komandi tíða. Enginn má vita, hvað vor kann að bíða, vermandi sól eða bitrasta él. Maður fæðist við bros eða böl, byltist með óðfluga tímanna straumi, vaknar til sorgar og svæfist í glaumi, svifinn á braut eftir skammvinna dvöl. Gleðin er léttfleyg, og lánið er valt. Lífið er spurning, sem enginn má svara. Vinirnir koma og kynnast og fara, kvaðning til brottfarar lífið er allt. Liðin að sinni er vor samverustund, síðustu kveðjur með andblænum líða. Velkomin aftur, er sjáumst við síðar, sólnanna drottinn oss blessi þann fund. (Freysteinn Gunnarsson.) Börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstand- endur, Guð gefi ykkur öllum styrk í þessari miklu sorg. Ykkar frænkur, Ólöf, Ásdís Magnea og Aldís Ósk. Ég sendi ástar- og saknaðarkveðj- ur til þín, elsku amma. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson.) Þinn Daníel Örn. MARÍA PÁLSDÓTTIR ✝ María Jónsdótt-ir, Efralandi í Grindavík, fæddist 1. september 1902 á Lýtingsstöðum í Holtum í Rangár- vallarsýslu. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Víðihlíð í Grindavík 12. júlí síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Jón Þórðar- son bóndi og Sig- urleif Sigurðardótt- ir húsfreyja. Börn þeirra voru sex sem nú eru öll látin. Árið 1935 giftist María Jóni Jónssyni frá Einlandi í Grindavík, f. 11. desember 1906, d. 4. febrúar 1958. Börn þeirra eru: 1) Guðbjörg, maki Samúel Alfreðs- son. Þau eiga tvær dætur Maríu Jónu og Elínu Þuríði. 2) Sigurjón, maki Sigríður Ágústsdóttir. Þau eiga eina dóttur Ásdísi, maki Reim- ar S. Ásgeirsson. Útför Maríu fer fram frá Grinda- víkurkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Hvíl þú í friði í ljósinu bjarta. Ég kveð þig að sinni af öllu mínu hjarta. (M.Jak.) Þín María Jóna. Elsku amma. Er ég rita þessi orð hugsa ég til þín með söknuði og hlýju, en gleðst jafnframt yfir að nú ertu komin á góðan stað þar sem þú færð að njóta þín á ný. Ég minnist margra góðra stunda sem við átt- um saman. Gönguferðir með prik upp í loftið að skoða kríueggin, flatkökubakstur með þér og Ingu í Heimalandi, kvöldin sem þú komst og breiddir yfir mig sængina og kenndir mér alltaf fleiri og fleiri bænir. Ég átti alltaf vísan stað hjá þér og gat fengið þéttingsfast knús hjá þér þegar ég þarfnaðist. Þú munt alltaf eiga stóran stað í hjarta mínu. Þín Elín Þuríður. Kveð ég hér elskulegu ömmu mína með söknuði. Á ég mínar góðu og ljúfu minningar um hana sem ég ávallt mun varðveita í hjarta mínu. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Takk fyrir allt, elsku amma, hvíl í friði. Þín Ásdís. MARÍA JÓNSDÓTTIR                                     !"#  # $ %     &    '   "(#  # !(#))#   ! "# $   %# & " !' (' %)'  * #    %)'  #+# %)'        # # '$ & *   +   %,-%  .    / 01 0  !2 " +# '  3 !#  &  4 # 5     !,#   +      -     '   "(#  # !.#.)# / +    '%  '     +       0        '    %     %   '  "'  $ % '$ 1 *    .% .6,%.   '          2 +   !3#  #   %      '!2 +  78 +  #* + $ 1 *           %,9 -% :  ;   0#+ <=> '? & 0+            '   !4#  # 5    % 6  +  %  7   +      # (' 0' ? '@ # 0' ? % A$ 0' ?   0' ?  " ! # & 0' ? - ' 'B   0' ? . #       $ 2           ( % "%,, 3-    &    6  + +   !3#    "  5  "$ 5  "   $ "  (  ' "       $ /      6 %,-%     !8#  # 9  %     +  :     ".#  # !.#.)# /    '  '    +       ;         +         %   # # $ Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disk- lingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á netfang þess (minning@mbl.is) — vinsamlegast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við með- allínubil og hæfilega línulengd – eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnar- nöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.