Morgunblaðið - 01.08.2001, Side 21
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 2001 21
STRÍÐSGLÆPADÓMSTÓLLINN
í Haag dæmdi í gær fyrrverandi
foringja í lögreglu Bosníu-Serba,
Stevan Todoro-
vic, til tíu ára
fangelsisvistar
fyrir glæpi gegn
mannkyninu.
Dómurinn yfir
Todorovic var
mildaður þar sem
hann hann lýsti
sig sekan af
ákæruatriðunum
auk þess sem hann bar vitni gegn
öðrum sakborningum sem hafa ver-
ið ákærðir fyrir stríðsglæpi.
Samkvæmt dómnum gerðist Tod-
orovic sekur um að misnota emb-
ætti sitt sem lögreglustjóri í Bos-
anski Samac í norðurhluta Bosníu
en því embætti gegndi hann árið
1992. Kvað dómarinn hann hafa
tekið þátt í athæfi sem hann hefði
átt að „koma í veg fyrir eða refsa
fyrir“.
Í málsvörn í desember sl. lýsti
lögreglustjórinn fyrrverandi sig
sekan um „þjóðhreinsanir“, sem
skilgreindar eru sem ofsóknir gegn
fólki vegna pólitískra skoðana þess,
kynþáttar eða trúar. Í kjölfarið dró
ákæruvaldið til baka 26 kærur gegn
honum fyrir morð, pyndingar og
kynferðislega misnotkun.
Í dómsúrskurðinum kom fram að
hefði Todorovic ekki lýst sig sekan
og sýnt iðrun hefði hann hlotið mun
þyngri dóm en við yfirheyrslur fyrir
um þremur mánuðum bað hann um
tækifæri til að græða þau sár sem
myndast hafa í stríði þjóðarbrot-
anna í heimalandi hans. Todorovic
bar einnig vitni gegn fjórum sak-
borningum sem dregnir voru fyrir
dómstólinn fyrir sömu ákæruatriði
og hann. Dómstóllinn taldi að
„magn og gæði“ þeirra upplýsinga
sem Todorovic veitti hefðu verið
nægileg forsenda til þess að milda
dóminn yfir honum. Todorovic sam-
þykkti enn fremur að falla frá ásök-
unum um að herlið Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) hefði
handtekið hann með ólögmætum
hætti í september 1998.
Todorovic er þriðji einstakling-
urinn, grunaður um stríðsglæpi,
sem lýsir sig sekan frá því að stríðs-
glæpadómstólnum var komið á fót
árið 1993.
Af 17.000 Króötum og múslimum
sem bjuggu í Bosanski Samac áður
en stríðið hófst voru 300 eftir er
stríðinu lauk árið 1995.
Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna í Haag fellir dóm í máli serbnesks lögregluforingja
Hlaut tíu ára fangelsi
fyrir stríðsglæpi
Haag. AP.
Todorovic.
Í SÍÐASTA mánuði varð mikil
röskun á starfsemi vefþjóna víða
um heim vegna tölvuorms sem
kallast Code Red. Ormurinn
varð til þess að mörg vefsetur
lentu í erfiðleikum vegna álags
og margar vefsíður spilltust, þar
á meðal hér á landi. Nú óttast
margir að annað eins verði upp á
teningnum í dag, en ormurinn er
virkur frá hádegi á fyrsta degi
hvers mánaðar.
Hinn svonefndi Code Red-
ormur, sem einnig kallast Bady,
leggst á tölvur sem keyra Wind-
ows 2000 og netþjón Microsoft,
Internet Information Server
(IIS), gerðir 4.0 and 5.0, sé
kveikt á svonefndri Indexing
Service, en ormurinn notfærir
sér galla í þeirri þjónustu. Gall-
inn kom í ljós í júní síðastliðnum
og nokkuð er um liðið síðan
Microsoft dreifði hugbúnaðar-
viðbót sem kemur í veg fyrir
þennan öryggisleka, aukinheld-
ur sem vírusvarnaframleið-
endur hafa almennt bætt vörn
við orminum við vörur sínar.
Bady/Code Red-ormurinn er
aðeins virkur frá 1. degi hvers
mánaðar til þess 27. þegar hann
hættir að dreifa sér en hans varð
fyrst vart 19. júlí þegar hann
smitaði um 350.000 tölvur á ein-
um degi, þar á meðal leitarsíðu
Leit.is hér á landi og síður Hvíta
hússins. Að því er fram kemur í
fréttabréfi Kaspersky-vírus-
varnafyrirtækisins er aftur á
móti ekki ástæða til að óttast að
hann geri vart við sig að nýju 1.
ágúst næstkomandi, svo framar-
lega sem þær tölvur sem sýkt-
ust í júlí eru með réttri dagsetn-
ingu og ormurinn í þeim hefur
því orðið óvirkur sl. föstudag.
Á fréttavef CNet.com kemur
aftur á móti fram að talið er að
um 2.000 sýktar tölvur séu með
ranga dagsetningu og þar er
einnig bent á að þótt ormurinn
leggist í dvala geti tölvuþrjótur
sent hann af stað aftur eftir kl.
12 á hádegi í dag.
Þrátt fyrir það telur Eugene
Kaspersky, yfirmaður veiru-
rannsókna Kaspersky Labs,
ólíklegt að annað eins ormafár
fari af stað aftur og ef eitthvað
verði um smit verði það auðveld-
ara við að eiga. Hann leggur
einnig áherslu á að ormurinn
leggist aðeins á tölvur sem séu
með netþjón Microsoft upp sett-
an og því séu einkatölvunotend-
ur og þeir sem nota hugbúnað
frá öðrum framleiðendum í lítilli
hættu en fjórðungur netþjóna
notar IIS frá Microsoft en um
60% hugbúnað sem heitir
Apache.
Samkvæmt upplýsingum frá
Microsoft voru 6 milljón tölvur í
smithættu þegar ormsins varð
vart en viðbótin til að koma í veg
fyrir smit hefur verið sótt
400.000 sinnum á vefsetur fyr-
irtækisins.
Óttast að
ormur
snúi aftur