Morgunblaðið - 01.08.2001, Qupperneq 18
VIÐSKIPTI
18 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Í JÚNÍMÁNUÐI voru fluttar út
vörur fyrir 15,3 milljarða króna og inn
fyrir 16,5 milljarða króna fob. Vöru-
skiptin í júní voru því óhagstæð um
1,2 milljarða en í júní í fyrra voru þau
óhagstæð um 2,2 milljarða á föstu
gengi.
Fyrstu sex mánuði ársins voru
fluttar út vörur fyrir 90,9 milljarða
króna en inn fyrir 100,7 milljarða
króna fob. Halli var því á vöruskipt-
unum við útlönd sem nam 9,8 millj-
örðum króna en á sama tíma árið áður
voru þau óhagstæð um 20,3 milljarða
á föstu gengi. Fyrstu sex mánuði árs-
ins var vöruskiptajöfnuðurinn því
10,5 milljörðum króna skárri en á
sama tíma í fyrra, að því er fram kem-
ur í frétt frá Hagstofu Íslands.
Gengi krónunnar hækkaði um
0,48%, úr 137,05 stigum í 136,39, í gær
í þriggja milljarða viðskiptum. Upp-
hafsgildi vísitölu krónunnar í júlímán-
uði var 139,90 og hækkaði gengi krón-
unnar því um 2,57% í júlí og er það
mesta hækkun hennar innan mánað-
ar til þessa, samkvæmt upplýsingum
frá millibankaborði Íslandsbanka.
Sala erlendra verðbréfa umfram
kaup nam 342 milljónum króna í júní
en til samanburðar námu nettókaup á
erlendum verðbréfum í júnímánuði í
fyrra um 3,4 milljörðum króna, sam-
kvæmt samantekt Seðlabanka Ís-
lands. Í morgunpunktum Kaupþings í
gær kemur fram að neikvæð við-
skiptastaða með erlend verðbréf hafi
verið fágæt undanfarin misseri, síðast
seldu landsmenn meira af erlendum
bréfum en sem nam kaupum í desem-
ber sl. Þar áður þarf að fara aftur til
nóvember 1996 til þess að sjá nei-
kvæða stöðu erlendra verðbréfavið-
skipta, að því er fram kemur í morg-
unpunktum.
!" #$
&
D2)E
!"
# # =
>) 1
&
$ # ;! ,+# %(9 "&
D2)E
% # ! # & #
#'( ?%"&
@"&
)*!
*+ ?% $ 2 $:
$ )-'# %(9 "$ )
"% $ 2 + '%&+ )%&
,
# ,*-
7 ! ) "&
7 % "(&$!$!! ! ,-# %( ;! ,
7 %(9 "&
.
* #'( /#'((0(!!
! # !
:I 63
:I 63
24
?
>7
J
""#$
- -
"
$
-
-
-
-
-
-
%
$
"#$
-
#"$
-
-
-
%
"$
A A %$&
-
A
A-
A
A
- '()*+,-.
/
-0'.1
5
>
6>
: I 63
D2) / !
%
E
9,8 milljarða króna
halli á vöruskiptum ÍSLANDSSÍMI, Nýherji og Lands-bankinn-framtak hafa undirritað
samning um kaup Íslandssíma á
hlutabréfum Nýherja og Lands-
bankans-framtaks í Fjarskiptafélag-
inu Títan. Íslandssími eignast þann-
ig 34,9% hlut Nýherja í félaginu og
greiðir fyrir með hlutabréfum í Ís-
landssíma að nafnverði 23 milljónir
króna. Einnig kaupir Íslandssími
4,1% hlut Landsbankans-framtaks í
Títan og greiðir fyrir með hlutabréf-
um í Íslandssíma að nafnverði 2,7
milljónir króna. Íslandssími átti fyrir
kaupin 57% hlutafjár í Títan. Verður
tillaga stjórnar félagsins um hluta-
fjáraukningu vegna þessa lögð fyrir
næsta hluthafafund Íslandssíma.
Öllum starfsmönnum Títans hefur
verið sagt upp störfum en samanlagt
starfa um 160 manns hjá Íslands-
síma og dótturfélögum. Vegna sam-
runans fækkar stöðugildum hjá
félaginu um 20.
Síðustu viðskipti með Íslandssíma
á Verðbréfaþingi Íslands voru á
genginu 4,30 en í útboði til almenn-
ings var sölugengið 8,75.
Í fréttatilkynningu frá Íslands-
síma kemur fram að markmiðið með
kaupunum sé að sameina rekstur
Títans og Íslandssíma og ná þannig
fram aukinn hagræðingu í þeirri
starfsemi sem Títan hefur haft með
höndum.
Þessar breytingar tengjast frek-
ari breytingum á uppbyggingu Ís-
landssíma en samhliða sameiningu
við Títan mun starfsemi Íslandssíma
GSM verða sameinuð móðurfélag-
inu.
Pétur Pétursson, upplýsinga-
fulltrúi Íslandssíma, segir að haldinn
hafi verið starfsmannafundur með
starfsmönnum Títans þar sem þeim
var greint frá breytingunum og að-
spurður hversu margir starfsmenn
Títans verði ráðnir til Íslandssíma
segir Pétur að ekki sé hægt að segja
til um það að svo stöddu.
Títan sameinað
Íslandssíma hf.
ÍSLENSK miðlun ehf. lagði í gær
fram beiðni um gjaldþrotaskipti. Eins
og fram kom í Morgunblaðinu í gær
skuldar félagið á fjórða hundrað millj-
ónir króna en á litlar eignir.
Að sögn Óla Rúnars Ástþórssonar,
stjórnarmanns í Íslenskri miðlun og
framkvæmdastjóra Kaupfélags Ár-
nesinga, tók stjórn Íslenskrar miðl-
unar þá ákvörðun á mánudag að fara
með félagið í þrot enda hefðu aðrar
leiðir ekki verið færar.
Morgunblaðið sagði frá því í gær að
tap Aco-Tæknivals af Íslenskri miðl-
un væri yfir 100 milljónir króna vegna
sölu á búnaði, þjónustu og hlutdeildar
í félaginu. Óli Rúnar segir tap Kaup-
félags Árnesinga af Íslenskri miðlun
nema um 10 milljónum króna en eign-
arhlutur KÁ er u.þ.b. 10%.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er eignarhlutur Aco-Tækni-
vals í Íslenskri miðlun rétt innan við
20% og Sparisjóður Hafnarfjarðar á
svipaðan hlut. Hlutur KÁ er, eins og
áður segir, um 10%. Þá á Isoport, sem
er í eigu Hafliða Þórssonar, einnig um
10% hlut. Ekki er ljóst hvert tap
Sparisjóðsins né Isoport verður af
viðskiptum og eignaraðild að félaginu.
Þór Gunnarsson, sparisjóðsstjóri
Sparisjóðs Hafnarfjarðar, sagðist
ekkert geta tjáð sig um málefni Ís-
lenskrar miðlunar að svo stöddu og
þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist
ekki í Hafliða Þórsson í gær.
Íslensk miðlun fer fram
á gjaldþrotaskipti