Morgunblaðið - 01.08.2001, Page 14
AKUREYRI
14 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
TRÉVERK ehf. í Dalvíkurbyggð
átti lægsta tilboð í byggingu fjölnota
íþróttahúss á félagssvæði Þórs við
Skarðshlíð en tilboðin í alútboði voru
opnuð í gær. Lægsta tilboðið hljóðar
upp á 447,5 milljónir króna og er um
70 milljónum króna hærra en bæj-
arstjórn hafði samþykkt að leggja í
fyrirhugaða framkvæmd á þessu og
næstu tveimur árum. Í samþykkt
bæjarstjórnar er gert ráð fyrir óupp-
hituðu húsi með löglegum keppnis-
velli og samkvæmt útboðsgögnum
eru verklok áætluð þann 20. ágúst
2003.
Fjögur fyrirtæki sendu inn sam-
tals 8 tilboð en þar af sendu Tréverk
og Katla hf. í Dalvíkurbyggð þrjú til-
boð hvort fyrirtæki en hin tilboðin
komu frá Íslenskum aðalverktökum
hf. og Ístaki hf. Tilboðin eru mjög
mismunandi enda eru verktakarnir
að bjóða ýmsar gerðir húsa, einangr-
uð og óeinangruð, mismunandi
gervigrasvelli og fleira. Það er því
ekki hægt að horfa eingöngu á fjár-
hæðir tilboðanna.
Bókstafirnir
umreiknaðir í tölur
Áður en verðtilboðin voru opnuð
hafði sérstök matsnefnd gert mat á
teikningum og greinargerðum með
innsendum tilboðum og gefið þeim
einkunn. Við mat á tillögunum voru
eftirtalin atriði m.a. höfð til hliðsjón-
ar; útlit og ytra umhverfi, fyrir-
komulag og innra umhverfi, tenging
við Hamar félagsheimili Þórs, gæði
byggingar, tæknilausna og annars
sem áhrif getur haft á hagkvæmni og
öryggi í rekstri. Hlutur einstakra
matsþátta í heildareikunn er eftir-
farandi; útlit og aðlögum 20%, gerð
og gæði 20%, tenging við Hamar 5%,
rekstrarlegir þættir 10 og tilboðs-
fjárhæð 45%.
Hverri tillögu voru gefnar ein-
kunnir fyrir hvern af fjórum fyrstu
matsþáttunum með bókstöfunum A,
B, C eða D. Nú eftir að verðtilboð
hafa verið opnuð verða þessir bók-
stafir nú umreiknaðir í tölur. A sam-
svarar einkuninni 8,5–10, B er á
bilinu 7,0–8,5, C á bilinu 5,5–7,0 en D
er ófullnægjandi einkunn.
Íslenskir aðalverktakar buðu
rúmar 449 milljónir króna í verkið.
Tilboðinu fylgdu frávik varðandi
verktilhögun og komu þau til mis-
munandi mikillar hækkunar á tilboð-
inu. Lægsta tilboð Kötlu hljóðaði
upp á tæpar 486 milljónir króna, það
næsta upp á rúmar 490 milljónir
króna og það hæsta upp á um 547
milljónir króna.
Ístak sendi aðeins inn eina tölu og
hljóðaði hún upp á rúma 531 milljón
króna. Hin tvö tilboð Tréverks hljóð-
uðu upp á tæpar 490 milljónir króna
og tæpar 518 milljónir króna.
Tölurnar umtalsvert
hærri en leitað var eftir
Ásgeir Magnússon, bæjarfulltrúi,
formaður bæjarráðs, framkvæmda-
ráðs og verkefnisliðs þessa verkefn-
is, sagði mjög erfitt að ræða þessar
tölur. „Það er þó greinilegt að við er-
um að fá þarna tilboð í mun vandaðri
byggingu en við gerðum kröfu um.
Það skýrir þessar háu fjárhæðir að
hluta til og einnig hvernig staðan er
á byggingamarkaðnum. En við erum
að fá þarna umtalsvert hærri tölur
en við vorum að leita eftir.“ Ásgeir
sagði að einkunnir tilboðanna lægju
gróft fyrir en framundan væri að
fara yfir þau innan verkefnisliðs og
framkvæmdaráðs, áður en málið
kæmi svo fyrir bæjarráð og bæjar-
stjórn.
