Morgunblaðið - 01.08.2001, Page 10
FRÉTTIR
10 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Ý
MSAR vísbendingar
hafa komið fram á und-
anförnum vikum um
bjartari horfur og
meira jafnvægi í efna-
hagslífinu. Útflutningstekjur hafa
aukist, krónan verið að styrkjast
upp á síðkastið og ýmislegt bendir
til að hægt hafi á hraða verðbólg-
unnar. Í dag mun Seðlabankinn
kynna nýtt mat á stöðu efnahags-
mála og spá um þróun verðbólg-
unnar.
Á fyrstu fimm mánuðum ársins
hækkaði verð á sjávarafurðum um
16,4% miðað við sama tíma í fyrra
og verð á mjöli og lýsi hækkaði á
sama tíma um 21%, þar af hækkaði
lýsisverð á mörkuðum um 40% á
fyrstu fimm mánuðum ársins sam-
anborið við sama tíma árið 2000. Þá
hafa borist fregnir í sumar af enn
frekari verðhækkunum á fiskimjöli
og lýsi. Verðmæti útfluttra sjávaraf-
urða á tímabilinu janúar–maí nam
46 milljörðum kr., skv. upplýsingum
Ásgeirs Daníelssonar, hagfræðings
hjá Þjóðhagsstofnun.
,,Mín skoðun er að sú gengisað-
lögun, sem nauðsynleg var vegna
viðskiptahallans, hafi enn sem kom-
ið er verið mjög jákvæð. Viðskipta-
hallinn mætti auðvitað vera minni
en það tekur alltaf tíma fyrir breyt-
ingar að hafa áhrif en tvímælalaust
ætti þetta að geta haft þau áhrif að
náð verði svokallaðri mjúkri lend-
ingu,“ segir Ásgeir.
Hagvöxtur drifinn áfram af
útflutningi og fjárfestingu
,,Efnahagslífið hefur að nokkru
leyti skipt um fasa,“ segir Tryggvi
Þór Herbertsson, forstöðumaður
Hagfræðistofnunar HÍ. „Hagvöxt-
urinn á síðasta ári var að miklu leyti
drifinn áfram af neyslu og fjárfest-
ingum. Um mitt síðasta ár hófust
gengisbreytingarnar sem urðu til
þess að innflutningur varð mjög dýr
en útflutningurinn varð hagstæður,
þar sem íslensk útflutningsyfirtæki
fá meira fyrir sinn snúð. Þessi þróun
hefur haldið áfram allt fram á sum-
ar og það hefur leitt til þess að hag-
kerfið hefur söðlað um. Núna er
hagvöxturinn, eins og sjá má af árs-
fjórðungstölum Þjóðhagsstofnunar,
að verulegu leyti drifinn áfram af
útflutningi og fjárfestingu í stað
einkaneyslunnar, eins og áður var.
Afkoma sjávarútvegsfyrirtækjanna
hefur batnað. Grunnurinn er að
verða mun traustari en hann var
fyrir fyrirtækin. Viðskiptahallinn
hefur dregist mjög hratt saman,
kannski hraðar en menn þorðu að
vona. Allt þetta kemur jákvætt út til
langs tíma litið fyrir hagkerfið. Ég
tel því að það sé bjart framundan og
bjartara en menn þorðu að vona fyr-
ir nokkrum mánuðum,“ segir
Tryggvi.
Að mati Tryggva eru því ýmis
hagstæð teikn á lofti í þjóðarbú-
skapnum, olíuverð að lækka og
gengi krónunnar hefur verið að
styrkjast. Útlit sé fyrir enn meira
innflæði gjaldeyris m.a. vegna auk-
inna útflutningstekna af sjávaraf-
urðum og áhrifa af stækkun álvers
Norðuráls á Grundartanga. Þá hafi
uppsjávarveiðar gengið vel að und-
anförnu, þar sem t.d. góð kolmuna-
veiði eigi eftir að hjálpa fyrirtækjum
sem byggjast mikið á uppsjávarteg-
undunum.
El Nino hefur í för með sér
hærra verð fyrir sjávarafurðir
„Það má einnig benda
á að ástæða þessara
hækkana sjávarafurða er
að El Nino [hlýsjávar-
straumurinn] er að fara
af stað og ansjósuveiðin
að bregðast í Suður-Am-
eríku, sem hefur bein áhrif, en þar
er um okkar helstu keppinauta um
fiskimjölið að ræða,“ segir hann.
„Umbreytingin varð mun hraðari
en menn þorðu að vona. Einkaneysl-
an dróst saman og útflutningurinn
jókst. Ég held að við sjáum fram á
bjartari tíð,“ segir Tryggvi.
Margir hafa gagnrýnt hátt vaxta-
stig en Seðlabankinn hefur haldið
stýrivöxtum óbreyttum frá í mars.
Er vaxtamunur við útlönd nú nærri
sögulegu hámarki eða tæp 7 pró-
sentustig, skv. upplýsingum Þjóð-
hagsstofnunar. Spurður um þetta
segir Tryggvi Þór mikilvægt að sjá
hvernig verðbólgan þróast á næst-
unni. ,,Það er líka óhjákvæmilegt að
þegar gengið hættir að falla og fer
að styrkjast þá heldur það í við inn-
flutningsverðlagið, þannig að það
þrýstir ekki á verðhækkanir. Bens-
ínið er að lækka, sem telja má til
tekna í verðbólguútreikningunum.
Verðbólgan ætti að fara að minnka
og nú ættu menn að fara að huga að
því að gaumgæfa vaxtalækkanir
mjög kirfilega til þess að drepa ekki
niður atvinnulífið,“ segir Tryggvi
Þór.
Hægt hefur á fjárfestingum
í verðbréfum erlendis
,,Það kemur okkur ekki mjög á
óvart að krónan hafi jafnað sig,“
segir Almar Guðmundsson, for-
stöðumaður greiningardeildar Ís-
landsbanka. „Hún hefur ekki styrkt
sig að neinu ráði en það hefur þó
verið meiri stöðugleiki í gengisþró-
uninni að undanförnu. Það er í sam-
ræmi við okkar spár,“ segir hann.
Að sögn Almars hefur hægt á
fjárfestingum í verðbréfum erlendis
að undanförnu, sem hefur í för með
sér minni þrýsting á krónuna. Þetta
sé út af fyrir sig jákvætt
en erfitt sé þó að átta sig
á hver þróunin verður á
næstunni.
„Menn sæta lagi í
þessum fjárfestingum
eins og gengur. Þær geta
svo sem aukist aftur og
sett þrýsting á krónuna á nýjan leik
en núna er þetta klárlega að hjálpa
til. Sá samdráttur sem átt hefur sér
stað á innflutningshliðinni er líka at-
hyglisverður,“ segir Almar og bend-
ir einnig á fyrirhugaðar álversfram-
kvæmdir sem muni hafa í för með
sér aukið innstreymi á gjaldeyri ef
af þeim verður.
„Við höfum að undanförnu sagt að
það sé margt í spilunum sem bendir
til að það sé að hægja hratt á. Það
er kannski einna helst að vinnu-
markaðurinn hafi setið eftir. At-
vinnuleysistölurnar hafa borið vott
um að það sé ennþá töluverð þensla
og eftirspurn eftir fólki. Það er svo
spurning hvað gerist þegar stórum
og viðamiklum verkefnum lýkur í
haust,“ segir hann.
Almar segir að sjá megi merki um
mun hægari vöxt á mörgum sviðum
og samdrátt í einhverjum tilvikum.
Fyrirtæki séu þegar farin að draga
saman seglin þótt ástandið sé mis-
jafnt eftir atvinnugreinum.
Aðspurður hvort ástæða sé til
vaxtalækkana, segir Almar ljóst að
Seðlabankinn vilji bíða af sér þá
hrinu verðhækkana sem hafi verið í
gangi að undanförnu og sé ekki
tilbúinn að slaka á klónni fyrr en séð
verður fyrir endann á því. ,,Í því
ljósi höfum við sagt, og þar erum við
beinlínis að túlka slagkraftinn í orð-
um Seðlabankans, að við gerum síð-
ur ráð fyrir að vextir verði lækkaðir
frekar á þessu ári en bankinn lækk-
aði stýrivexti sína um 50 punkta í
lok mars síðastliðins. Það er svo
önnur saga að þörfin á frekari
vaxtalækkun fer að verða mjög brýn
ef hagtölurnar halda áfram að
þróast í þá átt sem verið hefur en
þær bera með sér hraðminnkandi
umsvif í efnahagslífinu. Seðlabank-
inn þarf að vera framsýnn í aðgerð-
um sínum því vaxtatæki hans virkar
með talsvert mikilli töf. Því er að
mínu mati mikilvægt að Seðlabank-
inn fari að huga að vaxtalækkun
fyrr en síðar,“ segir hann.
