Morgunblaðið - 01.08.2001, Side 12

Morgunblaðið - 01.08.2001, Side 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 12 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ FRUMDRÖG að breyttu deiliskipulagi vegna fyrirhug- aðs bílastæðahúss neðanjarð- ar við Suðurgötu í Reykjavík hafa verið lögð fram og á meðfylgjandi korti má sjá hvernig húsið lítur út sam- kvæmt deiliskipulagstillögu. Samkvæmt upplýsingum frá Borgarskipulagi felur breyt- ingartillagan í sér að bíla- geymsla verði reist neðan- jarðar undir Suðurgötu, lóðinni Suðurgötu 2 sem nú er bílastæðalóð og hluta lóðanna Suðurgötu 4, 6 og 8A, auk þess sem hluti bílageymsl- unnar nær undir Aðalstræti 16 og 18. Bílageymslan verð- ur öll neðanjarðar nema á hluta lóðarinnar Suðurgötu 2 þar sem gert verður ráð fyrir innkeyrslu og einnig er þar og á lóðinni Suðurgötu 8A gert ráð fyrir stigahúsi og lyftu sem tengist bílageymsl- unni. Í frétt Morgunblaðsins í gær kom fram að töluvert rask verður á nánasta um- hverfi þeirra sem búa á þeim hluta Suðurgötu sem fram- kvæmdirnar ná til. Að sögn Guðrúnar Holt, íbúa við Suð- urgötu 6, er ekki að sjá á teikningum af væntanlegu bílastæðahúsi að farið verði mjög hátt upp í garðana. Guð- rún bendir á að borgin verði að þróast og að nauðsynlegt sé að fylgjast með tímanum hvað þetta snertir. „Það er ekki gaman að sjá alla þessa bíla úti um allt og því alveg eins gott að þeir fái að vera einhvers staðar þar sem þeir sjást ekki. Mér finnst hug- myndin að mörgu leyti ekki vitlaus,“ segir Guðrún. Fyrirhugað bílastæðahús neðanjarðar í miðborg Reykjavíkur Mun ná undir hluta Suð- urgötu og Aðalstrætis Miðborg Hér sést hvar bílastæðahúsið verður staðsett verði af byggingu þess. Húsið verður á tveimur hæðum og 207 bíla- stæði eru ráðgerð í því. Einnig sjást hvar gömul tré standa við Suðurgötu 4, en þau þurfa að víkja meðan á fram- kvæmdum stendur og er óvíst hvort tekst að varðveita þau.                                                - . / 0 1 0            . 23 45 6     '  7  +67 FJÖGURRA vikna námskeiði sumarskóla Námsflokka Reykjavíkur lauk með áhrifa- miklum hætti í gær á rétt- nefndri þjóðhátíð í Austur- bæjarskóla, þar sem nemendur hvaðanæva að úr heiminum önnuðust skemmti- atriði og áttu eftirminnilega stund með kennurum sínum. Hátt á fjórða hundrað nem- endur frá 68 þjóðlöndum hafa stundað íslenskunám í sum- arskólanum í júlímánuði og fór fjölþjóðlegt yfirbragð skólaslitanna ekki fram hjá neinum. Gaf þarna að líta taí- lenska dansa, mat frá ýmsum heimshornum og litskrúðuga þjóðbúninga. Nemendur koma m.a. frá Jórdaníu, Pal- estínu, Danmörku, Banda- ríkjunum, Indlandi, Þýska- landi, Filippseyjum og víðar. Nemendur í morgunhópum sumarskólans hafa verið í ís- lenskutímum daglega frá 9– 12 allan júlímánuð og tekið miklum framförum að sögn kennara sinna. Einnig má geta þess að kennt var þrjú kvöld í viku en morgunhóp- arnir stóðu að lokahófinu í gær. Las bækur Einars Más og Guðbergs Kennarar í sumarskól- anum eru fimmtán og virðast hafa annast nemendur sína vel, enda fékk blaðamaður kunnáttu a.m.k. tveggja nem- enda staðfesta með spjalli við þá sem að sjálfsögðu fór fram fór á íslensku. Tobias Sûrn frá Þýskalandi upplýsti Morgunblaðið um að hann hefði skellt sér í ís- lenskunám m.a. vegna áhuga síns á norrænum tungu- málum og bókmenntum. „Ég las bækur frá Íslandi, m.a. eftir Einar Má Guðmundsson og Guðberg Bergsson og fannst þær spennandi af því að þær eru mjög frábrugðnar bókmenntum á meginland- inu,“ sagði Tobias. „Ég hugs- aði með mér að það væri virkilega fínt fyrir mig að læra íslensku. Málfræðin er mjög spennandi af því hún er bæði rökrétt og órökrétt. Hérna í Námsflokkunum lær- ir maður virkilega að tala ís- lensku, enda eru þetta ekki málfræðinámskeið, heldur lærir maður frekar grunn- atriðin í því að tala íslensku. Ég hugsa að það sé betra en að fara á háskólanámskeið af því að þar lærir maður mál- fræðina og ég hugsa að mað- ur læri ekki að tala á þeim.