Morgunblaðið - 01.08.2001, Qupperneq 2
FRÉTTIR
2 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isTeitur Þórðarson með stóryrði
í Noregi/B4
Ólafur Stefánsson með yfirburða-
kosningu í Þýskalandi/B2
4 SÍÐUR
Sérblöð í dag
SKATTSTJÓRAR landsins lögðu í
gær fram álagningarskrár og sam-
kvæmt þeim er gjaldanda á Sel-
tjarnarnesi, Eiríki Sigurðssyni
kaupmanni, gert að greiða hæst op-
inber gjöld, eða 93,2 milljónir króna.
Í öðru sæti er Benóný Þórhallsson,
vélstjóri í Grindavík, en gjöld hans
nema alls 53 milljónum króna.
Þriðji gjaldhæsti einstaklingurinn
yfir landið er í Reykjavík, Jónína S.
Gísladóttir, ekkja Pálma Jónssonar
í Hagkaup, en samanlögð gjöld
hennar nema 37,4 milljónum króna.
Í fjórða sæti er Sólveig Edda
Bjarnadóttir í Hafnarfirði sem
greiða á 29,6 milljónir og í því
fimmta Kristjana Ólafsdóttir á Ísa-
firði en henni ber að greiða 22, 6
milljónir króna.
Alls eru gjöld Reykvíkinga rúm-
lega 42 milljarðar að frádregnum
barna- og vaxtabótum, 28,8 millj-
arðar í Reykjanesumdæmi og rúm-
lega 7 milljarðar í Norðurlandsum-
dæmi eystra.
Rúmlega 221 þúsund
framteljendur
Alls eru rúmlega 221 þúsund
framteljendur á grunnskrá allra
skattumdæma landsins. Flestir eru
í Reykjavík eða liðlega 90 þúsund,
rúmlega 60 þúsund í Reykjanesum-
dæmi og rúmlega 20 þúsund fram-
teljendur eru í umdæmi Norður-
lands eystra. Fæstir eru í
Vestmannaeyjum eða 3.374 og á
Vestfjörðum eru þeir 6.226.
Álagningarskrár liggja frammi í
skattumdæmum til þriðjudagsins
14. ágúst.
Á að greiða 93
milljónir króna
Hæstu/6
LISTAMAÐURINN Erró er á
góðum batavegi eftir vélhjóla-
slys sem hann lenti í á eyjunni
Formentera, sem er skammt frá
Ibiza á Spáni,
hinn 19. júlí
síðastliðinn, á
69. afmælis-
degi hans.
Að sögn
Gunnars Kvar-
an, náins vinar
Errós, sem
hefur verið í
sambandi við
fjölskyldu Er-
rós síðustu daga, er reiknað með
að Erró útskrifist í dag eða
næstu daga af sjúkrahúsi á Ibiza
en þar lá hann þungt haldinn á
gjörgæsludeild fyrstu dagana
eftir slysið. Listamaðurinn var
þó aldrei talinn í lífshættu, að
sögn Gunnars.
Erró var fluttur með sjúkra-
þyrlu frá Formentera til Ibiza
en hann axlarbrotnaði, rifbeins-
brotnaði og hlaut innvortis
blæðingar vegna rifja sem
stungust inn í hann. Aldrei
missti hann meðvitund og slapp
við höfuðáverka. Gunnar sagði
lækna Errós halda því fram að
hann nái sér að fullu en það geti
tekið nokkrar vikur.
Tildrög slyssins eru þau að
Erró var að koma frá pósthús-
inu á Formentera á litlu vélhjóli
ásamt Wilai, konu sinni, þegar
hann missti stjórn á því. Lenti
hann illa undir hjólinu en Wilai
slapp við meiðsli.
Erró á bata-
vegi eftir
vélhjólaslys
HÆST opinber gjöld í Reykjavík
greiðir Jónína S. Gísladóttir, Miðleiti
5, eða 37,4 milljónir króna. Í öðru
sæti er Guðmundur T. Sigurðsson,
Funafold 30, og eru samanlögð gjöld
hans 20,3 milljónir króna. Alls greiða
19 manns í Reykjavík meira en 11
milljónir í opinber gjöld. Álagning-
arskrár liggja frammi til 14. ágúst.
Alls eru 89.293 gjaldendur í
Reykjavík auk þess sem opinber
gjöld eru lögð á 1.314 börn. Börnin
greiða samtals tæplega 12,7 milljónir
króna en heildargjöld fullorðinna
eru 47,6 milljarðar króna. Saman-
lagður tekjuskattur nemur 22,1
milljarði króna, útsvar er 20,2 millj-
ónir og eignarskattur er 1,7 milljarð-
ar króna. Þá greiða rúmlega 32 þús-
und gjaldendur í Reykjavík alls
tæplega 1,6 milljarða króna í fjár-
magnstekjuskatt.
Sé litið á hina hlið álagningar kem-
ur í ljós að rúmlega 21 þúsund
manns í Reykjavík fá 1,9 milljarða í
vaxtabætur og tæplega 20 þúsund fá
1,7 milljarða í barnabætur. Þá fá
rúmlega 30 þúsund gjaldendur sam-
anlagðan skattaafslátt til greiðslu út-
svars að upphæð 1,5 milljarða.
Jónína S.
Gísladóttir
greiðir 37,4
milljónir
!
"#
$%& $ ' () *
+
,)!- .$
/* 0 *
%
"*
12 %#-
32 4%% * 35%/
*6!-
$ 7*6%/ %
82 * 2 *!-
Reykjavík
ÁTTA félagar úr Sundfélagi Akra-
ness syntu í gær Faxaflóasund en
sundið hefur verið árlegur við-
burður hjá félaginu í meira en ára-
tug. Þau sem þreyttu sundið í gær
eru á aldrinum 15 til 20 ára og var
tilgangur sundsins meðal annars
sá að safna fé með áheitum, sem
notað verður í æfinga- og keppn-
isferðir fyrir meðlimi sundfélags-
ins sem eru tæplega 200 talsins.
Synt var frá Reykjavíkurhöfn að
Langasandi á Akranesi og tók
sundið um fimm og hálfan tíma.
Skiptist sundfólkið á að synda og
synti hver í 20 til 30 mínútur í einu.
Átta syntu
frá Reykjavík
til Akraness
Morgunblaðið/Billi
ÚRKSKURÐARNEFND um upp-
lýsingamál hefur kveðið á um að
Flugmálastjórn sé skylt að veita
Friðriki Þór Guðmundssyni aðgang
að bréfum og gögnum sem stofnunin
sendi rannsóknarnefnd flugslysa
varðandi rannsókn á flugslysinu sem
varð í Skerjafirði 7. ágúst árið 2000.
Flugmálastjórn hafði synjað Friðriki
Þór, sem er faðir eins þeirra sem lét-
ust af völdum slyssins, um að láta
honum í té athugasemdir stofnunar-
innar og þá synjun kærði Friðrik
Þór 4. júlí síðastliðinn.
Rannsóknarnefnd er ekki skylt
að afhenda framburð vitna
Í niðurstöðu úrskurðarnefndar-
innar segir að í lögum séu engin sér-
stök fyrirmæli um þagnarskyldu
sem takmarki aðgang almennings
eða málsaðila að gögnum í vörslu
Flugmálastjórnar eða rannsóknar-
nefndar flugslysa, ef frá er talið
ákvæðið í 14. grein laga um rann-
sókn flugslysa. Þar segir að verði
flugslys tilefni opinberrar rannsókn-
ar skuli nefndin ekki afhenda lög-
reglu gögn sem geymi framburð að-
ila og vitna fyrir nefndinni.
Í niðurstöðu úrskurðarnefndar-
innar segir enn fremur að þótt
ákvæðið sé einskorðað við lögreglu,
eftir að hún hefur hafið rannsókn,
verði að telja að það hafi almennt
gildi. Bent er á að umrætt ákvæði
vísi eingöngu til gagna sem geymi
framburð aðila og vitna fyrir nefnd-
inni en að mati úrskurðarnefndar-
innar er talið eðlilegt að skýra
ákvæðið þannig að það geti jafn-
framt tekið til sérfræðiskýrslna sem
teknar hafi verið saman fyrir nefnd-
ina. Þó hljóti það að vera skilyrði fyr-
ir því að slíkum skýrslum sé haldið
leyndum að sömu sjónarmið eigi við
um þær og framburð aðila og vitna
fyrir rannsóknarnefndinni.
Um lögbundna umsögn
stjórnvalds að ræða
Það álitaefni sem úrskurðarnefnd-
in taldi þurfa að leysa í þessu máli
var hvort umrædd sjónarmið ættu
við um þær athugasemdir og ábend-
ingar sem Flugmálastjórn gerði við
drög að skýrslu rannsóknarnefndar
flugslysa. Í því sambandi var talið
skipta máli að ekki var um að ræða
álit óháðrar rannsóknarstofnunar,
heldur lögbundna umsögn stjórn-
valds með sérfræðiþekkingu á sviði
flugmála. Að mati úrskurðarnefndar
verður slík umsögn ekki lögð að
jöfnu við óháð sérfræðiálit og því síð-
ur framburð aðila og vitna fyrir
rannsóknarnefndinni, „enda verður
ekki séð að það hefði skaðleg áhrif á
rannsókn flugslysa í framtíðinni þótt
þær athugasemdur og ábendingar,
sem hér eru til umfjöllunar, verði
gerðar opinberar“.
Í niðurstöðunni segir einnig að af
almennum athugasemdum með
frumvarpi til upplýsingalaga megi
ráða að markmiðið með lögunum sé
að tryggja að almenningur og ekki
síður málsaðilar eigi þess kost að
fylgjast með því sem stjórnvöld að-
hafast, meðal annars til að draga úr
tortryggni í þeirra garð. Með skír-
skotun til þess, meðal annars, er það
niðurstaða úrskurðarnefndarinnar
að kærandi eigi rétt á því samkvæmt
1. málsgrein 9. greinar upplýsinga-
laga að fá aðgang að hinum umbeðnu
gögnum í vörslu Flugmálastjórnar,
enda verði ekki talið að undantekn-
ingarákvæði 2. og 3. málsgreinar eigi
við í málinu.
Niðurstaða vegna kæru varðandi rannsókn á flugslysinu í Skerjafirði
Flugmálastjórn
skylt að veita að-
gang að gögnum
Erró
LÖGREGLAN í Vestmannaeyjum
handtók í fyrrinótt fjögur ungmenni
við húsleit í tveimur húsum í bænum.
Við húsleit fundust 19 e-töflur auk lít-
ilræðis af hassi og amfetamíni. Einnig
fundust vopn, þ.m.t. hnífar og loftriff-
ill, auk áhalda til neyslu fíkniefna.
Þrjú ungmennanna voru enn í haldi
lögreglu í gær en var sleppt eftir
skýrslutöku seint í gærkvöld. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglunni í
Vestmannaeyjum telst málið upplýst.
Fjórir hand-
teknir vegna
fíkniefnamáls