Björn Friðþjófsson, fram-
kvæmdastjóri Tréverks, sagðist
vona að ekki kæmi til þess að þessari
framkvæmd yrði slegið á frest.
Tréverk átti lægsta tilboð í byggingu fjölnota íþróttahúss á Akureyri
Tilboðið 70 milljónum króna
hærra en samþykkt var
Morgunblaðið/Kristján
Jónas V. Karlesson, verkfræðingur og fulltrúi í matsnefnd, les upp verð-
tilboð í byggingu fjölnota íþróttahússins en Magnús Garðarsson, tækni-
fræðingur hjá Fasteignum Akureyrar, ritar fundargerð.
8
7
+
9: ;5
<: =
+
>?
< +@9<
2
2
2
2
2
2
2
2
2
&
&
&
&
A
A
2
2
A
(
! "# $ !% &'"
"($&"%'&$ !" &)* %&$# &"($& +"#"($& +,%
"' ("&"&
$ !% -
-$ !%
%--
-.$ !%
%
-
-
+/$& #% 01"2 $ !%
!
7 5> 9 6
? 4
>7 3=B 6 ? < 4
(0
"&
FIMMTU og síðustu Sumar-
tónleikar í Akureyrarkirkju
verða haldnir sunnudaginn 5.
ágúst 2001 kl. 17 og verður
flytjandi að þessu sinni Ma-
nuela Wiesler flautuleikari.
Á efnisskrá tónleikanna
verða verk eftir: Akira Mimura,
Katherine Hoover, Charles
Koechlin, Sofia Gubadidulina,
Johann Sebastian Bach, Ernö
v. Dohnáni.
Manuela Wiesler er austur-
rísk, en fæddist í Brazilíu árið
1955. Hún ólst upp í Vín og bjó
síðan í áratug á Íslandi. Hún
var einnig nokkur ár í Svíþjóð
en hefur verið búsett í Vín frá
1988. Manuela lauk einleikara-
prófi frá Tónlistarháskólanum í
Vín 1971 og síðar naut hún leið-
sagnar Alain Marion, James
Galway og Auréle Nicolet. Hún
vann fyrstu verðlaun í Nor-
rænni Kammermúsíkkeppni í
Helsinki árið 1976. Manuela
hefur komið fram sem einleik-
ari víða um heim og á efnisskrá
hennar eru verk frá öllum tím-
um. Hún hefur hlotið viður-
kenningu fyrir flutning á sam-
tímatónlist og hafa mörg
tónskáld tileinkað henni verk
sín og þá sérstaklega íslensk
tónskáld. Manuela hefur gert
fjölmargar hljóðritanir fyrir
hljómplötur, geislaplötur (hjá
BIS útgáfunni), útvarp og sjón-
varp.
Hún var valin „Listamaður
ársins“, („Artist of the Year“)
árið 1991 í „Stämgaffeln“
keppninni um sígilda tónlist í
Svíþjóð fyrir upptökur sínar á
franskri tónlist fyrir einleiks-
flautu. Manuela lék síðast í Ak-
ureyrarkirkju á Sumartónleik-
um á Norðurlandi sumarið
1994.
Akureyrarkirkja
Síðustu
sumar-
tónleik-
arnir
VINKONURNAR Karen Eva
Bjarnadóttir og Theódóra Karls-
dóttir eru ekki háar í loftinu og
aðeins 9 ára gamlar en þær hafa
engu að síður opnað verslun við
heimili Karenar Evu við Sólvelli á
Akureyri. Verslunin sem fengið
hefur nafnið litla búðin, ber nafn
með rentu, því hún er í aðeins 1
fermetra kofa sem þær Karen
Eva og Theódóra smíðuðu sjálfar
úr timbri.
Vinkonurnar eru þess nokkuð
vissar að þetta sé minnsta verslun
bæjarins en hugmyndina að opnun
hennar fengu stöllurnar er þær
voru í búðarleik á Illugastöðum í
Fnjóskadal nýlega. „Við erum vin-
konur og förum allt saman.“ Að-
spurðar um nafnið á búðinni sagði
Karen Eva, „við bara föttuðum
upp á því allt í einu en það er
mjög erfitt að finna nafn á búðir.“
Hjóla eftir frönsku
kartöflunum
Í litlu búðinni fæst nammi,
barnakerra, skrúfur, popp, öngl-
ar, spúnar og margt fleira.
