Morgunblaðið - 20.07.2001, Page 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. JÚLÍ 2001 41
®
UM HELGINA verður ýmislegt í
boði fyrir gesti þjóðgarðsins á Þing-
völlum. Á morgun, laugardag kl. 13,
verður gengið í Skógarkot og fjallað
um daglegt líf Íslendinga á nítjándu
öld.
Klukkan 13 verður dagskrá fyrir
börn í Hvannagjá norðan við þjón-
ustumiðstöðina á Leirum. Á sunnu-
dag verður guðsþjónusta í Þingvalla-
kirkju þar sem sr. Þórey Guðmunds-
dóttir messar og Þorvaldur
Halldórsson leiðir söng. Að venju
verður þinghelgarganga að lokinni
messu þar sem farið verður um þing-
staðinn forna og saga þings og þjóð-
ar reifuð. Þinghelgargangan hefst
kl. 15 við kirkjuna.
Gönguferðir og
barnadagskrá
á Þingvöllum
ÞÁTTTAKENDUR í Barnlek
2001, barna- og unglingamóti
þjóðdansara, munu sýna þjóð-
dansa í Árbæjarsafni laugar-
daginn 21. júlí kl. 15.30.
Daginn eftir, sunnudaginn 22.
júlí, verður túnið við Árbæ sleg-
ið með orfi og ljá á milli kl. 14-17,
ef veður leyfir. Þá verður rakað,
rifjað, tekið saman og bundið í
bagga. Gestir eru hvattir til að
taka þátt í heyskapnum.
Einnig verður hefðbundin
dagskrá, gullsmiður smíðar og
sýnir skart í húsinu Suðurgötu
7. Í Árbænum verða bakaðar
lummur og á baðstofulofti verð-
ur roðskógerð og prjónaskapur.
Um klukkan fimm verður kýrin
Skjalda handmjólkuð. Harmón-
íkan verður þanin við Árbæ og
Dillonshús, en þar er boðið upp
á veitingar.
Heyannir og
þjóðdansar í
Árbæjarsafni
LAUGARDAGINN 21. júlí er dags-
ferð á Skarðsheiði á vegum Ferða-
félags Íslands. Þetta er um 5-7 klst.
ferð og hæðaraukning er um 960 m.
Mikið útsýni ef veður er gott. Far-
arstjóri verður Jónas Haraldsson.
Ferðin kostar 2.400 fyrir félags-
menn en 2.700 til annarra. Brottför
er kl. 8 frá BSÍ og komið við í Mörk-
inni 6.
Gengið á
Skarðsheiði
LAUGARDAGINN 21. júlí kl. 10
verður kynning á nokkrum þekju-
plöntum í Grasagarði Reykjavíkur.
Margar fjölærar jurtir en einnig
skriðulir runnar henta vel sem
þekjuplöntur, en allar þekjuplöntur
hlífa vel jarðvegi og halda burtu ein-
æru illgresi.
Þekjuplöntur
kynntar í
Grasagarðinum
SKAGADAGURINN er nú haldinn í
fyrsta sinn á morgun, laugardag, en
stefnt er því að gera hann að árleg-
um viðburði um þetta leyti árs. Sam-
tök verslunar og þjónustu á Akra-
nesi, Átak Akraness og Akranes-
kaupstaður standa að baki þessum
degi í samvinnu við Bylgjuna.
Strax kl. 10 um morguninn leiðir
Jón Pétursson þá sem vilja ganga
með honum á Háahnjúk. Lagt verð-
ur upp frá vatnsbólinu við rætur
Akrafjalls.
Ókeypis verður í Jaðarsbakkalaug
allan laugardaginn og Golfklúbbur-
inn Leynir býður 50% afslátt af vall-
argjöldum (2 fyrir 1) frá kl. 15-19 á
laugardeginum og allan sunnudag-
inn.
Skagadagur
á Akranesi
á morgun
Í TILEFNI af því að 71 ár er liðið
frá stofnun Sólheima í Grímsnesi
var vígð ný höggmynd í högg-
myndagarðinum þar. Trygginga-
miðstöðin hf. ákvað að færa Sól-
heimum að gjöf höggmyndina
Sellóleikari eftir Gerði Helgadótt-
ur. Höggmyndin er sú ellefta sem
prýðir höggmyndagarð Sólheima
en þar er yfirlit yfir verk brautryðj-
enda íslenskrar höggmyndalistar
frá árinu 1900.
Gerður fæddist 1928 og hóf nám í
Handíðaskólanum árið 1945 og
fékk tilsögn í steinhöggi hjá Sig-
urjóni Ólafssyni. Hún stundaði
einnig nám í steinhöggi í Flórens og
í París.
Íbúar Sólheima kunna forsvars-
mönnum Tryggingamiðstöðv-
arinnar hf. bestu þakkir fyrir hlý-
hug og velvild í garð Sólheima.
Höggmynd Gerðar mun án efa
skapa fagurt og menningarlegt um-
hverfi í hjarta Sólheimabyggðar
sem íbúar og gestir geta notið allt
árið. Það er von íbúa að áfram
verði hægt að fjölga höggmyndum
eftir íslenska listamenn í nánustu
framtíð.
Morgunblaðið/Sigurður
Gunnar Felixson, forstjóri TM, og Hilda Guðmundsdóttir.
Sellóleikari í högg-
myndagarði Sólheima
MIÐBÆJAR-hársnyrtistofan, sem
nú er til húsa við Tryggvagötu í
Reykjavík, fagnar um þessar mundir
70 ára afmæli sínu. Stofuna stofnaði
Runólfur Eiríksson 1. ágúst 1931 og
hét hún fyrst Rakarastofa Runólfs
Eiríkssonar og var til húsa í Lækj-
argötu 2.
Sonur Runólfs, Sigurður, tók við
rekstrinum árið 1956 en þá flutti
stofan yfir í Hafnarstræti 8. Nú hef-
ur þriðja kynslóð fjölskyldunnar tek-
ið við, börn Sigurðar, þau Ágústa og
Vilhjálmur Reynir. Tóku þau við
rekstrinum 1997 en frá árinu 1986
hefur stofan verið til húsa í Tryggva-
götu 24. Þau segja allstóran hóp við-
skiptavina hafa haldið tryggð við
stofuna um árabil og einn viðskipta-
vinur sem hóf að venja komur sínar á
fyrsta ári stofunnar kemur enn í
klippingu, orðinn háaldraður.
Í tilefni afmælisins verður við-
skiptavinum og velunnurum stof-
unnar boðið að líta inn síðdegis næst-
komandi laugardag, milli kl. 16 og
18, en þá verður opið hús og boðið
upp á veitingar.
Opið hús hjá 70 ára
rakarastofu í Reykjavík
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