“ Tobias hefur verið hér á landi í fimm vikur og ætlar að verja næstu fjórum vikum í ferðalög um Ísland. „Síðan flýg ég heim til að leita mér að íbúð í Berlín,“ segir hann. „Ég ætla að koma aftur hing- að í vetur, kannski til að vinna.“ bætir hann við. Hausverkurinn horfinn Frá Costa Rica kemur stúlka að nafni Anna Paula, sem gift er íslenskum manni og hefur búið hérlendis í hálft annað ár. Hún sagðist hafa viljað læra íslensku, enda teldi hún það nauðsynlega forsendu þess að fá betur borgað en ella nú þegar hún væri á leiðinni út á vinnu- markaðinn. „Ég verð að læra íslensku og mér finnst bara gaman að því,“ segir hún. „Það er ekki svo erfitt. Ég tala bara íslensku heima og það gengur vel, enda hjálpar maðurinn minn mér. Beyg- ingar eru ekki til í spænsku en samt er ekki svo erfitt að læra þær. Það tekur bara tíma og maður verður að vera duglegur.“ Til gamans má geta þess að Anna Paula segist kunna bet- ur við sig í kuldanum hér á Ís- landi en í hitanum á Costa Rica. Hvernig stendur á því? „Það er mjög heitt á Costa Rica, eða 26–38 gráða hiti og ég var alltaf með hausverk. Eftir að ég kom hingað snar- batnaði mér og ég hef aldrei fengið hausverk. Þetta er bara betra.“ Meðal þess sem gert var sér til skemmtunar á skóla- slitunum var fjölþjóðlegur kór sem söng Vertu til á ís- lensku, rússnesku og jap- önsku og þá flutti fjallkonan kvæðið Ísland eftir Hannes Pétursson. Í hlutverki Fjall- konunnar var Melissa Munguia frá Honduras, sem var á II. stigi íslenskunámsins af alls fjórum námsstigum í sumarskólanum. Taílenskir þjóðdansar voru stignir undir tónlist og nokkur þjálfuð spor í magadansi sáust stigin í framhjáhlaupi. 340 nemendur frá 68 löndum á fjögurra vikna íslenskunámskeiði hjá sumarskóla Námsflokkanna Anna Paula er frá Costa Rica en hefur verið búsett hérlendis síðastliðna 18 mánuði og er gift íslensk- um manni. Tobias Stürn frá Þýska- landi hrífst af íslenskum nútímabókmenntum og hyggst koma hingað aft- ur í vetur. Skólaslit í fjölþjóðlegum andaReykjavík Morgunblaðið/Sigurður Jökull Skartklæddir nemendur sumarskólans og mælandi á ís- lenska tungu fyrir framan Austurbæjarskólann. Borgarráðsfulltrúar Sjálf- stæðisflokks sökuðu R-listann um „bókhaldsbrellur“ þegar borgarráðsfulltrúar R-listans lögðu fram bókun þar sem m.a. kom fram að skuldir borgar- sjóðs sem hlutfall af skatt- tekjum hefðu „stórlækkað frá 1994 eða úr 123,7% í 64,5% árið 2000“. Í bókun R-listans segir að ársreikningur borgarsjóðs fyrir árið 2000 sýni að rekstur málaflokka hafi farið lækkandi frá 1994 og rekstraráætlanir borgarinnar stæðust „nánast 100%“. Í bókun R-listans kom fram að fyrirtæki borgarinnar hefðu á undanförnum árum staðið í mikilli uppbyggingu. Mætti þar nefna virkjunarfram- kvæmdir Orkuveitu Reykja- víkur á Nesjavöllum. Nesja- vallavirkjun væri ekki ætlað að standa undir fjármagnskostn- aði borgarinnar í heild. Stæði virkjun undir fjármagnskostn- aði, öðrum en rekstrarkostnaði og ávöxtunarkröfu, þá væri hún arðsöm fjárfesting. Það ætti við um Nesjavallavirkjun, en arðsemisútreikningar fyrir raforkuframleiðslu á Nesja- völlum sýndu að virkjunin hefði rúmlega 10% innri arð- semi, og væri áætlaður endur- greiðslutími virkjunarinnar um 11 ár. Borgarráðsfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins óskuðu að bók- að yrði, að fulltrúar R-listans „forðuðust sem fyrr að fjalla um meginatriði fjármálastöðu Reykjavíkurborgar, sem er hrikaleg skuldasöfnun á þeirra valdatíma. Tilburðir fulltrúa R-listans til að fela þessar staðreyndir með því að fjalla eingöngu um fjármál borgar- sjóðs eru aumkunarverðar þegar til þess er litið að milli- færslur fjár til borgarsjóðs frá stofnunum og fyrirtækjum borgarinnar hafa leitt til þess að samanburður er ómögu- legur. Með slíkum bókhalds- brellum hafa margir milljarðar króna verið fluttir til og þannig hægt að sýna betri stöðu borg- arsjóðs. Fjárhagsstaða Reykjavíkurborgar hefur á hinn bóginn hríðversnað á valdatíma R-listans.“ Fulltrúar R-listans óskuðu bókað að það væri „ömurlegt hlutskipti fyrir fulltrúa Sjálf- stæðisflokks að hafa ekkert annað til málanna að leggja en að vera stöðugt með útúrsnún- inga varðandi fjármál borgar- innar“. Sagði ennfremur í bók- uninni að það vekti furðu að formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga [Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson] skyldi taka þátt í fyrrnefndri bókun sjálfstæð- ismanna. „Það eru skýr ákvæði um samanburðarhæfni ársreikninga allra sveitar- félaga á landinu og stendur Reykjavík afar vel í þeim sam- anburði. Lántökur fyrirtækja borgarinnar til framkvæmda og fjárfestinga á umliðnum ár- um eru fráleitt hættumerki, heldur þvert á móti til vitnis um framfarir og uppbyggingu á síðustu 7 árum.“ Í bókun Vilhjálms Þ. Vil- hjálmssonar borgarráðsfull- trúa sjálfstæðismanna kom fram að hann kannaðist ekki við útúrsnúninga í bókun sjálf- stæðismanna. „Það sem ég hef einkum gagnrýnt í fjármála- stjórn borgarinnar er sú stað- reynd að fluttir hafa verið fjár- munir úr sjóðum fyrirtækja borgarinnar í þeim tilgangi að fegra stöðu borgarsjóðs, sem þýðir aukningu skuldasöfnun- ar hjá viðkomandi fyrirtækum borgarinnar,“ sagði m.a. í bók- un Vilhjálms. Tekist á um fjármálastjórn borgarinnar Reykjavík BÚSTAÐASAFNI Borgar- bókasafnsins í Bústaðakirkju hefur verið lokað, en nú standa yfir flutningar safns- ins í Kringluna. Að sögn Dóru Thoroddsen, safnstjóra Bú- staðasafns, var áætlað að safnið yrði opnað að nýju 15. september í Kringlunni, en líklegt er að það dragist eitt- hvað. Dóra segir að heilmikið verði að gera hjá hinum 19 starfsmönnum safnsins við flutningana á næstunni en í leiðinni fari fram gagnataln- ing og ýmislegt þurfi að þjófa- verja. „Nýja húsnæðið í Kringlunni er um það bil tvö- falt stærra en það sem við höf- um haft hér í Bústaðakirkju, bókakostur safnsins mun ekki stækka við flutningana en væntanlega verður hann fjöl- breyttari og sýnilegri. Ég tel að helsti kosturinn við flutn- ingana sé að þá skapast aukið rými og þar af leiðandi bætt aðstaða fyrir lánþega og starfsfólk, en það hafa verið gríðarleg þrengsli hérna í Bú- staðasafni. Þá mun nýi bóka- bíllinn flytjast með okkur og hafa aðsetur í Kringlunni,“ segir Dóra. Ekki er ljóst hvort nýja safnið verður nefnt Kringlu- safn en að sögn Dóru tengja margir nafnið Kringla við kaupsýsluna þar og ekki búið að taka lokaákvörðun . Morgunblaðið/Billi Dóra Thoroddsen safnstjóri önnum kafin við að pakka nið- ur bókum vegna flutninga safnsins í Kringluna. Bústaðasafn flyst í Kringluna í haust Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.