Engar afgerandi breytingar
Katrín Ólafsdóttir, hagfræðingur
á Þjóðhagsstofnun, segist ekki sjá
neinar afgerandi breytingar í efna-
hagslífinu sem breyti síðustu spá
Þjóðhagsstofnunar frá í júní sl.
Krónan hafi styrkst örlítið meira en
gert hafi verið ráð fyrir þótt ekki sé
um afgerandi frávik frá spá stofn-
unarinnar að ræða. Ennþá sé einnig
töluverður hraði á verðbólgunni,
þótt hún hafi lækkað lítillega í síð-
asta mánuði, eins og gert hafi verið
ráð fyrir. „Við verðum bara að bíða
og sjá hvað gerist á næstu mán-
uðum,“ segir hún.
Skoða lækkun skatta á
fyrirtæki af mikilli alvöru
,,Við sjáum með hverjum mánuð-
inum sem líður að það stefnir í átt
að meira jafnvægi í efnahagslífinu,“
segir Bolli Þór Bollason, skrifstofu-
stjóri efnahagsskrifstofu fjármála-
ráðuneytisins. Hann segir þó
ástæðu til að ætla að efnahagslífið
muni ekki taka við sér fyrr en komið
verður fram á næsta ár.
„Það hefur hægt á eftspurninni
og það kemur fram á tekjuhlið rík-
issjóðs. Það er auðvitað jákvætt að
því leyti að það dregur úr innlendri
eftirspurn og viðskiptahallinn
minnkar. Við sjáum kannski ekki
merki um að það sé einhver við-
snúningur í gangi hvað þetta varðar.
Það sem hefur breyst í forsendun-
um frá því um seinustu áramót er að
gengislækkunin varð miklu meiri en
nokkur gerði ráð fyrir. Þetta hefur
komið fram í minnkandi kaupmætti
sem hefur aftur í för með sér
minnkandi innflutning. Það er mjög
erfitt að meta á þessari stundu
hvort þessi aðlögun er komin fram
að fullu,“ segir Bolli Þór.
Hann segist telja að gengisþró-
unin undanfarnar vikur
sé staðfesting á því að sú
mikla gengislækkun sem
varð fyrr í sumar hafi
verið yfirskot, enda sé
gengið að ganga til baka.
Gengismálin eru þó
helsti óvissuþátturinn í
þeirri þróun sem framundan er, að
mati Bolla.
Hann segir erfitt að meta hver
verði viðbrögð fyrirtækja vegna
versnandi afkomu að undanförnu.
„Mér kæmi ekki á óvart þótt við
ættum eftir að sjá í haust að ýmis
fyrirtæki tækju ákvarðanir um hag-
ræðingu í rekstri, sem myndi jafnvel
koma fram í uppsögnum og heldur
meira atvinnuleysi en verið hefur.
Það hefði bæði þau áhrif að styrkja
atvinnulífið en um leið hafa í för með
sér minnkandi eftirspurn,“ segir
Bolli. Hann segir þetta undirstrika
enn frekar nauðsyn þess að skoðað
verði af mikilli alvöru hvort mögu-
legt sé að lækka skatta á fyrirtæki
til að liðka fyrir þessari aðlögun.
Bolli segist telja að forsendur séu
að skapast fyrir vaxtalækkun á
næstunni. ,,Það blasir við á næstu
mánuðum, þegar þetta verðbólgu-
skot gengur yfir, sem ég hef trú á að
muni gerast. Ef þetta tvennt mun
gerast, að teknar verða ákvarðanir
um skattalækkun á fyrirtækjum og
lækkun vaxta einhvern tíma á næst-
unni, þá bendir allt til þess að á
næsta ári muni efnahagslífið rétta
úr kútnum. Það er alveg ljóst að við
höfum verið að ganga í gegnum
ákveðna erfiðleika vegna þessarar
miklu gengisaðlögunar,“ segir Bolli
Þór.
Ekki keyra hagvöxt meira
upp en þjóðarbúið þolir
,,Ég tel að við séum ekki komin
fyrir horn,“ segir Edda Rós Karls-
dóttir, forstöðumaður greiningar-
deildar Búnaðarbankans. ,,Við höf-
um upplifað gríðarlega gengis-
lækkun, sem er þensluhvetjandi,
ekki síst þegar þensla er fyrir í
efnahagslífinu. Það er mjög jákvætt
fyrir útflutningsgreinarnar, sem
búa við gjörbreytt umhverfi. Þær
hafa átt mjög erfitt og hafa staðið
illa samkeppnislega séð, vegna mik-
illa launahækkana, hárra vaxta og
hás gengis. Nú hefur þetta allt snú-
ist við. Við horfum hins vegar upp á
mjög erfiða aðlögun fyrir aðrar at-
vinnugreinar, þar sem gengislækk-
unin virkar öfugt, sérstaklega fyrir
þær atvinnugreinar sem eru með
miklar skuldir í erlendri mynt, án
þess að hafa tekjur á móti í erlendri
mynt.
Við sjáum líka erfiða aðlögun fyr-
ir hinn almenna neytanda vegna
mikillar verðbólgu, en aðlögunar-
ferlið verður þó fá að halda áfram.
Það gerist þó ekki með því að auka
hagvöxt, heldur með því að hagvöxt-
ur verði hóflegur á næstunni. Það er
ekkert óeðlilegt við tímabundinn
lágan hagvöxt í kjölfar svo mikils
hagvaxtartímabils sem við höfum
haft, heldur er það beinlínis æski-
legt,“ segir Edda Rós.
Hún segir að vissulega hafi krón-
an styrkst að undanförnu en bendir
á að mjög lítil viðskipti búi þar að
baki.
„Í dag [mánudag] hafa t.d. engin
viðskipti verið með krónuna,“ segir
hún.
Víxlverkun launa, verðlags
og gengis hættulegust
,,Það sem er hættulegast í stöð-
unni í dag er víxlverkun launa,
gengis og verðlags. Ég legg mikla
áherslu á að menn skoði þessa hluti í
réttu samhengi. Það er tilgangslaust
að vera hneykslast yfir launahækk-
unum á meðan ennþá er þensla fyrir
hendi. Það þarf að líta á orsökina en
ekki afleiðingarnar. Á meðan eft-
irspurn eftir vinnuafli er meiri en
framboðið þá þurfa laun að hækka.“
„Það ber að líta á minni hagvöxt
núna sem eitthvað jákvætt vegna
þess að við það dregur líka úr hækk-
unum verðlags og launa og úr við-
skiptahalla, þannig að meiri líkur
eru á að við náum jafnvægi í þjóð-
arbúskapnum,“ segir Edda Rós
ennfremur.
Hún segist aðspurð
ekki vera þeirrar skoð-
unar að Seðlabankinn
eigi að lækka vexti við
þessar aðstæður því tölu-
verður skortur sé á krón-
um. Spurningin sé sú
hvort Seðlabankinn ætti ekki að
leita leiða til þess að eyða þessum
krónuskorti.
„Meginmáli skiptir, að ef þessi
víxlverkun fer í gang þá mun gengið
halda áfram að lækka. Það er því
mjög mikilvægt að ná jafnvægi og
keyra ekki upp meiri hagvöxt en
þjóðarbúið þolir,“ segir Edda Rós.
Forstöðumaður Hagfræðistofnunar segir bjartara framundan en menn hafi þorað að vona
Er þjóðarbúið
að rétta úr
kútnum?
Hagfræðingar eru ekki
á einu máli um hvort
ótvíræðar vísbendingar
séu komnar fram um að
efnahagslífið sé að rétta
úr kútnum og jafnvægi
að komast á. Forstöðu-
maður Hagfræðistofn-
unar HÍ heldur því þó
fram að bjartara sé
framundan en menn
hafi þorað að vona fyrir
örfáum mánuðum.
Nokkrir viðmælendur
Ómars Friðrikssonar
telja að nú sé orðið tíma-
bært að taka ákvarðanir
um vaxtalækkanir.
Morgunblaðið/Ásdís
Verðmæti útfluttra sjávarafurða hefur aukist á árinu og hagvöxturinn
er nú drifinn áfram af útflutningi og fjárfestingu í stað einkaneyslu,
eins og áður var, að mati hagfræðings.
omfr@mbl.is
Búast við hag-
ræðingu og
uppsögnum í
haust
Þörf á frekari
vaxtalækkun
að verða mjög
brýn