Morgunblaðið - 01.08.2001, Page 20
ERLENT
20 MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FORSETI Taívans, Chen Shui-bian,
heimsótti í gær þorp sem urðu fyrir
barðinu á fellibylnum Toraji, sem
kostað hefur a.m.k. 61 mannslíf. Íbú-
ar grófu í gær harmi slegnir eftir
ættingjum og vinum sem óttast er að
hafi grafist í sandleðju. Fastlega er
búist við að tala látinna muni hækka,
því 152 var í gær enn saknað.
Chen lofaði því að hjálp myndi
berast án tafar til þess að hægt yrði
að endurreisa híbýli sem eyðilögðust
í einhverjum verstu aurskriðum og
regni sem komið hafa á þessum slóð-
um í hálfa öld. Einna verst varð úti
sýslan Hualien á austurhluta eyjar-
innar, þar sem veðrið kom að landi
aðfaranótt mánudags. Vindhraði þar
varð um 42 metrar á sekúndu, og í
þorpinu Fenglin nam úrkoma 547
millimetrum á 41 klukkustund.
Hundruð heimila eyðilögðust í
veðrinu, og tæplega 12 þúsund hekt-
arar ræktarlands eru ónýtir. Telur
landbúnaðarráð Taívans að tjón
nemi sem svarar um fjórum millj-
örðum króna.
Sumir féllu á kné og báðu um hjálp
þegar forsetinn fór um þorp og
kannaði skemmdir. Í för með honum
voru forsætisráðherrann, efnahags-
málaráðherrann og aðrir embættis-
menn. „Stjórnvöld munu gera hvað
þau geta til að hjálpa,“ sagði forset-
inn. „Kvalir ykkar eru okkar kvalir,
þrautir ykkar eru okkar þrautir.“
Í gærmorgun var veðrið gengið yf-
ir Taívan og inn á meginland Kína.
Ekki höfðu borist fregnir af
skemmdum eða manntjóni þar, og
mun hafa verið dregið úr styrk veð-
ursins. Taldist Toraji þá hafa styrk
hitabeltisstorms.
Reuters
Íbúi í Hualien-sýslu skoðar rústir heimilis síns í gær, eftir að fellibylurinn var genginn yfir.
Yfir sextíu manns fórust
Forseti Taívans heitir fórnarlömbum fellibylsins hjálp
Hualien, Kuang Fu á Taívan. AFP, AP.
,**" *
<<
4>
5
3 3
ALEJANDRO Toledo er fyrsti
maðurinn af indjánaættum sem
gegnir æðsta embætti Perú frá því
að Spánverjar veltu
síðasta Inkakeisaran-
um af stóli árið 1532.
Toledo, sem tók við
embættinu um síð-
ustu helgi, hefur lýst
sjálfum sér sem „töl-
fræðilegu undri.“ Pe-
rúbúi af indjánaætt-
um sem nær að rífa
sig upp úr sárri fá-
tækt, brjótast til
mennta og ná kjöri
sem forseti landsins
er sjaldgæf sjón í
landi sem stjórnað hefur verið af
evrópskættuðum minnihluta í
aldaraðir.
Toledo fæddist í Chimbote, litlu
sjávarþorpi, einn sextán systkina.
Faðir hans var múrari og móðir
hans seldi fisk á þorpsmarkaðin-
um, en sjálfur pússaði hann skó.
Þegar hann var sextán ára fékk
hann styrk til eins árs náms við há-
skólann í San Fransisco í Banda-
ríkjunum. Hann hélt náminu
áfram á fótboltastyrk og með því
að vinna á bensínstöð. Hann hefur
tvær mastersgráður auk doktors-
gráðu frá Stanford-háskóla, en þar
hitti hann núverandi eiginkonu
sína, Elaine Karp, bandarískan
mannfræðing af belgískum ættum.
Toledo vann um skeið hjá Al-
þjóðabankanum en gegndi síðar
embætti atvinnumálaráðherra í
stjórn Fernandos Belaúnde sem
var forsætisráðherra á árunum
1980 til 1985.
Toledo bauð sig fyrst fram til
embættis forseta í fyrra, en þá átt-
ist hann við Alberto Fujimori, sem
gegnt hafði forsetaembættinu
stærstan hluta tíunda áratugarins.
Toledo dró framboð sitt síðar til
baka og sakaði ríkisstjórnina um
víðtæk kosningasvik. Nokkrum
mánuðum síðar sagði Fujimori af
sér og flúði til Japans í kjölfar
ásakana um spillingu.
Kosningabaráttan í vor, þegar
Toledo atti kappi við Alan Garcia,
einkenndist af mikilli hörku og
persónulegum árásum. Fjölmiðlar
fjölluðu um meint framhjáhald
Toledos og að hann ætti barn utan
hjónabands. Einnig
komust á kreik sögur
um eiturlyfjaneyslu
frambjóðandans. To-
ledo hefur staðfast-
lega neitað öllum
ásökunum, en hefur
gengið illa að sann-
færa almenning um
sakleysi sitt. Þrátt
fyrir þetta er Toledo
vinsæll meðal Perú-
búa af indjánaættum,
en 80% landsmanna
eru meira eða minna
af slíkum uppruna. Hann lagði
mikla áherslu á ætterni sitt í kosn-
ingabaráttunni og þykir eiga auð-
velt með að ná til almennings.
Kosningamál Toledos höfðuðu
einnig til kjósenda og slagorð hans
„kennum fólki að veiða fisk í stað
þess að gefa því fisk“ vann margan
stuðningsmanninn. Áhersla hans á
að bæta menntakerfi landsins fann
góðan hljómgrunn meðal ungs
fólks.
Mikil gleði hefur einkennt emb-
ættistöku Toledos og er ljóst að
miklar vonir eru bundnar við að
hann geti snúið Perú af braut spill-
ingar, mismununar, fátæktar og
efnahagserfiðleika. Fjöldi þeirra
sem býr undir skilgreindum fá-
tæktarmörkum í Perú hefur aukist
um 20% á síðustu þremur árum.
Tæplega 13 milljónir íbúa Perú
þurfa að draga fram lífið á um 100
krónum á dag. Sjálfur hefur for-
setinn boðað að fylgt verði „mark-
aðsbúskap með mannlegri ásjónu.“
Gagnrýnendur Toledos í báðum
forsetakosningunum sögðu hann
hegða sér eins og trúð þegar hann
hélt kosningafundi í þorpum And-
esfjalla, íklæddur hefðbundnum
indjánaklæðum og sögðu hann
tækifærissinna af verstu tegund.
Sögðu þeir einnig að áhersla hans
á þjóðerni sitt væri slæmt for-
dæmi, en hann sagði margoft í bar-
áttunni við Fujimori að kosning-
arnar snerust um húðlit en
Fujimori er af japönsku foreldri.
„Tölfræði-
legt undur“
Lima. AFP.
Alejandro Toledo
Alejandro Toledo orðinn forseti Perú
KIM Jong-Il, leiðtogi N-Kóreu,
kom í gær til borgarinnar Omsk í
Síberíu, sem er fyrsti staðurinn þar
sem hann hefur alllanga viðdvöl á
lestarferð sinni til Moskvu. Frá
brautarstöðinni fór Kim rakleitt í
leikhús þar sem hann var við-
staddur sýningu áhugamanna og
hlýddi á leik herhljómsveitar. Í dag
mun hann heimsækja skrið-
drekaverksmiðju og svínabú.
Fréttamenn hafa mjög takmark-
aða möguleika á að komast í tæri
við Kim, og ekki var talið að hann
myndi gefa neinar yfirlýsingar í
Omsk. Fyrr í gær nam lest Kims
staðar í Novosibrisk, en leiðtoginn
kom ekki út. Rússneskir fjölmiðlar
höfðu greint frá því að Kim myndi í
Novosibrisk hitta ekkju Jakovs No-
vitsjenkós, sovésks embættismanns
sem mun einu sinni hafa bjargað
lífi föður Kims, leiðtogans Kims Il-
Sungs. Ekkjan beið Kims á braut-
arpallinum í gær, en í stað þess að
koma og hitta hana sendi Kim full-
trúa sinn sem færði ekkjunni gjafir
og þau skilaboð að Kim myndi hitta
hana á bakaleiðinni frá Moskvu.
Áætlað er að Norður-Kór-
euleiðtoginn komi til Moskvu á
laugardag og hitti þar m.a. Vla-
dimír Pútín Rússlandsforseta.
Kim
í Omsk
AP
Við komuna til Omsk fór Kim rakleiðis inn í bíl sem flutti hann í leikhús.