„Nammið er vinsælast en það var
strákur sem er alltaf að veiða sem
kom og keypti öngla og spúna.
Það er líka hægt að fá franskar
kartöflur en þá þurfum við að
hjóla niður í miðbæ til að kaupa
þær en svo seljum við þær hér á
lægra verði en við kaupum þær á.
Við erum nefnilega ekki bara að
reyna að græða, heldur líka að
hafa gaman að þessu,“ sögðu þær
vinkonurnar.
Karen Eva sagði að krakkar í
hverfinu gætu sótt um vinnu í
búðinni og t.d. væri frænka henn-
ar búin að fá þar vinnu á þriðju-
dögum. Þær eru báðar versl-
unarstjórar, því eins og Karen
Eva sagði, „þá er ekkert gaman
þegar er bara einn verslunarstjóri
sem ræður öllu.“
Reksturinn fór vel af stað því
strax og opnað var kl. 10 í gær-
morgun var þó nokkuð að gera.
Þá eru vinkonurnar með söfn-
unarbauk fyrir langveik börn í
versluninni og hefur söfnunin far-
ið ágætlega af stað. Vörurnar sem
til sölu eru kaupa Karen Eva og
Theódóra eða fá gefins hjá ná-
grönnum sínum.
Litla búðin verður opin næstu
daga en lokað verður um versl-
unarmannahelgina.
Vinkonur opnuðu minnstu verslunina á Akureyri
Smíðuðu
verslunar-
húsnæðið
sjálfar
Morgunblaðið/Kristján
Karen Eva og Theódóra ásamt viðskiptavinunum Baldvin og Lárusi Elí.
TÖLUVERÐUR hávaði er
þessa dagana við Amts-
bókasafnið á Akureyri en á
lóð safnins standa nú yfir
miklar framkvæmdir. Þar
er verið að vinna í grunni
væntanlegrar viðbyggingar
safnsins og m.a. verið að
sprengja klöpp í grunninum
með tilheyrandi hávaða.
Byrjað var að bora að
sprengja í grunninum í síð-
ustu viku og er stefnt að
því að ljúka þeirri vinnu í
næstu viku. Vegna nálægð-
ar við önnur hús þarf að
fara mjög varlega með
sprengiefnið og skjálfta-
mæla hverja sprengingu.
Einn íbúi við Brekkugötu
hefur þó kvartað yfir því að
sprungur hafi myndast í
húsinu sínu við sprenging-
arnar. Það eru Iðufell ehf. á
Raufarhöfn og Möl og
sandur hf. á Akureyri sem
eru að vinna við jarðvegs-
framkvæmdirnar en aðal-
verktaki er SS Byggir.
Um er að ræða framkvæmdir við
langþráða nýbyggingu safnsins,
breytingar á eldra húsnæði og frá-
gang á lóð. Fimm tilboð og tvö frá-
vikstilboð bárust í verkið í vor og
voru þau öll yfir kostnaðaráætlun.
Samið var við lægstbjóðanda, SS
Byggir, sem bauðst til að vinna
verkið fyrir rúmar 317 milljónir,
sem er tæplega 5% yfir kostnaðar-
áætlun.
Eins og komið hefur fram hafa
Akureyringar beðið lengi eftir því
að byggt yrði við Amtsbókasafnið.
Bæjarstjórn samþykkti á 125 ára
afmæli Akureyrarbæjar í ágúst
1987 að gefa íbúunum slíka bygg-
ingu í afmælisgjöf. Efnt var til
samkeppni um bygginguna en frá
þeim tíma hefur lítið þokast þar til
á þessu ári. Heildarstærð viðbygg-
ingarinnar er 1.442 fermetrar en
eldri byggingin er 1.144 fermetrar.
Verktími er 2001–2004.
Borað og sprengt
við Amtsbókasafnið
Vilhjálmur Konráðsson, starfsmaður
Iðufells, borar fyrir sprengiefni í grunni
viðbyggingar Amtsbókasafnsins.
Morgunblaðið/Kristján
Súrefnisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi