Morgunblaðið - 01.08.2001, Page 4
FRÉTTIR
4 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ÁRNI Johnsen alþingismaður keypti
nokkra glugga og fjórar útidyra-
hurðir í maí sl. hjá Trésmíðaverk-
stæði Sigurjóns Jónssonar á Stokks-
eyri fyrir rúmar 400 þúsund krónur
út á beiðni frá Ístaki. Sigurjón sagði í
samtali við Morgunblaðið að Árni
hefði pantað efnið í apríl og sótt það
sjálfur í byrjun maí með beiðni frá Ís-
taki undir höndum. Ístak greiddi Sig-
urjóni reikning upp á 418 þúsund
krónur nokkrum dögum síðar og Páll
Sigurjónsson, forstjóri Ístaks, stað-
festi við Morgunblaðið að reikning-
urinn hefði verið sendur áfram til
Framkvæmdasýslu ríkisins og feng-
ist greiddur vegna framkvæmda við
Þjóðleikhúsið. Samkvæmt heimild-
um blaðsins eru þessi viðskipti, og
fleiri, meðal þeirra sem Ríkisendur-
skoðun er að kanna varðandi um-
sýslustörf Árna sem formanns bygg-
inganefndar Þjóðleikhússins.
Sigurjón sagði að þegar mál Árna
hefðu komið fyrst upp hefðu vaknað
hjá honum grunsemdir um að ekki
hefði verið allt með felldu með hurð-
irnar og gluggana. Honum hefði þótt
viðskiptin upphaflega eðlileg þó að
teikningar gæfu vart í skyn að efnið
yrði notað í Þjóðleikhúsinu. Árni
hefði sagt að hann ætti eitthvað inni
hjá Ístaki og myndi láta fyrirtækið
greiða reikninginn.
Forstjóri Ístaks segir Árna hafa
misnotað fjórar beiðnir
„Það er ljóst að við höfum verið
misnotaðir,“ sagði Páll Sigurjónsson,
forstjóri Ístaks, þegar Morgunblaðið
ræddi við hann í gær vegna þessa
máls. Hann staðfesti að þessi beiðni
hefði fengist greidd hjá Fram-
kvæmdasýslunni sem og aðrar sem
tengust framkvæmdum í Þjóðleik-
húsinu.
Páll sagði að beiðnin væri ein af
fjórum sem vitað væri að Árni hefði
fengið frá Ístaki vegna framkvæmda
við Þjóðleikhúsið. Páll vildi ekki upp-
lýsa um hvaða beiðnir væri að ræða.
„Ég get staðfest að það eru fleiri en
ein beiðni sem hafa verið misnotaðar
frá okkur. Þetta eru beiðnir sem við
vorum beðnir að gefa út fyrir Þjóð-
leikhúsið. Þegar við erum beðnir um
það þá verðum við við því. Síðan
gengur málið sinn gang, varan er af-
hent, reikningurinn kemur til okkar
og við greiðum hann. Síðan er hann
sendur áfram. Annars er málið hjá
Ríkisendurskoðun og við höfum sent
henni alla okkar pappíra,“ sagði Páll.
– Þið vitið ekki hvers eðlis þessir
reikningar voru?
„Nei, okkur var ekki kunnugt um
að það væri verið að misnota okkur.
Þá hefðum við væntanlega ekki látið
misnota okkur.“
– Er þetta mál ekki litið alvarleg-
um augum innan fyrirtækisins?
„Að sjálfsögðu, en ég tek það fram
enn og aftur að enginn innan fyrir-
tækisins hefur gert neitt rangt, ekki
nokkur maður.“
– Þið hafið gengið úr skugga um
það sérstaklega?
„Já, enginn hefur gert neitt af
sér,“ sagði Páll.
Í sundurliðuðu yfirliti frá Fram-
kvæmdasýslunni, sem sent var
Morgunblaðinu 16. júlí, yfir fram-
kvæmdir ársins við Þjóðleikhúsið
kemur fram að Ístaki hafi á árinu
verið greiddar 12 milljónir króna.
Þar af voru þrjár greiðslur inntar af
hendi 9. júlí sl. vegna frágangs í kjall-
ara, eins og það er orðað í yfirlitinu.
Tvær greiðslur eru upp á 2,9 millj-
ónir kr. hvor og ein upp á 4,6 millj-
ónir. 30. mars sl. fékk Ístak greiddar
1,5 milljónir fyrir „ýmsa viðhalds-
vinnu“. Þegar þessi verkefni voru
borin undir Pál sagðist hann ekki
kunna á þeim skil og vísaði aftur til
rannsóknar Ríkisendurskoðunar.
Árni Johnsen
tjáir sig ekki
Þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við Árna Johnsen vegna þessa
máls í gær vildi hann ekki tjá sig á
meðan hans störf fyrir Þjóðleikhúsið
væru til opinberrar rannsóknar.
Óskar Valdimarsson, forstjóri
Framkvæmdasýslunnar, vildi hvorki
játa því né neita að reikningur Ístaks
hefði verið greiddur, þegar rætt var
við hann í gær. Hið sama var að segja
um ríkisendurskoðanda, hann vildi
ekki tjá sig um mál Árna á þessu
stigi.
Guðrún Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Þjóðleikhússins, sagði
við Morgunblaðið að hvorki hún né
Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri
hefðu vitað af þessum viðskiptum
Árna en ekki náðist í Stefán.
Forstjóri Ístaks um glugga- og hurðakaup Árna Johnsen út á beiðni fyrirtækisins
„Ljóst að við höfum
verið misnotaðir“
FRÁ síðustu áramótum hafa rekstr-
argjöld á Morgunblaðinu vaxið hrað-
ar en rekstrartekjurnar og því hefur
verið ráðist í aðhalds- og hagræðing-
araðgerðir að sögn Hallgríms Geirs-
sonar, framkvæmdastjóra Árvakurs,
útgáfufélags Morgunblaðsins. Þær
hafa m.a. í för með sér ákveðna fækk-
un starfsfólks. Hallgrímur segir að
fyrst og fremst verði reynt að ná sett-
um markmiðum með því að ráða ekki í
stöður sem losna, en óhjákvæmilega
komi einnig til einhverra beinna upp-
sagna.
„Í lok síðasta árs og í upphafi þessa
höfum við eins og önnur fyrirtæki
orðið vör við samdrátt,“ sagði Hall-
grímur. „Kostnaður vegna kjara-
samninga, óheppileg gengisþróun og
meðfylgjandi verðbólga eru í aðalat-
riðum ástæður þessa.“
Hallgrímur segir að þótt áskriftar-
tekjur hafi staðið í stað, eða aukist lít-
illega, hafi auglýsingatekjur dregist
saman frá áramótum. „Þetta endur-
speglar almennan samdrátt á auglýs-
ingamarkaði eins og sést af fréttum af
öðrum fjölmiðlum og auglýsingafyr-
irtækjum,“ sagði Hallgrímur.
„Þótt við höfum í upphafi þessarar
þróunar brugðist við með almennum
aðhaldsaðgerðum var fljótt ljóst að
ganga yrði lengra en við höfðum í
upphafi vonað,“ segir Hallgrímur.
Hann segir að ástæðan sé ekki síst sú
að launakostnaður Morgunblaðsins
sé óvenjulega hátt hlutfall af heildar-
útgjöldum.
„Af því leiðir að til þess að ná nauð-
synlegustu markmiðum um niður-
skurð kostnaðar er óhjákvæmileg
fækkun starfsfólks sem mun koma
niður á flestum deildum útgáfufélags-
ins. Fyrst og fremst mun verða reynt
að ná þessum markmiðum með því að
ráða ekki í stöður sem losna, en fyr-
irsjáanlegt er að ekki verður komist
hjá einhverjum beinum uppsögnum,“
sagði Hallgrímur Geirsson, fram-
kvæmdastjóri Árvakurs.
Hallgrímur Geirsson,
framkvæmdastjóri Árvakurs
Ráðist í
hagræðingu VERULEGAR endurbætur hafa
verið gerðar á WAP-þjónustu
Morgunblaðsins á Netinu, mbl.is.
Sem fyrr er hægt að lesa þar nýj-
ustu fréttir, en nú má einnig nálg-
ast ýmsar fjármálaupplýsingar,
lesa veðurspá, skoða atvinnuaug-
lýsingar af Vinnuvef mbl.is og
grennslast fyrir um komu- og brott-
farartíma flugvéla.
Á endurbættum WAP-vef mbl.is
er hægt að nálgast yfirlit helstu
frétta, innlendra og erlendra og
frétta af tölvum og tækni. Hægt er
að lesa helstu viðskiptafréttir, nálg-
ast upplýsingar um gengi gjald-
miðla, erlendar vísitölur, mestu við-
skipti dagsins og töflu yfir mestu
hækkun og mestu lækkun síðustu
fjórtán daga.
Helstu íþróttafréttir eru aðgengi-
legar og einnig er hægt að skoða
stöðuna í símadeildum karla og
kvenna og 1. og 2. deild karla. Einn-
ig er hægt að sjá stöðu efstu manna
og liða í Formúlu 1 keppninni.
Notendur WAP-vefjarins geta nú
lesið atvinnuauglýsingar á Vinnu-
vef mbl.is, séð þar nýjustu auglýs-
ingar og listað auglýsingar eftir
flokkum.
Undir liðnum Samgöngur er
hægt að nálgast upplýsingar um
komu- og brottfarartíma flugvéla í
millilanda- og innanlandsflugi.
Veðurspá er aðgengileg á WAP-
vefnum, hægt að fá spá fyrir veð-
ursvæði á landinu öllu, stutt spá er-
fyrir morgundaginn og næstu daga
og einnig sérspá fyrir Reykjavík og
nágrenni.
Hægt er að leita að eignum á fast-
eignavef Morgunblaðsins eftir gerð
eigna, stærð, herbergjafjölda, stað-
setningu eða verði.
Einnig má skoða stjörnuspá á
WAP-vefnum og lesa fréttir af
frægu fólki.
Samkvæmt upplýsingum frá
símafyrirtækjunum og helstu sölu-
aðilum eru ríflega tíu þúsund WAP-
símar í notkun hér á landi, og fjölg-
ar óðfluga, því flestir nýir símar
eru með WAP-stuðningi. WAP-
símar eru því nú um 10% af far-
símaeign landsmanna. Flestir
WAP-símanna eru af gerðinni
Nokia 6210, en einnig hefur arftaki
Nokia 3310, 3330, selst mjög vel, að
sögn seljenda. Á vefsetrum síma-
fyrirtækjanna þriggja er að finna
upplýsingar um stillingar á WAP-
símum svo hægt sé að nálgast efni á
WAP-vef mbl.is. Bein slóð á WAP-
þjónustu mbl.is er http://
wap.mbl.is.
Endur-
bættur
WAP-vefur
mbl.is
ÞAÐ er hreint með ólíkindum hversu fjölbreytt lit-
brigði náttúrunnar geta orðið. Það sýndi sig og sannaði
í Eyjafirðinum eitt kvöldið í vikunni, þegar náttúran
skartaði sínu fegursta. Sannarlega eru það forréttindi
að fá tækifæri til að berja þetta sjónarspil augum. Ljós-
myndari var staddur í kvöldstemmningunni í Eyjafirð-
inum og okkur hinum til happs var myndavélin með í
farteskinu.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Kvöldstemmning við Eyjafjörð
Á FUNDI ríkisstjórnarinnar í
gærmorgun voru rædd viðbrögð
við aukinni tíðni sjálfsvíga hér á
landi og samþykkt tillaga um að
leita eftir fjárveitingu á fjárauka-
lögum þessa árs. Jón Kristjáns-
son, heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra, segir að
aukafjárveitingin eigi að fara í að
ráða starfsmann til landlæknis-
embættisins sem sinna muni mál-
um tengdum sjálfsvígum.
Vinna hefjist sem fyrst
„Hann mun koma upp forvarn-
aráætlun gegn sjálfsvígum í hér-
uðunum með þverfaglegum hóp-
um sem veita virka þjónustu. Í því
sambandi er verið að hugsa um
heilbrigðiskerfi, skólakerfi,
félagsmálaþjónustu og kirkjuna
ásamt áhugahópum og fleirum.“
„Þetta er í framhaldi af nefnd
sem vann undir stjórn Högna
Óskarssonar geðlæknis og skilaði
áliti til mín í lok apríl síðastliðins,“
sagði Jón. Hann segir starfið til
komið vegna þess að sjálfsvígum
hafi farið fjölgandi hér á landi og
málum sé nú þannig farið að fleiri
farist á landinu vegna sjálfsvíga
en í umferðarslysum.
„Fjármálaráðuneytið gerir til-
lögu um aukafjárveitingu á fjár-
aukalögum á þessu ári og sækist
ég eftir því svo að koma megi
þessari vinnu strax af stað en ekki
þurfi að bíða eftir fjárlögum
næsta árs til að gera landlækn-
isembættinu kleift að ráða þennan
starfsmann,“ sagði Jón. Hann
bætti við að embættið gæti hafið
undirbúning vegna ráðningarinn-
ar jafnskjótt og fjáraukalögin
hefðu hlotið samþykki þingsins í
haust.
Aukin tíðni sjálfsvíga
Samþykkt að
leita eftir auka-
fjárveitingu
LANDSLIÐ Íslands í hestaíþrótt-
um var kynnt í vikunni og vakti
það athygli hestaáhugamanna að
Sigurbjörn Bárðarson var ekki val-
inn í liðið. Mun það hafa verið í
fyrsta sinn í 24 ár sem hann er
ekki valinn. Sigurbjörn mun þó
keppa með liðinu með titilvörn sem
hann á rétt á að keppa á verð-
launahrossinu Gordon frá Stóru-
Ásgeirsá en Sigurbjörn setti
heimsmet og vann tvo HM-titla á
Gordon á síðasta heimsmeistara-
móti. Eigandi Gordons hafði áður
ákveðið að senda hrossið ekki til
keppni en skipti um skoðun seint í
gærkvöld á síðasta degi skráningar
til keppni. „Það var mikil spenna
og óvissa í kringum þetta mál allt
saman og mér er mjög létt að mál-
ið hafi fengið þessar lyktir og leið-
in á heimsmeistaramótið sé greið,“
segir Sigurbjörn.
Sigurbjörn Bárðarson
keppir með landsliðinu
Kemst
inn með
titilvörn